Lífið í sept 1-4 2004 | Lífið í sept 5-11 2004 | Lífið í sept 12-18 2004 | Lífið í sept 19-30 2004

>>>>>>>>>>> Lífið í sept 19-30 2004

 

Til forsíðu
Til baka
Kínaferð
Vatnavextir
Sjáfarútvegsnefnd
Golf
Norðri
Líkbíllinn
Óspektir á Sigló
Göngur
Eldri borgarar
Eldri borgarar
Til Guðna
Skógræktin




Ljósmyndasafn Steingríms
á netinu.

Steingrímur Kristinsson Siglufirði
G-892-1569
S-467-1569

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

   Siglfirski fréttavefurinn  Lífið á Sigló-

Fimmtudagur 30. september 2004  FRÉTTATILKYNNING  "Sjö sveitarfélög á Eyjafjarðarsvæðinu hafa undirritað samning við Rannsóknarstofnun Háskólans á Akureyri um að kanna hagkvæmni þess að sameina öll sveitarfélögin á svæðinu.  Verkefnið felst í að gera athugun á kostum þess og göllum að sameina Grýtubakkahrepp, Svalbarðsstrandarhrepp, Eyjafjarðarsveit, Akureyrarkaupstað, Hörgárbyggð, Arnarneshrepp, Dalvíkurbyggð, Grímsey, Ólafsfjarðarkaupstað og Siglufjarðarkaupstað í eitt sveitarfélag.  Gert er ráð fyrir því að niðurstöður úr verkefninu liggi fyrir í byrjun desember 2004 en kosið verður um sameiningu sveitarfélaga á svæðinu í apríl 2005.  Með sameiningu allra þessara sveitarfélaga yrði til um 23 þúsund íbúa sveitarfélag.  Verkefnisstjórn er skipuð þeim Grétari Þór Eyþórssyni frá R.H.A sem stýrir verkefninu og Þóri Hákonarsyni skrifstofustjóra á Siglufirði sem er fulltrúi sveitarfélaganna". Ef frekari upplýsinga er óskað þá hafið samband við Grétar Þór, gretar@unak.is eða Þóri, thorir@siglo.is   - Þórir Hákonarson Skrifstofustjóri Siglufjarðarkaupstaðar

Fimmtudagur 30. september 2004  Ofanrituð fréttatilkynning barst mér klukka 16:00. Ég vil lýsa ánægju minni með þetta skref, og vona af einlægni að af þessu, eða amk lík sameining með þátttöku Akureyrar verði að raunveruleika. Að minnsta kosti mun ég greiða henni atkvæði mitt.  SK

Fimmtudagur 30. september 2004 Garða-verðlaun Um klukkan 17:00 voru hin árlegu Garða-verðlaun veitt að Kaffi Torg. Verðlaun fyrir fallega og og vel hirta garða, hlutu Svanhildur Freysteinsdóttir og Ragnar Guðmundsson Hafnargötu 32 og Anna Marie Jónsdóttir og Steingrímur Garðarsson Fossvegi 35.

Fimmtudagur 30. september 2004 Hjólað með stæl. Þessir drengir voru í sólskinsskapi, er ég mætti þeim á Aðalgötunni og voru fúsir til, að stoppa á meðan á myndatökunni stóð.
En strákar, þið gleymduð einu. Hvar eru hjálmarnir ykkar?
Fimmtudagur 30. september 2004  Ein gömul: Á 1. maí hátíðarfundi í Nýja Bíó árið 1981
Smelltu á >> Afmæli í dag Fimmtudagur 30. september 2004

Miðvikudagur 29. september 2004  Skógræktin. Talsverðar skemmdir og eyðing varð á trjám og runnum meðfram Leyningsá sem rennur meðfram og í gegn um skóginn. Ég skrapp í dag með Anton Jóhannssyni fráfarandi formanni Skóræktarfélagsins, fram í Skógrækt til að skoða ummerkin og tók nokkrar myndir. Þarna er Anton með fossinn í bak, fossinn sem nú er eins og lækjarspræna í samanburði við þegar mest var, á dögunum í rigningunum. Við formennsku Skógræktarfélagsins tók Kristrún Halldórsdóttir. Anton heldur á braut til Danmerkur á næstunni, þar sem hann mun halda til næstu 7 mánuði ásamt sambýliskonu sinni, eins undanfarin ár.

