Lífið í okt 10-16 2004 | Lífið í okt 17-23 2004 | Lífið í okt.24-31 2004 | Lífið í okt 1-10 2004

>>>>>>>>>>> Lífið í okt 1-10 2004

 

Til forsíðu
Til baka
Álalækurinn




Ljósmyndasafn Steingríms
á netinu.

Steingrímur Kristinsson Siglufirði
G-892-1569
S-467-1569

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

   Siglfirski fréttavefurinn  Lífið á Sigló- s. 892-1569

Laugardagurinn 9. október 2004  Aðsent: - Árgangur 1949 kom saman á Kringlukránni 1. október síðastliðinn.

Laugardagurinn 9. október 2004 Starfsfólk Sparisjóðs Borgarnes ásamt mökum þeirra, komu til Siglufjarðar í dag í boði starfsfólks Sparisjóðsins hér og voru með því að endurgjalda heimboð félaga sinna frá Borgarnesi, en Siglfirðingarnir heimsóttu þá á síðasta ári. Meðal annars var farið í Síldarminjasafnið, ásamt fleiru sem þeim var boðið upp á. Myndin er tekin er hóparnir komu til Síldarminjasafnsins.

Laugardagurinn 9. október 2004  Aðsent:  Eins og lesendum vefsins er kunnugt, þá er Baltasar Kormákur með mikið lið og búnað hér vegna töku á kvikmynd sinni "Smáferð til himna" Einn af aðalleikurum myndarinnar, hinn viðfeldni og vinsæli Forest Whitaker var á ferðinni seinnipartinn í gær til að skoða bæinn okkar Siglufjörð, hann kom meðal annars við í versluninni Videoval, þar sem  þessar myndir voru teknar fyrir utan, en á annarri þeirra er Forest Whitaker ásamt Þorsteini Sveinssyni sem rekur Videoval ásamt konu sinni Fanney Margrétardóttir. En á hinni er Whitaker ásamt Sveini Þorsteinssyni.

Laugardagurinn 9. október 2004 Sölukonur. Þessar stelpur voru ekki að vandræðast yfir því hvernig þær ættu að koma varningi sínum á framfæri. Þær gengu hús úr húsi í gær settu varninginn framan við dyr húsráðanda bönkuðu á dyr og buðu varning sinn falan. Þær voru að safna fé til styrktar Rauða krossinum. Þær heita Pálína Kröyer Guðmundsdóttir - Margrét Valsdóttir og Silvía Ósk Halldórsdóttir. (ekki er víst að nöfnin séu í réttri röð)

Smelltu á >> Afmæli í dag
Laugardagurinn 9. október 2004

Föstudagur 8. október 2004 Brúin yfir Fjarðará. Nú er lokaáfanginn að nálgast við smíði brúarinnar. Búið er að setja járnbita á milli stólpanna, sem er undirstaða steypumótsins sem en sjálft brúargólfið verður steinsteypt plata,- og þegar steypan hefur þornað verða bitarnir fjarlægðir. Myndin sýnir tvo af starfsmönnum Mikael ehf sem er með verkið, og svæðið eins og það leit út klukkan 10 í morgun, en þetta eru Björn Þorbergsson og Ingimar Björnsson

Föstudagur 8. október 2004  Körfuknattleiksdeildin okkar Glóa manna tekur þátt í Íslandsmótinu sem byrjar nú um helgina. Það er eindregin ósk þeirra Glóa manna, að Siglfirðingar á höfuðborgarsvæðinu, gefi sér tíma í að líta á liðið í einhverjum leikjanna og einnig Siglfirðingar heima, sem eiga heimangengt. Þá er Glói búinn að uppfærða nýja heimasíðu www.fjarkinn.tk  sem er heimasvæði meistaraflokks í körfunni.
ÁFRAM GLÓI

Föstudagur 8. október 2004  Ein gömul: Anton Jóhannsson (stóri Toni) og Friðjón Vigfússon (1960)
Smelltu á >> Afmæli í dag
Föstudagur 8. október 2004
Fimmtudagur 7. október 2004 Nýtt: Viðbætur á tengla, staðsettir neðst á forsíðu Ljósmyndasafnsins

