9.
maí 2004 Nýtt fréttaskeyti frá Evrópu - Safnið okkar hlýtur
verðlaun ! Síldarminjasafnið hlaut önnur
aðalverðlaun Safnaráðs Evrópu (European Museum Forum) sem eru Micheletti
verðlaunin sem veitt eru fyrir framúrskarandi safnstarf á sviði vísinda,
iðnaðar eða tækni. Aðalverðlaunin, "Safn Evrópu ársins 2004" hlaut hið
mikla og glæsilega fornminjasafn í Alicante a Spáni. Þriðju verðlaunin
voru á vegum Evrópuráðsins komu í hlut Heilsugæslusafnsins i Edirne i
Tyrklandi. Þess má geta að allt að 40 Þúsund söfnum víðsvegar i Evrópu
stendur til boða þátttaka i þessari virtu keppni. 45 söfn, sum afar stór
og öll mjög glæsileg voru í þessari úrslitakeppni í Aþenu G.P.
9.
maí 2004
Nýtt á frá Siglfirðingafélaginu, smelltu á tengilinn.
9.
maí 2004 Athygliverð grein, sem ég fékk senda í gærkveldi,
grein sem varðar ferðamál á Siglufirði. Greinin hefst með þessum orðum:
Ég hef um nokkurt
skeið haft í hyggju að skjóta ýmsum hugmyndum að heimamönnum hvernig
festa má Siglufjörð betur í huga manna sem verðugan áfangastaða
ferðamanna. Þetta geri ég að sjálfsögðu til að ég og mínir geti haft það
ennþá betra þegar við dveljum á Siglufirði, en líklegt er að þetta geti
dregið miklu fleiri ferðamenn til Siglufjarðar, sem margfaldar áhrifin.
meira
9.
maí 2004 Kóramót eldri borgara á Norðurlandi, var haldið á
Siglufirði í gær Laugardag í siglufjarðarkirkju. Þar voru mættir kórar
eldriborgara frá Húsavík, Akureyri, Skagafirði, Dalvíkurbyggð og Hrísey
auk frá Siglufirði.
Meðfylgjandi mynd er af Kór félags eldriborgara á Akureyri.
Einnig nokkra myndir sem Guðný Friðriksdóttir tók.
Smelltu á myndina
9.
maí 2004 Allinn, er nafn það sem Guðmundur Davíðsson
forðum gaf Alþýðuhúsinu formlega nýtt nafn með því að skrifa á stafn
þess stórum stöfum nafnið; "Allinn". - Annan desember á
síðastliðnu ári seldi Guðmundur eign sína "Allann" og afhenti nýjum
eigendum staðinn, sem eru hjónin Ólafía Ingibjörg Sigríður
Guðmundsdóttir, sem allir þekkja sem "Lóu" - og maður hennar Haraldur
Björnsson. Reksturinn hefur gengið vonum framar og ljóma þau af ánægju,
en bæði hafa starfað lengi sem launþegar í veitingageiranum, og töldu
sig fær um að sinna slíku á eigin spýtur. Þjónusta þeirra er fjölbreytt;
auk almenns veitingarekstur, dansleikja, fjölbreyttan mat í hádeginu og
á kvöldin, bjóða þau upp á veislur, bingó, spilavist, billjard (en nýr
biljard klúbbur hefur verið stofnaður) Þá er staðurinn tilbúinn til að
taka við og þjóna hinum árlegu "árgangsmótum" brottfluttra
Siglfirðinga.. Og þá má nefna samstarf "Stöðvarinnar" og Allans, ef
einhver hefur áhuga á Pizzuveislu. Og nefndu það, þau eru til í allt,
sem lífgað getur upp á lífið á Sigló. Myndin er af þeim hjónum, ásamt
lukkugrísnum.
