|
Þriðjudagur
2. maí 2006 Stórsýningin “Æskan & hesturinn norðanlands”
fór fram á Sauðárkróki síðastliðinn laugardag. Þar voru sýnd 13 atriði
æfð af börnum og unglingum úr hestamannafélögum á norðurlandi. Sýningin
var hin besta og greinilegt að æskan hér norðan heiða er efnileg. -
Frá Glæsi á Siglufirði var 12 manna hópur á aldrinum 7-15 ára. Það þarf
vart að taka fram að börnin stóðu sig prýðis vel í ljómandi góðu atriði.
Þau voru bæði sjálfum sér, foreldrum, Glæsi og Siglufirði til sóma. Sýnt
var bæði klukkan 13 og 18 fyrir nánast fullu húsi. Sýningin verður gerð
að árvissum atburði á norðurlandi eftir að hafa verið árviss um nokkurt
skeið á höfuðborgarsvæðinu og gert er ráð fyrir að hún verði haldin í
nýbyggðri reiðhöll þeirra Akureyringa næsta vor. Okkur foreldrunum
heyrðist á börnunum að Glæsir yrði að sjálfsögðu með að ári og sennilega
með fleiri en eitt atriði ef marka má bollaleggingar ungu
kynslóðarinnar!
Það eru komnar myndir af sýningunni og æfingum inn á heimasíðu Glæsis
www.siglo.is/glaesir Einnig
var sýningin tekin upp og verður gefin út á DVD og VHS í vor. |
|
_small.jpg) Þriðjudagur
2. maí 2006 Framboðslisti Framsóknarflokksins í hinu nýja
sameinaða sveitarfélagi SiglÓ (eins og ég vil kalla það) var
kynntur í gærkveldi á félagsfundi í fundarsal flokksins á Siglufirði.
----- Listinn er
HÉR |
|
Þriðjudagur
2. maí 2006 Þessa fjóra gutta hitti ég seinni partinn
í gær og voru þeir fúsir til myndatöku, enda fullkomlega löglega búnir
hjálmum.
Ég gleymdi að spyrja þá um nöfnin, en væntanlega sendir mér þau einhver. |
|
Þriðjudagur
2. maí 2006 Ein gömul: Ég þekki þessa drengi alla,
en full nöfn þeirra allra vefst fyrir mér, svo ég bíð með birtingu
nafnanna þar til einhver sendir mér. |
Þriðjudagur
2. maí 2006
Prinsessan hún Natalía Guðrún
er 2ja ára í dag!! Afmæliskveðja frá mömmu, pabba og stóra bróður (
foreldrar eru Hafdís H. Hall og Jóhannes M. Dagbjartsson)
|
Þriðjudagur
2. maí 2006
Fjóla Kristjánsdóttir
er 31 árs í dag
Bestu afmælisóskir,
Guðný og Steingrímur |
Þriðjudagur
2. maí 2006
Dóttir okkar hún Viktoria Unnur
er 1árs í dag foreldrar
(Jóhanna
Unnur Haraldsdóttir og Arnar Ingi Jónsson)
innilega til hamingju með
afmælið elskan mín kv fjölskyldan |
Mánudagur 1. maí 2006
Þeir taka ekki frídaginn 1. maí hátíðlegan þessir sjálfboðaliðar
sem eru að vinna við viðhald á "ytra húsinu" Þetta eru Páll
Helgason og Örlygur Kristfinnsson. Einnig var Sveinn Þorsteinsson þarna í
sjálfboðavinnu. |
| Mánudagur 1. maí 2006
Hádegisveðurmynd og
hús dagsins eru HÉRNA |
|
Mánudagur 1. maí 2006
Ég þekki fuglinn; álftina, en ekki veit ég hvað hinir tveir
heita, grágæsir eða eitthvað annað. En álftin sú arna, raunar tvær,
sinntu í áttina til þessara fugla, sem forðuðu sér í skyndi á þurrt land
með viðeigandi gargi. |
|
_small.jpg) Mánudagur 1. maí 2006
Eins og flestir lesendur vefsins vita, þá snapa ég víða kaffi á
vinnustöðum, svona undir því "yfirskini" að ég sé að leita frétta. Nú
fer þessum kaffistöðum senn að fjölga þar sem hægt verður að betla frítt
kaffi. Sá fyrsti opnaði í dag klukkan 16:00 og verður opinn fram yfir
næst komandi kosningar, en þetta var kosningaskrifstofa
Sjálfstæðisflokksins. Þeir sem ekki hafa tíma til að líta þar inn, geta
skroppið
http://firdingur.xd.is/ og fengið þar andlega næringu, í staðin
fyrir kaffi og meðlæti. SK |
|
Mánudagur
1. maí 2006 Ein gömul: Nú er farið að styttast í næstu
sveitarstjórnarkosningar. Svona til gamans, þá er hér mynd af þeim sem
röðuðust í níu efstu sætin á lista Sjálfstæðisflokksins árið 1982 --
Ingibjörg Halldórsdóttir - Haukur Jónsson - Birgir Steindórsson -
Kristrún Halldórsdóttir - Rósa Hrafnsdóttir - Guðmundur Skarphéðinsson -
Axel Axelsson og Björn Jónasson, en aðeins tveir úr þessum hópi eru nú,
á sameiginlegum lista í sameiningu sveitarfélagi, SiglÓ |