|
Kaupmenn og þjónustuaðilar á
Siglufirði: Munið ókeypis kynningu á vörum ykkar og þjónustu; skoðið
hér -- Og aðrir sem vilja vita hvað fyrirtækin hafa
upp á að bjóða smelli þar einnig. |
|
Þriðjudagur 30. nóvember 2004
Tjörnin fyrir sunnan Stórabola.
(Bolatjörn?) Það hefur verið hleypt úr henni, en áður hafði náð að
myndast 10-15 sentímetra þykkur ís á henni sem brotnað hefur niður við
tæminguna. Þessi mynd var tekin í gær, laust eftir hádegið. |
Þriðjudagur 30. nóvember 2004
Veðrið í hádeginu:
Hitastig -1,0 °C
Norðan 6-8 m/s
Él í lofti |
Þriðjudagur
30. nóvember 2004 Ein gömul:
Steingrímur Magnússon og Björn Þórðarson í bingó, árið 1964 |
Þriðjudagur
30. nóvember 2004
Auður Sigurgeirsdóttir
er 51 árs í dag |
|
Þriðjudagur
30. nóvember 2004
Rósa Mary Þorsteinsdóttir
er 25 ára í dag. |
Þriðjudagur
30. nóvember 2004
Jósteinn Snorrason
er 35 ára í dag |
|
Mánudagur 29. nóvember 2004
Veðrið í hádeginu:
Hitastig +5,3 °C
Andvari
Úrkomulaust |
|
Mánudagur
29. nóvember 2004 Síðasta ferðin. Mánafoss kom hingað í
nótt eða í morgun snemma og lestaði hér mikið af vörum og marga tugi
tonna af þungavarningi, ma brotajárni. Vanalega hefur
Mánafoss verið hér á Sunnudagsmorgnum og farinn um hádegið, en vegna
mikilla flutninga hefur ferð hans tafist. Það verður líklega langt
þangað til ef nokkru sinni, sem stóreignamönnunum (Eimskip) þóknast að
senda skip hingað aftur, þó ekki muni skorta varninginn frekar en hingað
til. (myndin er frá apríl 2004) |
|
Mánudagur
29. nóvember 2004 Tunnan prentþjónusta og Dalnet tölvuþjónusta
bjóða uppá.......
Vörukynning |
Mánudagur
29. nóvember 2004 Videoval:
Vörukynning |
|
Mánudagur
29. nóvember 2004 Ein gömul: Þeir voru að koma frá
skíðamóti; 19. apríl 1964. Eggert Theódórsson, Jónas Jónsson og
Steingrímur Magnússon |
Mánudagur
29. nóvember 2004
Álfhildur Haraldsdóttir
er 14 ára í dag. |
|
Mánudagur
29. nóvember 2004
Þóra Sóley Ingvarsdóttir
er 3ja ára í dag |
Mánudagur 29. nóvember 2004
Vigdís Sævaldsdóttir
er 3ja ára í dag |
|
|
Sunnudagur
28. nóvember 2004
Kveðja frá Canada
Sorry I can't understand this page......
click here |
|
Sunnudagur
28. nóvember 2004 Aðsend tillaga, um að einhverjir taki
sig saman, um að koma fyrir ljósaskreytingu á Stóra bola, eitthvað
svipað því sem á myndinni sést. K.B.
Svo er hér ávísun á komandi jólastemmingu: Nokkrar
fallegar myndir á Lion vefnum
smelltu |
Sunnudagur
28. nóvember 2004
Veðrið í hádeginu:
Hitastig +8,7 °C
Sunnan 8-10 m/s
Úrkomulaust |
Aðsent: Myndir frá afmælishófi í
tilefni af 20 ára afmælis Sambýlisins á Siglufirði. |
|
Sunnudagur
28. nóvember 2004 Ein gömul: Svona var áhuginn 19. apríl
1964. Myndin er tekin eftir að skíðamóti lauk- og áhorfendur lögðu af
stað gangandi heim. Það voru fáir bílar til í einkaeigu á þessum tíma. |
Sunnudagur
28. nóvember 2004
Anton Mark Duffield
er 41 árs í dag |
Sunnudagur 28. nóvember
2004 |
|
|
Laugardagur 27. nóvember 2004 Engin
veðurmynd var er á síðunni fyrir daginn í dag vegna fjarveru minnar,
en mér var sagt að veðrið hefði verið milt og gott í dag og um + 4 °C um
hádegið. Hinsvegar var leiðindar rigning og vindur um 8 leitið í morgun
er ég yfirgaf bæinn, auk þess sem fljúgandi hálka var á veginum alveg að
þjóðvegi 1 (lengri leið til Akureyrar) |
|
Laugardagur 27. nóvember 2004 Verð fjarverandi
í dag frá 08:00 til á að giska 17:00 - SK |
|
Laugardagur
27. nóvember 2004 Í rökkurbyrjun, í gærdag klukkan 16:00
Tunglskin yfir Siglunesi |
|
Laugardagur
27. nóvember 2004 Ein gömul:
Spilakvöld og Bingó hjá Þrótti og Brynju 6. maí 1964
Á myndinni eru María Jóhannsdóttir og Hildur Eiríksdóttir.