9.
maí 2004 Píluklúbbur Siglufjarðar hélt stigamót í
Allanum í gærdag. Þetta er liður í stigakeppni á landsvísu, en
Siglufjarðarklúbburinn er í "landssambandinu" Ég kom þar við, er mótið
stóð sem hæst og tók nokkrar myndir sem þú sérð ef þú smellir á myndina
9.
maí 2004 Ein gömul: Þeir höfðu í ýmsu að snúast
lögregluþjónarnir í "gamla daga" en þó alls óskyldum verkefnum en nú í
dag, af sumu leiti að minnsta kosti. Þessi mynd sýnir lögregluþjóninn
Braga Magnússon dorga einn af mörgum kajökum, sem sökkt hafði verið
frekar en að láta hann lenda í "höndum óvinarins", sem var löggan
í þessu tilefni. Mynd þessi er tekin árið 1965 er stórir ísjakar lónuðu
hér innanfjarðar og strákarnir í Bakka og á Eyrinni smíðuðu sér kajaka í
tugatali og sigldu stoltir á milli ísjakanna. Þetta var ekki vel liðið
af foreldrum og eða "kjaftakerlingunum" sem hringdu gjarnan í lögguna
þegar, til drengjanna sást. Þessi siður drengjanna var þekkt fyrirbæri
áratugi aftur í tímann, þó lögreglan hefði haft minni afskipti þá, áður
en sími kom í hvert hús.
8.
maí 2004
Fréttaskeyti frá Grikklandi. Síldarminjasafnið tekur þátt í
Ólympíuleikum safna sem fram fer í Aþenu þessa dagana. Eins og hæfir
tilefninu var hinn forni leikvangur Grikkja opnaður fyrir keppnina.
Fulltrúi safnsins, Örlygur Kristfinnsson, hefur lokið keppni en þar var
aðalkeppnisgreinin "alhliða þrek- og fegurðarsýning með hjálpargagni"
sem 45 söfn kepptu. Siglfirðingurinn sveiflaði díxli sínum ákaft og var
talinn hafa staðið sig þokkalega. Í gær var farið í hof Poseidons, þar
sem heitið var á sjávarguðinn að senda okkur aftur síldina á
Norðurlandsmið. G.P.
8. maí 2004
Það eru að líkindum, liðin meir en 40 ár, síðan ég fór í heimsókn
í fjárhús, þar til í morgun að ég heimsótti Hafstein Hólm. Hafsteinn er
með þau sérréttindi að vera eini fjárbóndinn á Siglufirði sem fær að
hafa kindurnar sínar innan bæjarmarkanna, en samkvæmt lögreglusamþykkt
bæjarins, er slíkt óheimilt. En undanfarnar bæjarstjórnir,- og núverandi
hafa leyft þetta, (skriflegt) En Hafsteinn hefur alist upp við svona
búskap frá barnæsku. - Er mig að garði, voru þeir feðgar að rýja eina
kindina af þeim 7 sem þarna eru, en burður hefur staðið yfir hjá þeim.,
- og allt gengið að óskum. Á annarri myndinni er Jón Hólm Hafsteinsson
og faðir hans Hafsteinn Hólm Þorleifsson sem heldur á
þrílembingum., hin er af einmanna nýrúinni kind, en lömbin skruppu
undir "garðann" og yfir í hlöðu.
8.
maí 2004 Ein gömul: Björn Þór Ingimarsson, Jón
Bergsveinsson (Sigurðssonar) og Kristinn Steingrímsson
7. maí 2004 Aflaskýrsla bátanna fyrir
aprílmánuð er komin á vefinn
7.
maí 2004 Ein gömul: Um borð í Haferninum,
Gunnar Tómasson háseti, Sigurjón Kjartansson dælumaður og Steingrímur
Kristinsson timburmaður.
6. maí 2004
"Það er margt skrítið í kýrhausnum" Í fréttum og auglýsingum kemur
margt furðulegt fram. Á síðastliðnu ári (held ég) komu fram í
auglýsingum frá Mjólkursamsölunni, að búið væri að uppgötva það að
drekka megi mjólkina sem við höfum drukkið frá fæðingu, ef marka má nafn
á umbúðum nefndrar vöru "Drykkjar mjólk" og nú í hádeginu var
sagt frá nefnd á vegum forætisráðuneytisins, sem hafði uppgötvað eftir
17 funda setu, "að þeir að lægst launuðu byggju við lökustu kjörin"
Þeir eru gáfaðir þessir menn sem eru valdir í nefndir ráðuneytanna !
