Lífið í apríl 1-4 2004 | Lífið í apríl 5-11 2004 | Lífið í apríl 12-18 2004 | Lífið í apríl 19-25 2004 | Lífið í apríl 26-30 2004

>>>>>>>>>>> Lífið í apríl 26-30 2004

 

Til forsíðu
Til baka
Prinsessan
Skólastarfsmenn
Siglfirðingafélagið




Ljósmyndasafn Steingríms
á netinu.

Steingrímur Kristinsson Siglufirði
G-892-1569
S-467-1569

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

30. apríl 2004

30. apríl 2004  Fréttablað Siglfirðingafélagsins er komið út. Þar má finna fjölbreytt efni að vanda, fréttir, greinar og ljósmyndir. Forvitnilegt efni fyrir Siglfirðinga nær og fjær. - Þá er dagskrá vegna uppákomu sumarsins á Sigló birt þar í heild: "Síldarævintýrið með öllu" Smelltu á tengilinn "Siglfirðingafélagið" hér til vinstri og skoðaðu. Heimasíða Siglfirðingafélagsins er hér með formlega opnuð í dag með birtingu Fréttablaðsins, - og fleira efni er í vændum.

30. apríl 2004 Starfsmannafundur Grunnskóla Siglufjarðar stóð yfir sl. miðvikudag, er mig bar þar að garði, ég falaðist eftir myndatöku, sem fúslega var veitt, ég beið með birtingu þar til nafnalisti frá skólarita hafði borist mér, sem nú bitist ásamt mynd af hópnum, - sem þú sérð stærri með því að smella á myndina.

30. apríl 2004 Nýlega fæddur Siglfirðingur
30. apríl 2004  Ein gömul: Jóhannes Þórðarson, Guðmundur Kristjánsson og Þorkell Helgason. (1966)

29. apríl 2004 Björgunarsveitin Strákar. Nú bjóða þeir félagar upp á "sumarþvott" á bílnum þínum. Þú kemur með bílinn, þeir skrúbba og hreinsa hann utan sem innan,- og  á eftir gætirðu haldið þú ættir nýjan bíl beint "úr kassanum". Þeir voru þrír félagar á vakt, ryksugan á fullu, tjöruhreinsun, sápuþvottur og síðan bónað. Það rann af þeim svitinn drengjunum, en tveir bílar voru í hreinsun er ég kom að laust eftir hádegið í dag. 5.000 þúsund kallinn sem þetta kostar rennur beint til styrktar sveitinni. Á myndinni eru Ragnar Hansson, Ómar Geirsson og Arnþór Ómarsson.

29. apríl 2004 Menningar- og viðurkenningarsjóður KEA úthlutar 8.150.000 kr. í styrki, samkvæmt frétt á vefnum  http://www.kea.is/  Í flokki A, málefnum einstaklinga, félaga eða hópa sem vinna að mikilvægum menningarmálum á félagssvæði KEA bárust 75 umsóknir. Veittir voru 20 styrkir eða alls kr. 2.000.000  -eða kr. 100 þúsund hver aðili. Þar á meðal hlutu Siglfirskir aðilar styrk úr sjóðnum: Lionsklúbbur Siglufjarðar – til að lagfæra kirkjugarðinn á Hvanneyrarhólum.- Vorboðinn, kór eldri borgara Siglufirði – vegna kóramóts á Norðurlandi. - Steingrímur Kristinsson, Siglufirði – vegna vinnu við ljósmyndasafn. - 
Til hamingju - kærar þakkir.

29. apríl 2004  Fréttablað Siglfirðingafélagsins, fer í dreifingu til félagsmanna á morgun. Frá sama tíma verður hægt að nálgast blaðið á pdf formi hér á vefnum, á tenglinum "Siglfirðingafélagið" sem vísar á vefsíðu Siglfirðingafélagsins, en síðan verður formlega opnuð sama dag

29. apríl 2004  Þessa drengi hitti ég framan við pósthúsið á Sigló, seinnipartinn á gær. Þeir voru greinilega komnir í sumarskapið og voru fúsir til að stilla sér upp fyrir ljósmyndarann. þetta eru: Eyjólfur Guðgeirsson, Sigurjón Ó. Sigurðarson, Finnur Mar Ragnarsson, Hákon Orri Steingrímsson, Jón Þór Einarsson, Sigþór Andri Gunnlaugsson, Magnús Bjartur Ólafsson, Aðalsteinn Ragnarsson og Ágúst Orri Andersen.

29. apríl 2004  Ein gömul:  Sendlar hjá SR 1964. Marteinn Þór Kristjánsson, Anton Pálsson og Guðjón Magnússon

28. apríl 2004 Svar "komið"  Vegna fyrirspurnar og vangavelta um brúna yfir Hólsá (hér fyrir neðan 27/4) - sem ráðherrar fullyrtu að yrði byggð í sumar. Þá hefur borist óstaðfest svar um að, þar sem verkið sé ekki á vegaáætlun hafi það þess vegna ekki verið  boðið út á hefðbundinn hátt með öðrum verkum. En brúarsmíðin verður boðin út í næsta mánuði og framkvæmdir ættu að hefjast fljótlega úr því. Við skulum vona að svo verði.

