|
Annáll Aprílmánaðar
1954
Veðurfar.
Mánuðurinn var mjög hagstæður
yfirleitt hvað veðráttu snerti. Meðalhiti mánaðarins mun hafa verið
talsvert yfir frostmarki. All umhleypingarsamt var, en þó voru
bjartviðri tíð framan af mánuðinum og um miðjan mánuðinn mun hafa verið
hlýjast og er leið á mánuðinn var jörð farin að grænka og garðablóm farm
að spretta. Brum á trjám var farið að þrútna.
Undi r lok mánaðarins kólnaði svo dálitið og var
norðanátt með éljagangi nokkra daga. Hvítnaði þá jörð til sjávar. Engin
sérstök stórviðri, gerði í mánuðinum, en 9. apríl hvessti þó af
suðvestri 9 til l0 vindstig, en það veður stóð stutt og gerði engar
teljandi skemmdir utan þess að einn geymsluskúr hjá Rauðku fauk og
ónýttist.
Gæftir og aflabrögð.
Gæftir máttu kallast sæmilegar og var alloft róið, því
að sjaldan gerði stórsjó, þótt umhleypingar væru. Sluppu menn yfirleitt
farsællega, rótt nokkuð blési. Í veðrinu 9. apríl var m/3 Baldvin
Þorvaldsson sendur af stað til að sæk ja trillu Águst Gíslasonar, sem
var í róðri, komust bæði trillan og Baldvin farsællega til lands aftur.
Aflabrögð munu hafa verið stopul, stundum sæmileg en alloft reytingsleg,
Mun óhætt að segja, að, mánuðurinn sé varla annálsvetur hvað snertir
fiskafla. Glæddist afli þó heldur er á mánuðinn leið.
Atvinnulíf og skipskomur.
Atvinna mun hafa verið fremur stopul í mánuðinum.
Aðallega unnið við fisk, sem barst á land, en það var sjaldnar en
æskilegt hefði verið.
1. apríl landaði Elliði fiski,- og var gert á honum
ketilhreinsun á eftir.
4. apríl lestaði Dettifoss freðfisk til Rússlands.
7. apríl kom Reykjafoss með áburð, en tók tómar tunnur
og þorskalýsi. 8. apríl kom Ingvar Guðjónsson með 38 lestir af fiski í
íshús S.R. 14. apríl kom Ingvar Guðjónsson aftur með 19 lestir af fiski.
17. apríl 1önduðu bæði Ingvar Guðjónsson og Sigurður. 8.
apríl kom m/s Straumey og tók áburð.
22. apríl kom Litlafell hingað í fyrsta sinn og losaði
olíu og benzín 27. apríl kom m/s Ingvar Guðjónsson með 21 lest fiskjar.
28. apríl komu 2 bátar frá skagaströnd og tóku ís til að
hafa við handfæraveiðar við Langanes. Sama dag kom Jökulfell með sykur
og fleira til Síldarútveganefndar.
3o. apríl var m/ s Stígandi settur á land til aðgerðar.
Fyrir utan smábátaútgerðina voru þessar skipskomur aðal lyftistöng
atvinnulífsins, en af því sem her hefir verið sagt má sjá að ekki hefir
sú stöngin lyft sérstaklega hátt í aprílmánuði. Að sjálfsögðu komu
strandferðaskipin Esja og Hekla á sinum tilskyldu tímum í mánuði, en þar
vísast til skipaafgreiðslunnar um nánari upplýsingar. þó bar það einnig
til tíðinda í mánuðinum að póstbáturinn Drangur kom yfirleitt þegar hann
átti að koma og fór sömuleiðis þegar hann átti að fara.
Mannlát og fæðingar.
7. apríl var gerð útför Páls Jónssonar, Lindargötu l c
hér bæ en hann lézt 29. marz.
Páll var 72 ára að aldri, kunnur borgari og merkur
maður.
21. apríl andaðist ekkjan Margrét Friðriksdóttir
Hafnargötu 6 hér í bæ, 89 ára að aldri og öllum eldri Siglfirðingum að
góðu kunn. Útför hennar fór fram 28. apríl. 6 börn fæddust f mánuðinum
3 drengir og 3 stúlkur.