Miðvikudagur 29. september 2004  Sérstök kveðja til Guðna Gestssonar sem ýmist er staddur á Tilandi eða USA ---  Það biðja allir Siglfirðingar að heilsa þér Guðni. Smelltu á myndina, þeir sem þá koma í ljós eru nokkrir af fastagestum í molakaffi Jóns Andrjes hjá Olís á Sigló, sem voru þar mætti í þessum mánuði, á sama tíma og ég.  Þú verður sjálfur að reyna að þekkja þá !

Miðvikudagur 29. september 2004  -- Morgunblaðið: Fyrir 50 árum. 
Miðvikudaginn 29. september 1954   - Lítil frétt.   Smelltu á myndina

Miðvikudagur 29. september 2004  Ein gömul:  Hvað ætli þeir séu að velta fyrir sér. Jóhannes Þórðarson (sem á afmæli í dag) - Guðmundur Kristjánsson og Rögnvaldur Gottskálksson (báðir látnir). Myndin er tekin árið 1966, með 800 mm linsu, úr mikilli fjarlægð.

Smelltu á >> Afmæli í dag
Miðvikudagur 29. september 2004

Þriðjudagur 28. september 2004  Síldarminjasafnið. Það var gestkvæmt á Síldarminjasafninu í dag eftir hádegið. Klukkan 13:00 komu eldri borgar á Siglufirði í heimsókn, og áður enn þeirri heimsókn lauk komu 73 eldri borgarar úr Skagafirði um klukkan 14:00 og heimsóttu safnið. Ég tók nokkrar myndir við þetta tækifæri, - smelltu á myndina.

Þriðjudagur 28. september 2004  Eins og lesendum síðu minnar ætti að vera kunnugt, þá hafa staðið yfir í sumar miklar framkvæmdir, við tengingu hluta Hverfisgötu við Háveg, það er stefnum og áherslum breytt miðað við fyrstu hugmyndir. Deilur hafa skapast varðandi þessar framkvæmdir sem ekki er fullkomin sátt um. En ljóst er að fyrir ókunnuga gæti það valdið óþægilegum vandræðum ætli einhver að heimsækja íbúa í Hverfisgötu 25 td. og álpast upp á Hverfisgötu frá Kirkjustíg, þessi möguleiki var að vísu fyrir hendi, -en eðlilegt hefði verið finnst sumum íbúum þessa svæðis að göturnar hefðu verið tengdar saman en ekki endanlega slitnar úr samhengi. Það ætti amk. að huga að því að gefa syðri hluta götunnar nýtt nafn, til að eyða misræmi. Svo er annað sem íbúar nágrennis velta fyrir sér. Hvar ætla þeir að koma snjónum fyrir, ef náttúrunni þóknaðist að láta fara að snjóa aftur, lítið pláss virðist vera fyrir snjóruðning. En vonandi verða allir ánægðir að lokum, þegar göngustígurinn upp á Háveg er kominn og gengið hefur verið frá öllu. Myndin er tekin frá norður horni syðri Hverfisgötu.

Þriðjudagur 28. september 2004  Fiskmarkaður Siglufjarðar. Nýtt hlutafélag hefur endanlega verið stofnað og frágengið. Stofnendur eru; Fiskmarkaður Suðurnesja, Norðurfrakt, Þormóður Rammi Sæberg, Guðrún María fiskverkun og Steingrímur Óli Hákonarson, sem jafnframt er framkvæmdastjóri. Fyrirtækið er og verður til húsa í húsnæði sem upphaflega var byggt fyrir Sigló síld, en nýlega eignaðist Þormóður Rammi Sæberg þessi húsakynni, sem eru ákjósanleg fyrir þessa starfssemi. Þarna mun auk markaðar fara fram slægingarþjónusta. Félagið verður beintengt við Fiskmarkað Íslands, þannig að fiskkaupendur og salar allt í kring um landið hafa aðgang að kerfinu.  Á myndinni eru Steingrímur Óli og Ásmundur Einarsson framkvæmdastjóri Norðurfrakt.

Þriðjudagur 28. september 2004  Ein gömul auglýsing frá árinu 1910, svona á haustdögum til að ylja hjartaræturnar.

