4.
mars 2004 Bátahúsið skoðað -- Nú á dögunum (2. apríl sl.) voru
hér á ferð hönnuður og verkfræðingur Bátahússins og skoðuðu í fyrsta
sinn það sem þeir höfðu teiknað og lagt á ráðin um. Þeir eru Árni Páll
Jóhannsson leikmyndahönnuður og Gunnar St. Ólafsson verkfræðingur. Árni
Páll ákvað allt um útlit hússins og Gunnar skipulagði verkfræðilega
þáttinn og sá þriðji Leifur Benediktsson verkfræðingur vann síðan allar
smíðateikningar.
Þess má geta að Árni Páll hefur hannað leikmyndir við fjöld kvikmynda og
víða sett upp sýningar s.s. Galdrasetrið á Ströndum og Gunnar hefur
unnið mikið við uppbyggingu Síldarminjasafnsins í 12 ár.það var heimsókn
hönnuða - Á efri myndinni Sigurður Hlöðversson tæknifræðingur
Siglufjarðarkaupstaðar, Starfsmenn safnsins; Sveinn Þorsteinsson smiður
og Hafþór Rósmundsson, Gunnar St. Ólafsson verkfræðingur, Árni Páll
Jóhannsson hönnuður og Örlygur Kristfinnsson safnvörður. Á neðri
myndinni er að hluta til þeir sömu, nem Birgir Guðlaugsson
byggingameistari hússins, lengst til vinstri.
4.
apríl 2004 Ég fór í leikhús í gærkveldi,- og sá Silfur
hafsins.
Það er orðið langt síðan ég hefi farið á slíkan vettvang, en ég sé ekki
eftir því að hafa farið, langt því frá. Ég er að vísu enginn
sérfræðingur á leiklist, en ég tel þó að ég geti haft skoðun, eins og
einhverjir af þessum postulum sem allt þykjast vita um leiklist, og
skrifa sem oftast í blöðin þarna fyrir sunnan og... oft þvert ofan á
aðsóknartölur og álit almennings. Ég sé ekki eftir þessari kvöldstund,
eins og áður segir. Mér fannst þetta alveg frábært, bæði sagan á bak við
verkið, stór og mikil saga sem þjappað er saman í stutta sögu svo að vel
kemst til skila. Leikararnir allir, flestir nýliðar, fannst mér standa
sig virkilega vel, -- en af öðrum ólöstuðum, - Árni Stefánsson,
þú er alveg frábær, það er eins og þú hafir aldrei gert annað- þú ert
sannkallaður senuþjófur, Árni Biddu, eins og flestir kalla þig. Það eina
sem mér fannst slæmt var heyrnin mín, sem er ekki eins og einu sinni var,
þannig að sumir, fannst mér tala of lágt stundum.
4.
apríl 2004 34 aðsendar myndir frá Landsmótinu á skíðum.
4.
apríl 2004 Ein Gömul:
3.
apríl 2004 Í gærkveldi upp úr kl. 19:00 var mér boðið á
hátíðarfund Kiwanis, sem þeir félagar héldu í Gránu Síldarminjasafnsins.
Þar voru einnig margir gestir. Boðið var upp á óvenju fjölbreytta
síldarrétti með viðeigandi og ómissandi veigum og fleiru, sem allt rann
ljúflega niður.
3.
apríl 2004 Í gærdag um kl 17:00 fóru leikarar
Leikfélagsins um götur bæjarins og verslanir, gerðu að gamni sínu,
dönsuðu og glöddu vegfarendur. Þetta vakti mikla ánægju og gleði
viðstaddra. En þetta uppátæki var hluti af kynningu vegna leikritsins
Silfur hafsins, eftir Ragnar Arndals, sem nú er á "fjölunum" á
Siglufirði. Smelltu á myndina og sjáðu nokkrar myndir.
