Lífið 1-11 des 2004 | Lífið 12-18 des 2004 | Lífið 19-31 des 2004

>>>>>>>>>>> Lífið 1-11 des 2004

 

Til forsíðu
Til baka
Oddur
Unnur
T.B.S.
Íslandsbanki og börnin
SR-Byggingavörur
Jólatré á torginu
Lion og börnin
Framfarafélag




Ljósmyndasafn Steingríms
á netinu.

Steingrímur Kristinsson Siglufirði
G-892-1569
S-467-1569

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

   Siglfirski fréttavefurinn  Lífið á Sigló-

Jólakveðjur til vina og vandamanna.  Nú fyrir jólin gefst ÖLLUM sem það vilja, tækifæri til að koma jólakveðju með mynd og stuttum texta hér á Lífið á Sigló. Viðkomandi sendir mér á Netfangið mitt einfaldan texta og mynd, og ég birti það síðan á sérstakri síðu. Allt án endurgjalds. Ljósmynd gæti verið fjölskyldumynd eða einhver falleg sem einhver úr fjölskyldunni hefur tekið. ****    **Komnar jólakveðjur**

Kaupmenn og þjónustuaðilar á Siglufirði: Munið ókeypis kynningu á vörum ykkar og þjónustu; skoðið hér -- Og aðrir sem vilja vita hvað fyrirtækin hafa upp á að bjóða smelli þar einnig.

Laugardagur 11. desember 2004 Tennis og badmintonfélag Siglufjarðar hélt upp á 40 ára afmæli sitt í íþróttahúsinu í dag. Í leiðinni heiðruðu félagar þess formanninn Jóhannes Egilsson sem hefur verið formaður frá stofnum félagsins öll 40 árin, ávalt endurkjörinn einróma. Einnig var María Jóhannsdóttir heiðruð fyrr langt og dyggilegt starf í þágu yngri kynslóðarinnar, þjálfun- og aðra starfsemi fyrir félagið. Þá var einnig dyggum stuðningsaðilum þakkaður stuðningur á undanförnum árum og fulltrúum tveggja fyrirtækja, sem mættir voru, afhentur þakklætisvottur. 

Laugardagur 11. desember 2004  Unnur Möller varð 85 ára í gær, en hélt upp á afmæli sitt að Skálahlíð í dag . Ég leit þar snöggvast inn, heilsaði upp á afmælisbarnið og tók nokkrar myndir. Stöðugur straumur fólks var á leið til hennar er ég yfirgaf staðinn eftir stutta dvöl.

Laugardagur 11. desember 2004  Oddur Guðmundur Jóhannsson hélt upp á afmæli sitt í dag á Sambýlinu við Lindargötu, en Oddur verður 50 ára 15. desember næstkomandi. Það var fjölmennt í heimsókn hjá honum, ég staldraði þar stutt við yfir kaffisopa og góðgæti, Það var stöðugur straumur fólks gamlir vinir og kunningjar. Ég tók nokkrar myndir myndir áður en ég yfirgaf staðinn.

Laugardagur 11. desember 2004
Veðrið í hádeginu:
Hitastig  3 °C
Sunnan gola
Úrkomulaust
Efst á síðu

Laugardagur 11. desember 2004 Aðsent:
Lionsmenn hafa tekið að sér að tengja og sinna krossum á leiðum í Kirkjugörðum Siglufjarðar hér eru þeir að tengja krossana í gamla kirkjugarðinum í gærkveldi.  J.H.

Laugardagur 11. desember 2004

 Jólakveðja til Siglfirðinga

Efst á síðu
Laugardagur 11. desember 2004 

           70 ára gömul auglýsing um jólasamkomur á Siglufirði.

