 |
Laugardagur 11. september 2004
Ég skrepp vestur á Blönduós, upp úr kl. 9 í dag, kem til baka
seinnipartinn. |
|
Laugardagur
11. september 2004 Björgunarbáturinn Sigurvin, sótti
seinnipartinn í gær bátinn Skarfaklett, sem var með bilaða vél á
miðunum. Myndin er tekin rétt fyrir klukkan 15:00 er þeir sigldu fram
hjá Selvíkurnesvitanum. |
|
Laugardagur
11. september 2004 Haldið var áfram í gær við að
dreifa grasfræi á snjóflóðavarnargarðana, nú með því að jarðýta fór
nokkrar ferðir með tanka sem blandað hafði verið í grasfræi, sem síðan
var dælt og úðað handvirkt um garðinn, sem ég vildi gjarnan að nefndur
verði Norðurboli. Nafnbót til móts við nöfnin Stóra bola og Litla
bola syðst í bænum. |
|
Laugardagur
11. september 2004 Hellan. Í tilefni af því að Tunnan og
Hellan hafa skipt um húsbændur, eins og sagt er frá hér fyrir neðan, þá
birti ég mynd af fyrstu ritstjórn og blaðamönnum Hellunnar. - Birgir
Sigmundsson blm - Sigurður Hlöðversson blm - Örlygur Kristfinnsson blm -
Páll Helgason ábm. Óli J Blöndal ábm. - Brynja Svavarsdóttir ritstjóri.
Ljósmyndari ókunnur. |
|
Ein
gömul: Frá ljósmyndasýningu Alþýðuhúsinu í júlímánuði 1980.
Þar voru til sýnir tæplega 1000 ljósmyndir frá lífi og starfi hjá
Síldarverksmiðjum Ríkisins. Sýningin var í tilefni af 50 ára afmæli
verksmiðjanna. Á myndinni sést Sigurður Árnason skrifstofustjóri
verksmiðjanna, benda "ókunnum" á eitthvað athyglivert. Alls sóttu þess
sýningu sem var opin í tæpa viku, um 2 þúsund manns. (myndirnar átti
S.K.) |
|
Föstudagur
10. september 2004 Tunnan - Hellan.
Nú í vikunni var skrifað undir samninga varðandi sölu/kaup á
Prentþjónustunni Tunnan. En fyrirtækið hefur verið til sölu nú all
lengi. Kaupandinn er Albert Gunnlaugsson frá Dalvík. Hann hefur rekið
þar fyrirtækið Dalnet, sem er tölvu og netþjónustufyrirtæki. Albert
hefur einnig tekið hér á leigu íbúð og hyggur á áframhaldandi
rekstur fyrirtækisins- og gefur út að óbreyttu áfram Tunnuna og
Helluna. Að auki mun hann sinna sölu á tölvubúnaði og sinna almennri
þjónustu, viðgerða og lagfæringa á tölvum. Kynnist starfseminni sem hann
hefur rekið á Dalvík og mun einnig sinna hér á Siglufirði. Kona hans er
í fullu starfi á Akureyri sem stendur amk., en of langt að keyra á
milli, þetta minnir glöggt, á þörfina á því að alþingi standi við
fyrirheitin um jarðagöngin. --
Til að kynnast starfsemi Alberts;
Smelltu hér. |
|
Föstudagur
10. september 2004 Ein gömul: Spegill í bak- og
tvítekið á filmuna að auki, en þokkaleg mynd; Georg Páll Kristinsson og
Guðni Sveinsson (1980) |
|
Fimmtudagur
9. september 2004 Grasfræ-dreifing hófst í gærkveldi
á hlíðar norðasta snjóflóðavarnargarðsins. Notaður var öflugur úðari,
samskonar og notaður er til dreifingar á húsdýraáburði (mykjusuga).
Grindverk snjóflóðavarnargirðinganna bera við himinn í bakgrunni. |
|
_small.JPG) _small.JPG) Fimmtudagur
9. september 2004 Græni báturinn, Júlía SI. 62-2094 hefur
aflað mjög vel þann tíma sem hann hefur verið gerður út héðan frá
Siglufirði, eða frá því fyrir rúmu ári, er eigandinn flutti hingað frá
Sandgerði ásamt fjölskyldu. Raunar segir Reynir sig aldrei hafa gengið
jafnvel í útgerð og þessa síðustu 12 mánuði. Og nú hefur hann endurnýjað
aðstöðu sína sem er til húsa í "Sunnu" og gert fullkomnara og þægilegra.
Auk þess hefur hann átt drjúgan þátt í því að annar bátur; Skarfaklettur
BA 322-2280 sé gerður héðan út og viðkomandi fjölskylda keypt sér
húseign og flutt hingað í bæinn. Reynir selur afla sinn til Fiskverkunar
hér heima, nema ýsuna sem hann flytur á markað þegar búast má við góðu
verði. Myndirnar voru teknar seinnipartinn í gær |
|
Fimmtudagur
9. september 2004 Ein gömul:
"Komdu nú sæll og blessaður" gæti Bragi Magnússon fv lögregluþjónn verið
að segja við Pál Jónsson matsvein og hótelstjóra, en þarna eru þeir á
saman á árshátíð starfsmanna SR árið 1980 |
|
Miðvikudagur.