3.
apríl 2004 Ein gömul. Kári Jónsson og Sveinn Björnsson
afmæli í dag 3. apríl 2004
2.
apríl 2004 Kynning á Samsung-vörum. SR-Byggingavörur
opnaði formlega helmingsstækkun á verslunarplássi sínu í dag eftir
hádegið, og jafnframt var þar kynning á Samsung vörum, sjónvörpum DVD
spilurum, myndbandstækjum, myndavélun, myndbandstökuvélum, örbylgjuofnum
og fleiri heimilistækjum, framleidd af Samsung. Meðfylgjandi mynd sýnir
Guðmund Einarsson verslunarstjóra, Jóhann Jónsson sérfræðingur hjá Radíó
Naust / Samsung og Hermann Einarsson innkaupastjóri.
2.
apríl 2004 Starfsmenn Rarik, þessa heiðursmenn hitti ég
inni hjá SR-Byggingavörur eftir hádegið í dag, Óli Agnarsson, Helgi
Antonsson fv. starfsmaður Rarik og Árni Skarphéðinsson.
2.
apríl 2004 Fáir bátar voru í höfninni í morgun, flestir
voru á sjó eða að gera veiðarfærin klár, eins og skipverjar á
fiskibátnum Keilir SI 145
2.
apríl 2004 Olíuskipið Keilir, losaði hér í morgun um 300
tonn af olíu.
2.
apríl 2004 Aprílgabb - - Ekki átti ég von á að þetta
litla aprílgabb með "neshólmann" í gær, næði til að virka, en samkvæmt
viðbrögðum meðal annars spurningar í síma um komutíma þyrlunnar
ofl, En auðvitað var þetta allt svo fáránlegt, en stundum láta
menn blekkjast, ma. ég sjálfur, það er víst mannlegt.(En
uppástunguna af aprílgabbinu var garðálfurinn okkar, þó ekki efnislega)
En hér kemur smá fróðleikur um "Hólmann" sem ég fékk sent í
morgun. --- Sæll Steingrímur - ég hafði gaman af 1. aprílgabbinu í gær
um hólmann - það var flott - vildi segja þér að þetta er gömul hugmynd
margra um hólmann þarna - ekki síst hafa nágrannar þarna á Túnunum lengi
látið sig dreyma um þetta svona til fegurðarauka.
Nú, ef á að eigna þetta einhverjum þá eru það tveir menn sem hafa barist
sérstaklega fyrir þessu og svo er það náttúrlega bæjarstjórnendum að
þakka verkið. Skarphéðinn Guðmundsson hefur lengst af verið helsti
hvatamaðurinn innan bæjarstjórnar á síðustu kjörtímabilum og svo fékk
hann heldur betur liðsauka þegar Sigurður Ægisson tók við prestakallinu.
Siggi tók málið upp á sína arma og setti þann þrýsting á sem þurfti.
Uppástungur að nöfnum hafa því komið í samræmi við þetta: Héðinshöfði
eða Héðinshólmi og Prestshólmi. -- Hreinn Júlíusson sem hannaði verkið
og var eftirlitsmaður framkvæmda stingur upp á nafninu Kríuhólmi - en
Kríuhólmi var einu sinni á Leirunum miklu austar þó.
Þá er hægt að stinga upp á
2.
apríl 2004 Everest skíðabúnaður.
Kynning á allskonar skíðabúnaði, fór fram í verslun
SR-Byggingavörum, á vegum "Everest" og SR-Byggingavörur klukkan 20:00 á
gærkveldi. Þangað var m.a. boðið þátttakendum og gestum Íslandsmótsins á
Skíðum, (alpagreinar) sem haldið er í Skarðsdal. Þessi kynning verður
síðan endurtekin í tengslum við Unglingameistaramótið sem haldið verður
hér 16-17 apríl n.k. Miklar og sóðar veitingar stóðu gestum til boða.
