Lífið 1.-5. október | Lífið 6.-.12. október | Lífið 13.-18.október | Lífið 19.-25. október | Lífið, 26.-31 október

>>>>>>>>>>> Lífið 1.-5. október

 

Til forsíðu
Til baka
Leikskálar
Skólaíþróttir
Rekaviður
SR-Vélaverkstæði
Bæjarskrifstofan
Sumarhús
Verslunin Úrval
Árni og Olís
Verslunarfélagið
Frost - 6°C
Eimskip




Ljósmyndasafn Steingríms
á netinu.

Steingrímur Kristinsson Siglufirði
G-892-1569
S-467-1569

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

5. október  Haustið er komið, þarna er Njörður Jóhannsson, að ganga frá trilluhorni sínu Ósk, fyrir veturinn. þetta eru hin hefðbundnu störf trillukarla og áhugamann, að búa um báta sína sem best, fyrir komandi vetur.

5. október  Mánafoss / Eimskip losar hér á Siglufirði í viku hverri 25-30 gáma, á Hafnarbryggju  og Óskarsbryggju til skiptis, eða hvorutveggja í sömu ferð. Þetta eru í meirihluta, aðallega vörugámar til og frá Rækjuverksmiðjunum, Pólar og Þormóðs Ramma Sæberg, svo og Primex. hf.

5. október  "Hann setti svip á bæinn"  Ásgrímur Stefánsson verkamaður fæddur 30.maí.1920

4. október  Verslunarfélag Siglufjarðar. Ég leit þangað inn í morgun. Þar var mikið að gera er ég kom inn. En starfsfólkið sem var á vakt gaf sér þó tíma til að lofa mér að smella á það myndum.

Smelltu á myndina

4. október  Fyrsta alvöru frostið í haust, var síðastliðna nótt, en tjörnin í suðurbænum, náði að frjósa og mynda þunna skel á tjörnina. Eina svæðið sem slapp var undan læknum, (lengst til hægri) en þar héldu álftirnar 5 sig ásamt fleiri fuglum. Mest mældist frostið í nótt -6°C  En um hádegið var kominn um 4 °C  hiti, á svæðinu, en í norðurbænum rúmlega 6 °C hiti.

4. október "Hann setti svip á bæinn" Aðalsteinn Friðfinnsson veitingamaður, fæddur 25. mars 1930

3. október  Hann á afmæli í dag, hann Árni Heiðar Bjarnason er tvítugur í dag og brosti blítt framan í mig er ég smellti mynd af honum, er ég heimsótti Olís eftir hádegið, þar sem hann var staddur. Þar voru þar fleiri að vanda, og myndir af þeim koma í ljós ef þú smellir á myndina.

3. október Verslunin Úrval. Þessa blómarósir, Gréta Hansdóttir og Auður Gunnarsdóttir, vinna í versluninni Úrval. Það var lítið að gera í versluninni er ég heimsótti hana í morgun og voru stúlkurnar að raða upp í hillur er ég kom. Fleiri myndir, ef þú smellir á myndina.

3. október  Þessir höfðingjar voru að vinna við að endurnýja, skólplögn að húsi sínu, Hvanneyrarbraut 5 á Siglufirði, hús sem í raun er þeirra sumarhús, þar sem þeir eru báðir búsettir á Stór-Reykjavíkursvæðinu. Í ljós kom þó eftir að hafa rabbað við þá félaga, að þeir voru vinnufélagar- og það sem meira var annar þeirra Hilmar Gunnarsson (til hægri) er Siglfirðingur, fæddur og uppalinn, sonur Gunnars Þórðarsonar heitins, símvirkja. Félagi hans er Þórir Kr Þórisson. Þeir félagar eru hér á Sigló í þeim erindum að dytta að húsi sínu að innan, en notuðu tækifærið til að tengja nýa skólplögn frá húsinu, að ný-endurbættu skólpkerfi bæjarins á svæðinu. Smelltu á myndina til að sjá aðra mynd.