Önnur tíðindi.
Á pálmasunnudag 11. apríl hélt karlakórinn Vísir
söngskemmtun í Nýja Bíó i tilefni af 3o ára afmæli sínu. Söngstjóri var
Haukur Guðlaugsson Undirleik annaðist frú Guðný Fanndal. Einsöngvarar
með kórnum voru Þórður Kristinsson og Sigurjón Sæmundsson.
Húsið var þéttskipað og söngnum vel fagnað. Ræður heldu
við það tækifæri Páll Erlendsson söngstjóri og Sigurjón Sæmundsson form
Vísis. Um kvöldið hélt kórinn afmælishóf í Alþýðuhúsinu
Á skírdag og páskadagana báða fór fram hluti af
skíðamóti Íslands. Keppt var í göngu og stökki. Snjólítið var og aðstaða
fremur óhæg til keppni. Verður ekki hirt um að geta afreka í þeirri
íþrótt hér.
3o. apríl var botnvörpungurinn Hafliði lagður til við
bryggju hér í bæ og bundinn. Varð að gera þessa ráðstöfun vegna
manneklu. Áður hafði Hafliði gert sig frægan af veiðum innan landhelgi
og hlotið dóm sem áfrýjað var til Hæstaréttar. Er allt útlit fyrir að
Hafliði fái sæmilega hvíld frá veiðum um sinn. Væri þó athugandi fyrir
bæjarstjórn að gera hann út á handfæraveiðar á vegum unglingavinnu
bæjarins.
Ljúkum vér svo sögu aprílmánaðar.
--------------------------------------------------------
Annáll Maímánaðar. 1954.
Mánuðurinn hófst með frídegi verkamanna að venju og var
þá gerð kröfuganga, sem að vísu var fremur fámenn að sögn sjónarvotta.
Hátíðahöld voru í A1þýðuhúsinua um kvöldið, en útisamkoma um daginn.
Önnur stórtíðindi í mánuðinum voru þessi.
9. maí var handavinnusýning í Barnaskólanum.
11. maí var Siglufjarðarskarð opnað til umferðar.
14. maí Tómas Einarsson Hólaveg 2o og Hilmar Guðmundsson
Holaveg 12 féllu úr lyftustó1 af 3 hæð Útvegsbankans niður á gangstétt.
Var Hilmar fluttur meðvitundalaus á Sjúkrahúsið, en Tómas slapp litið
meiddur eftir atvikum.
16. maí fór fram fermingarguðþjónusta í
Siglufjarðarkirkju, Voru fermd 37 börn, 23 drengir og 14 stúlkur.
18. maí kom hingað til bæjarins fræðslumálastjóri Helgi
Elíasson og íþróttafulltrúinn Þorsteinn Einarsson til að athuga um
endurbætur og viðbyggingu við Barnaskólann.
Aðfaranótt 22. maí var brotist inn í sundlaug bæjarins
og þar framin spellvirki, en engu stolið. Sama dag komu meyjar frá
kvennaskólanum í Reykjavik 16 að tölu og virtu fyrir sér bæinn.
Leikfélag Siglufjarðar fór í leikför til Sauðarkróks með
sjónleikinn Hamingjufjölskyldan, sem sýndur hafði verið hér framan af
mánuði við góðan orðstír og hollan hlátur.
23. maí kom hingað stór krani frá Vitamálastjórninni,
til að vinna við flóðgarðinn.
