Lífið í sept 1-4 2004 | Lífið í sept 5-11 2004 | Lífið í sept 12-18 2004 | Lífið í sept 19-30 2004

>>>>>>>>>>> Lífið í sept 12-18 2004

 

Til forsíðu
Til baka
Réttir
Dalaleið
Lokahóf KS
Bás-drengir
Hvanneyrarskál




Ljósmyndasafn Steingríms
á netinu.

Steingrímur Kristinsson Siglufirði
G-892-1569
S-467-1569

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

   Siglfirski fréttavefurinn  Lífið á Sigló-

Laugardagur 18. september 2004  Ein gömul: 
Ég þekki "skvísurnar" - En þekkir þú þær?  Myndin er tekin 1982
Smelltu á >> Afmæli í dag
Laugardagur 18. september 2004 

Föstudagur 17. september 2004  Brúin yfir Fjarðará. Vel gengur við smíðina á brúnni, búið er að steypa austurhelming stólpanna og hálfnað með þann vestari. Myndin var tekin í morgun og sýnir straumiðu sjávar, sem gengur upp á móti ánni á flóðinu í morgun, - og mannvirkið sjálft í smíðum.

Föstudagur 17. september 2004 Ein gömul:
Tveir góðir saman, Bragi Magnússon og Alfreð Jónsson- Til hægri, og aftan við þá er Hermann Jónasson, ofl.   Myndin er tekin 20. maí 1981

Smelltu á >> Afmæli í dag Föstudagur 17. september 2004

Fimmtudagur 16. september 2004 Verki lokið. Ég fór upp í Hvanneyrarskál um 15:30 í gær til að skoða umhverfið. Íslenskir Aðalverktakar hafa lokið vinnu sinni við sjónflóðavarnargirðingarnar í hlíðum Gróuskarðshnjúks. Þeir hafa gengið vel frá umhverfinu- og þar sem áður var athafnasvæði þeirra norðan til í Hvanneyrarskál, er nú komið 40-50 bíla stæði ef svo ber undir. Þá er eftir að laga frekara aðgengi, göngubrautir og þessháttar (ekki í verkahring Íslenskra Aðalverktaka) og svo er að mér er sagt, eftir að gera nú í haust sjálfan veginn upp í skálina vel færan fólksbílum. En eins og er þá þarf að gæta sérstakar varúðar ef leiðin er farin á venjulegum fólksbíl. Ég tók nokkrar myndir í ferðinni, smelltu á myndina, sem  sett er saman úr 5 ljósmyndum.

Fimmtudagur 16. september 2004 Þau sögðu Sísssss...... í einum kór þessir krakkar, sem voru í harðri samkeppni við "Úrvar" fyrir utan verslunina Úrval seinnipartinn í gær. En þau voru að selja varning til styrktar Rauða krossinum.

Fimmtudagur 16. september 2004 Ein gömul:  Ég held ég þekki einn til tvo af þessum krökkum á þessari mynd, sem tekin var á 1. maí hátíðarfundi í Nýja Bíó árið 1981

Miðvikudagur 15. september 2004  Suðurverk / Bás  Þessir drengir eru í vinnuhóp Bás ehf - sem er undirverktaki fyrirtækisins Suðurverk, sem gerir snjóflóðavarnargarðana ofan við bæinn. Bás sér um að raða ákveðnum einingum eftir kúnstarinnar reglum. Talað hefur verið um niðri í bæ, af þeim sem ekki þekkja aðstæður, að lítið gangi hjá þeim félögum, en komi maður á vettvang eins og gerði í morgun, þá vil ég fullyrða að verkið hefur gengið vel, þrátt fyrir smá byrjunarörðuleika. En þetta er mikið verk og vandasamt.

Miðvikudagur 15. september 2004 Aðsent:  / 4 leikmenn KS í liði ársins í 2. deild.  Lið ársins í 2. deild í knattspyrnu, valið af þjálfurum liðanna, var kynnt í morgun á fotbolti.net -- 4 leikmenn KS eru í liðinu, Bane í vörninni, Bjarki á miðjunni og Raggi og Doddi í sókninni. Ragnar Hauksson var jafnframt valinn leikmaður ársins í deildinni af þjálfurum en allir þjálfararnir í deildinni völdu hann í lið sitt og Marko Tanasic var valinn þjálfari ársins. Nánar um þetta á www.fotbolti.net  