3. október  "Hann setti svip á bæinn"  Jósef Flóvents fæddur  11. janúar 1914

2. október Bæjarskrifstofan. Ég heimsótti Bæjarskrifstofuna eftir hádegið og smellti af  nokkrum myndum, af starfsfólkinu, þeirra sem var á staðnum.

Þetta er bæjarstjórinn Guðmundur Guðlaugsson.

Smelltu á myndina

2. október  Sigló-myndir, Þórleifur Haraldsson eigandi framköllunarstofunnar, Erla Erlendsdóttir ýtustjóri, er hér að velja filmur til að láta hann vinna eftir.  Framköllunar þjónusta á Siglufirði hefur verið og er árstíðabundin, segir Þórleifur, svo hafa stafrænu myndavélarnar gert strik í reikninginn, hvað framköllun varðar, en nú er aftur á móti, að aukast salan hjá honum myndarammar, sem hann á talsevert úrval af. Þá selur hann auðvitað einnig bæði stafrænar myndavélar sem aðrar tegundir og fleiri vöruflokka.

2. október   SR-VÉLAVERKSTÆÐI Á SIGLUFIRÐI. Ég leit inn á vélaverkstæðið í morgun og heilsaði upp á mannskapinn og tók myndir af nokkrum þeirra. Á Vélaverkstæðið er góður og vel hæfur mannskapur ásamt úrvals vélakosti, og  sem gerir þeim kleift að vinna margbrotin störf, allt frá flóknum véla og tækjaviðgerðum til allskonar nýsmíði, sem raunar er aðal þjónustusvið þeirra. Smelltu á myndina

2. október "Hann setti svip á bæinn"  Jón Stefánsson, forstjóri fæddur 23. október 1907

1. október 16:00  Sigurvin, bátur björgunarsveitarinnar, fór með mannskap, út á Siglunesfjörur og sótti þangað rekavið, sem Örlygur ætlar að nota inni í Bátahúsi Síldarminjasafnsins í "bryggjur." Ég kom að er þeir voru að hífa rekaviðinn í land, upp á bíl. En Sveinn Þorsteins var með í för rekaviðmanna og tók slatta af myndum sem þú getur séð með því að smella á myndina.

1. október  Skólaíþróttir  Mikið stóð til og mikið fjör var á íþróttavellinum við Túngötu í morgun. En unglingadeildir Grunnskólans kepptu við mikinn fögnuð áhorfenda, í hinum ýmsu greinum, sem helst minnti á kraftakarla keppni. Tekinn var tími á keppendum og stig gefin. Mikið kapp og mikil gleði.  Smelltu á myndina til að skoða fleiri

1. október  Skyndi hjálp Rauðakrossins  Rauði krossinn gaf út fyrir nokkru, 52ja stykkja spilastokk. Þessi spil eru eins og venjuleg spil, að öðru leiti en því, að á hverju spili er spurning og heilræði, sem allir hafa gott af að lesa.

Á síðu minni Lífið á Sigló , mun birtast í hverri viku, (mánudaga) eitt spil á eina síðuna hér, þar til þau eru orðin 52. Öll spilin verða sýnileg á sömu síðu, jafnóðum og þau birtast.  Smellið á myndina

1. október   Í gærkveldi kl. 20:00 var haldið hóf í húskynnum leikskólans LEIKSKÁLAR á Siglufirði, í tilefni af 10 ára afmæli skólans. Við það tækifæri voru haldnar ræður að venju og skólanum færðar gjafir. Þá var einnig opnuð heimasíða skólans sem ber heitið Leikskálar Siglufirði með tengilinn http://siglo.is/leikskoli/  Á myndinni er, Særún Þorláksdóttir leikskólastjóri, að bjóða gesti, sem voru fjölmargir, velkomna.    Smelltu á myndina til að sjá fleiri myndir