Annálar 1954 | Verđlaunaafhending | Um hestamót | Skógardagur | Stođveggir | Ađalverktakar | 3:1 fyrir KS | Ţormóđur Rammi

>>>>>>>>>>> Um hestamót

 

Til forsíđu
Til baka




Ljósmyndasafn Steingríms
á netinu.

Steingrímur Kristinsson Siglufirđi
G-892-1569
S-467-1569

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Hestamannafélagiđ Glćsir  21. ágúst 2004

Í gćr laugardag hélt hestamannafélagiđ Glćsir hátíđ.  Ţá var haldiđ árlegt töltmót – Stefánstölt – sem haldiđ er til minningar um fyrsta formann Glćsis Stefán frá Móskógum.  Börn hans gáfu veglegan bikar sem farandbikar á mótiđ.  Strax á eftir var haldin árleg firmakeppni Glćsis.

Dómari var Skjöldur Orri Skjaldarson barnabarn Stefáns formanns frá Móskógum og honum til ađstođar og ţulur var Sverrir Jónsson.

Til leiks voru skráđi 17 knapar međ gćđinga sína í Stefánstöltiđ.  Eftir ćsilega keppni hafđi Símon Gestsson frá Barđi nauman sigur á Hélu sinni, ţar nćst kom Haraldur Marteinsson á Ofsa og í ţriđja sćti var Finnur Ingi Sölvason á Jarli.  Finnur Ingi er enn í barnaflokki, en keppti hér viđ fullorđna og hafđi í fullu tré viđ ţá ţví ađeins var keppt í einum flokki.  Árangur hans er sérstaklega glćsilegur.  Í 4. sćti var svo Ólafur Marteinsson á Korgi, í 5. sćti var Símon Helgi Símonarson á Höfđingja og í 6, sćti var Unnar Már Pétursson á Prestley. 

 

Ţar á eftir var svo haldin firmakeppnin, ţar sem 19 keppendur reyndu međ hestum sínum.  Í unglingaflokki sigrađi Finnur Ingi Sölvason á Jarli, í öđru sćti Hilmar Símonarson á Bassa og í 3ja sćti varđ Brynhildur Ólafsdóttir á Lofti.

Í fullorđinsflokki komust í úrslit Símon Gestsson á Hélu, Katrín Haraldsdóttir á Ofsa, Haraldur Marteinsson á Korgi, Unnar Már Pétursson á Bersa, Símon Helgi Símonarson á Höfđingja og Símon Helgason á Skjónu.  Eftir ćsileg úrslit varđ hlutskörpust Katrín á Ofsa en hún keppti fyrir Bjarna Ţorgeirsson málarameistara, í 2. sćti Símon Gestsson á Hélu en hann keppti fyrir sundhöll Siglufjarđar og í 3ja sćti varđ Símon Helgi Símonarson en hann keppti fyrir Sölva ehf.

Ađ lokinni keppni var svo hafist handa viđ ađ grilla í félagsheimili Glćsis og varđ úr hin besta samkoma.

Ţegar á leiđ kvöldiđ fóru menn ađ rćđa dómana og úrslitin og fannst sumum dómarinn hafa veriđ strangur viđ sig en örlátur viđ ađra.  Var ţađ helst ađ Stefáni Birgissyni fannst hann fá lítiđ fyrir hrađabreytingar á tölti, en hann hafđi einmitt lagt mikiđ á sig viđ ađ bíđa eftir keppinaut sínum....margir ţóttu sýna áhugaverđ tilţrif og unglingarnir sýndu miklar framfarir frá fyrra ári, en almennt voru menn sammála um ađ hestakostur Glćsismanna fćri batnandi ár frá ári.
 

kv Sćvaldur Jens Gunnarsson

gjaldkeri Glćsis