8.
febrúar 2004 Íþróttamaður ársins 2003 á Siglufirði var
kjörinn í kvöld, ásamt stórum hópi íþróttamanna úr hinum ýmsu greinum
íþrótta. Titilinn Íþróttamaður ársins á Siglufirði í ár hlaut Salóme Rut
Kjartansdóttir.
Það var Kiwanisklúbburinn Skjöldur Siglufirði sem sá um útnefninguna,
eins og mörg undanfarin ár, - og naut til þess stuðning Íþróttabandalags
Siglufjarðar. Athöfnin sem hófst klukkan 17:00 í kvöld, fór fram á Kaffi
Torg. Hellingur af myndum mun birtast á síðum mínum á morgun Mánudag,
samfara nánari upplýsingum um íþróttaferil Salóme, - og nöfn og myndir
annarra verðlaunahafa. En ég á von á þessum upplýsingum með tölvupósti í
fyrramálið.
8.
febrúar 2004 Ein gömul: Hljómsveitin
Gautar, Baldvin Júlíusson, Jónmundur Hilmarsson, Guðmundur Þorláksson,
og Ragnar Páll Einarsson
Þeir eiga afmæli í dag 8. febrúar
2004
7. febrúar 2004
Talsvert hefur snjóað á Siglufirði, eins og víðar á landinu.
Tækjamenn bæjarins hafa haft nóg að ger við að hreinsa götur bæjarins,
þeir byrjuðu snemma, og um klukkan 10 í morgun, mátti heita að flestar
götur væru vel færar öllum bílum. Þeir kunna sitt fag þessir drengir.
Ekki er enn farið að keyra snjónum út í sjó, svo víða eru komnir stórir
haugar, allstaðar þar sem "laust pláss" er fyrir ruðninginn. Smelltu á
myndina og skoðaðu fleiri.
Þeir eiga afmæli í dag 7. febrúar 2004
6
febrúar 2004 Nýr bæjarstjóri hefur
verið ráðinn hjá Siglufjarðarkastað. Það er Siglfirðingurinn
Runólfur Birgisson, sem ekki þarf að kynna nánar fyrir
Siglfirðingum. Fréttatilkynningin: Meirihluta bæjarstjórnar
Siglufjarðar hefur samþykkt að leggja til við bæjarstjórn að Runólfur
Birgisson, framkvæmdastjóri útgerðarfyrirtæknisins Siglfirðings ehf.,
verði ráðinn bæjarstjóri á Siglufirði. Gert er ráð fyrir að Runólfur
taki við starfinu 4. mars
6
febrúar 2004 Þau eiga afmæli í
dag
5. febrúar 2004
Þessa kappa, hitti ég á förnum vegi í morgun, en þetta eru
Steinar Baldursson, bókhaldari, Guðmundur Ragnarsson rekstrarstjóri
Vegagerðarinnar og Sigurður Hlöðversson tæknifræðingur
Siglufjarðarkaupstaðar.
5. febrúar 2004
Þormóður Rammi Sæberg hf. Þeir reka lítið vélaverkstæði,
vegna smáreddinga vegna útgerðarinnar og annars reksturs, og þar halda
þeir einnig úti lager vegna ýmis varnings til daglegra nota til lands og
sjávar. Þar ráða ríkjum Gestur Hansson vélsmiður, Arngrímur Jónsson f.v.
skipstjóri og Sveinn Sveinsson, f.v. skíðakappi og sjómaður. Ég
leit þarna inn í morgun og tók myndir.
5. febrúar 2004
Ein Gömul. Starfshópur
Páls G Jónssonar SR á Seyðisfirði febrúar-mars 1964.-F.r.r.-Jónas
Guðmundsson, Jón Rögnvaldsson, "Binna", Páll G Jónsson, Viðar Magnússon.
m.r. Marteinn Jóhannsson, Þorkell Benonýsson, Ásgeir Björnsson, Geir
Sigurjónsson, Haukur Kristjánsson, Sigurður Þór Haraldsson, Björn Þór
Haraldsson, Júlíus Gunnlaugs aftan við hann í felum, Óskar Garðarsson,
Steingrímur Kristinsson. a.r. Björgvin Jónsson, Helgi Halsson, Einar
Björnsson, Baldvin Jóhannsson, Stefnir Guðlaugsson og Geir Guðbrandsson
4.
febrúar 2004 Ein gömul. - Ein gömul. Myndin er tekin
í gamla æskulýðsheimilinu við Vetrarbraut.ca 1966-1967. Talið frá
vinstri: Sævar Jónsson, Þórhallur Benediktsson, Guðni Sveinsson, Jón
Ægisson og Ævar Jónasson.
