Lífið 1.-6. nóv 2004 | Lífið 7.-13. nóv. 2004 | Lífið nóv. 14.-20. 2004 | Lífið 21.-30. nóv 2004

>>>>>>>>>>> Lífið 7.-13. nóv. 2004

 

Til forsíðu
Til baka
Bingó
Rústasveitir




Ljósmyndasafn Steingríms
á netinu.

Steingrímur Kristinsson Siglufirði
G-892-1569
S-467-1569

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

   Siglfirski fréttavefurinn  Lífið á Sigló-

Laugardagur 13. nóvember 2004  Meðlimir Rústasveita frá Austfjörðum, ásamt nokkrum úr samsvarandi sveit frá Siglufirði, við vestur vegg Suðurgötu 12, - hús sem sveitirnar notuðu til æfinga. Þeir söguðu göt á veggi og skilrúm til að komast á milli þils og veggja, eftir allskonar krókum og kimum. Húsið er alveg kjörið völundarhús til slíkra æfinga sögðu þeir, og eru þakklátir fyrir að fá að njóta þess. Fleiri myndir koma í ljós ef þú smellir á myndina.

Laugardagur 13. nóvember 2004 Björgunarsveitaræfing - Rústasveit Austurlands. Þeir eru komnir alla leið Austan af fjörðum til æfinga í stóru húsi við Suðurgötu 12 á Siglufirði, sem verður rifið áður en langt um líður. Þeir brjóta gat á steinveggi hússins og þreifa sig áfram innan dyra ofl.  Á myndinni er Pálmi Benediktsson sem fer fyrir austanmönnum og Björgvin Smári Jónsson frá Árskógsandi Eyjafirði, en hann er einskonar eftirlitsmaður á vegum Landsbjargar til að fylgjast með æfingunum. Myndin var tekin í morgun klukkan 09:35 -- Fleiri myndir verða birtar seinnipartinn í dag frá þessum viðburði.

Laugardagur 13. nóvember 2004
Veðrið í hádeginu:
Hiti 5,5 °C
Sunnan 6-8 m/s
Úrkomulaust
Laugardagur 13. nóvember 2004  Til gamans birt:  Úrdráttur úr Heilbrigðissamrykkt Siglufjarðar frá árinu 1920
Smelltu á myndina

Laugardagur 13. nóvember 2004 Ein gömul:   Skólaferðalag 28 september 1963

Laugardagur 13. nóvember 2004
Vigfús Fannar Rúnarsson
er 15 ára í dag

Föstudagur 12. nóvember 2004 Frekar lítið hefur verið að gera hjá rafvirkjum bæjarins að undanförnu, sem meðal annars hefur leitt til þess að leitað hefur verið á önnur mið. Nú um nokkuð skeið hefur Rafbær verið með þrjá af starfsmönnum sínum austur á Álvers-slóðum í vinnu, en þar er mikil þörf fyrir góða rafiðnaðarmenn. Þetta eru þeir: Sigurbjörn Jóhannsson rafvirkjameistari - Vigfús Ingi Hauksson rafiðnfræðingur og Jóhannes Friðriksson rafvirkjameistari

Föstudagur 12. nóvember 2004
Veðrið í hádeginu:
Frost  -0,7 °C
Norðan 6-8 m/s
Úrkomulaust
 Föstudagur 12. nóvember 2004 Dapurlegt: Norðlenskar fréttir Svæðisútvarpsins þ.11.11
Ólafsfirðingar hafa hlutfallslega minnsta trú á framtíð eigin byggðarlags á næstu árum en Grímseyingar eru jákvæðastir. Þetta kemur fram í könnun Rannsóknarstofnunar Háskólans á Akureyri, sem kynnt var í dag. 40 % Ólafsfirðinga segjast hafa trúa á þróun bæjarins og næst þar fyrir ofan eru íbúar Dalvíkurbyggðar, þar er hlutfallið 58 % Allir íbúar Grímseyjar, eða 100 % segjast hafa trú á jákvæðri þróun byggðarlagsins. Á Akureyri segjast 81 % hafa trú á þróuninni. Um fjórðungur íbúa Siglufjarðar, Dalvíkur og Ólafsfjarðar telur frekar líklegt að flytja burt á næstu tveimur til þremur árum, en 16 % prósent Akureyringa. Grímseyingar eru hins vegar ekki á þeim buxunum að flytja, því enginn virðist vera í þeim hugleiðingum.

Föstudagur 12. nóvember 2004 Ein gömul:  "Ægileg átök" Þetta þætt ekki mikil eða þung byrði í dag, þessi hluti þurrkaratrommu, sem verið er að hífa þarna út frá Síldarverksmiðju SRN í október 1963. En "draslið" úr verksmiðjunni var þá flutt austur á land þar til uppsetningar, samhliða sem því sem SRN var rifin.