Þriðjudagur 28. september 2004   Aðsend ábending.  Viltu setja inn ábendingu og hvatningu til allra framhaldsskólanemenda og foreldra þeirra með áminningu um að sækja um jöfnunarstyrk hjá LÍN.
Þetta er eitthvað um 160 þúsund krónur á ári sem hver nemandi á rétt á sem stundar framhaldsnám utan sinnar heimabyggðar.  Um að gera að sækja um þetta, og ekki er hægt að gera það eftir umsóknarfrestinn, þá einfaldlega fellur þetta niður fyrir fyrri hluta ársins ( ca 85.000 kr )  Hér er slóðin til að sækja um á netinu.  http://www.lin.is/   -- Velunnari.

Þriðjudagur 28. september 2004  Gömul "grein" úr Akureyrarblaði (?) frá árinu 1910 
Flugvélar.    Það vantar ekki nú á dögum, að öll blöð eru full al flugvélasögum. Hver flugmaðurinn eftir annan veður uppi og þeir drepa sig hópunum saman. Edison hefir nýlega látið álit sitt uppi um flugvélar þessar og sagt svo:   "Ég hefi ekki trú á þessu lagi á flugvélunum, þær þjóta upp eins og gorkúlur. Ég er nú samt sannfærður um að þær eiga mikla framtíð fyrir hendi, breyta öllum samgöngum, og flytja bæði póst og farþega. En þær vélar verða ekki rneð því lagi, sem nú þykir mest til koma. Eins og hún er enn, er hún ekki nema til gamans. Þrír fjórðungar hennar ganga til þess að bera hana sjálfa, aðeins einn verður manninum að liði. Og þeim er ekki auðstýrt. Þær verða að láta svo vel að stjórn, að hver maður með meðalviti geti alveg haft þær í hendi sér, og lært að fljúga fyrirhafnarlaust. Ég held meira að segja, að þessar vélar sem nú eru gerðar, sé byggðar á rammvitlausri niðurstöðu. Þær geta ekki lyfst upp af sjálfum sér. Menn neyðast til að láta þær renna svo lengi eftir jörðinni, þangað til mótstaðan á móti vindfleti þeirra er orðin svo mikil, að þær geta lyfst upp. En ég er þeirrar skoðunar að, að 10 árum liðnum verði gerð flugvél, sem lyftist upp af sjálfri sér, og kemst áfram um 100 (enskar) mílur á hverri klukkustund, hvernig sem veður er. Úr því að einhver uppgötvun er komin á rekspölinn, er þess sjaldan langt að bíða að hún nái sér að verða fullkom­in og nothæf."  ---  Gaman væri að vita, hvort nokkur lifir það, að við fáum flugvélapóst, sem skýzt á milli Akureyrar og Reykjavíkur á svo sem 2 dögum og kemur þó við á svo sem 20-30 stöðum í hverri leið.

Þriðjudagur 28. september 2004   Ein gömul: Geir Guðbrandsson og Eggert Bergsson. Tekið á Raufarhöfn 1959

Mánudagur 27. september 2004  Rannsóknarskipið Árni Friðriksson losaði hér í morgun  um 25 tonn af blönduðum fiski. Þetta er í annað sinn sem skipið landar hér í þessum mánuði, eða samtals um 50 tonnum. Skipið er að rannsaka hegðun botnvörpu með mismunandi búnaði í vísindalegum tilgangi. Þessar rannsóknir hafa átt sér stað hér fyrir norðurlandi. Skipið sigldi aftur til frekari rannsókna klukkan 13:53 í dag, þá er myndin var tekin.

Mánudagur 27. september 2004  Aðsent:  Ég var á fundi hjá félagi eldri borgara í gær sunnudag, sem var fyrsti fundurinn á þessu starfsári- og tók þar nokkrar myndir.  Júlíus.

Mánudagur 27. september 2004  Ein gömul:  Þegar síldin var og hét !  Tekið ofan frá löndunarkrana Rauðku, í júnímánuði árið 1959

Sunnudagur 26. september 2004  Aðsent:  Laugardaginn 18 september voru fjárgöngur hér í Siglufirði í mjög góðu veðri og tók ég nokkrar myndir við það tækifæri.  Myndirnar eru teknar á leiðinni frá Ófæruskál og suður að rétt. Einnig eru myndir sem voru teknar á föstudaginn og síðan aftur um hádegisbil í dag sunnudag. Myndir eru frá upphafi ferðar sem menn á vegum skíðafélagsins fóru í fjárgöngur til Héðinsfjarðar og síðan við lok ferðar þegar þeir komu um hádegisbil í dag sunnudag. Eins og sjá má á myndunum hefði veðrið mátt vera betra en þetta eru hörku kallar.  Alli.

