|
Sunnudagur 31 október 2004
Athugið: Ég átti brýnt erindi suður til Reykjavíkur, nú í
morgun Sunnudag. Ég kem ekki til baka fyrr en á þriðjudagskvöld eða
jafnvel miðvikudag 3. nóvember, geri ég ráð fyrir. Þannig að síða mín
verður ekki uppfærð á meðan. Ég vona að mér verði fyrirgefið. |
|
Sunnudagur
31 október 2004 Morgunblaðið fyrir 50 árum:
Sjópróf vegna strandsins á togaranum Hafliða SI 2 |
|
Sunnudagur
31 október 2004 Ein gömul: Þessi mynd er tekin í
Æskulýðsheimilinu við Vetrarbraut á Siglufirði, er heimilið var opnað
til notkunar og sýnis þann 24. febrúar 1963 Ekki þekki ég
krakkana, en eflaust hafa margir gaman af að spreyta sig á því að þekkja
þá. |
 Smelltu
á >> Afmæli í dag
Sunnudagur
31 október 2004 |
|
Laugardagur
30. október 2004 Ein gömul: Einar Ingimundarson - Eyþór
Hallsson og Þóroddur Guðmundsson, 1963 |
  Smelltu
á >> Afmæli í dag og brúðkaup.
Laugardagur 30. október 2004 |
|
_small.JPG) Föstudagur 29. október 2004
Þeir vinna af miklum ákafa Bás-karlarnir við lagningu
frárennslislagnarinnar, nú staddir í sneiðingnum upp að Kirkjustíg.
Þessir tveir karlar; Þröstur Ingólfsson og Ægir Bergsson, vildu endilega
láta það koma fram að þeir væru sko aðalkarlarnir og vildu fá mynd af
sér á Lífið á Sigló. |
|
Föstudagur
29. október 2004 Ein gömul: Kjartan Einarsson, þá
dyravörður á Hótel Höfn og Kristfinnur Guðjónsson ljósmyndari.
Myndin er tekin á árshátíð SR-inga, 5. janúar 1963. |
Smelltu
á >> Afmæli í dag
Föstudagur 29. október 2004 |
|
Fimmtudagur
28. október 2004 Almyrkvi á tungli var í nótt.
Ekki ætlaði ég að vaka eftir honum til að taka mynd, en ég vaknaði
þó óvænt rétt fyrir klukkan 2 og leit út. Það var skýmistur á milli
tungls og jarðar, en sást þó þokkalega til tunglmyrkvans í sjónauka. Ég
sótti myndavélina og tók þessa mynd (án þrífóts) svona rétt til að
staðfesta það sem ég sá. Þetta er ekki fagmannlegt skot, en það er
þarna, tekið klukkan 1:58:30 og ég aftur sofnaður stuttu síðar. |
 Fimmtudagur
28. október 2004 Morgunblaðið fyrir 50 árum.
Togarinn Hafliði SI 2 strandar. |
|
Fimmtudagur
28. október 2004 Ein gömul: Sigurður Magnússon
múrarameistari og Þorleifur Hólm múrari að vinna við hleðslu á eldhólfi
í einum af þremur þurrkaraofnum SR46, í marsmánuði 1962 |
Smelltu
á >> Afmæli í dag
Fimmtudagur 28. október 2004 |
Miðvikudagur
27. október 2004 Aðalfundur Siglfirðingafélagsins í
Reykjavík og nágrennis verður haldinn á morgun fimmtudag þann 28
október kl. 20.30 Fundarstaður er Hótel Saga 2 hæð í B sal. Eru
félagsmenn hvattir til að mæta og taka virkan þátt og kynna sér
betur störf félagsins. Kveðja, Stjórn Siglfirðingafélagsins
|
|
Íslandsmeistarakeppnin í Ökuleikni fór
fram þann 18. september við hús Sjóvá-Almennra í Reykjavík. Þar gerði
"garðinn frægan" og ekki í fyrsta skipti
Birgitta Pálsdóttir frá Siglufirði. Það virðist vera orðinn gamall vani
hjá henni að sigra í þessari keppni- þó lítið hafi borið á henni, en ég
frétti af þessu í gærkveldi og stal þessari mynd af síðunni Brautin:
http://www.brautin.is/birtafrett.php?frettid=59
Sjón er sögu ríkari; "smelltu" þér á Brautina og náðu í frekari
upplýsingar um keppnina, auk fleiri mynda- og ýmsu fleiru tengt almennum
akstri. |
|
Miðvikudagur
27. október 2004
Þarna eru sjómenn af bátnum Páll ..? að hrista "ánetjaða" smásíld úr
nótinni. Myndin er tekin 25. ágúst 1962 |
 Smelltu
á >> Afmæli í dag
Miðvikudagur 27. október 2004 |
|
Þriðjudagur 26. október 2004
Flutningaskipið GREEN FROST hóf losun hér í morgun á 468 tonnum
af frosinni rækju til vinnslu hjá Rækjuverksmiðju Þormóðs ramma Sæberg.
Skipið hefur nokkrum sinnum áður komið með samskonar farma hingað til
Þ.R.S. Myndin er tekin um klukkan 9 í morgun. |
|
_small.jpg) Þriðjudagur
26. október 2004 Ein gömul:
Í september 1962 í lok góðrar síldarvertíðar var mjölhús SR á
Siglufirði orðið fullt, allir tómir pokar búnir og mjölinu safnað í 7-8
metra háa hauga á gólfið. Pokunum var staflað liggjandi í 28-30 poka
hæð, (um það bil 7-8 metra). -- Bræðslu lauk ekki fyrr en í lok
september þetta árið.