Úr safni Þórs Jóhannssonar.                                          Efst á síðu

Laugardagur 11. desember 2004  "Loðnufréttir" Úr blaðinu Fiskifréttir sem út kom í gær: "Ekki náðist viðunnandi mæling á loðnu í haustleiðangri. --  Höfum ekkert til að byggja tillögur á, ---  en ég sé heldur engar forsendur fyrir því að 2002 árgangurinn hafi misfarist, segir Hjálmar Vilhjálmsson fiskifræðingur. Engra tillaga um veiðimagn er að vænta fyrr en í janúar nk"

Laugardagur 11. desember 2004  Fréttablaðið. Þó að Fréttablaðinu sé dreift ókeypis, og allir geta lesið sem vilja, þá er ekki víst að allir hafi tekið eftir og lesið meðfylgjandi frétt úr fylgiriti Fréttablaðsins "ALT" þann 9. des. Þess vegna birti ég hana hér, og vona að Fréttablaðið skammi mig ekki fyrir það. Að auki er hér önnur mynd sem sýnir hús Fréttablaðsins með skreytingu frá SR-Vélaverkstæði.

Laugardagur 11. desember 2004  Ein gömul:
Matthías Jóhannsson og Björn Friðbjarnarson

Ljósmynd: Einar Hermannsson

Efst á síðu
Laugardagur 11. desember 2004
Anna Karlsdóttir
er 68 ára í dag
 

Föstudagur 10. desember 2004 Íslandsbanki og börnin. Krakkar frá Leikskálum heimsóttu  Íslandsbanka í morgun, þar komust þau í kynni við jólasveininn, fullt af namm og söng.
Smelltu á myndina og skoðaðu fleiri

Efst á síðu

Föstudagur 10. desember 2004 SR-Byggingavörur,- þangað fór ég í morgun í tvöfalt morgunkaffi með tertum og fíneríi, í tilefni af afmæli verslunarinnar og Óskars Berg Elefsen verkstjóra hjá SR-Vélaverkstæði. Á myndinni er Guðmundi Ó Einarsson verslunarstjóri, Helga Óladóttir lagerstjóri og Hermann Einarsson innkaupastjóri. Ég smellti á nokkrum myndum í kaffistofunni, sem þú sérð ef þú smellir á myndina.

Föstudagur 10. desember 2004 -- Í Siglufjarðar Apóteki eru í boði ..........

Vörukynning...............

 Efst á síðu
Föstudagur 10. desember 2004
Veðrið í hádeginu:
Hitastig  0 °C
Logn
Úrkomulaust
Efst á síðu
Föstudagur 10. desember 2004 Ein gömul:
Þessi mynd var tekin í júnímánuði 1964
Föstudagur 10. desember 2004
Guðrún Hauksdóttir
er 32ja ára í dag
 
Föstudagur 10. desember 2004
SR-Byggingavörur
er 1 árs í dag.
Öllum er boðið upp á kaffi og
meðlæti- með fleiru.
 
Föstudagur 10. desember 2004
Sigríður Pálsdóttir
er 64 ára í dag
Föstudagur 10. desember 2004
Agnar Þór Sveinsson
er 28 ára í dag
Föstudagur 10. desember 2004
Jóhanna Þorsteinsdóttir
er 63ja ára í dag
Föstudagur 10. desember 2004
Unnur Helga Möller
er 85 ára í dag
Föstudagur 10. desember 2004
Óskar Berg Elefsen
er 48 ára í dag

Efst á síðu

Fimmtudagur 9. desember 2004 Kominn heim frá Kabúl. Friðrik Már Jónsson, sem verið hefur með friðargæsluliði Sameinuðu þjóðanna í Kabúl í Afganistan kom á heimaslóðir í gærkveldi, til að sækja móðir sína, sem býr ein á Sigló, en ætlar að dvelja fyrir "sunnan" hjá börnum og barnabörnum um jóladagana. Ég leit við hjá Frigga og rabbaði við hann smá stund um veru hans þarna á meðal múslimanna, sem hann fullyrðir að séu allt ágætis fólk, það sé varla 5 % þjóðarinnar sem sé andvígt veru þeirra þarna og ör fáir sem sýna andúð eða hafa sig í frammi með yfirgang. Aðspurður um fjölmiðlafárið og þingumræður, sagðist hann hafa lítið um það að segja, nema að teppakaupin hafi jú verið slæm mistök yfirmanns, hins vegar virtust þeir sem hæst hafa látið í sér heyra hér heima, ekki þekkja hinn raunverulega bakgrunn, né staðreyndir málsins. Á myndinni er Friðrik Már, dóttir hans Margét Marsibil og móðir hans Guðbjörg Friðriksdóttir, en þau fóru suður nú um hádegisbilið í dag.               Efst á síðu

