Lífið í sept 1-4 2004 | Lífið í sept 5-11 2004 | Lífið í sept 12-18 2004 | Lífið í sept 19-30 2004

>>>>>>>>>>> Lífið í sept 1-4 2004

 

Til forsíðu
Til baka
Japönsk menning
Sigurður Hafliðason




Ljósmyndasafn Steingríms
á netinu.

Steingrímur Kristinsson Siglufirði
G-892-1569
S-467-1569

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

   Siglfirski fréttavefurinn  Lífið á Sigló-

Laugardagur 4. september 2004  Það hefur ekki borið mikið á álftunum  í sumar, sem árvisst hafa dvalið lengri eða skemmri tíma á Langeyrartjörninni. En þær spókuðu sig og leituðu ætis í tjörninni seinnipartinn í gær.

Laugardagur 4. september 2004  Sigurður Hafliðason fyrrverandi útibússtjóri Íslandsbanka á Siglufirði lét af störfum fyrir stuttu.
Fyrrverandi samstarfsmenn og vinnufélagar hjá Íslandsbanka, héldu honum kveðjusamsæti í gærkveldi í Bátahúsinu. Þarna voru stjórnarmenn Íslandsbanka, makar starfsfólks og fleiri samankomnir. Áður höfðu samsætisgestir notið skoðunarferðar um Síldarminjasafnið.

Laugardagur 4. september 2004  Ein gömul: 
 Sigurður Árnason og Óli J Blöndal.
Smelltu á >> Afmæli í dag Laugardagur 4. september 2004

Föstudagur 3. september 2004  Gamla brugghús Sigurðar bakara heitins er að fá andlitslyftingu, þar sem húsið stendur bakatil við gamla bakaríið. Þetta var steinhús, en er nú klætt timbri. Í "bakaríshúsinu" er nú rekin verslum með blandaðan varning, allt frá teskeiðum til fjölbreyttra húsgagna. Á myndinni eru smiðirnir Gylfi Pálsson og Njörður Jóhannsson.

Föstudagur 3. september 2004  Bás ehf, starfsmenn þar og vélar hafa meir en nóg að gera. Þeir eru í hinum ýmsu störfum tilheyrandi jarðvinnu ofl. Á Egilstanga reka þeir steypustöð, og lager fyrir blandaðan jarðveg af ýmsum grófleikum, sem notað er í uppfyllingar, vegagerð ofl. Undanfarið hafa risið upp á lóð þeirra margar "hólshyrnur", en grjótmulningskvarnir þeirra, færibönd og vinnuvélar eru í gangi frá morgni til kvölds.

Föstudagur 3. september 2004  Í gær var verið að stilla og löggilda Hafnarvogina, en það er gert árlega.

Föstudagur 3. september 2004  Suðurgata 30. Það er ekki á hverjum degi sem hús eru stækkuð á Siglufirði, en þarna eru Hjalli og Gústi ásamt eigandanum sem er Baldvin Einarsson (Beco ljósmyndavörur) að vinna við undirbúning að stækkun við norðurenda hússins, það er gera nýja forstofu og...  Myndin var tekin í gærmorgun.

Föstudagur 3. september 2004  Ein gömul (des.1978) -  Georg Ragnarsson og Theódór Eggertsson, á kafi í "málgagninu"

Fimmtudagur
2. september 2004 
Kaldbakur EA 1 kom hingað rúmlega 14:00 í dag með skipbrotsmennina af Kópanes ST-46, sem sökk klukkan 09:06 í morgun norður af landinu. Ég smellti mynd af þeim við komuna, myndin lengst til vinstri sýnir skipbrotsmennina. Hinar myndirnar tók 1. stýrimaðurinn á Kaldbak Víðir Benediktsson, birt hér með góðfúslegu leyfi hans.

Fimmtudagur 2. september 2004  Þetta eru bræðurnir Stefán Þór Haraldsson og Ólafur Þór Haraldsson. Þeir fara á hverjum morgni saman í göngutúr eða hjólreiðatúr eins og þeir voru að koma úr, nú í morgun er ég hitti þá, samhliða því að þeir voru að huga að bát sínum (sést í bakgrunni) bátnum sem þeir nota til að fiska í matinn og til að halda við gamalli hefð. Það rigndi örlítið í morgun, en það var blanka logn og 12-13 °C hiti.

Fimmtudagur 2. september 2004 Aðsent:  Upplýsingar úr leik Víðis og KS næsta sunnudag verða uppfærðar jafnóðum sem og staðan í öðrum leikjum í deildinni sem skipta máli. Á heimasíðu KS geta menn fengið upplýsingar um leikinn nánast í beinni útsendingu þar sem þær eru settar inn frá vellinum í Garði. Þeir sem ekki geta mætt á leikinn geta því fylgst með gangi mála um leið og leikurinn fer fram." Væri flott ef þú myndir svo linka "heimasíðu KS" inn á  www.simnet.is/ks/ks.php    Kveðja, Almar Möller
Fimmtudagur 2. september 2004  Ein gömul:  Kristinn Þorkelsson - Pétur Guðmundsson - ? Einarsson (?) - ókunnur á bak við.

Fimmtudagur 2. september 2004  Auglýsing úr Siglfirska vikublaðinu Fram,
í desember 1916.   Þeir sem hafa áhuga á gömlu lesefni, lestri gamalla tímarita eins og td. blaðinu Fram ættu að smella á þennan tengil>http://www.timarit.is/common/titlebrowse.php?volumeSelected=0&issueSelected=0&t_id=300008&lang=1      Þar  eru öll blöðin aðgengileg, allt frá 1. eintaki árið 1916  til 1922. Til að geta lesið þetta beint frá netinu þarf að sækja forritið DjVu. Þegar síðan er komin upp skaltu smella á "Um DjVu" þetta er  einfalt mál og ókeypis.

Miðvikudagur 1. september 2004  Veraldarvinir enn á ferð. Að þessu sinni litu nokkrir þeirra inn í Grunnskólann og kenndu nemendum hluta af Japanskri menningu er kallast Origami, en það er list sem er bæði klippi og brotlist, pappírsblöð eru brotin saman á hin furðulegasta og fjölbreytta hátt svo og einnig, klippt eftir kúnstanna reglum. Greinilegt var að krakkarnir höfðu gaman af þessari nýju aðferð við að höndla pappír, -ólíkt hinu hefðbundna; að skrifa og teikna á hann.
Ég tók nokkrar myndir þar í morgun, smelltu á myndina.

Miðvikudagur 1. september 2004  Ein gömul:  Í bókasafninu.
Mig vantar nöfnin.

Miðvikudagur 1. september 2004