Lífið í feb. 1-8 2004 | Lífið í feb. 9-14 2004 | Lífið í feb 16-21 2004 | Lífið í feb 22-29 2004

>>>>>>>>>>> Lífið í feb 16-21 2004

 

Til forsíðu
Til baka
Norðurfrakt
Heimsókn á verkstæði
3. flokkur K.S.




Ljósmyndasafn Steingríms
á netinu.

Steingrímur Kristinsson Siglufirði
G-892-1569
S-467-1569

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

  Ég tek mér 3-5 daga frí, frá deginum í dag að telja, 21. febrúar 2004 - en ég verð að heiman þá daga.  -  Ef eitthvað markvert skeður á meðan ég verð fjarverandi, þá mun Sveinn þorsteinsson taka af því myndir fyrir mig, sími hans: 848-4143 - og ég mun síðan bita það,- sem og annað sem mér berst í tölvupósti, - þegar ég kem til baka Þar með veðrið eins og það var í hádeginu.

21. febrúar 2004  Ein gömul:   - Júlíus Jónsson, Jóhann Matthíasson og Óli Björnsson. Þeir eru þarna um borð í pramma, sem flytur uppgröft úr höfninni, frá dýpkunarskipinu Gretti, sumarið 1966
Þeir eiga afmæli í dag 21. febrúar 2004

21. febrúar 2004  Styrkveitingar, samkvæmt fundargerðum Bæjarráðs Siglufjarðar.

F.S.N.V. – rekstrarstyrkur fyrir árið 2004
Þjóðlagahátíð 2004
Skógræktarfélag Siglufjarðar
Leikfélag Siglufjarðar
Tónlistarfélag Siglufjarðar samþykkt
Hestamannafélagið Glæsir vegna reiðnámskeiðs
Golfklúbburinn vegna framkvæmda
Karlakór Siglufjarðar 
Kirkjukór Siglufjarðar 
Kvennakór Siglufjarðar 
Vorboðar, kór eldri borgara 
Þór, félag safnara
Sögufélag Siglufjarðar
Brynja Baldursdóttir, listamaður
“Lífið á Sigló”, fréttavefur
Ljósmyndasafn Steingríms

kr. 230.000,-
kr. 500.000,-
kr. 100.000, -
kr. 300.000,-
kr.   50.000,-
kr.   80.000,-
kr. 300.000,-
kr.   80.000,-
kr.   80.000,-
kr.   80.000,-
kr.   80.000,-
kr.   50.000,-
kr.   50.000,-
kr.   50.000,-
kr. 120.000,-
kr.   80.000,-

20. febrúar 2004  Kveðja frá Chris Bogan: Kym og Chris á skautum í Bresku-Columbiu. Eins og sjá má, það er skemmtileg 'útibraut' við hliðina á skíðasvæðinu í Penticton, BC, Kanada.  

Bestu kveðjur til allra Siglfirðinga.

"20. febrúar 2004"   Ein gömul:  1975-6  Guðmundur Skarphéðinsson, Hallgrímur Sverrisson, Guðjón Jóhannsson, Kristján Sigtryggsson og Sveinn Björnsson.
Stapavíkin SI 4, í klössun, í bakgrunni.

Hún á afmæli í dag 20. febrúar 2004

19. febrúar 2004  TUNNAN, prentþjónustan ehf. Er til sölu, en þar starfa þær saman Brynja Svavarsdóttir og Kolbrún Friðriksdóttir. Fyrirtækið annast útgáfu á mánaðarritinu Hellan og vikuritinu Tunnan, sem er auglýsingarit með dagskrá sjónvarpsstöðvanna ofl. Þá hefur fyrirtækið annast hverskonar aðra prentþjónustu. Smá horn hafa þær fyrir skrifstofuvörur, og gott samband við prentsmiðju Odda, með hráefni og skrifstofuvörur.  Myndirnar eru af Kolbrúnu til vinstri og Brynju til hægri

Hún á afmæli í dag, 19. febrúar 2004
"19. febrúar 2004"   Ein gömul

19. febrúar 2004    Síðbúin myndsending. Litli snáðinn á myndinni heitir Friðrik Árni Grímsson "nýfæddur" Siglfirðingur - Olga Björk Friðriksdóttir (Sillýjar og Rikka) og Grímur Jónsson eiga hann, en hann fæddist 24 júlí 2003 -  Hnátan við hlið hans er Stefanía Lilja (dóttir Árnýjar Eggertsdóttur)

18. febrúar 2004  Aðsend frétt:  Árni Heiðar Bjarnason er flestum Siglfirðingum kunnur, hann hefur stundað nám síðastliðin fjögur ár við Fjölbrautarskóla Norðurlands Vestra á Sauðárkróki. Árni stefnir á útskrift nú í vor en á myndinni má sjá Árna að störfum hjá Steypustöð Skagafjarðar en þar hefur hann unnið með námi við að steypa stuðlaberg. Það er aldrei að vita nema Árni flytji