Fimmtudagur 9. desember 2004
Veðrið í hádeginu:
Hitastig  4 °C
Sunnan 4 -6 m/s
Úrkomulaust
Efst á síðu
Fimmtudagur 9. desember 2004 

  Jólakveðja til Siglfirðinga frá Svíþjóð

Fimmtudagur 9. desember 2004  Að gefnu tilefni. Í fyrra dag, fyrrakvöld og í gær fékk ég á annan tug töluskeyta, sem öll áttu það sameiginlegt að fjallað var um óhöpp þriðjudagsins, það er rafmagnsbilun og bilun á sendi Stöðvar 2. Ég var spurður um orsakir og kvenær vænta mætti að viðgerðum verði lokið og svo framvegis. Að þessu gefna tilefni, þá vil ég beina til, það er bjóða þeim aðilum sem sjá um viðgerðir vegna óhappa sem ofar nefndum og öðrum sem varða almenning, það væri ekki aðeins góð þjónusta við almenning, ef upplýsingum um gang mála væri komið til mín á Lífið á Sigló, hringið í mig drengir,  og ég mun setja á síðuna samstundis,-  og þangað gæti fólk leitað, frekar en að eyða dýrmætum tíma ykkar viðgerða og þjónustumanna í að svara óþörfum og tefjandi símtölum. Með vinsemd SK

Fimmtudagur 9. desember 2004 

Jólakveðja til Siglufjarðar.

Efst á síðu
 

Fimmtudagur 9. desember 2004 Tvær gamlar:
Ólafur Jóhannsson við kryddblöndun á Söltunarstöð Skafta Stefánssonar,  Nöf. - Sonur hans Björn, var einnig að vinna hjá Skafta þennan dag, 23. júlí 1964
(sá þriðji er mér ókunnur) 
Efst á síðu       

Fimmtudagur 9. desember 2004
Margrét Ósk Harðardóttir
er 43ja ára í dag
Fimmtudagur 9. desember 2004




Efst á síðu

Miðvikudagur 8. desember 2004  Fréttatilkynning:  Tunnan dagskrár og auglýsingablaðið sem kemur vanalega út á miðjum miðvikudegi, seinkar að þessu sinn vegna bilunar í prentvél. Varahlutir eru á leiðinni. Siglfirðingar og Fljótamenn eru beðnir velvirðingar á þessari töf. ---  Í leiðinni: Kubbadagatölin eru komin, þau fást bæði með og eða án spjalds og ljósmyndar.

Miðvikudagur 8. desember 2004
Veðrið í hádeginu:
Hitastig  2 °C
Logn
Úrkomulaust
Efst á síðu

Miðvikudagur 8. desember 2004  Stöð 2 datt út í gærkveldi, fyrst myndaðist órói á skjánum sem endaði með því að "myndlykillinn" datt út, það er myndin sást rugluð. Ekki er vitað fyrir víst hvort þetta er af orsökum rafmagnstruflana frá í gær, en það mun hafa vantað varhluti til viðgerðar, en þeir eru að sögn væntanlegir í dag. Fyrir þá sem horfa á Stöð 2 var þetta slæmt þar sem á þriðjudaga er einn besta dagskráin fyrir spennumynda "fíkla" eins og mig, en þó þykir mér sárast áhugaleysi og lítilsvirðing þeirra stöðvarmanna fyrir sunnan, að láta ekki áhorfendur á Siglufirði vita um ástandið, með því að láta texta renna yfir skjáinn um stöðuna, það er viðgerðarhorfur (á meðan hægt var að horfa, fram til 20:50) Það gera þessir herrar með tilliti til stórreykjavíkursvæðisins þegar sendir dettur út þar. Og ekkert er getið um neinar bilanir á vef þeirra, hvorki í gærkveldi né í morgun er ég leitaði.