Sunnudagur 26. september 2004 Mánafoss losaði og lestaði hér vörugáma í morgun. - Senn fer að líða að þeim tímamótum er þetta skip hættir áætlunarferðum hingað, sem og til landsbyggðarinnar. Eimskip er ekki lengur óskabarn og stolt þjóðarinnar, heldur virðist stoltið byggjast á hagnaðarkúrfu stjórnandanna, kúrfu sem helst þarf að vísa, ekki minna en 30° upp.

Sunnudagur 26. september 2004  Ein gömul: Kristinn Konráðsson - Ólafur Guðmundsson og Pétur Guðmundsson, í kaffihléi uppi á þaki frystihúss SR í maí mánuði 1959

Laugardagur 25. september 2004  Óspektir á Siglufirði. - Okkur, hinum almennu borgurum gefst ekki oft tækifæri til að berja augum það helsta sem lögreglan á Siglufirði skrifar í sínar dagbækur, svona eins og allir geta lesið á netinu um það helsta sem hefur verið að ske í öðrum byggðarlögum, hvað lögreglumál varðar. En það hefur ekki alltaf verið svo, því hér er krassandi frásögn sem að mestu byggð á dagbók lögreglunnar, af óspektum á Siglufirði. Þú getur lesið um  eitt alvarlegt lögreglumál hér á minni síðu. Smelltu hér

Laugardagur 25. september 2004  Ein gömul:  Símon Helgason og Stefán Sigmarsson, á árshátíð 1982(?)

Smelltu á >> Afmæli í dag Laugardagur 25. september 2004

Föstudagur 24. september 2004 Neysluvatn þeirra sem heima eiga í suðurbænum spilltist örlítið í vatnsveðrinu á dögunum, en lónið innan við vatnsstífluna inni í Hólsdal fylltist af aur og grjóti. Þó mun minna en búast hefði mátt við komst   því sjálf vatnsinntökin, sem eru nokkuð langt neðanjarðar og vatnið sigtað í gegnum jarðveginn sem fyrir var. Verið var að vinna með stórri gröfu við að hreinsa sjálft lónið. Greinilegt er að sjá að áin hefur mjög víða farið uppá og yfir bakka sína á leið sinni til sjáfar, þar sem gróðurinn meðfram ánni hefur lagst niður í straumáttina.

Föstudagur 24. september 2004 Svanir: Alls eru nú 8 svanir að spóka sig og leita ætis á tjörnum inni í botni  Siglufjarðar, það er 6 eru á Langeyrartjörn og 2 eru innarlega í Hólsdal.

Föstudagur 24. september 2004  Aðsend fréttatilkynning:  Kammerkór Norðurlands

Um næstu helgi 25. og 26. september heldur Kammerkór Norðurlands tónleika á Löngumýri í Skagafirði, Siglufjarðarkirkju og Ketilhúsinu á Akureyri.

Á fjölbreyttri söngskrá kórsins eru að þessu sinni verk frá ýmsum löndum, meðal annars frá Danmörku, Finnlandi, Frakklandi, Hollandi, Nýfundnalandi, Þýskalandi auk Íslands.

Má til gamans geta þess að kórinn syngur á sjö tungumálum.Kammerkór Norðurlands var stofnaður í nóvember 1998. Í honum er söngfólk af Norðurlandi, allt frá Sauðárkróki til Kópaskers, auk félaga sem fluttur er til Reykjavíkur en félagarnir eru ýmist atvinnutónlistarfólk eða áhugamenn með mjög mikla reynslu af kórstarfi.

Markmið kórsins er að flytja veraldleg og kirkjuleg verk sem veita kórfélögum tækifæri til að takast á við erfiðari verk en þeir eru að syngja venjulega og þá þannig að flutningurinn sé í samræmi við getu hópsins.