Myndirnar eru teknar 14. september 1962 |
 Smelltu
á >> Afmæli í dag
Þriðjudagur 26. október 2004 |
|
_small.JPG) _small.JPG) Mánudagur
25. október 2004
Í morgun voru þeir Örlygur og Sveinn á Síldarminjasafninu
að flytja skip milli húsa. Þetta er líkan af Sigurborgu SI 275 sem
Þráinn Sigurðsson í Ísafold átti og gerði hér út á 7. áratugnum. Módelið
var gefið safninu fyrir tveimur árum og er smíðað af Hafsteini
Vilhjálmssyni á Akureyri. Hafsteinn bjó hér í bernsku og er sonur Villa
á Hraunum. - Hér fylgir einnig mynd af öðrum og mun stærri flutningi
skips, en það er sjálfur Týr SK sem siglir þarna sína síðustu siglingu á
leið inn í grunn Bátahússins í september 2002. Þessi flutningur var
mikil framkvæmd og vakti athygli og hafa sennilega ýmsir hugsað sitt um
tilganginn með þessum "fúakláfi" - en nú er Týr öndvegisgripur á
Síldarminjasafninu. |
|
Mánudagur
25. október 2004 Keldusvín á ferð. Við sorphreinsun
eftir óveður um daginn fannst dautt keldusvín í sorptunnu og mátti ætla
að viðkomandi húseigandi hafi fundið fuglinn dauðan eða illa á sig
kominn og hann síðan drepist hjá honum. Keldusvín er sjaldgæfur fugl
hérlendis en var áður fastur varpfugl víða um land en með framræslu mýra
og komu minksins telja flestir að íslenski varpstofninn hafi orðið
útdauða. Þessi fugl er ungur og líklega skriðið úr eggi í sumar og
borist yfir hafið frá Noregi með austanvindum í haust eins og oft gerist
með skandínavíska fugla. Skylda er að tilkynna fund Keldusvínsins til
Náttúrufræðistofnunar. Þeir bæjarbúar sem sjá til torkennilegra fugla
eru hvattir til að hafa strax samband við Sigurð Ægisson eða Örlyg
Kristfinnsson. |
|
_small.JPG) Mánudagur
25. október 2004 Á hverjum morgni, kemur maður að
nafni Hafsteinn Hólm Þorleifsson á morgungöngu sinni við hjá
beitningaskúr þeirra bræðra Óla og Péturs, sem staðsettur er við sjóinn
framan við Síldarminjasafnið, í þeim tilgangi að gefa 40-50 dúfum sem
þar halda til. Ég ákvað í morgun að setja fyrir mínum gamla vini og
vinnufélaga og smella á hann mynd. Engar dúfur sá ég á vettvangi er ég
mætti. Þegar Hafsteinn mætti, gekk hann að dyrum að vestanverðu og
bankað þrjú högg á dyrnar. Að augnabliki loknu byrjuðu dúfur að birtast
á þakinu að austanverðu þeim megin sem þær halda til, og síðan þegar þær
sáu Hafstein flögruðu þær til hans til að njóta þess sem Hafsteinn hafði
upp á að bjóða. Þær eru oft ekki vaknaðar greyin svo það verður að vekja
þær til morgunverðar með því að banka sagði Hafsteinn. |
|
 Mánudagur
25. október 2004 "Lífið á Sigló" fyrir 82 árum;
dæmigert vikuyfirlit úr blaðinu Fram árið 1922 |
|
Mánudagur 25. október 2004
Aðsent: Sæll. -- Einn af þeim sem lentu í Sprengjuárásinni í
Kabúl er af Siglfirskum ættum, en það er Steinar Örn Magnússon sem er
barnabarn Vigdísar Magnúsdóttur, sem er systir móður minnar Hólmfríðar
Magnúsdóttur. Síðast er ég frétti (kl.15:00 í gær)
var Steinar á sjúkrahúsi og verið var að týna sprengjubrot úr honum.
Kveðja Siggi Ben. (Hvar eru Siglfirðingar, ekki? S.K.) |
|
Mánudagur
25. október 2004 Ein gömul: Löndun við
Rauðkubryggju.
2. september 1962; Næst er Hringur SI 34 - Höfrungur II AK 150 að koma
til löndunar - Haraldur AK 10 undir krana að landa og Særún SI 50 fjærst. |
|
Sunnudagur 24. október 2004
Eins og komið hefur fram, á síðum fjölmiðlanna og í sjónvarpi, þá
lentu Íslensku friðargæsluliðarnir í Kapúl í hremmingum á dögunum. -
Í blöðum eru þeir sem voru á vettvangi nafngreindir og meðal þeirra er
nefndur Friðrik Már Jónsson flugumferðastjóri. Að því gefnu tilefni hafa
margir sent mér tölvupóst og bent mér á að þarna væri Siglfirðingurinn
Friðrik Már á meðal. Ég sá ekki ástæðu til að fjölyrða um þetta atvik á
síðum mínum því nóg kom fram í öllum öðrum fjölmiðlum um þetta. En til að
leiðrétta þann misskilning að Siglfirðingurinn Friðrik Már hafi verið á
vettvangi árásasarinnar, þá upplýsist hér með að Siglfirðingurinn
Friðrik Már Ásgrímsson, sem er að vísu í þessum hópi, en var ekki á
vettvangi heldur við störf á flugvellinum í Kapúl. Það var nafni hans
Friðrik Már Jónsson flugumferðastjóri sem var á vettvangi árásinnar,
hann á sem sé nafna í Kapúl. |
|
Sunnudagur
24. október 2004 Ein gömul: Bryggjur á Siglufirði 1961. -
Hrímnisbryggjan næst. |
Sunnudagur
24. október 2004 Fyrir 50 árum: Morgunblaðið í
október 1954 |