Fimmtudagur 7. október 2004 Baltasar Kormákur er kominn hingað til Sigló, með aragrúa liðs, vegna töku á atriðum í kvikmynd sína "Smá ferð til himna" En hingað kom hann seinnipartinn í gær ásamt leikurum, áhættuleikurum og öðru starfsliði. Einnig komu nokkrir amerískir "kaggar", sem verða flestir klessukeyrðir að mér var sagt, meðal annars  inni í Strákagöngum, og kveikt verður í einhverjum þeirra. Tökur hófust seint í gærkveldi og í nótt. Auglýst hefur verið í útvarpi að vænta megi tafa við göngin næstu daga. Myndin til vinstri er af nokkrum bílanna (kagganna) vestan við göngin, en þetta eru amerískir bíla, fluttir inn sérstaklega í þeim tilgangi að klessukeyra. Þeir voru fluttir á stórum flutningabílum, þar sem þeir eru ekki skráðir. Hin myndin sýnir hvar kvikmyndagerðar-gengið hefur komið sér fyrir úti á Strönd, þar sem bækistöðvar þeirra eru, 4 eða 5 húsvagnar og fleiri vagnar af ýmsum tegundum og gerðum.

Fimmtudagur 7. október 2004  Ein gömul: Gamlir félagar, Jóhann Örn Matthíasson og Júlíus Jónsson.

Fimmtudagur 7. október 2004 Nýlega fæddur Siglfirðingur
Smelltu á >> Afmæli í dag
Fimmtudagur 7. október 2004

Miðvikudagur 6. október 2004 Aðsent:  Gæsaveiðitíminn er greinilega hafinn. Ég fékk þessa skemmtilegu mynd senda í gærkveldi, en þetta eru þeir  Rúnar Marteinsson og Guðni Sölvason að koma úr vel heppnaðri veiðiferð.

Miðvikudagur 6. október 2004  Aðsent: Ný stjórn Kiwanisklúbbsins Skjöldur Siglufirði.

Miðvikudagur 6. október 2004  Álalækurinn. Það hefur margoft komið fyrir að sá hluti holræsakerfis bæjarins sem tekur við og tengist Álalæknum, (sem raunar er ekki til nema nafnið) að ræsin hafa ekki undan þegar mikið rignir eins og oft kemur fyrir á haustdögum. Nú er verið að reyna að koma í veg fyrir slíkt, en Bás ehf er að grafa fyrir lögn sem tengist holræsalögninni (Álalæknum) skammt frá sjónum, þar sem tjaldstæðin eru- og efst upp í bæinn í nánd við gömlu kartöflugarðana við Hólaveg. En þar á að safna saman öllu ferskvatni sem úr fjallinu kemur og beina því niður í sjó, þannig að "ferskvatnið" renni ekki inn á sjálft holræsakerfið eins og nú er. Við þetta minkar  aurburður sá sem til þessa hefur oft fyllt holræsakerfið.

Miðvikudagur 6. október 2004 Ein gömul:  Horfin og breytt mannvirki. 1974 (+/-?)

Smelltu á >> Afmæli í dag Miðvikudagur 6. október 2004

Þriðjudagur 5. október 2004  Hvort heldur ætli það sé, heimska, fávísi eða kæruleysi, eða allt í senn? Spurt er vegna drengs í ljósri skyrtu eða bol, á rauðum bíl, sem snéri við á gatnamótum Fossvegar og Hvanneyrarbrautar, laust fyrir klukkan 13:00 í dag og notaði tækifærið til henda tveimur tómum glerflöskum (maltöl) þvert yfir götuna yfir á gangstéttina ofan við hús mitt. Ef til vill heldur drengurinn að hann sé einn í heiminum, en hann gæti orðið fyrir því að keyra á flöskubrot eftir einhvern annan með svipað hugarfar, og eyðilagt eitt af dekkjunum undir bíl sínum. Einnig gætu slík glerbrot undir snjó, skaðað börn að leik. Þetta er annað skiptið í þessari viku sem glerflöskum er hent út í loftið á þessu svæði, en sú flaska eða brotin úr henni lenti raunar alla leið heim að dyrum. -Ég veit hver þú ert þar sem ég sá til þín. Ég segi ekki frá nafni þínu að sinni, en það gæti orðið breyting á ef ég frétti af þér við sviðað tækifæri síðar.

Þriðjudagur 5. oktober 2004  Frétt úr blaðinu Fram árið 1919

Þriðjudagur 5. oktober 2004 Ein gömul: Hásetar, dælumaður og timburmaður, í 11 kaffi:-  Haförninn 1967 - einhverstaðar þar sem heitara var   úti heldur en inni.; Bjarni Þorsteinsson - Salmann Kristjánsson - Sigurjón Kjartansson - Steingrímur Kristinsson og Gunnar Tómasson.