Meðal efnis sem kórinn hefur fengist við eru kirkjulegt efni, íslensk þjóðlög, enskir madrigalar og íslensk og erlend samtímaverk. Einnig hefur kórinn unnið og komið fram með öðrum t.d. þegar Krýningarmessa Mozarts var flutt í Mývatnssveit og þegar Sálumessa Verdis var flutt á stórtónleikum á Akureyri.      Guðmundur Óli Gunnarsson hefur verið stjórnandi kórsins frá árinu 2000.

Föstudagur 24. september 2004  Kvöldstemming. Upplýst kirkja og kirkjutröppur.  Þessa mynd tók Júlíus Hraunberg í gærkveldi, og sendi mér.

Föstudagur 24. september 2004  Aðsent: Eins og flestum Siglfirðingum er væntanlega kunnugt, þá munu Lionsmenn ganga í hús nú um helgina, laugardag og sunnudag, til söfnunar fyrir nýjum líkbíl. Bíllinn kom í bæinn í gærkveldi um kl. 18:00 og meðfylgjandi mynd var tekin um það leiti framan við kirkjuna. Fleiri myndir af bílnum koma í ljós ef þú smellir á myndina

Föstudagur 24. september 2004  Ein gömul:
Sigurður Elefsen og Kristinn Georgsson.
Þetta er ekki Georg Páll Kristinsson, þarna með Sigga, en myndin er tekin á Raufarhöfn í apríl 1959  -- Georg  fæddist ekki fyrr en 1961.

Smelltu á >> Afmæli í dag
Föstudagur 24. september 2004

Fimmtudagur 23. september 2004  Bátadokkin. Unnið var nú í dag eftir hádegið á fjörunni, við að setja upp ljósastaura á nýju bryggjuna í bátadokkinni.

Fimmtudagur 23. september 2004  Verulega hefur sjatnað í Fjarðaránni og brúarstólparnir vestanverðu eru komnir í ljós og einnig sést að landslagið hefur tekið stakkaskiptum. Gras og annað hefur flækst í járnabindingunni, og jarðvegur sem þarna var er horfinn og komið í staðinn mold og leir sem væntanlega þarf að fjarlægja.

Fimmtudagur 23. september 2004 Skemmtileg grein til aflestrar úr Norðra útg á Akureyri 1911- Reynt er að hafa stafsetninguna þá sömu og þá tíðkaðist. ------
 Siglufjörður. Fyrirfarandi ár hafa mátt heita kyrrstöðuár hér norðanlands, að vísu hefir landbúnaðurinn þokað fremur áfram og túnrækt víða verið aukin. Sjávarútvegurinn hefir og heldur aukist og lagast að því leyti, að útgerðamenn og fiskimenn eru betur og betur að læra að hagnýta sér vélabátana, sem keyptir voru fyrir nokkrum árum. Vöruvöndun hefir og tekið nokkrum framförum einkum á fiski og kjöti. Hvergi hér norðan lands er þó framfaravísinn jafn auðsær og á Siglufirði. auk þeirra bráðu framfara, sem kauptúnið tók þar, er hin mikla síldveiði hófst þar á sumrin fyrir nokkrum árum, eru ................. smelltu hér til að lesa meira

Fimmtudagur 23. september 2004  Ein gömul:  Óskar Sveinsson og Guðmundur Bjarnason.

Miðvikudagur 22. september 2004 Aðsent: -- Golf -- Verðlaunaafhending Unglingabikars Siglósports. 3. sæti Grétar Bragi Hallgrímsson, 1. sæti Þórhallur Dúi Ingvarsson og 2. sæti Sævar Örn Kárason Lið bóndans Ólínu Þóreyjar Guðjónsdóttur sem sigraði í Bændaglímunni sem haldið var 18. september. Sigurður Benóný Þorkelsson fór holu í höggi í sumar. Verðlaunaafhending í Kaffi Torgs mótaröðinni. 2. sæti Róbert Haraldsson, 1. sæti Vigfús Ingi Hauksson og 3. sæti Þórhallur Dúi Ingvarsson.  kveðja Ólafur Þór Ólafsson

Miðvikudagur 22. september 2004 Ein gömul: Um borð í Siglfirðing, einhverstaðar úti á sjó. Toni ??? og Steingrímur Örn.
Ljósmynd: Kristinn Steingrímsson
Smelltu á >> Afmæli í dag Miðvikudagur 22. september 2004