2.
apríl 2004 Primex. Unnið er að
breytingum í verksmiðju Primex á Sigló. Gert var gat á þakið til að ná
þaðan út stórum tönkum, og síðan aðrir nýir og fullkomnari sem
SR-Vélaverkstæði smíðaði, settir í staðinn. Myndirnar sem teknar voru
seinnipartinn í gær, sýna annan þann gamla hífaðan burt, en annar þeirra
nýrri bíður eftir hífingu.
2.
apríl 2004 Ein gömul:
Stefán Friðleifsson og Hallur Garibaldarson við flökun í Frystihúsi
SR 1960 Kári Sumarliðason sést í bak, á milli.
1.
apríl 2004 Hólmurinn á Langeyrartjörn, er nú ekki lengur
landfastur, og Stefán á Nesi búinn að skila verkinu af sér. Búið er að
dreifa mold og lífrænum áburði yfir hólmann. Fuglinn er þegar farinn að
heimsækja hólmann, en eftir er að dreifa grasi yfir hann, til að flýta
fyrir uppgræðslunni. Þá mun flutningabíll koma í dag með gamlan vita frá
Djúpavogi, og samhliða kemur þyrla frá varnarliðinu, sem flytja mun
vitann yfir í hólmann. Síðan, þ.e. klukkan 17:30 í dag mun svo Runólfur
bæjarstjóri formlega opna fuglunum aðgang, með því að gefa hólmanum
nafn, en heyrst hefur að hann verði nefndur "Neshólmi". Bæjarstjórn og
fleiri embættismenn munu mæta. Undirbúningur og frumkvöðull þessa verks
hefur verið í hönum garðyrkjufræðingsins okkar Arnars Jónssonar
1.
apríl 2004 Skíðamót Íslands stendur nú yfir á Siglufirði. Mótið
átti að halda á Ísafirði, en eins og kunnugt er, þá var þar ekki nægur
snjór. Í Skarðsdal á Sigló er nægur snjór þrátt fyrir að talsvert hefur
hitastig á svæðinu (Siglufirði) aukist, sem dæmi 12-16 C° í gærdag og
enn er logn og blíða. Væntanlega verða fréttir af mótinu á vefsíðu
Skíðafélagsins
http://www.siglo.is/sss/ Þessi mynd var tekin í morgun.
1.
apríl 2004 Leikfélag Siglufjarðar frumflutti Silfur hafsins 27.
mars sl. í Kaffi Torgi.
Uppselt var á sýninguna og komust færri að en vildu. Fyrir sýningu var
boðið upp á glæsilegan kvöldverð, en það hefur verið venjan á
frumsýningu nokkur undanfarin ár hjá leikfélaginu. Á sýninguna mætti
höfundur verksins Ragnar Arnalds ásamt eiginkonu sinni Hallveigu
Thorlacius. Einnig var þar Hrund Ólafsdóttir gagnrýnandi Morgunblaðsins.
Eins og áður hefur komið fram er leikstjóri Linda María Ásgeirsdóttir og
höfundur og stjórnandi tónlistar er Elías Þorvaldsson. Með honum spiluðu
Ómar Hauksson á bassa og Stefán Friðriksson á trommur. Leikendur eru 17
talsins, þar af 14 nýliðar hjá L.S.
Frumsýningargestir virtust vera mjög ánægðir með það sem birtist þeim á
fjölunum og þökkuðu bæði leikstjóra og höfundi fyrir í lok sýningar.-
Næstu sýningar verða 1. apríl kl. 21:00, 3. apríl kl. 21:00, 4. apríl
kl.20:30, 9. apríl kl. 22:00 (Uppselt) og aukasýning á páskadag kl.
20:30. Miðapantanir eru í síma 467 2000 og 866 1269. Miðasala hefst 1
klst. Fyrir hverja sýningu.
1.
apríl 2004 Ein gömul: Einhver sendir mér nöfnin !
Vona ég. Myndin er tekin í Æskulýðsheimilinu 196?