Enn lengra í bak, eru Gísli Elíasson og Rósmundur Guðnason |
Laugardagur
27. nóvember 2004
Árni Valgarð Haraldsson
er 49 ára í dag |
Laugardagur 27. nóvember
2004 |
|
Föstudagur
26. nóvember 2004 Vörukynning:
Hjá Rafbæ selja þeir meðal
annars..........
Smelltu á myndina og skoðaðu. Hérna hefurðu tvo jólasveina,
sagði Júlíus Hraunberg og stillti sér upp við hliðina á alvörujólasveini |
Föstudagur
26. nóvember 2004
Nýlega fæddur Siglfirðingur
Hann heitir Reynir Bjarkan og fæddist 2. október
2004 en hann er sonur Róberts Óttarssonar og Selmu Barðdal - (Róbert
er sonur Þórdísar Ingimarsdóttur og Óttars Bjarnasonar) en
fjölskyldan býr í Danmörku. Hann var 5.150g og 56 sm
|
Föstudagur
26. nóvember 2004
Veðrið í hádeginu:
Hitastig +3,38 °C
Logn
Úrkomulaust |
|
Föstudagur
26. nóvember 2004 Selurinn góði mætir enn daglega á
sama stað laust eftir hádegið, og fer hvergi þú umferðin, bílar og
gangandi séu aðeins í nokkurra metra fjarlægð, á leið sinni um
Langeyrarveg.
Þessi mynd var tekin í gærdag. |
Föstudagur
26. nóvember 2004 Vörukynning:
Gallerí Sigló býður upp á........
Smelltu á myndina |
|
Föstudagur
26. nóvember 2004 Ein gömul: Þessa kappa þarf ekki að
kynna fyrir neinum af eldri kynslóðinni, en fyrir þá yngri:
Þá eru þetta þeir Jóhann G Möller og Eggert Theódórsson.
Myndin er tekin á tröppum "Lagers SR" 14. maí 1964 |
Föstudagur
26. nóvember 2004
Sigurður Guðmundsson
er 55 ára í dag |
Föstudagur 26. nóvember
2004 |
|
|
Fimmtudagur 25. nóvember 2004
OPIÐ HÚS í Iðju - dagvist fatlaðra.
Þau verða með opið hús á annarri hæð í Kaupfélagshúsinu,
föstudaginn 26. nóvember klukkan 15-19 og á laugardag 27. nóvember
klukkan 11-15.
SJÓN ER SÖGU RÍKARI - Ég heimsótti þau eftir hádegið
í dag og smellti þessari mynd af hópnum ásamt leiðbeinendum. á borðinu
og að baki eru ýmsir munir sem þau hafa verið að dunda við. |
|
Fimmtudagur 25. nóvember 2004
Formannaráðstefna Farmanna- og fiskimannasambands Íslands er haldin í
dag og á morgun í Síldarminjasafninu á Siglufirði.
Ég leit þar inn í dag, en þá stóð yfir fyrirlestur Þórs Jakobssonar
veðurfræðings um loftslagsbreytingar á norðurhveli og siglingar um
norðurleiðina.
Dagskrá fundarins er
hér |
|
_small.JPG) Fimmtudagur 25. nóvember 2004
Gamalt verksmiðjudót, sem upphaflega kom úr bræðslunni á
Ólafsfirði, en verið hefur hér á Siglufirði í geymslu og í eigu Björns
Kristinssonar, er nú á "faraldsfæti" - en nú er víst hver síðastur með
að flytja slíkan varning sjóleiðina þar sem Eimskip er að hætta
strandflutningum. Þessir verksmiðjuhlutir eru meðal annars ketill sem
sést á myndinni, og verið að hífa á vagn til flutnings niður að höfn og
stór þurrkari.