Þriðjudagur 21. september 2004  Netfangabreytingar þær sem ég nefndi hér fyrir neðan hafa skilað sér vel, því vel á annað hundrað breytingar og nýskráningar hafa borist, og er mikill hluti þeirra kominn í gagnið, vinna heldur áfram. Ég vil í leiðinni þakka þær mörgu góðu kveðjur og hvatningarorð sem sumir viðkomandi hafa látið fylgja. Og ein viðbót; einn þeirra sem skráði sig er Siglfirðingurinn Bogan, Chris og kona hans Kym Rich sem biðja að heilsa öllum Siglfirðingum sem þau þekkja. En þau búa í Kanada.

Þriðjudagur 21. september 2004 Sjávarútvegsnefnd Alþingis á ferðalagi sínu; Siglufjörður–Ólafsfjörður–Dalvík–Hrísey–Akureyri í dag og á morgun, komu til Siglufjarðar rétt fyrir hádegið í dag og byrjuðu á því að skoða Bátahúsið, undir leiðsögn safnvarðarins Örlygs Kristfinnssonar. Þaðan var síðan haldið til að skoða Gránu og síðan í aðalsafnhúsið, þar sem nefndin naut hádegisverðar.

Þriðjudagur 21. september 2004  Aðsent: Ég sendi hér þrjár myndir af fljóðum í Skútuá. Sú gamla sem vanalegast er sem tær og blíðlyndur lækur byltist fram kolmórauð og illúðleg. Svo hátt stendur í ósnum við gamla flugvöllinn að það flæðir suður um allar Saurbæjarmýrar og er þar eins og fjörð yfir að líta og allir varphólmar á svæðinu horfnir á kaf í vatnsflauminn.  Hólsá er í sömuleiðis miklum vexti og flæðir Grísará við dæluskúrinn yfir veginn og er farin að naga úr honum á parti. Myndirnar eru teknar frá Árósi og sýnir ein þeirra uppundir Skútuárbrú og hinar niður eftir lóninu þar sem Áróssbáturinn er bundinn. Bátseigandinn bíður nú spenntur eftir því hvað verða vill í straumnum. - kveðja ök --  Til viðbótar hefi ég (SK) sett nokkrar myndir atburðum þessum tengdum   Smelltu á myndina

Þriðjudagur 21. september 2004  Netfangaskráin, - Fyrir nokkru fékk ég ábendingu um það að mikið væri um það að í skrá minni á vefnum um netföng Siglfirðinga,  að margar skráningar væru orðnar úreltar, það er bæði rangt heimilisfang svo og netföng sem ekki eru lengur í sambandi. - Ég fæ að vísu nær daglega beiðnir um leiðréttingar og skráningu nýrra aðila í skrá mína. En vinsamlega athugaðu, þú sem lest, hvort þú ert á skrá eða rétt skráður. Taka út eð skrá.

Þriðjudagur 21. september 2004    Aðsent:
Frá Lionsklúbbi Siglufjarðar.  - Klúbburinn fékk styrk frá menningarsjóði KEA í vor, til að laga til í kring um leiðin og minnisvarða á Hvanneyri. Hér eru myndir frá því fyrir og eftir tiltekt í sumar og er þetta fyrsti áfangi í þessu verki. Okkur þætti vænt um að þessar myndir birtust á vefnum þínum.
Með kveðju og þökk Hörður Þór Hjálmarsson formaður.

Þriðjudagur 21. september 2004   Ein gömul: Daginn sem Nýja frystihús Þormóðs Ramma hf var vígt með prump og prakt, fögrum ræðuhöldum þingmanna og annarra embættismanna árið 1982(?) Að auki var öllum Siglfirðingum boðið til þessa fagnaðar. Þetta eru Aðalsteinn Arnarsson - Kári Hreinsson og þáverandi kærasta hans og núverandi eiginkona, Helga Sverrisdóttir.

Smelltu á >> Afmæli í dag
Þriðjudagur 21. september 2004

Mánudagur 20. september 2004  Erlenda flutningaskipið Trinket, lestaði hér hjá Síldarvinnslunni 515 tonn af loðnumjöli sem fer til Englands.

Mánudagur 20. september 2004 Varðskipið Týr kom í morgun og lagðist að Hafnarbryggjunni.