Miðvikudagur 8. desember 2004  Hvað ætli að það sé, sem vantar á þessa mynd? - Það eru götuljósin. Rafmagnið fór af bænum í dag er unnið var við að grafa vegna annarra "ljósastaura" uppi í Skarðdal,  grafa hjó í sundur einn háspennustrenginn sem liggur til bæjarins frá Skeiðsfossvirkjun. Óvenju langur tími leið, miðað við rafmagnsrof fyrri tíma, að rafmagn kæmist á aftur, sem var er díselstöð rafveitunnar  var ræst. Reynt var að spara rafmagnið, meðal annars með því að slökkva á öllum götuljósum í bænum, en það dugði ekki þar sem jólaljósaglingrið logaði áfram hjá húseigendum- og þurfti því að skammta raforkuna til einstakra bæjarhluta um há anna tíman fyrir kvöldmatinn, þar sem díselrafstöðin annaði ekki þörfinni. Þessi mynd er tekin klukkan 17:30 er myrkur var skollið á, engin götuljós, (með örfáum undantekningum), aðeins jólaglingur og ljós í húsum. Viðgerð mun hafa lokið seint í nótt.

Miðvikudagur 8. desember 2004 Ein gömul:
Þórarinn Dúason og Pétur Þorsteinsson hafnarverðir
Myndin er sennilega tekin  um 1964-1965
Ljósmynd: Einar Hermannsson
Miðvikudagur 8. desember 2004
Katrín Þórný Jensdóttir
er 76 ára í dag
Miðvikudagur 8. desember 2004
Þriðjudagur 7. desember 2004
Veðrið í hádeginu:
Hitastig - 5 °C
Logn
Úrkomulaust, - snjókoma í gærkveldi og fram á nótt
Efst á síðu

Þriðjudagur 7. desember 2004   Lionsklúbbur Siglufjarðar hefur ákveðið að bjóða þeim sem ekki eiga gott með að sinna krossum á leiði ættmenna sinna í Kirkjugörðum Siglufjarðar, heildarpakka sem felst í því, að klúbburinn tekur krossinn að sér  fyrir ákveðið gjald. Þ.e. að klúbburinn geymir krossinn, lætur yfirfara hann áður en hann er settur upp, tengir hann og tekur niður og kemur í geymslu til næstu nota.
Þeir sem sýna þessu áhuga geta talað við Hörð í síma 867-7497, eða Júlíus í síma 845-4689.

Þriðjudagur 7. desember 2004 Ein gömul: Ungir skíðamenn  á skíðanámskeiði á Siglufirði 21. júní 1964 (nöfn þeirra eru mér ókunn)


Efst á síðu

Þriðjudagur 7. desember 2004
Ólafur Bjarnason
er 57 ára í dag.
Þriðjudagur 7. desember 2004

Mánudagur 6. desember 2004  Aðsent: Okkur langar að þakka Eimskipafélaginu fyrir góða gjöf, en flutningsdeildin undir forustu Gottskálks H. Kristjánssonar gaf Björgunarsveitinni Strákar, 40 feta þurrgám og fluttu hann frítt norður, gámurinn verður notaður til að geyma kappróðrabátana og það sem þeim tilheyrir. -- fh. Stráka kv: Ómar G.
Efst á síðu

Mánudagur 6. desember 2004
Veðrið í hádeginu:
Hitastig  3 °C
Norðan 5-6 m/s
Rigning
Efst á síðu