Mánudagur 4. október 2004  Talsvert fjör er í ánum okkar; Leyningsánni og Fjarðaránni. Fossinn inni í Skóræktinni er hressilegur, þó hann sé ekki í sama vexti nú þann 21. september síðastliðinn. En það má kalla lán að þeim tókst að fylla mótin á föstudaginn vegna nýju brúarinnar yfir Fjarðará, því annars má búast við að mótin hefðu aflagast all verulega, þar sem áin er nær búin að grafa undan stuðningsklossunum og mótið umflotið. Myndirnar voru teknar um kl.10:30 í morgun.

Mánudagur 4. október 2004 Tankskipið Gevostar, lestaði hér í gær frá Síldarvinnslunni á Siglufirði, 700 tonn af loðnulýsi

Mánudagur 4. október 2004 Ein gömul: Áhugasamir hlustendur. Gústi guðsmaður að predika norðarlega við Hvanneyrarbraut árið 1965

Smelltu á >> Afmæli í dag Mánudagur 4. október 2004
Sunnudagur 3. október 2004  Frétt frá blaðinu Fram 28. ágúst 1920 -

Sunnudagur 3. október 2004 Ein gömul:   Hannes Baldvinsson, þáverandi síldarmatsmaður og Kristján L Möller, núverandi þingmaður. Á bak við hann; ???? Myndin er tekin á Pólstjörnuplani 196? (4,5eða 6 ?)

Smelltu á >> Afmæli í dag
Sunnudagur 3. október 2004

Laugardagur 2. október 2004 Enn vil ég vekja athygli á umfjöllun Fréttablaðsin, nú í dag þar sem nokkur vitöl eru við forráðamenn á Siglufirði  http://www.visir.is/ExternalData  En athugið, á forsíðunni neðst er vísað á blaðsíður 30 og 31, það er rangt, viðtölin eru á blaðsíðum 42 og 43.  
     Ég er búinn að lesa þessi viðtöl og á ákaflega erfitt að komast að niðurstöðu um það hvort ástandið hér á Siglufirði, atvinna og framtíð sé á heildina litið; jákvætt eða neikvætt. Þessum ráðamönnum ber alls ekki saman, og erfitt að meta viðbrögðin. Þó mér finnist orð bæjarstjóra mjög rökrétt, er hann segir: "... fólksfækkun það alversta sem nokkurt sveitarfélag geti gengið í gegnum."
Hvað varðar orð Ólafs Helga, er hann segir "....algjörlega úr lausu lofti gripið" - vegna þeirrar umfjöllunar um samdrátt hjá fyrirtækinu. Það er alls ekki úr lausu lofti gripið, ef fleiri en ég hafa fengið svipuð svör og "Lífið á Sigló" þegar ég leitaði hjá honum frétta um uppsagnir skipverja útgerðarinnar og hvað framundan væri varðandi  útgerð skipanna. Mér fannst svarið sem ég fékk frekar snubbótt, þegar hann vísaði mér á vefsíðu fyrirtækisins og sagði þar allt vera sem hægt væri að segja á þessu stigi. En þar var ekkert annað en það sem varð tilefni spurningu minnar og var á allra vitorði. Lífið á Sigló er etv. ekki það merkilegur miðill að það taki því að eyða tíma í að svara einfaldri spurningu, en hefði þó getað komið í veg fyrir neikvæða umræðu hjá þeim 600-700 sem síðu mín heimsækja daglega, ef mér hefði verið sagt frá því sem hann upplýsir nú í dag í Fréttablaðinu.

Laugardagur 2. október 2004  Álalækurinn. Ég rakst grein um Álalækinn í blaðinu Fram, frá 19. júní 1920. Það gefur augaleið að barátta verkfræðinga og starfsmanna bæjarins núna í dag árið 2004, eru ekki fyrstu átökin sem lækurinn í við þessa aðila. Þeir sem eru í yngri kantinum vita etv ekki hvað og hvar Álalækurinn er, en þetta er lækur sem kom (og kemur enn, en nú undir yfirborði) ofan úr fjallinu, hann lá suður með Hvanneyrarbrautinni norðan Þormóðsgötu, niður að Lækjargötu og suður í núverandi Bátahöfn. Þarna rann skólpkerfi  bæjarins ofanjarðar að hluta, og var td. þessi lækur opinn meðfram Hvanneyrarbrautinni allt til 1950 minnir mig, en þá ofaní brunn sem var staðsettur við vesturenda Ránargötu, sem skilaði læknum svo neðanjarðar svipaða leið og áður. Hérna er greinin.