30. maí var haldið í Siglufjarðarkirkju kóramót
kirkjukóra Eyjafjarðarprófastdæmis, hér annað í röðinni. Komu kórarnir
innan úr firði með m/s Esju á Sunnudagsmorgun, en kirkjukór Ólafsfjarðar
kom með bíl yfir Lágheiði og Siglufjarðarskarð. Mótið hófst með
hátíðarguðþjónustu kl 2 e.h. kórarnir héldu svo 2 konserta um daginn kl
5 og kl 21,00 Sungu þar 6 kórar bæði einslega og saman. Er þetta stærsti
söngviðburður í sögu Siglufjarðar. Lúðrasveit Akureyrar lék á
Ráðhústorgi kl 4 um daginn. Um kvöldið kl.11 sátu kórarnir samsæti í
Sjómannaheimilinu í boði bæjarstjórnar og sóknarnefndar. Mannmargt var í
bænum um daginn og mikið um dýrðir Aðkomukórarnir heldu heim um nóttina.
29. maí var Barnaskóla Siglufjarðar slitið.
Veðurfar.
Fram af mánuðinum var fremur kalt, en er leið að miðjum
mánuðinum brá til betri tíðar og mátti heita að einmuna veðurblíða væri
allan seinni hluta mánaðarins. Jörðin grænkaði og gras spratt svo ört að
næstu mátti sjá og heyra. Trjágróður var í blóma upp úr 2o. maí. Sláttur
hófst á einstaka blettum í lok mánaðarins. Gras var að fara í legur á
Hvanneyrartúni undir mánaðarmótin. Sett var niður í garða um og eftir
mánaðarmót.
Atvinnulíf og sjósókn.
Framan af mánuðinum var atvinnulíf fremur tregt, en
glæddist mjög er á mánuðinn leið. Undir lok mánaðarins var góð atvinna í
bænum. Gæftir voru tregar framan af og afli rýr, en glæddist heldur er á
mánuðinn leið.
8. maí komu skipin Sigurður, Súlan, Ingvar Guðjónsson og
Snæfellið inn vegna veðurs, en voru með lítinn afla.
16. maí kom Elliði með 2oo tonn.
17. kom Ingvar Guðjónsson með 53 tonn,
2o. kom Ingvar aftur með 17 tonn.
21. Maí kom Elliði með 24o tonn
25. maí kom Ingvar Guðjónsson með 57 tonn.
31. maí kom Snæfellið og Súlan og lögðu hér upp fisk,
Snæfell 4o tonn og Súlan 35 tonn. Aðrar skipskomur voru helztar
2. maí kom Hvassafellið.
5. maí kom Goðafoss með sykur og tók freðfisk.
8. maí kom Brúarfoss að austan frá Reykjavik.
10. maí kom Þyrill með olíu til B.P.
12. maí kom norski línuveiðarinn Bruningen frá Molde með
bilaðan dýptarmælir.
13. maí kom færeyskt fiskiskip Energy að nafni með
bilaða vé1 til viðgerðar og Skansoddi frá Ferenning kom með sement.
15. maí kom þyrill með olíu til B.P. og Shell. - Danskt
skip kom með timbur til Ó Ragnars.
2o. maí kom Litlafell og losaði olíu. Sama dag kom
enskur togari með veikan mann og Græðir kom frá Reykjavík til viðgerðar
i slipp.
21. maí kom botnvörpungurinn Sléttbakur með slasaðan
mann, Guðmund Sveinsson Suðurgötu 49 hér í bæ.
24. maí kom Reykjafoss frá Reykjavík og fór samdægurs
til Akureyrar.
25. maí kom sementskip til KFS.
27. maí kom færeyska fiskiskipið Langanes að nafni til
að taka olíu, sama dag komu 6 norskir
línuveiðarar inn vegna óhagstæðs veðurs. Auk þess komu ríkisskipin Esja
og Hekla á áætlunarferð sinni og sömuleiðis Drangur eftir sinni áætlun.
Mannalát og fæðingar.
1. maí lést Sveinn Jóhannesson frá Heiði þekktur maður
hér í bæ, 66 ára að aldri, útför hans var gerð 12, maí.
18. maí lést Jóhanna Þorbergsdóttir ekkja Hafnargötu
16, gamall Siglfirðingur útför hennar var gerð 25. maí.
Barnsfæðingar..........................
Ekki hefur Andrés skrifað meira af þessu tagi þennan maí mánuð,
a.m.k.
Birt með góðfúslegu leyfi; Jóns Andrjes Hinrikssonar. |