6. maí 2004
Þetta eru: Helgi Rafn bifreiðastjóri
hjá Vörumiðlun og Jón Sigurðsson hjá Olís
6.
maí 2004 Skondin auglýsing. Undanfarnar vikur
hafa birst í "Tunnunni" auglýsingar, frá sýslumanni og
bæjartæknifræðingi, þar sem áréttað er að skipta frá nagladekkjum
bifreiða yfir á sumardekkin fyrir 15. apríl sl. að viðlagðri hættu á
sektum. Í gær
er Tunnan kom út var að finna svohljóðandi auglýsingu:
"Nagladekkin undir strax, Sýsli og bæjarapparatið. Gleðilegt sumar."
6.
maí 2004 Ein gömul: Á myndinni eru ma.
Þorleifur Sigurðsson, Einar Björnsson, Halldór Pétursson, Jörgen Hólm og
Eggert Theódórsson. Snorri Dalmar er við stýrið, en svona var fólkinu
hjá SR & frystihúsi SR keyrt heim í matartímum (það er suðurbæingum)
5.
maí 2004 Þó að nú snjói, þá trúum við að sólin verði
okkur hliðholl í sumar:
Fjölbreytt dagskrá sumarsins á Siglufirði 2004 Smelltu á
"sólina"
og skoðaðu dagskrána í sumar á vef Siglufjarðarkaupstaðar.
5.
maí 2004 það snjóaði ! Myndin til vinstri
sýnir snjóinn sem blasti við mér á stétt minni og tröppum, þegar ég fór
út rétt fyrir klukkan 9 í morgun. Hin sýnir upp Gránugötuna stuttu
síðar. Það er ekki óvanalegt að snjór komi á þessum tíma árs, en hann er
sko ekki velkominn á þessum tíma þrátt fyrir allt. Kannski við pöntum
lög fráríkisstjórninni til að banna snjókomu í maí, það væri ekki það
vitlausasta.
5.
maí 2004 Aðsent: Farið var á hængsmót í boccia 30 apríl -
2 maí. Með í för voru Hulla, Anna, Hrafnhildur, Jóhanna, Anna Lára ,
Hrefna, Vilborg, Björg, Pálína S., Elsa B., Nanna, og Erna, auk
farastjóranna Helgu, Rósu, og Jósteins. Gist var á Leifstöðum sem er
frábær staður og öll aðstaða til fyrirmyndar. Keppni gekk vel 5 lið voru
skráð í opinn flokk og sigurvegarar voru Snerpa B - Anna Lára, Vilborg,
Helga, Í öðru sæti voru lið Snerpu A - Hrefna, Erna,Nanna og í Þriðja
sæti Urðu Akur A. Spilað var brigde, vist og Kana fram á nótt og hinn
fjölhæfi farastjóri okkar hann Jósteinn Snorrason tók að sér að
naglalakka konurnar og varð Kanakóngur.
Kveðja Helga Hermannsdóttir
5.
maí 2004 Ég kom við á Blönduós á leiðinni heim,- (í gær)
og kom þar við í fyrirtækinu Ísgel. Þar ræður húsum
Siglfirðingurinn Guðfinna Ingimarsdóttir, en hún er einn aðal eigandinn
ásamt Fríðu Pálmadóttur, en þær stofnuðu fyrirtækið 5. júní árið 1999.
Þetta er hlutafélag í blómlegum rekstri. Það eru ekki margir starfsmenn
hjá félaginu, enda búnaðurinn nær alsjálfvirkur og það skemmtilega við
þann búnað, vélasamstæðuna, en þær stöllur létu framleiða vélina úti í
Frakklandi samkvæmt teikningu og hugmynd Guðfinnu. Framleiðslan er
kælipokar, fyrir fiskiðnað, íþróttafólk og allt mögulegt. Greinagóð
vörulýsing er á heimasíðu þeirra
www.isgel.isSmelltu á myndina og skoðaðu myndir í viðbót.