Laugardagur 2. október 2004  Ein gömul: Aage Johansen og Björn Þórðarson um borð í "Björninn" árið 1965

Smelltu á >> Afmæli í dag Laugardagur 2. október 2004

Föstudagur 1. október 2004  Húsnúmer.  Það er athyglivert hversu fá hús á Siglufirði eru merkt viðkomandi húsnúmeri. Öll fáum við póst- og þar er í öllum tilfellum að ætla má, pósturinn merktur nafni, götuheiti og númeri þess húss sem viðtakandi hefur aðsetur. Þetta vitum við öll. En af hverju eru svona fá hús og raun ber vitni, eða öllu heldur mörg hús sem ekki hafa sýnileg númer. Vonandi ekki til að hindra að ókunnir rati til okkar. Í flestum tilfellum er um athugunarleysi og eða hreinan trassaskap húsráðanda að ræða. Það má til dæmis segja um þetta númer hér til hliðar. Þetta hafði verið til í áratugi uppi í hillu niðri í kjallara  hjá húsráðanda, þegar hann rakst á það af "tilviljun", löngu gleymt, en hann rauk þó í framkvæmdir og setti það upp í snarheitum (fyrir 2 mánuðum). Húsráðendur takið ykkur nú til í andlitinu og setjið númer á húsin ykkar. Það eru til óteljandi tegundir af númerum með allskonar útfærslum, meir að segja eru til sérhönnuð húsnúmer hér á Siglufirði, þe. hjá SR-Byggingavörur. Setjum svip á húsin okkar, það kostar ekki mikið. SK

Föstudagur 1. október 2004  FRÉTTABLAÐIÐ -- Ég vil vekja athygli á frétt og viðtölum í Fréttablaðinu í dag, en þar er meðal annars minnst á Héðinsfjarðargöng, Sameiningu Sveitarfélaga og 350 miljón króna fjárveitingu til Heilsugæslustöðvar Siglufjarðar.

Föstudagur 1. október 2004 Atvinnuhorfur. Samkvæmt upplýsingum frá Verkalýðsfélaginu Vöku, þá hefur störfum á Siglufirði fækkað allverulega undanfarin ár og er svo komið að virkir félagar, sem greiða í félagið % af launum sínum til Vöku, eru að nálgast minnihlutann. Og enn á þetta hlutfall eftir að breytast, þegar uppsagnir skipverja á tveimur skipum Þormóðs Ramma Sæbergs ná fram, en samkvæmt aðspurðum einum af þeim úr áhöfn, þá vita þeir ekki hvað taka mun við, annað en atvinnuleysi. Þá hefur fimm starfstúlkum þvottahúss Heilbrigðisstofnunar Siglufjarðar verið sagt upp störfum þar sem bjóða á út þessa starfsemi, sem kunnugir þó fullyrða að enginn hér í bæ ráði við nema með miljóna tuga fjárfestingu, sem og enginn grundvöllur sé til að reka með hagnaði hér í okkar litla byggðarlagi. Jákvæðar framkvæmdir hafa orðið, sem skapa ný störf sem betur fer, eins og til dæmis Fiskmarkaður Siglufjarðar og Útgerðaraðgerðirnar hans Reynis ofl., en það þarf meira til að stöðva fólksflóttann úr bænum okkar. Húseignir eru seldar fyrir lítið og eða jafnvel gefnar "aðkomufólki", sem síðar nota húsin sem sumarbústaði. Það er gott eitt um það að segja, þar sem þetta er allt saman ágætisfólk. En þetta fólk þarf ekki að greiða sín gjöld hér, og þeim fækkar óðum sem þessi gjöld greiða, og gerir bæjarstjórnarmönnum sífellt erfiðara að greiða áfallinn kostnað og þjónustu sem þeir þurfa að veita. Sameining sveitarfélaga yrði öflugt afl í baráttunni. Þeir sem vilja tjá sig um atvinnumál hér á síðu minni, sendið mér tölvupóst og ég birti það. Ég áskil mér þó rétt til að hafna, nema viðkomandi skrifi undir fullu nafni á eigin ábyrgð. Dulnefni kemur þó til greina, ef mér er gefið upp nafn höfundar.   SK

Föstudagur 1. október 2004  Ein gömul: Sigurður ? son og Oddur Guðmundur Jóhannsson þar sem hann er að vinna við vélina í bílkrananum sem hann stjórnaði hjá SR

Smelltu á >> Afmæli í dag Föstudagur 1. október 2004