Á myndinni eru Björn Kristinsson athafnamanns og Þórður G Andersen
verksmiðjustjóri. |
Fimmtudagur
25. nóvember 2004 Vörukynning:
SR-Vélaverkstæðið býður upp á........
Smelltu á myndina |
Fimmtudagur
25. nóvember 2004
Veðrið í hádeginu:
Hitastig +2,8 °C
Norðan andvari
Úrkomulaust
|
Fimmtudagur
25. nóvember 2004 Ein gömul: Bíómynd ? - Nei þetta er mynd
úr suðurbænum af sviðsettu bardagaatriði. Mér sýnist sá í miðjunni vera
sjálfur þingmaðurinn Sigurður Ásgrímsson Kristján L Möller,og Guðjón
Björnsson
Ljósmynd: Már Jóhannsson. |
Fimmtudagur
25. nóvember 2004
Freysteinn Sigurður Ragnarsson
er 37 ára í dag. |
Fimmtudagur 25. nóvember 2004 |
|
|
Miðvikudagur
24. nóvember 2004. Vörukynning: Þær riðu á vaðið !
Núna fyrir jólin 2004, gefst öllum þeim sem eru með varning, svo og
jólavarning á boðstólnum, kostur á að kynna vörur sýnar hér á sérstakri
síðu á vef mínum. Sendið mér tölvupóst, eða komið til mín lista yfir þær
vörur sem þið viljið kynna og leggja áherslu á- og ég kem til ykkar, tek
mynd hjá ykkur af starfsfólkinu með vöruhillur í bakgrunni.
Þetta er ókeypis kynning á þeim vörum og vöruflokkum sem við
Siglfirðingar þurfum ekki að "sækja yfir lækinn" í önnur
byggðalög. Smelltu á myndina. |
Miðvikudagur
24. nóvember 2004
Veðrið í hádeginu:
Hitastig +2,3 °C
N.A. gola
Úrkomulaust |
|
Miðvikudagur
24. nóvember 2004 Ein gömul: Um borð í Hafliða SI 2
Á myndinni eru; Bjarni Sigurðsson - Marteinn Kristjánsson - Anton
Pálsson - Tryggvi Björnsson - Jón Ægisson og Guðbjörn Haraldsson.
Ljósmyndina tók Már Jóhannsson
|
Miðvikudagur
24. nóvember 2004
Sara Líf Guðmundsdóttir
er 3ja ára í dag .(Helga Fanney Salmannsdóttir og Guðmundur
Loftsson) |
|
Miðvikudagur
24. nóvember 2004
Bogi Sigurbjörnsson
er 67 ára í dag |
Miðvikudagur
24. nóvember 2004
Ragna Hannesdóttir
er 53ja ára í dag
|
|
|
Þriðjudagur
23. nóvember 2004 "Nú detta af mér dauðar lýs" var
máltæki sem algengt var í gamla daga þegar einhver varð mjög undrandi.
Mér varð það sama á þegar ég sá eftirfarandi klausu í Morgunblaðinu á
netinu í gærkveldi: Bæjarstjórn
Ísafjarðarbæjar samþykkti á fundi í síðustu viku tillögu þar sem
kennurum í sveitarfélaginu er þökkuð löghlýðni í kjölfar lagasetningar
Alþingis á verkfall kennara á dögunum. Sem kunnugt er mættu kennarar til
starfa að lokinni lagasetningu, annað en margir kollegar þeirra annars
staðar á landinu. Þeir mótmæltu lagasetningunni þó með því að mæta
svartklæddir til vinnu.