Mánudagur 20. september 2004 Aðsent:  Ég sendi þér hér nokkrar myndir að gamni mínu sem teknar voru í Kína í sumar ( Júní ) Fyrstu þrjár myndirnar eru teknar við stærstu virkjun heims, þriggja gljúfra virkjunina í Jangtze fljóti. Í virkjun þessari verða 26 hverflar og hver þeirra framleiðir jafn mikið og öll Kárahnjúkavirkjun, nú þegar er búið að taka 10 eða 11 hverfla í notkun en fullbúin verður hún árið 2009. Síðasta myndin er af okkur Mögnu á Kínamúrnum. Á fyrstu myndinni eru talin frá vinstri; Hjálmar Stefánsson, Halla Haraldsdóttir, Stella Baldvinsdóttir, Ómar Möller,og Magna Sigbjörnsdóttir. Á myndina vantar mann Stellu , Magnús Guðmundsson.  Til gamans get ég sagt þér að í þessari ferð sem farin var með Kínaklúbbi Unnar voru 20 ferðalangar og þar af 5 Siglfirðingar. Bestu kveðjur.  Ómar Möller

Mánudagur 20. september 2004  Talsími til Siglufjarðar.  Sýslufundur Skagfirðinga hefir nú veitt 2.000 kr úr -sýslusjóði til símalínu frá Vatnsleysu út Höfðaströnd til Siglufjarðar. Áætlað er að lína þessi muni kosta 30.000 kr og hefir verið ætlazt til að héröðin sem línan á að liggja um, legðu til 10.000 en landssjóður 20,000 kr Líklegt má telja að Eyjafjarðarsýsla leggi eitthvað af mörkum, þótt síður sé ástæða til þess nú, en áður en Ólafsfjarðarlínan var lögð, því að Siglufjarðarlínan mun óefað rýra tekjurnar af þeirri línu. Hreppafélög þau 6, er línan á að liggja um, munu að sjálfsögðu eitthvað til línunnar leggja, einkum Hvanneyrarhreppur (Siglufjörður), enda er honum mest nauðsyn á línunni. Vonandi er að allir, er hér eiga hlut að máli, sýni þann dugnað að koma þessu þarfamáli í framkvæmd.   Úr blaðinu Mjölnir á Akureyri 4. febrúar 1909

Mánudagur 20. september 2004 Ein gömul:  Tómas Kárason - Gunnar Björn Rögnvaldsson og man ekki nafnið

Smelltu á >> Afmæli í dag Mánudagur 20. september 2004

Sunnudagur 19. september 2004   -- Suðusprittið. Lögreglustjórinn hefur beitt sér fyrir því, að allir þeir seim leyfi hafa til verslunar hér í Siglufirði, hafa með undirskriftum skuldbundið sig til þess og sektir viðlagðar, að selja ekki suðuspíritus, hárvötn og fleiri vökva nema gegn seðlum, sem bæjarstjórn úthluti. Hefur nokkrum orðið bilt við ráðstöfun þessa, því næstu daga, og meðan þetta ekki komst í gildi, var suðuspritt auglýst á götum bæjarins með krónu afslætti á potti, frá því sem almennt verið hafði. Vonandi tekst lögreglustjóra með þessu að stemma stigu fyrir því að kogesinn verði drukkinn eins og mann grunar að hafi verið gjört, og á hann þakkir skildar fyrir uppástunguna, því samkvæmt lögum vorum er það ekki skaðvænt að staupa sig á kogesnum, og ekki hægt að koma í veg fyrir að svo sé gjört þó á hinn bóginn löggjafar vorir hafi af einskærri föðurlandsást og náungans kærleika lagt þvert bann fyrir, lagi við tukthús, og missir æru og eigna, ef einhver vildi gleðja sál sína og skerpa vitið, með glasi af fínu þrúguvíni. Þetta er nú rotið!   -- Úr vikublaðinu Fram 1918

Sunnudagur 19. september 2004  Ein gömul: Slappað af yfir kvöldverði á Hótel Höfn, - eftir útskrift úr Iðnskóla Siglufjarðar 1982. - Margrét Einarsdóttir - Gunnar Gottskálksson - Gunnar Björn Rögnvaldsson - Steingrímur Kristinsson - Bylgja Hauksdóttir - Óttar Möller