Hún á afmæli í dag 18. febrúar 2004

18. febrúar 2004   Aðsent: Nú stendur yfir sýning á leirmyndum í Kaffitár í Bankastræti Rvk. eftir Hildi Karsdóttur sýningin er tileinkuð gömlum húsum við Laugaveg.  Myndefnið á sýningunni eru lágmyndir af svæði 101 Reykjavík flest horfin hús. -- Hildur  Karsdóttir, hóf fyrst nám í myndlist 14 ára gömul, hún fór fyrst í tréskurð hjá Hannesi Flosasyni. Því næst fór ég í Myndlista og handíðaskóla Íslands á kvöldnámskeið í model og hlutateikningu og málun. sótti hún slík námskeið í þrjá vetur. Síðan hefur hún sótt námskeið í ýmsum listgreinum meðfram námi í fjölmiðlun og leiklist og síðar í bókasafnsfræði. Þá fór hún á fyrir alvöru inn á svið leirlistarinnar 1998 er hún byrjaði á að fara á námskeið í Leirkrúsinni. Ég hef lokið öllum námskeiðum sem eru í boði þar. Auk þess fór hún síðastliðinn vetur til Englands í nám í skúlptúr hjá West Dean college. Ömmusystir hennar, sem ól hana upp mikið til og bjó lengi á Siglufirði var Sigríður Stefánsdóttir kona Friðbjarnar, afi Hildar var Ingvar Guðjónsson, útgerðarmaður. Myndirnar hér til hliðar, verk eru eftir Hildi.  Smelltu á myndirnar.

18. febrúar 2004  Aðsent. Þessa mynd sendi Reynir Þorgrímsson & Tryggvi Björnsson, mér,- og báðu um að birta, en þetta er málverk eftir Arnar herbertsson listmálara, myndin er máluð 1975  (ég vona að Eina sé sama)

18. febrúar 2004  Aðsent; frá K.S - Alla Nokkrar myndir frá ferð 3 flokks K.S. í úrslitakeppni í innanhúss knattspyrnu sem haldin var í íþróttahúsinu í Digranesi um síðustu helgi.  K.S.-ingar höfðu unnið sér rétt til að leika í úrslitum með því að vinna norðurlandsriðil á Blönduósi í haust. K.S. lenti í öðru sæti í sínum riðli og komst því í undanúrslit. K.S. var yfir þegar þrjár sek voru eftir en þá jafnaði Þróttur Nes - vítaspyrnukeppni og K.S. tapaði þar og spilaði því við Selfoss um þriðja sætið og vann þann leik örugglega, A

18. febrúar 2004  Ein gömul: Síldarsöltun hjá Ísafold, Helgi Sigurðsson, skammtar stúlkunum síldina frá færibandi. En Þráin Sigurðsson Ísafold, var brautryðjandi á því sviði að nota færiband við síldarsöltun.

17. febrúar 2004  Nú um helgina varð það óhapp, þegar Mánafoss var að leggja að Hafnarbryggjunni, að skutur skipsins, lenti harkalega á einn "pollann" á bryggjunni, með þeim afleiðingum að "pollinn" brotnaði og gat kom á skipið. Frekar hásjávað var, þannig að hallandi afturendi skipsins náði yfir bryggjuna. Ekki varð þetta óhapp til að tefja för skipsins, því vaskir menn komu og rafsuðu plötu yfir gatið.

17. febrúar 2004  Ég leit inn á verkstæði Símans, við Túngötu, þar hitti ég ma. hina ávalt brosmildu- og kátu málara Þorgeir og Mark. Þar voru auðvitað einnig þeir Jón og Egill. Smelltu

17. febrúar 2004 Ein gömul: - Þessar tvær kempur, héldu í mörg ár uppi heiðri Siglfirðinga, sem margverðlaunaðir skíðakappar, það ætti ekki að þurfa að kynna þá, en þetta eru þeir Sveinn Sveinsson og Gunnar Guðmundsson - Þarna voru þeir að ljúka harðri keppni uppi á Súlum 196?

Þau eiga afmæli í dag 17. febrúar 2004
16. febrúar 2004  Nokkrar aðsendar myndir úr Skarðdal 15 febrúar 2004
Mjög gott veður og gott skíðafæri í öllum þremur lyftunum. Þessar myndir, sem sjást ef þú smellir á myndina hér, eru af skíðakrökkum sem hafa verið við æfingar frá áramótum hjá Skíðafélagi Siglufjarðar, það eru um 50-60 krakkar aldrinum 6-16 ára.  Æfingar hafa farið fram á þremur stöðum.  Kennarar eru Andrés Stefánsson, Kristín Einarsdóttir, Kjartan Sigurjónsson og Úlfur Guðmundsson.  Ljósmyndir: Egill Rögnvaldsson.

16. febrúar 2004  Lítið var um "eitthvað markvert" á ferð minni í morgun á vinnustaðina, það er, séð með mínum augum. Ég tók þó myndir af þeim sem ég hitti hjá Norðurfrakt-Flytjanda, sem koma í ljós ef þú smellir á myndina.

"16. febrúar 2004"    Ein gömul