Lífið í apríl 1-4 2004 | Lífið í apríl 5-11 2004 | Lífið í apríl 12-18 2004 | Lífið í apríl 19-25 2004 | Lífið í apríl 26-30 2004

>>>>>>>>>>> Lífið í apríl 12-18 2004

 

Til forsíðu
Til baka
Hestamenn
Unglingameistaramótið (1)
Unglingameistarmótið (2)
Karlakórar




Ljósmyndasafn Steingríms
á netinu.

Steingrímur Kristinsson Siglufirði
G-892-1569
S-467-1569

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

18. apríl 2004  Þeim var haldið kveðjusamsæti, "Gömlu fóstbræðrunum" í Síldarminjasafninu í gærkveldi. En fyrr um daginn voru þeir með tónleika í Siglufjarðarkirkju og þar kom líka fram Karlakór Siglufjarðar með nokkur lög og svo sungu kórarnir saman tvö lög.  --- Söngstjóri Fóstbræðra er Jónas Ingimundarson en Söngstjóri Karlakórs Siglufjarðar er Elías Þorvaldsson en myndin hér er af þeim félögum. Frétt og myndir: Sveinn Þorsteinsson

18. apríl 2004  Í gær fór fram í íþróttahúsinu við Hvanneyrarbraut afmælismót í tilefni af 10 ára afmæli félagsins Glói. Til leiks mættu lið Skotfélags Akureyrar (sem unnu norðurlandsriðilinn í vetur), Smárans úr Varmahlíð auk heimamanna í Glóa. ---  Glói gerði sér lítið fyrir og sigraði á mótinu en Glói hlaut 5 stig, Skotfélag Akureyrar 4 og Smárinn 3 stig. Að loknu móti var þátttakendum boðið til pasta veislu á Allanum. Meðfylgjandi er mynd af sigurliði Glóa með bikarinn góða, fyrsti titill félagsins í höfn. Á myndina vantar þó Ragnar Hauksson sem varð frá að hverfa fyrir síðasta leikinn.  Nánar er fjallað um mótið á síðu Glóa www.gloi.tk   Aðsent:J.G.

17. apríl 2004 Vormót Glæsis var haldið á Íþróttavellinum við Hólsá, í dag þrátt fyrir krap og kulda. Fátt var um gesti, og sumir létu nægja að vera í bílum sínum í velgjunni, þar á meðal ég þann stutta tíma er ég dvaldi við svæðið.  Knapinn er  Hilmari Snær Símonarson og hesturinn Bassi, - en þetta er hálfgerð skuggamynd, tekin með miklum aðdrætti.

17. apríl 2004  Stolt móðir með nýlega fæddan Siglfirðing. Smelltu á myndina

17. apríl 2004  Unglingalandsmótið.  Búið er að fresta öllu í sambandi við alpagreinar - Tekin verður ákvörðun um hádegi og verður það lesið inná símsvara. -Veðrið var að versna þegar ég fór niður um 10 leitið meiri úrkoma og ekkert skyggni. - Verið er að reyna að útbúa gönguhring neðar. ca. fyrir norðan og ofan skóræktina. -- Þessar upplýsingar ásamt myndum af mættum starfsmönnum í morgun  fékk ég hjá Alla A kl 10:20. 
Smelltu á myndina

17. apríl 2004  Unglingalandsmótið. Frekar óhagstætt veður var í gær á skíðamótinu, en þeir létu sig hafa það, og héldu sínu striki. Alli A. sendi mér þessa ljósmynd,- og fleiri sem þú sérð ef þú smellir á myndina.

17. apríl 2004  Ein gömul frá 1965  Það eru líklega ekki margir sem kannast við þennan "gaur" En þetta er "passamynd" af ormi sem kallast Skeri, sjáfarlindýr, sem lifir hér við bryggjurnar, í það minnsta árið 1965 þegar verið var að rífa gömlu löndunarbryggjur SR. En þetta er einn af ormunnum sem sagðir hafa verið duglegir virð að ydda bryggjustaurana í gamla daga, éta og naga þá jafnvel í sundur við botninn. Þessi er á stærð við eldspítu, það sést gjörla í fingur minn á bak við, en ég hélt á kvikindinu spriklandi, er ég tók myndina.

16. apríl 2004  Unglingamótinu var frestað um 2-3 tíma í morgun, þar sem sá undirbúningur skíðabrauta sem unnið var við gær, hafði snjóað í kaf og þurfti því að hefjast handa að nýju. Þó ekki hefði snjóað í orðsins merkinu, niður í byggð, þá þurfti að moka veginn frá dalbotni, alla leið upp að skíðasvæðinu. og enn snjóaði lítilsháttar, en að var þó logn. Þessir krakkar voru mætt á staðinn í morgun klukkan  10:15 er ég tók þessar myndir.

