|
Námskeið í ullarþæfingu
- verður haldið á Sigló í byrjun nóvember næstkomandi, ef næg þátttaka
fæst. Námskeiðið hentar bæði byrjendum og þeim sem lengra eru komnir. -
Ódýrara og einfaldara en þú heldur. Upplýsingar gefur Margrét
Steingrímsdóttir í síma 896-5351 |
|
Laugardagur 16. október 2004
Lokaáfangi við brúarsmíðina yfir Fjarðará, hófst í morgun klukkan
09:44 er fyrsta steypan rann í sjálft brúargólfið. Það er fyrirtækið
Mikael ehf sem hefur unnið við verkið, sem hófst um miðjan ágúst
síðastliðnn. |
|
Laugardagur
16. október 2004 Gæsapartý - Þær voru staddar í
Vínbúðinni þessar kátu "skvísur" í gærkveldi um klukkan 18:35. En
tilefnið var að "afgæsa" vinkonu sína, sem fer að gifta sig 30. október
næstkomandi. Sú lukkulega er Hrefna Katrín Svavarsdóttir og væntanlegur
maki er Baldvin Steinar Ingimarsson. Hrefna er þessi með bleika og
flottu svuntuna. Verslunarstjórinn Ómar bað þess getið, að það
væri alltaf svona mikið fjör (sem það sannarlega var í gærkveldi) á
hverjum föstudegi.- |
Laugardagur
16. október 2004 Ein gömul:
Þorsteinn Sveinsson frá Lónkoti og Þorleifur Hólm múrari. |
  Smelltu
á >> Afmæli í dag
Laugardagur 16. október 2004 |
Föstudagur 15. október 2004
Brúðkaups afmæli
Og...... |
|
Föstudagur 15. október 2004
Blak Þessar stúlkur voru rétt að byrja á upphitun í gærkveldi, en
þær eru að læra blak hjá Svetlana
Moroshkina. Þær ítrekuðu að þær væru algjörir byrjendur. Eitthvað
vantaði í hópinn hjá þeim, og þær vildu koma því á framfæri að allar
konur á öllum aldri væru velkomnar í hópinn. En þær koma saman tvisvar í
viku, sunnudaga og fimmtudagskvöld. |
|
Föstudagur 15. október 2004
Þriðji flokkur kvenna - KS Stelpurnar voru í strangri
þjálfun hjá Mark Duffield í Íþróttahúsinu í gærkveldi, er ég leit þar
inn. Þar voru þræluppgefnar, en létu sig þó hafa það og tóku smá pásu. |
|
Föstudagur
15. október 2004 Ein gömul: Bjarnarey NS 7 --
Þorlákur ÍS 15 -- Guðmundur Þórðarson RE 70 og Þorbjörn GK 540 |
Smelltu
á >> Afmæli í dag
Föstudagur 15. október 2004 |
|
Fimmtudagur
14. október 2004
Langeyrartjörn og hólminn. -
Arnar Heimir Jónsson og séra Sigurður Ægisson fóru í dag út í
hólmann við Langeyrartjörn til að gróðursetja tré og runna. Mest var
sett niður af loðvíði, einnig var sett niður Birki Gulvíðir, Elri og
Bersarunni. Hólminn hefur tekið vel við sér í sumar eftir uppgræðsluna
og er enn mjög grænn og fallegur. Einnig var notað tækifærið og allur
njóli tekinn úr hólmanum. --- Í vor var sáð grasfræi í hólmann og
hey sett yfir og örfáar þökur. Það heppnaðist mjög vel, svo að hólminn
er nú grasi vaxinn. Æðarkolla virðist hafa gert sér hreiður í miðjum
hólmanum, því dúnn var nokkur í einni dældinni þar. Það er þá fyrsta
hreiðrið sem vitað er um. -- Ákveðið var að bíða með gróðursetningu
plantna til haustsins, þegar þær væru komnar í dvala. En mikilvægt er
fyrir sumar andategundir að hafa skjól af trjágróðri á varptíma, svo að
þetta ætti að örva þær tegundir til varps að vori. -- Það sem var
sett niður núna voru eftirtaldar tegundir: Bersarunni, elri, gulvíðir,
birki og loðvíðir. Auk þess er alaskavíðir kominn í hólmann, nokkrar
hríslur, einhverra hluta vegna. -- Það versta sem hægt er að fá í
varphólma er lúpína, njóli og hvönn, að sögn fuglafræðinga. Ein
njólaplanta var í hólmanum og hún fjarlægð. -- Einnig var með í för
Gauti, sonur Arnars. |
|
_small.JPG) Fimmtudagur
14. október 2004
Skíðasvæðið í Skarðdal: Nú er unnið við að fjarlægja
stórgrýti af skíðasvæðinu- og taka burt misfellur ofl. Verkið vinnur
Stefán Einarsson. Jafnframt eru starfsmenn Siglufjarðarkaupstaðar að
vinna við stækkun & endurnýjun á palli meðfram aðalhúsinu á svæðinu. |
Fimmtudagur
14. október 2004 Fyrir 83 árum síðan.