  28. apríl 2004  Undirritaður hefi undanfarin ár mjög mikið notað  upplýsingar frá þjóðskrá, sem boðið hefur verið uppá í gegn um bankana, þessar upplýsingar nota ég vegna skráninga á myndasafni mínu í þeim tilgangi að hafa þær upplýsingar sem réttastar. Nú er svo komið að kreddufólk úr ýmsum áttum telja þessar upplýsingar heilagar í nafni persónuverndar. Á vef KB banka er þessi orðsending: "Þjóðskrá lokað 1. maí 2004. Ágæti notandi þjóðskrár. Við vekjum athygli á því að frá og með 1. maí nk. verður, samkvæmt ákvörðun Hagstofu Íslands, óheimilt að veita aðgang að þjóðskrá á opnum vef líkt og KB banki hefur boðið upp á undanfarin ár. Við vekjum athygli á því að Hagstofan veitir upplýsingar úr þjóðskrá í síma 569 2950." Ég hringdi í þetta símanúmer til að afla frekari upplýsinga. Þá kom í ljós að þetta er gert af kröfu Persónuverndar  - en............., - ef ég borgaði 40.000 krónur, þá væri þetta ekkert leyndarmál. Þetta kallast líklega persónuvernd, nema þú eigir peninga. Þetta eru að mínu mati ekki "vinargreiði" "þjónustugreiði"- heldur dulbúnar mútur. Þeir eru sem sé að SELJA upplýsingarnar sem þeir hafa safnað um okkur. Þetta er okkar gagnabanki, og á að vera öllum frjálst að skoða og fara eftir þeim reglum sem koma í veg fyrir misnotkun. Hvað verður næst, ætla þessir and.... að loka símaskránni einnig?  Steingrímur.

28. apríl 2004  Skógarfoss losaði hér í morgun auk annars varnings, rúmlega 20 gáma af frosinni rækju til vinnslu hjá Rækjuvinnslu þormóðs Ramma.

28. apríl 2004  Miss Iceland of the Greter Seattle Kveðja frá Jóhanni Sigurjóns USA.  - Jóhann hefur starfað mörg ár úti í Bandaríkjunum, foreldrar hans eru Sigurjón Jóhannsson og Ásdís Gunnlaugsdóttur- Um síðustu helgi var dóttir hans Kristin kosin prinsessan eða "Miss Iceland of the Greter Seattle"- sem er gömul hefð Íslendingafélagsins í Seattle árlega og gildir í eitt ár.  Þessi kosning er alltaf haldinn á Sumardaginn fyrsta. Í Seattle er mikið af Íslendingum, sem nota alltaf tækifærið til að koma saman. Íslendingarnir þar, halda einnig upp á Þorrablót, sumardaginn fyrsta, 17 Júní og meira. Myndin sýnir stolta afa og ömmu, "Budda og Ásdísi" með Prinsessunni. Smelltu á myndina

28. apríl 2004  Ein gömul: Magnús Guðjónsson og Barði Ágústsson, skeggræða.

27. apríl 2004  Þeir væla ekki þessir drengir þó þeir ökklabrotni og- séu settir í gips. Hann brá sér í stígvél á annan fótinn en vafði plastpoka um hinn og fór að þrífa planið í kring um Hafnarvogina. Það er enginn tími til að væla heima í veikindafríi. Þetta er annar hafnarvörðurinn Jónas Sumarliðason, sem varð fyrir því óláni að ökklabrotna á dögunum.

27. apríl 2004  Ég verð ekki við í dag, þarf að skreppa til Akureyrar. Heimamenn, ef eitthvað skeður á meðan, reynið að ná af því mynd og segið mér frá, og- ég birti það á morgun.   (Kom til baka seinnipartinn)

27. apríl 2004  Svar óskast !  Á fundi utanríkisráðherra á Kaffi Torg í janúar síðastliðnum, var Halldór Ásgrímsson spurður um framkvæmdir vegna brúar yfir Hólsána, í tengslum við marglofuð jarðgöng. Svar hans var afdráttarlaust. "Það verður byrjað á þessum framkvæmdum í sumar, hvað sem hver segir." (nærri því orðrétt)  Og í sama streng tók sjáfarútvegsmálaráðherra nokkrum dögum síðar á fundi á sama stað: Það verður hafist handa í sumar hvað sem tautar. 
Nú hefur Vegagerðin auglýst eftir tilboðum í hin ýmsu verk sem framkvæma á í sumar, hvergi fann ég á heimasíðu Vegagerðarinnar nokkurn stafkrók um brúarsmíði á Siglufirði. Því spyr ég: Verður byrjað seinnihlutann í sumar að reka niður hæla eða eitthvað því umlíkt,- og svo restinni frestað til næstu ára????
      

27. apríl 2004  Ein gömul úr síldinni.  Jóhanna Helgadóttir, þessi með hárklútinn.

26. apríl 2004   Orðsending til trillukarla og annarra sem beðið hafa um þetta  <<< smelltu

26. apríl 2004   Verið var að hífa plastbátinn Sædís á "land" í morgun, er mig bar að. Raunar snerti báturinn ekki land, en endurnýjaðar voru á bátnum Zink-plötur, sem kominn var tími á að skipta út,- og hékk báturinn í kranakróknum á meðan, og var báturinn settur aftur á flot nokkrum mínútum síða.

26. apríl 2004  Aðsent, S.Æ.: Hópur breskra fuglafræðinga var á Siglufirði í síðustu viku til að merkja jaðrakana. Beittu þeir skotnetum við að ná fuglunum. Verk þeirra hófst í Borgarnesi og svo var haldið norður um og m.a. stansað í Langhúsum í Fljótum og fuglar merktir þar. Á Siglufirði náðust 10-20 jaðrakanar. Fuglafræðingarnir fóru í morgun yfir til Akureyrar þar sem á að freista þess að ná fleiri fuglum til merkinga. Gera þeir ráð fyrir að koma aftur í júlí eða ágúst og ná þá ungum sumarsins til að merkja.

Hann á afmæli í dag 26. apríl 2004

26. apríl 2004  Ein gömul: Ásmundur Steingrímsson, Kristinn Jóakimsson og Eggert Theódórsson, við vinnu á lóð SR