september 2004 Hákarl. Það er greinilegt að fleiri hafa
áhuga á hákarlaverkun en Sverrir Björnsson (Velli). En þarna er Sævar
Guðjónsson 1. stýrimaður á Stálvík að skera hákarl niður í beitur, en
hann er í fríi og notaði tækifærið og krækti sér í hákarl sem
rækjutogarinn Mánaberg hafði fengið í vörpuna. |
|
Miðvikudagur.
september 2004 Brúin yfir Fjarðará. Búið er að slá utan af
og hleypa ánni að brúarstólpunum að austanverðu, jafnframt hafinn
undirbúningur að byggingu stólpans að vestanverðu. |
|
Miðvikudagur.
september 2004 Verið er að reisa
200 m2 / 743,4 m3 viðbyggingu við
fiskverkunarhús Þeysir ehf |
|
Miðvikudagur.
september 2004 Ein gömul: (1979) Þessi mynd
er að vísu ekki tengd Siglufirði, nema þá ljósmyndaranum sem er
Siglfirðingur (SK). En þarna eru tvö Íslensk skip hlið við hlið,
Tungufoss að taka fram úr Hvalvík, þaðan sem myndin er tekin, á siglingu
undan strönd Portúgal, bæði fullfermd af salti frá Spáni á leið til
Íslands. Í bakgrunni má sjá syðsta odda Evrópu; vitahúsið og
klaustrið á Cape St Vincent í Portugal. |
|
Þriðjudagur
7.
september 2004 Ein gömul: Gott á bragðið ?
Ekki vafi. Þetta eru "kokteilmeistararnir" Sigurður Elefsen og Kristinn
Georgsson, að meta blönduna fyrir litlu jólin hjá SR-Vélaverkstæði, 1978 |
|
Mánudagur 6.
september 2004 Aðsent: KS-ingarnir eru komnir upp í
fyrstu deild. Ég fékk sendar 16 myndir frá Steindór Birgissyni, frá
kappleik og sigri KS á móti ??? --- skiptir ekki máli ! Allir sem áhuga
hafa hljóta að vita það, en smelltu á myndina. |
Mánudagur
6. september 2004 Ein gömul: Karlinn í brúnni.
Kristján Rögnvaldsson - Jón Þorsteinsson og Pétur Matthíasson |
Smelltu
á >> Afmæli í dag
Mánudagur 6. september 2004 |
|
Sunnudagur
5. september 2004 Lokaumferð Íslandsmótsins fór fram
í dag, KS lék gegn liði Víðis úr Garði. Strekkings vindur var og því
aðstæður til knattspyrnuiðkunar ekki eins og best verður á kosið.
Fyrri hálfleikur var jafn en KS þó alltaf sterkari aðilinn þó án þess að
skapa hættuleg færi og staðan í hálfleik 0-0. Á 17 mín seinni
hálfleiks skoruðu Víðismenn mark og þannig var staðan þangað til um 10
sek voru eftir, KS fékk aukaspyrnu rétt fyrir utan teig og upp úr henni
skoraði Raggi laglegt skallamark og staðan orðin 1-1. Þetta þýðir það að
KS eru Íslandsmeistara í 2.deild karla 2004 og munu leika í 1.deild að
ári. |
|
Sunnudagur 5. september 2004 Síðasta haftið var
sprengt í gær í Fáskrúðsfjarðargöngum. Ekki efa ég að flestir
Siglfirðingar samgleðjast Austfirðingum vegna þessa áfanga,- í það
minnsta óskar Lífið á Sigló þeim
innilega til hamingju. Svo er það annað mál hvenær eða jafnvel hvort
Austfirðingar fá tækifæri til að gjalda okkur þess sama. Það er undir
hinum hverfulu stjórnarherrum komið hvort það verður eða ekki. Ég
amk. trúi ekki að Héðinsfjarðargöngin komi, fyrr en samið hefur verið
við verktakann, tvær nauðsynlegar brýr í dag breyta engu þar um. |
|
Sunnudagur
5. september 2004 Aðsent. ............ Í sumar hef
ég haft tækifæri til þess að ganga um fjöllin í kring um Siglufjörð. Fór
á Hólshyrnuna í frábæru veðri, og einnig gekk ég ásamt frændum mínum
Birgi og Tómasi Dalaleiðina frá Úlfsdölum. Fórum reyndar aðeins lengra
tókum fjallahringinn í kring um Hvanneyrarskálina líka. Myndirnar eru
hérna ef þú hefur áhuga á að birta þær á vefsíðunni þinni Lífið á Sigló.
http://www.destination-iceland.com/about/north/siglufjordur_mountains.html
Trausti Tómasson |
|
Sunnudagur
5. september 2004 Aðsent............Svo langar mig
að biðja þig að vekja athygli á að ég er búinn að setja inn fleiri
myndir. Annars vegar viðbótarmyndir frá komu forseta til Siglufjarðar og
nokkrar eru teknar við Sauðanesvita. Einnig er sería frá ógleymanlegum
og óborganlegum tónleikum Flís tríósins í Bátahúsinu á Þjóðlagahátíðinni
í sumar.
Kveðja Guðmundur Albertsson s 551-5186 + 660-5141
---------------
Ég vil hvetja fólk til að skoða þessar frábæru
myndaseríur, sem eru að mestu andlit sem koma á óvart: S.K.
Tengillinn er:
http://www.photodex.com/sharing/viewalbum.html?bm=46210
|
|
Sunnudagur 5. september 2004
Ein gömul:
Gamlar vinkonur; Jóhanna Kristinsdóttir og Brynja Stefánsdóttir |