Skákmót | Grein um skoðanir | Af hverju Héðinsfj..?

>>>>>>>>>>> Af hverju Héðinsfj..?

 

Til forsíðu
Til baka




Ljósmyndasafn Steingríms
á netinu.

Steingrímur Kristinsson Siglufirði
G-892-1569
S-467-1569

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Grein í Morgunblaðinu 13. maí 2005 -- Birt hér með leyfi höfundar

Af hverju Héðinsfjarðargöng?

Haukur Ómarsson fjallar um Héðinsfjarðargöng:
"Ég hvet landsmenn til að kynna sér málið nánar og taka upplýsta afstöðu til þessa máls sem og annarra."

 

Í FRÉTTABLAÐINU þriðjudaginn 10. maí síðastliðinn eru birtar niðurstöður úr skoðanakönnun um fylgi við Héðinsfjarðargöng. Samkvæmt könnun blaðsins eru tæplega 70 prósent þeirra er afstöðu tóku á móti framkvæmdinni en rétt rúm 30 prósent fylgjandi.

 

Þessi niðurstaða veldur vonbrigðum en þarf ekki að koma á óvart í ljósi umræðna síðustu vikna. Þeir sem eru á móti Héðinsfjarðargöngum hafa verið háværir og haldið mjög á lofti gagnrýni sinni á framkvæmdina. Því miður er þessi gagnrýni oft á tíðum ósanngjörn og villandi.

 

Gagnrýnin hefur m.a. beinst að skiptingu vegafjár milli höfuðborgarsvæðisins og landsbyggðarinnar út frá höfðatölu. Þetta er mjög vafasamt og í raun fráleit aðferðarfræði. Eins og samgönguráðherra hefur bent á þá eru þjóðvegir á höfuðborgarsvæðinu samtals 144 kílómetrar en vel á annan tug þúsunda á landsbyggðinni.

 

Standist rök um höfðatöluútreikninga vegafjár þá er rétt að taka upp sömu aðferð við skiptingu opinbers fjár til annarra málaflokka s.s. menntunar, stjórnsýslu og heilbrigðismála. Slík breyting yrði mikil lyftistöng fyrir landsbyggðina með tilheyrandi flutningi á störfum og fjármagni.

 

Í ljósi þess sem að ofan greinir er nauðsynlegt að koma enn og aftur á framfæri helstu staðreyndum um göngin.

  •  Samkvæmt skýrslu Vegagerðar ríkisins eru göngin arðsöm framkvæmd.

  •  Héðinsfjarðargöng skila mun meiri arðsemi og eru talin hagkvæmari kostur en Fljótaleið vegna þess að:

  1. Héðinsfjarðargöng hafa mun jákvæðari félagsleg áhrif.

  2. Samkvæmt umferðarspá er umferð um Héðinsfjarðargöng þrisvar sinnum meiri.

  3. Héðinsfjarðargöng gera sameiningu allra sveitarfélaga á Eyjafjarðarsvæðinu mögulega.

  4. Verktakakostnaður er áætlaður um 6 milljarðar og heildarkostnaður um 7 milljarðar fyrir tvíbreið göng.

  5. Miðað við umferðarspá Vegagerðarinnar þá er engin þörf á að breikka Múlagöng.

  6. Héðinsfjarðargöng eru fyrir alla landsmenn og munu hafa verulega þýðingu fyrir eflingu Eyjafjarðarsvæðisins.

Ég hvet landsmenn til að kynna sér málið nánar og taka upplýsta afstöðu til þessa máls sem og annarra.

 

Höfundur er bæjarfulltrúi á Siglufirði.