Mánudagur 6. desember 2004 Ein gömul:  Þessi mynd var tekin 21. júní 1964, svo yngra fólk man ekki eftir þessu útliti á "Tónskólanum" okkar, sem þá var í eigu Norðmanna, og hét "Norsk Fiskerheim" Þarna eru dátar af Norska varðskipinu Draug F 313 sem strandaði á Hellunni við Siglufjörð daginn áður. Frásagnir af þessu strandi og fleiru finnurðu hér og hér
Efst á síðu

Mánudagur 6. desember 2004
Oddur Jónsson
er 74 ára í dag
Mánudagur 6. desember 2004
Ingiborg Svensson
er 70 ára í dag

Efst á síðu
Mánudagur 6. desember 2004
Sigurður Jón Gunnarsson
er 33ja ára í dag
 
Mánudagur 6. desember 2004
Sunnudagur 5. desember 2004
Veðrið í hádeginu:
Hitastig  4 °C
Sunnan andvari
Úrkomulaust
Efst á síðu

Sunnudagur 5. desember 2004  Kveikt var á jólatrénu á Torginu, eins og venjulega í byrjun desember, klukkan 17:00 í gær. Að þessu sinni er jólatréð úr sýslunni okkar Eyjafirði,- og er því al Íslenskt.
Börn úr Leikskálum sungu jólalög - Jólasveinar voru á staðnum að vanda og glöddu börnin með nammi og söng.
Smelltu á myndina til að sjá fleiri.                           Efst á síðu

Sunnudagur 5. desember 2004  Litla málningarvöruverslunin þar geturðu fengið...........


Vörukynning...............
 Efst á síðu

Laugardagur 4. desember 2004 Ein gömul: Ólafur Baldvinsson  Baldvin Júlíusson og Kristján Bjarnason. 
Myndin er tekin 1964


Efst á síðu

Sunnudagur 5. desember 2004
Sigurjón Kjartansson
er 55 ár í dag
Sunnudagur 5. desember 2004
Gunnjóna Jónsdóttir
er 59 ára í dag

  Efst á síðu
Laugardagur 4. desember 2004
Veðrið í hádeginu:
Hitastig  0 °C
Sunnan andvari
Smá él í nánd    Efst á síðu

Laugardagur 4. desember 2004  Stofnfundur framfarafélags Siglufjarðar (nafn þess er ekki endanlega ákveðið) var stofnað í gærkveldi á Kaffi Torg.
Í fyrstu stjórn félagsins voru kosin: Hermann Einarsson formaður, Hannes Baldvinsson gjaldkeri, Aðalsteinn Arnarsson ritari, Guðlaug Guðmundsdóttir meðstjórnandi, Kristinn Georgsson meðstjórnandi, Mariska van der Meer varmaður, Margrét Ósk Harðardóttir varamaður og Guðný Róbertsdóttir varamaður. Sigurður Hlöðversson endurskoðandi, Signý Jóhannesdóttir endurskoðandi og Sigurður Fanndal endurskoðandi (v.m). Margir tóku til máls á fundinum, meðal annars gestur fundarins Ragnar Stefánsson, sem hélt fróðlegt erindi um samsvarandi félagasamtök í Eyjafirði, sem hann meðal annarra er aðili að.  ---
Ég tók nokkrar myndir á fundinum sem þú sérð ef smellt er á myndina.          Efst á síðu

Laugardagur 4. desember 2004 Rauðvínsklúbbur Siglufjarðar, eru þær kallaðar þessar broshýru meyjar, en þær koma saman reglulega í Allanum og njóta félagsskapar hvor annarrar. Þær voru kátar að venju ég tók af þeim mynd í gærkveldi. Auðvitað þekki ég þær allar, en ég á það til að gleyma nöfnum (er að verða sljór !) og nenni ekki að grufla upp nöfn tveggja þeirra, svo ég sleppi hinum einnig- í bili. (Guðlaug, - ég veit að þú sendir mér nöfnin)
Efst á síðu