Miðvikudagur 15. september 2004  Ofsaveður með miklum sjógangi gerði hér aðfaranótt sunnudags síðastliðinn, og urðu ýmsar skemmdir. Galeas er hér lá, rak á grunn á Skútufjöru, og er tvísýnt um að hann náist út. Skipið er eign Friðriksens timburkauprnanns í Rvík. og átti að sögn að taka hér síld til Svíþjóðar.  Njáll hákarlaskip, Hinna sameinuðu Íslensku verslana hraktist inn á Leiru, og einn mótorbátur fór á sömu leið. Bryggjur brotnuðu hjá H. Söbstað. Alla vikuna hefir verið vesta veður, rok og úrfellir og ýmsar aðrar skemmdir og tjón orðið. Má þar á meðal annars nefna að platning féll niður hjá Helga Hafliðasyni, var á henni síld og salt, alt mun þó hafa náðst upp. Barkur sá, er Sören Goos stórkaupmaður lét setja niður sem bryggjuhöfuð við síldarstöð sína í Hvanneyrarkrók rótaðist allmikið, og braut utan af sér staura og binding er sett hafði verið á hann, voru þó staurarnir reknir niður og vel frá öllu gengið. Eitthvað mun hafa tekið út af fé eins og vanalegt er hér á haustum þegar sjórót er mikið, hve margt það hefir verið er ekki kunnugt.
Svona til að bæta upp lítið af nýjum fréttum á síðu minni - þá er ofanrituð frétt tekin úr Siglfirska vikublaðinu Fram, frá 12. október 1918  (aðgengilegt á netinu www.timarit.is )

Miðvikudagur 15. september 2004  Ein gömul:  1981- Hvað ætli margir átti sig á, hvaða hús þetta sé? -  Ætli eigandinn sé þarna á skíðum á hlaðvarpanum með syni sínum ? -- Það er langt síðan svona mikill snjór eins og sést á þessari mynd, hefur verið á Siglufirði.

Þriðjudagur 14. september 2004  Ein gömul:  Hvað lagið heitir sem þeir syngja, veit ég ekki, en þarna eru; Óskar Berg Elefsen - Sigmar Magnússon - Ingibjörn Jóhannsson - Aðalsteinn Valdimarsson og Aðalsteinn Bernharðsson. Þetta er hluti af S.R. kórnum 1980

Mánudagur 13. september 2004  Týndur Páfagaukur. (Aðsent) Ég heiti María Petra Björnsdóttir á heima á Aðalgötu 8. Páfagaukurinn minn sem er ljósblár og hvítur flaug út um opna hurð hjá okkur á laugardaginn. Mér þætti vænt um ef þú gætir sett þetta á síðuna hjá þér og beðið þá sem kynnu að sjá hann að hringja í síma 896 6233

Mánudagur 13. september 2004 Aðsent:  Hér koma nokkrar myndir sem teknar voru a lokahófi KS síðastliðið laugardagskvöld. Viðurkenningar sem þar voru veittar voru í hófinu voru eftirfarandi; Ragnar Haukur Hauksson var verðlaunaður sem markahæsti leikmaður KS á tímabilinu og auk þess var hann valinn leikmaður ársins. Sigurbjörn Hafþórsson var valinn efnilegastur. - KS-ingur ársins var valinn Ásmundur Einarsson. -- Kveðja, Steindór.

Mánudagur 13. september 2004 Siglfirðingafélagið: Haustfagnaður

Mánudagur 13. september 2004 Ein gömul: Mestu hrekkjalómar í tíð Síldarverksmiðja Ríkisins. Friðrik Friðriksson og Eggert Theódórsson, eru þarna ef til vill að undirbúa enn einn hrekkinn, sem þeir voru snillingar í að brugga, jafnvel til höfuðs hvor öðrum, sem kom oft fyrir, amk á annan vegin. Og var ávalt fyrirgefið og hlegið á eftir, þó svo að stundum hafi áhorfendur hlegið meira.

Sunnudagur 12. september 2004  Aðsent:  Hér eru nokkrar myndir sem teknar voru er merking á Dalaleið fót fram í gær. Veraldarvinir voru byrjaðir að merkja, en félagar úr Björgunarsveitinni Strákar kláruðu verkið undir öruggri stjórn Marisku van de Meer, sem þekkir þessa leið vel. Mareska er kona Björns Valdimarssonar fv bæjarstjóra
Ómar    Smelltu á myndina.

Sunnudagur 12. september 2004  Aðsent: Þetta eru myndir úr nýju rétt þeirra fljótamanna. - Það var réttað í gær og þar var líf og fjör.
kveðja Nonni Salla.  ---  Fleiri myndir ef þú smellir.
 

Sunnudagur 12. september 2004  Ein gömul: Guðmundur Sigurðsson og Georg Fanndal, 1966