5.
maí 2004 Frá Stjórn Skógræktarfélags Siglufjarðar. Í
byrjun apríl var úthlutað styrkjum úr Landgræðslusjóði til verkefna á
sviði umhverfismála. Skógræktarfélag Siglufjarðar fékk 250.000 króna
styrk sem nota á til kortagerðar á skógræktarsvæðinu og til
göngustígagerðar.
5.
maí 2004 Sparisjóður Siglufjarðar hefur
gert samning við Sigurð Ægisson um ritun sögu Sparisjóðsins frá upphafi
til okkar daga. Stefnt er að útgáfu bókarinnar fyrir jólin 2005. Þeir
sem kunna að eiga í fórum sínum einhverjar myndir eða áhugavert efni
tengt Sparisjóðnum eru beðnir um að hafa samband við Sigurð Ægisson.
5.
maí 2004 Nýlega fæddir Siglfirðingar
1.
maí 2004 Myndir frá Sveini Þorsteinssyni: Ungmennafélagið
Glói 10 ára, dagskrá í Ráðhúsinu 1.maí.
1.
maí 2004 Myndir frá Sveini Þorsteinssyni frá hátíðarfundi
og kaffisamsæti Verkalýðsfélagsins Vöku í "Alþýðuhúsinu" -
Hafþór Rósmundsson bauð bæjarbúa velkomna, boðið var upp á kaffi og
meðlæti með svipuðu sniði og og var fyrir 70 árum, þegar Alþýðuhúsið var
tekið í notkun.Einnig voru tónlistaratriði, ofl.
Smelltu á myndina.
5. maí 2004
Ein gömul: Björn Þór Haraldsson og Símon Márusson
5. maí 2004 Ég kom
seinnipartinn í gær. - Eins og landsmönnum er kunnugt, en ef
til vill ekki Siglfirðingum erlendis, þá gekk yfir landið kuldakast,
Siglfirðingar fengu ma. að kenna á því, en það snjóaði nokkuð fyrir
norðan og austan, sunnlendingar sluppu við snjókomuna, en þar var þó
bölvuð nepja. Ég var varaður við á mánudag, og ráðlegt að halda ekki
norður í gær (þriðjudag) eins og ég hafði áætlað, en síðan uppgötvaðist
að lýsing fjölmiðla og "gangandi" átti ekki við daginn í gær og ég lagði
af stað eins og áætlað var, gerði þó ráðstafanir með hjálp góðra
manna ef á þyrfti að halda að fá send snjódekkin mín á móti mér, en
bíllinn minn var fyrir löngu kominn á sumardekkin. En þrátt fyrir
snjóföl á Siglufjarðarveg og slyddu, þá gekk allt vel á sumardekkjunum,
svo vetrardekkin voru látin hvíla sig áfram.
1. maí
2004 Ath. Vegna fjarveru, mun uppfærslu síðunnar ekki
sinnt næstu daga, eða þar til 5. maí nk.- Sveinn Þorsteinsson (s.
848-4143) mun vera með myndavél sína í viðbragðsstöðu og taka myndir
fyrir mig, "veðurmyndir" og ef eitthvað markvert á sér stað, - og ég
síðan birta sem "seríu síðustu daga" ásamt viðeigandi texta þegar ég kem
til baka.
1. maí 2004 Skoðið
Siglfirðingavefinn, - tengill til vinstri.
1.
maí 2004 Aðsend frétt: Silja Arnarsdóttir, Herbalife
ráðgjafi óskar að koma á framfæri við Siglfirðinga, að hún hefur hafið
sölu á vörum frá Herbalife. Hún veiti persónulega þjónustu og ráðgjöf á
því sem hentar fyrir hvern og einn. Einnig bíður hún upp á vigtun og
mælingar fyrir þá sem óska eftir því. Hún segist sjálf hafa persónulega
reynslu af vörunum, og býð alla hjartanlega velkomna sem vilja kynna sér
kosti vörunnar. S:467-2005, 863-8807 -
siljaa@simnet.is
1.
maí 2004 Ein gömul:
Benedikt Sigurðsson, Bjarni Jóhannsson og Kristján Sigtryggsson,
viðstaddir vígslu Sjúkrahússins 15. desember 1966