Laugardagur 4. desember 2004 Allin Sportbar, sem er í eigu hjónanna Ólafíu Ingibjargar Sigríðar Guðmundsdóttur, sem allir þekkja sem "Lóu" - og manni hennar Haraldar Björnssonar, á eins árs rekstraafmæli nú í desember. Ég skrapp með myndavélina til þeirra í gærkveldi og tók mynd af þeim hjónakornunum og óskaði þeim til hamingju. þau voru mjög ánægð með afkomuna þetta fyrsta ár þeirra í eigin rekstri.                  Efst á síðu

Laugardagur 4. desember 2004 Ein gömul: Sjávarborg með eigendurna á þaki. Talið frá vinstri: Magnús, Árni, Björn, Kjartan, Þórður, Björn, Guðbrandur, Árni og Kristján.
Myndin er tekin 20. maí 1964 (birt í Morgunblaðinu 24. júní, s.á.)

Efst á síðu

Laugardagur 4. desember 2004
Sveinn Sveinsson
hann er 68 ára í dag.
Myndin er tekin 1964
Laugardagur 4. desember 2004



Efst á síðu
Föstudagur 3. desember 2004
Siglósport........jólagjöfina finnur þú í Siglósport..........

Vörukynning...............

Efst á síðu

Föstudagur 3. desember 2004 Íslandsbanki. Starfsfólk Íslandsbanka á Siglufiðri er greinilega komið í jólaskap- og buðu í dag upp á léttar uppákomur frá klukkan 14 -16 í dag. Þegar ég leit þar inn klukkan 15:40 þá hljómaði þar rómantísk músík frá hljómborði undir stjórn Sturlaugs Kristjánssonar, og viðskiptavinir nutu þess, sumir í biðröð eftir afgreiðslu og aðrir afslappaðir yfir kaffibolla og kökum. Svo verður alla föstudaga fram að jólum.   Efst á síðu

Föstudagur 3. desember 2004 Kvenfélagið Von Var með sinn árlega basar með happdrætti í dag klukkan15:30.  Er ég leit þangað inn rétt rúmlega eftir opnun var mikið gengið á birgðirnar, þó mikið hafi verið hlaðið á borðin, og voru kvenfélagsk0onur að vonum ánægðar. Á boðstólnum var það hefðbundna; útskorið laufabrauð, kleinur, og fleira góðgæti. Happdrættisbók mun liggja frammi í Aðalbúðinni. Þá munu félagskonur halda fund miðvikudaginn 8. desember í Safnaðarheimilinu klukkan 20:00

Föstudagur 3. desember 2004 Ný Jólakveðja - frá Akureyri                                             Efst á síðu
Föstudagur 3. desember 2004
Veðrið í hádeginu:
Hitastig  +1 °C
Sunnan gola
Úrkomulaust    Efst á síðu
Föstudagur 3. desember 2004 Ein gömul: 
Sigríður Júlíusdóttir - Árdís Þórðardóttir - Karólína Guðmundsdóttir
Frá afhendingu verðlauna á Skarðsmóti 16. maí 1964


Efst á síðu

Fimmtudagur 2. desember 2004   Stofnfundur framfarafélags á Siglufirði, verður á Kaffi Torgi - Gluggabarnum föstudagskvöldið 3. des. kl. 20,00 Gott fólk hefur fengist til stjórnarsetu, Þegar búið verður að klappa það upp og ljúka félagsstofnun verður kynning á markmiðum félagsins.
Meðal gesta fundarins verður fulltrúi frá landssamtökunum „Landsbyggðin lifi” sem mun kynna starfsemi samtakanna. Siglfirðingar látið ekki ykkar eftir liggja og takið þátt í því að efla bæinn í framfarasókn.  Undirbúningsnefndi. Hermann Einarsson Sími 467-1559