Meira -- Mamma
gamla kenndi mér í æsku; að virða ætti lög- og það ætti ekki að
þakka neinum fyrir það að vera heiðarlegur, það væri dónaskapur. |
|
Þriðjudagur
23. nóvember 2004 Gott fiskirí hefur verið hjá línubátunum
síðustu gæftadaga. Bátarnir hafa verið að fá upp í sjö tonn í róðri, af
vænum þorski á línu. Þessi mynd sýnir er verið er að landa úr
plastbátnum Raggi Gísla SI seinnipartinn í gær. |
|
_small.JPG) Þriðjudagur
23. nóvember 2004 Þessi selkópur hefur haldið sig
undanfarna daga á sömu slóðum í fjörunni suðaustur af
Síldarminjasafninu. Það má segja að hann mæti stundvíslega upp úr
klukkan 13:30 daglega og skríði upp á stein í fjöruborðinu. Hann horfði
athugulum augum á mig þegar ég nálgaðist hann í gær. |
Þriðjudagur 23. nóvember 2004
Veðrið í hádeginu:
Hitastig +3,3 °C
Logn - andvari
Úrkomulaust |
|
Þriðjudagur
23. nóvember 2004 Aðsent: Frá afmælishátíð
Lionsklúbbs Siglufjarðar laugardaginn 20. nóvember síðastliðinn
Smelltu á myndina til að skoða fleiri |
|
Þriðjudagur
23. nóvember 2004 Ein gömul: Þorleifur Hólm - Páll G
Jónsson - Gunnar Ásgrímsson og Geir Guðbrandsson, um borð í Skjaldbreið,
á austurleið 11. maí 1963 |
|
Mánudagur 22. nóvember 2004
Tennis og badminton félag Siglufjarðar færði um hádegisbilið í
dag, 10 ára krökkum í Grunnskóla Siglufjarðar að gjöf badmintonspaða
ásamt fríum æfingartímum undir leiðsögn, fram að áramótum. Börnin voru
að vonum ánægð með gjöfina. Smelltu á myndina til að skoða nokkrar í
viðbót. |
|
_small.JPG) Mánudagur 22. nóvember 2004
Sigtryggur Kristjánsson, með aðstoð sona sinna ofl. voru í morgun
að "slátra" þorski úr eldiskvíunum sem Sigtryggur hefur gert út
undanfarin ár. Alls er áætlað að upp úr þeim komi að þessu sinni um
12-13 tonn. Þetta var stór og vel alinn fiskur. Guðrún María fiskverkun,
kaupir og verkar fiskinn. |
|
Mánudagur
22. nóvember 2004 Félag eldri borga á Siglufirði og í
Fljótum hélt fund í gær kl. 15:30 - og var þar að venju boðið upp á
kaffi og meðlæti. Ég var þar mættur (eftir látlausa bón frá konu minni)
og tók þar nokkrar myndir, sem sjá má ef smellt er á myndina. Á fundinn
komu ma. þrjú pör úr Dansklúbbi Siglufjarðar og sýndu nokkur afbrygði
dansa, en dansklúbburinn er fjölmennur hópur fólks sem hefur yndi af
dans og kemur reglulega saman. Söngur og fleira var einnig til
skemmtunar á fundinum. |
Mánudagur
22. nóvember 2004
Veðrið í hádeginu:
Hitastig -0,5 °C
Logn
Úrkomulaust |
|
Mánudagur
22. nóvember 2004 Gamli kranastjórinn kraumaði
í mér og ég sagði upphátt Úfffffff, þegar
ég sá myndir þær sem koma í ljós ef þú smellir
hér. Vísað er til myndanna,
sérstaklega fyrir vöðubifreiðastjóra sem eru með krana á bílum sínum,
svo og auðvitað alvöru kranamanna.
Sennilega segja þeir allir Úffff eins og ég.
Athugið, að morgni 24. var þessi tengill orðinn óvirkur, en þetta er
tengill á Hollenska síðu, og sennilega orðið gamalt efni hjá þeim ? |
|
Mánudagur
22. nóvember 2004 Ein gömul: Á Hótel Höfn; Árshátíð Iðnarmannafélagsins 8. febrúar 1964:
Agnar Þór Haraldsson - Guðlaug Konráðsdóttir - Þórunn Þorgeirsdóttir -
Ágústa Guðmundsdóttir - Kristín Þorgeirsdóttir - Kristinn Konráðsson -
Jakobína Þorgeirsdóttir og Reynir Árnason. |
Mánudagur
22. nóvember 2004
Þorleifur Halldórsson
er 51 árs í dag |
Mánudagur 22. nóvember
2004
Daníel Pétur Baldursson
er 16 ára í dag |
|
Sunnudagur 21. nóvember 2004
Dómari skrifar bréf: Ólafur Mixa læknir, fjallar
um samfélagsmál: Ég datt niður á þessa grein í
Morgunblaðinu í dag og þótti hún athygliverð og vert
fyrir þá sem hann beinir spjótum sínum að að taka tillit
til skoðana hans, í það minnsta að velta þeim fyrir sér.