Auglýsing í Fram 7. maí 1921 |
|
Fimmtudagur
14. október 2004 Ein gömul:
Kristinn Þorkelsson - Eiríkur Þóroddsson - Björn Ólsen og Bjarni Júlíus
Ólafsson -- 28. júní 1961 |
 Smelltu
á >> Afmæli í dag
Fimmtudagur 14. október 2004. |
|
_small.JPG) Miðvikudagur
13. október 2004 Líkbíllinn, sem Lionsklúbburinn á
Siglufirði stóð fyrir söfnum á var í gærkveldi formlega afhentur Guðný
Pálsdóttir formanni sóknarnefndar sem gjöf frá bæjarbúum, það gerði
formaður klúbbsins Hörður Hjálmarsson . Þá þakkaði Hörður Kvenfélaginu
Von sérstakar þakkir fyrir 200 þúsund króna gjöf, sem nægði til að loka
reikningnum vegna kaupanna, við sérstöku þakkarskjali frá Lion vegna
þess, tók formaður kvenfélagsins Von, Anna Snorradóttir. (myndin til
vinstri) |
|
Miðvikudagur
13. október 2004 Ein gömul:
Hjalti SI 12 og Hringur SI 34 við bryggju (Ísafold) og lengst til
vinstri sést aðeins í Baldvin Þorvaldsson -1. maí 1961 |
Smelltu
á >> Afmæli í dag
Miðvikudagur 13. október 2004 |
Miðvikudagur
13. október 2004
Nýlega fæddur Siglfirðingur |
|
_small.JPG) Þriðjudagur
12. október 2004 Verið er að helluleggja lóðina framan við
aðalinngang Sambýlisins á Siglufirði. Það eru þeir Arnar Heimir Jónsson
garðyrkjufræðingur og Guðmundur Ingólfsson, sem eru að vinna við þetta
verk. Myndin var tekin seinnipartinn í gær. |
|
Þriðjudagur
12. október 2004 Það var mikill hamagangur í
álftunum á Langeyrartjörn, seinnipartinn í gær er þessi mynd var tekin,
álftirnar tvær ásamt (að ég held) fjórum ungum sem verið hafa þar að
undanförnu í haust, fengu tvær álftir í heimsókn á tjörnina- og var
greinilegt að þær voru ekki velkomnar í hópinn, því þær réðust ítrekað
að þeim aðkomnu til að stugga þeim burt. En þó þessar nýkomnu, sem hafa
að undanförnu hafist við annarsstaðar í firðinum til þessa, létu sig
ekki og komu alltaf til baka eftir að hafa verið hraktar á flótta. Þetta
gekk svona þann hálftíma tæpan, sem ég fylgdist með. |
|
Þriðjudagur
12. október 2004 Ein gömul: Sunnuplan og nágrenni
1948-1950(?) Ljósmyndari ókunnur. |
Smelltu
á >> Afmæli í dag
Þriðjudagur 12. október 2004 |
|
Mánudagur 11. október 2004
Haustblað Siglfirðingafélagsins er komið út Smelltu á
tengilinn "Siglfirðingafélagið" hér til vinstri |
|
Mánudagur
11. október 2004 Kveðja frá Guðjóni Björnssyni og frú. Þau
biðja að heilsa öllum heima á Sigló, þau hafa það gott og vinna bæði í
Álverinu hörðum höndum fyrir nýja húsinu sínu að Furuvöllum 11,
sem þau hafa verið að byggja. |
|
Mánudagur
11. október 2004 Ein gömul: Jörgen Hólm og
Gestur Guðjónsson að skammta steinsteypu í hjólbörur, er verið var að
steypa þak á kyndiklefa, inni í Ákavíti 11. nóvember 1960 (Mjölhús S.R.,
nú S.V.N. - er enn kallað Ákavíti, nefnt í skætingi í höfuðið á Áka
Jakobssyni alþingismanni. >1946) |
 Smelltu
á >> Afmæli í dag
Mánudagur 11. október 2004 |
|
_small.JPG) Sunnudagur 10. október 2004
Nýr bátur í bæinn. Nú um helgina kom í bæinn nýr bátur sem Reynir
Karlsson og fjölskylda keypti frá Austfjörðum. Gamli báturinn Júlía, fer
ekki langt, því Siglfirðingarnir Sigurður Ólafsson skipstjóri og Ragnar
Hauksson fiskverkandi keyptu hann. |
|
Sunnudagur
10. október 2004 Þessa tvo heiðursmenn hitti ég í
gær fyrir utan Síldarminjasafnið, þetta er Ólafur Jónsson
sparisjóðsstjóri og Þórhallur Jónasson efnafræðingur. |
|
Sunnudagur
10. október 2004 Ein gömul: Frá vígslu Frystihúss
Þormóðs Ramma hf 1975 - Hinrik Aðalsteinsson, þáverandi stjórnarformaður
Þormóðs Ramma og Ragnar Arnalds, þáverandi þingmaður |
 Smelltu
á >> Afmæli í dag
Sunnudagur 10. október 2004 |