Lífið 1.-6. nóv 2004 | Lífið 7.-13. nóv. 2004 | Lífið nóv. 14.-20. 2004 | Lífið 21.-30. nóv 2004

>>>>>>>>>>> Lífið 1.-6. nóv 2004

 

Til forsíðu
Til baka
Múlaberg SI 22
Frá Júlíusi




Ljósmyndasafn Steingríms
á netinu.

Steingrímur Kristinsson Siglufirði
G-892-1569
S-467-1569

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

   Siglfirski fréttavefurinn  Lífið á Sigló-

Laugardagur 6. nóvember 2004  Hitabylgja. Talsverð umskipti urðu á hita í nótt og í morgun, miðað við hitastigið í gær sem var um og undir frostmarki. Myndin til vinstri var tekin í morgun en hin fyrir hádegið í gær. Ljósmyndir SK og JH

Laugardagur 6. nóvember 2004
Veðrið í hádeginu:
Hiti 15,2 °C
Sunnan gola
Úrkomulaust

Laugardagur 6. nóvember 2004 Tvær gamlar: 
Húsið sem þarna er verið að- og búið að rífa, var bæði íbúðar og verslunarhús. Einu sinni var þar áfengisverslun, en brauðbúð og mjólkursala var þar síðast, þar til það var rifið. Norðan við stendur svo Kaupfélagið; skó og vefnaðarvörur svo og matvara. Húsið sem einnig var rifið ekki löngu síðar, en nú er á þessu svæði verslunarhúsið Samkaup.
Myndirnar eru teknar 11. og 12. júní 1963

Laugardagur 6. nóvember 2004
Jóhanna Hauksdóttir
50 ára í dag
Jóhanna er til hægri á myndinni.
 

Föstudagur 5. nóvember 2004 Aðsent:  Betur sjá augu en auga. Ég (SK) fékk mér smá reisu að venju, en ég fór akandi. Vinur minn Júlíus Hraunberg, fór aftur á móti gangandi og hann sendi mér nokkrar myndir sem hann tók á sinni reisu. Smelltu á myndina.

Föstudagur 5. nóvember 2004
Veðrið í hádeginu:
Hiti 0,5 °C
Logn
Sólskin

Föstudagur 5. nóvember 2004 Aðsent: Ég skrapp niður að Hafnarfjarðarhöfn rétt fyrir hádegi í gær- og þar voru kallarnir á Múlanum að landa 40-50tonnum af karfa.Og svo náði ég að snapa mér hádegisverð hjá þeim um borð og tók nokkrar myndir í leiðinni um borð og við löndunina. Strákarnir biðja að heilsa heim.
Kveðja, Hjalti Gunnars.

Föstudagur 5. nóvember 2004  Ein gömul:  Skarðsmótið 1963, Bjarni Þorgeirsson - Gunnar Þórðarson og Ólafsfirðingurinn Svanberg Þórðarson skíðakappi.

Fimmtudagur 4. nóvember 2004 Það var enginn snjór í byggð í gærdag- og lítið í fjöllunum. En í nótt og lítilsháttar fram að hádegi var smá úrkoma og él, sem nægði til að klæða bæinn í mildan haustbúning. Myndin er tekin klukkan 13:15 í dag.

Fimmtudagur 4. nóvember 2004
Veðrið í hádeginu:
Hiti 2,3 °C
Andvari
Smáél

Fimmtudagur 4. nóvember 2004 Ein gömul:
Frá kabarett Tónskólans og Lúðrasveitar Siglufjarðar. - Kristján Sigtryggsson - Hafliði Guðmundsson - Hallur Óskarsson - Sigursveinn D Kristinsson  og Geirharður Valtýsson (Gerhard Schmidt)
Myndin er tekin í Nýja Bíó á Siglufirði 16. mars 1963

Miðvikudagur 3. nóvember 2004
Veðrið í hádeginu:
Hiti 8,3 °C
Sunnan gola
Úrkomulaust

Miðvikudagur 3. nóvember 2004 Starfsmenn Bás ehf voru í morgun að ganga frá eftir sig, eftir skurðgröftinn og röralagnir, fyrir framan verslunina Samkaup og voru að leggja að nýju, gangstéttina þar fyrir framan

Miðvikudagur 3. nóvember 2004 Morgunblaðið fyrir 50 árum
Frétt frá Siglufirði og mynd sem ég átti í fórum mínum, tengdum þessum atburði fyrir 50 árum, árið 1954. Á myndinni eru Matthías Jóhannsson, Gísli Sigurðsson og Júlíus Jóhannsson, skipverjar á Elliða- og fálkinn umræddi. En þeir félagar fóru með kauða á Ljósmyndastofu Kristfinns Guðjónssonar til myndatöku.

Miðvikudagur 3. nóvember 2004 Ein gömul:
Frá kabarett Tónskólans og Lúðrasveitar Siglufjarðar. 
Myndin er tekin í Nýja Bíó á Siglufirði 16. mars 1963

Miðvikudagur 3. nóvember 2004
Elín Arnardóttir
er 37 ára í dag

Mánudagur 1. nóvember 2004  Flutningaskipið Sunna var lestað frá Síldarvinnslunni, loðnumjölsfarmi í morgun.
(SÞ)

Mánudagur 1. nóvember 2004 Frá Sveini Þorsteinssyni: Fiskað í soðið:
Örlygur Kristfinnsson, safnvörður og kona hans Guðný Róbertsdóttir að leggja í´ann til fiskjar í soðið, í blíðunni í dag.

Þriðjudagur 2. nóvember 2004
Veðrið klukkan 15:00:
Hiti 9,2 °C
Sunnan gola
Úrkomulaust
Mánudagur 1. nóvember 2004
Veðrið í hádeginu:
Hiti 8 °C
Logn
Úrkomulaust  (SÞ)

Sú breyting verður frá með nóvember, að veðurlýsingu og veðurmynd hádegisins daglega, verður eins og hér sést fyrir ofan. Það er; ekki verður sérstök síða gerð fyrir veðurmyndirnar eins og hingað til, heldur fylgir hverjum degi viðkomandi viku. Eins verður með afmælis og svipað efni Fyrri veður myndir verða áfram til staðar, sem og annað eldra efni sem hingað til.