4.
febrúar 2004 Þau eiga afmæli í dag
3. febrúar 2004 Hann Kári var í vondu
skapi í nótt, og er raunar enn ansi fúll (11:30). En hann náði að
blása úr norðrinu allt upp í og yfir 30 m/s - í verstu byljunum. Lítil
úrkoma fylgdi þessu og hitinn sitt hvoru megin við núllið, frá miðnætti
til morguns. Lítill snjór er til fjalla, virðist allur hafa safnast
niður í byggð, snjór sem í gær var hálfgert fiður, en í dag orðinn
blautur og harður. -Engum öðrum frásögu færandi fréttum náði ég í
morgun.
3.
febrúar 2004 Ein gömul - Hallvarður Óskarsson,
Leifur Halldórsson, Jóhann Ólafsson og Sigurður Fanndal.
2. febrúar 2004
Klukkan 14:00 - Veður að
versna. Mikil blinda er nú í bænum af
völdum snjókomu, og vindur fer vaxandi. Bílar hafa verið að festa sig -
aðallega vegna blindunnar, td. þar sem viðkomandi ætlar að fara út af
stæði, eða snúa við (bakka) þá kemur fyrir að farið er og langt út í
vegakantinn (snjóruðning) og bíllin fastur, þetta kom fyrir mig á mínum
Lanser, en vegfarendur hér eru hjálpsamir, svo að ég losnaði strax og
aftur var lagt í´ann, án vandræða, nema það, að stundum þurfti að stoppa
vegna blindunnar af völdum snjókomunnar.
Flutningabílarnir fóru héðan í morgun
eins og venjulega, nú mun Siglufjarðarvegur vera ófær vegna snjóflóðs,
sem féll í Mánárskriðum. Vegagerðin segir að stórhríð sé á svæðinu og
beðið sé með mokstur þar til veðrið gangi niður.
Þau eiga afmæli í dag 2. febrúar 2004
2. febrúar 2004 Einu fréttirnar í
dag virðast ætla að vera: Það er óhætt að segja að kominn sé
vetur, að mælikvarða Siglfirðinga a.m.k. Varla sást út úr augunum í
morgin er ég skrapp í bæinn og ég þurfti að moka tröppurnar mínar, og
nokkur þæfingur á þeim götum sem ekki höfðu verið mokaðar síðustu
klukkutíma. En Siglfirðingar eru ekki búnir að gleyma hvernig á að aka
og búa bíla sína til vetraraksturs, svo engar fréttir hafa borist af
árekstrum eða því hvort bílar hafi þurft aðstoðar við
2.
febrúar 2004 Þetta eru ekki Hinir sönnu
Gautar, en þeir nota trommusettið þeirra. (1965
sennilega ?)
Frá vinstri : Gestur þorsteinsson - móðir hans Sjöfn (?) Gests Guðjóns.
Hann var hér einn vetur í Gagganum 1964-65) - þá er það frændi hans
Gestur Guðnason, Ingvar Björnsson Karlssonar og loks Elías Þorvaldsson -
1. febrúar 2004
Þorramót- og blót SNERPU fór fram í gærkveldi. Þar var ég ekki
staddur, en vinir mínir og aðstoðarmenn, áhugaljósmyndararnir Árni
Bjarnason og Sveinn Þorsteinsson voru þar og tóku slatta af myndum og
sendu mér. Þar sem ég verð að játa að ég þekki ekki alla með fullum
nöfnum, þá sleppi ég nafngreiningum, - en þið megið gjarnan senda mér
þau.
Ein
gömul: 196(?) Geirharður Valtýsson, Einar Albertsson, Hafliði
Guðmundsson og Kristján Sigtryggsson