Ég hvet fólk til að fletta upp á þessari grein í
Morgunblaðinu og lesa vandlega og íhuga hvort ekki sé
mikill sannleikur í henni um þróun mála hér á landi
undanfarna áratugi, eins og til dæmis eftirfarandi brot:
"Kannski var lýðræðið okkar alltaf
gallagripur. Nánast einu verulegu endurbæturnar á því
hafa fengist fyrir tilskipan frá Evrópu. Nú er lífræn
umræða um þjóðfélagið drepin í dróma. Reiptog innhalds-
og innistæðulausra vígorða. Í hvoru liðinu ertu?
Pólitískur leikaraskapur, óeinlægni, orðhengilsháttur
utanum vanahugsanir. Eintóm ekki svör og aldrei nánar
spurt. Valdþótti einsog nú hefur komið í ljós. Niðurbæld
þjóð, sem forðast opinlyndi af ótta við að fá á baukinn.
Ekki síst alþingismenn, sem stundum vilja "eiga sig
sjálfir", en eru yfirleitt eign flokksins."
Þeir sem eru áskrifendur af Morgunblaðinu geta sótt
greinina
hingað
|
|
Sunnudagur 21. nóvember 2004
Næst síðasta ferðin. Eimskipafélagið, sem einu sinni var óskabarn
þjóðarinnar, en virðist í dag vera óskabarn kúrfu og reiknimeistara
peningaveldisins. Hvað sem þeim vangaveltum líður; ég hefi verið að
velta fyrir mér hverjar afleiðingarnar verða þegar Eimskip hættir að senda
skip sín til Siglufjarðar. Ég hefi rætt við nokkra sem eitthvað þekkja
til málsins, án þess þó að komast að raunverulegri niðurstöðu. Ljóst er
að einhverjir tapa og aðrir græða á þessari ráðstöfun - en mér er ekki
ljóst svo óhyggjandi sé, hvort bæjarfélagið okkar hagnast eða tapar á
dæminu, og menn eru ekki sammála um það. Því skora
ég á einhvern góðan "penna" að afla sér upplýsinga frá hagsmunaaðilum,
staðreyndum um málið, þar sem sjónarmið sem flestra koma fram. Og skrifa
um málið og "leggja dóm á" og upplýsa okkur um niðurstöðuna hér á vef
mínum, viðkomandi fær það pláss sem hann telur sig þurfa hér á vefnum.
-- Myndin sýnir Mánafoss fara frá bryggju í morgun, næst síðustu ferð
sína héðan. |
|
Sunnudagur 21. nóvember 2004
Eins og risavaxin alda eða veggur eru þessi ský með sólarroða frá
austri, sem sáust fram af firðinum klukkan 11:06 í morgun. Ekki veit ég
hvað svona, eða hvort þau tákna eitthvað, en náttúran hefur sinn gang
------- ennþá amk. |
Sunnudagur 21. nóvember 2004
Veðrið í hádeginu:
Hitastig -0,8 °C
Sunnan andvari
Úrkomulaust |
|
Sunnudagur
21. nóvember 2004 Þessa drengi hitti ég í gærdag, þar sem
þeir voru greinilega að gæða sér á laugardags-namminu sínu í frostinu.
Þeir sögðu mér hvað þeir hétu, en því miður gleymdi ég nöfnunum. |
|
Sunnudagur
21. nóvember 2004 Ein gömul: Næsta lag undirbúið, Baldvin
Júlíusson - Guðmundur Þorláksson og Ragnar Páll.
Hótel Höfn; Árshátíð Iðnarmannafélagsins 8. febrúar 1964 |
Sunnudagur
21. nóvember 2004
Bára Dögg Þórisdóttir
er 14 ára í dag |
Sunnudagur 21. nóvember
2004 |
Sunnudagur
21. nóvember 2004
Valey Jónasdóttir
er 73ja ára í dag |
Sunnudagur
21. nóvember 2004
Guðný Pálsdóttir
er 61 árs í dag |
Sunnudagur
21. nóvember 2004
Hlöðver Sigurðsson
er 31 árs í dag |
Sunnudagur
21. nóvember 2004
Hreinn Júlíusson
er 63ja ára í dag |
|