16. apríl 2004  Ein gömul úr síldinni:
Þær eiga afmæli í dag:
16. apríl 2004

15. apríl 2004 Siglfirðingurinn, Ægir Björnsson gamall skipsfélagi minn á Haferninum, er að gera það gott í Svíþjóð og víðar. En nýlega hlaut hann eftirsóknarleg verðlaun í Svíþjóð, það er stærstu verðlaun sem veitt eru fyrir viðhald þar í landi.
En Ægir hefur unnið að þróun sérstaks hreinsibúnaðar fyrir olíur, og hefur búnaðurinn verið á markaði í nokkur ár, víða um heim.
Nánari upplýsingar um olíusíuna ofl. má finna á vefnum http://www.europafilter.se/   og http://www.mergi.is/  Einnig í Morgunblaðinu/Viðskiptablaðinu í dag.
Meðfylgjandi mynd sýnir Ægir til vinstri, með viðurkenningarskjöldinn, ásamt Leif Östling, Koncernchef, Scania

15. apríl 2004  Unglingameistaramót Íslands á skíðum, verður á Siglufirði 15-18. apríl.

15. apríl 2004  Hópur félaga í Félagi Eldriborga á Siglufirði og í Fljótum, munu leggja land undir fót og dvelja á Hótel Örk í Hveragerði dagana 18-23. apríl.  Vonandi verður hópurinn heppinn með veður, en tryggt er að góða skapið verður með. --- Góða ferð S.K.

15. apríl 2004  Allra síðasta sýning á leikritinu Silfur hafsins eftir Ragnar Arndals, 9. sýning verður þann 21. apríl Lífið á Sigló mælir eindregið með þessu verki

15. apríl 2004 Unnið er á fullum krafti inni í Bátahúsinu, við bryggjusmíði ofl. þarna er annar hópur bryggjusmiðanna, (frá Berg hf.) Sverrir Jónsson, Hallgrímur Vilhelmsson og Þorsteinn Jóhannsson.

15. apríl 2004   Ein gömul: Um borð í Haferninum 1966 við anker inni á Seyðisfirði, Stefán Árnason, Snorri Jónsson og Salmann Kristjánsson, "utanborðs"

14. apríl 2004  Það var mikið fjör að venju í frímínútum barnaskólans í morgun, er ég fór þar framhjá. Ég smellti á þessari mynd af nokkrum þeirra.

14. apríl 2004 Ein gömul:   Stefán Friðleifsson, Jón Kristjánsson og Jón Sigurðsson, inni á Tréverkstæði SR 1963(?)

Hann á afmæli í dag 14. apríl 2004

13. apríl 2004   Í vetur hefur farið fram á Króknum “Skagfirska mótaröðin”. Héðan hafa þau feðgin Haraldur Marteinsson og Katrín Haraldsdóttir tekið þátt.  Samanlagt eftir 3 mót var Haraldur meðal 4 efstu í fjórgangi og fór beint í A úrslit, en í tölti var hann í hópi 5-9 efstu og fór í B úrslit. 
  Smelltu á lógóið, til að lesa meira.

13. apríl 2004 Þetta eru hjónin Kristín Þorgeirsdóttir og Kristinn Konráðsson. Þau voru að koma að landi án þess að hafa getað dregið netin, en  gera út trilluna Hrönn II SI 144, og gera nú út á grásleppu. Frekar tregt hefur  verið hjá þeim sem komið er og kenna þau ógæftum, hvössum vindi um, en aðeins helmingur þess sem komið var á sama tíma í fyrra er komið á land nú. Einnig hefur verið mikið af einhverskonar þörungum í netunum, en slíkt hefur Kristinn ekki séð áður, þau 40 ár sem hann hefur stundað hrognkelsaveiðar.

13. apríl 2004 Sjö brunaútköll: Gamlar frásagnir. Sem betur fer, er það orðið fátítt að alverlegir brunar eigi sér stað, ef miðað við síðustu ár, enda aðstæður aðrar en voru hér áður fyrr, þegar hús voru kynnt upp með kolum eða olíu. Og til viðbótar fólk hefur lært betur að fara með hið hættulega fyrirbæri; eldinn. til að kynnast örlítið fortíðinni. þá smelltu HÉR

13. apríl 2004  Ein gömul: Eðvald Eiríksson og Þorsteinn Einarsson, starfsmenn: Löndun SR

Hún á afmæli í dag 13. apríl 2004

12. apríl 2004  Hlýðni námskeið fyrir hunda verður haldið á Siglufirði. leiðbeinandi verður Ólafur Pálmi  Agnarsson. - þeir sem hafa frekari áhuga, hafi samband við Videoval. En námskeiðið er af frumkvæði þeirra Fanneyjar og Steina.

12. apríl 2004  Ein gömul: Spilakvöld SR-inga í kaffisal Hraðfrystihúss SR 196?