Fimmtudagur 2. desember 2004  Lion klúbbur Siglufjarðar færði grunnskólakrökkum litabók um brunavarnir á Slökkvistöðinni á Siglufirði rétt fyrir hádegið í dag. Í leiðinni notaði slökkviliðsstjórinn, Ámundi Gunnarsson tækifærið og fræddi börnin um þær hættur sem leynast hvarvetna- og hvernig bregðast skuldi við þeim.
Smelltu á myndina til að skoða fleiri.                                Efst á síðu

Fimmtudagur 2. desember 2004
Veðrið í hádeginu:
Hitastig -5,7 °C
Sunnan 4-6 m/s
Úrkomulaust 
Efst á síðu
Fimmtudagur 2. desember 2004
 

Kynning á dagskrá kirkjunnar um jólin

        Efst á síðu

Fimmtudagur 2. desember 2004  Sigló-Myndir. --- Hjá Sigló-Myndum getur þú fengið.................

Vörukynning...............  
Þórleifur Haraldsson

Fimmtudagur 2. desember 2004  Ein gömul: 
Tveir þekktir tónlistamenn í sögu Siglufjarðar:
Sigurður Demens Fransson og Geirharður Schmidt Valtýsson.
Myndin er tekin: 12. apríl 1964
 Efst á síðu

Fimmtudagur 2. desember 2004
Arna Rut Gunnlaugsdóttir
er 22ja ára í dag, myndin er af Örnu og ó skríðum Ingvarssyni.
Efst á síðu
Fimmtudagur 2. desember 2004
Valþór Stefánsson
er 47 ára í dag
Fimmtudagur 2. desember 2004
Sigurjóna Lúthersdóttir
er 66 ára í dag

 

Miðvikudagur 1. desember 2004 
GJAFAKOT Lækjargötu 8,  Velkomin í breytta og betri búð ......

Vörukynning...............
Elín Gestsdóttir og Hrólfdís Hrólfsdóttir eru á myndinni
                                                                                                        Efst á síðu

Miðvikudagur 1. desember 2004 Þessir krakkar fá Leikskólanum, voru á leið með gæslumönnum sínum, til að fara með mjólkurfernur í fernugám vegna endurvinnslu. Þau voru fljót að raða sér upp er mig bar að garði, þegar þau voru stödd framan við Apótekið.

Miðvikudagur 1. desember 2004 Bæjarkarlarnir hafa verið að skreyta bæinn allskyns jóla ljósadúndri- og í morgun voru þeir að reisa jólatré á Torginu.



Efst á síðu

Miðvikudagur 1. desember 2004 Frystiskipið Silver Copenhagen var að losa í morgun 220 tonn af rækju frá Canada, til Rækjuverksmiðju Þormóðs Ramma Sæberg.


Efst á síðu

Miðvikudagur 1. desember 2004
Veðrið í hádeginu:
Hitastig -0,7 °C
Sunnan andvari
Úrkomulaust 
Efst á síðu
Miðvikudagur 1. desember 2004  Ein gömul:
Dagur ÞH 66 (SI) og Aldan SI 85 að veiðum fram af Siglufirði.
Ljósmynd: Már Jóhannsson.

Efst á síðu
Miðvikudagur 1. desember 2004
Ólína Þórey Guðjónsdóttir
er 45 ára í dag.
Miðvikudagur 1. desember 2004
Guðmundur Árni Andrésson
er 4 ára í dag
Miðvikudagur 1. desember 2004
Ólafur Þór Haraldsson
er 66 ára í dag
Miðvikudagur 1. desember 2004
Sigurður Benediktsson
er 43ja ára í dag
Miðvikudagur 1. desember 2004
Telma Dögg Björnsdóttir
er 8 ára í dag. Foreldrar hennar eru Brynhildur
Stjána Elíasar og Systu Eiðs og Björn
Þórðar Björnssonar og Signýar Jóhannesdóttur)
Miðvikudagur 1. desember 2004
Andrés Kristján Stefánsson
er 49 ára í dag

                                                                                                                                        Efst á síðu