Fimmtudagur 11. nóvember 2004 Skíðasvæðið í Skarðsdal. Enn er verið að vinna við að jafna og fjarlægja stórgrýti og fylla upp í smágil á skíðasvæðinu í Skarðsdal - og ekki að efa að það verður betra og áhættuminna en ella. Ég skrapp uppeftir í dag eftir hádegið í dag, ætlaði alla leið á "vinnusvæðið" en hætti við það- og snéri við hjá stjórnstöðinni þar sem dálítið hafði snjóað og smá þæfingur ofar, sem ég vildi ekki leggja í. 

Fimmtudagur 11. nóvember 2004 Bæjarstjórn Ólafsfjarðar harmar afstöðu framsóknarmanna.
Á fundi bæjarstjórnar Ólafsfjarðar sem haldinn var þriðjudaginn 9. nóvember var eftirfarandi ályktun samþykkt: ”Bæjarstjórn Ólafsfjarðar harmar ályktun kjördæmisþings framsóknarmanna í Norðvesturkjördæmi, haldið í Borganesi um nýliðna helgi, þar sem kveðið er á um frestun jarðganga, um Héðinsfjörð til Siglufjarðar.  -- Bæjarstjórn Ólafsfjarðar hvetur framsóknarmenn í Norðvesturkjördæmi, sem og aðra þá er kunna að vera í vafa um gildi þessarar framkvæmdar til að kynna sér samfélagslegt gildi jarðganga fyrir byggðarlögin við utanverðan Eyjafjörð, sem og Eyjafjörð allan”. Tekið af vef Ólafsfjarðar, sem er vel við haldið með nýjum fréttum af störfum bæjarstjórnar.

Fimmtudagur 11. nóvember 2004  Nú á síðustu dögum hafa rignt yfir mann úr öllum áttum, einskonar keðjubréf þar sem fólk er kvatt til framsenda- og að versla ekki við olíufélögin, nema BENSÍN. Það er hvatt er til að hunsa öll önnur viðskipti við olíuþjónustur, en hvað Siglufjörð varðar; Bensínstöðina og Olísverslunina. Ég framsendi ekkert af þeim fjórum póstum sem ég fékk með þessu efni. Málið er einfalt: Ef við Siglfirðingar förum eftir þessu rugli, þá erum við að herja meira á saklausa umboðsaðila hér á Siglufirði, en olíufélögin sjálf eða forkólfana- og skerðum með því hluta af þeim tekjum sem þær fjölskyldur hér hafa sem lífsviðurværi af þessari þjónustu. TAKIÐ EKKI ÞÁTT Í ÞESSU RÁÐBRUGGI, á Siglufirði amk. Vissulega ber að fordæma þann þjófnað sem forkólfarnir hafa viðurkennt og beðist afsökunar á að hafa framkvæmt. Látum dómstólana um að hegna þeim, og vonum að dómarnir verði í samhengi við þann 5 mánaða fangelsisdóm sem einstaklingur fékk á dögunum, fyrir að stela bensíni fyrir um 400 þúsund krónur með krítarkorti. Það er varla hægt að fara fram á vægari dóm, þótt hvítflibbar eigi í hlut.

Fimmtudagur 11. nóvember 2004
Veðrið í hádeginu:
Hiti 1,1 °C
Norðan 6-8 m/s
Haglél - slydda

Fimmtudagur 11. nóvember 2004  Ein gömul:  Fyrsta síldin á síldarvertíðinni 1963. Síldarbáturinn Strákur SI 145 með fyrstu síldina, landað hjá Hrímnir til söltunar og frystingar 13. júní.

Fimmtudagur 11. nóvember 2004
Erla Björnsdóttir
er 22ja ára í dag
Fimmtudagur 11. nóvember 2004
Hildur Sverrisdóttir
er 10 ára í dag
 
  Fimmtudagur 11. nóvember 2004
Máney Sveinsdóttir
er 20.ára í dag

Miðvikudagur 10. nóvember 2004  Ein gömul:  Þessi mynd kemur yngri kynslóðinni til að velta vöngum- og ef til vill þeim eldri einnig. Þess vegna ætla ég þeim sem ekki kannast við og eða þekkja húsið til hægri, að fara neðst á síðuna og sækja svarið, svona til gamans gert.
Myndin er tekin 26. ágúst 1963

Miðvikudagur 10. nóvember 2004
Veðrið í hádeginu:
Hiti 6,7 °C
Vestan 6-8 m/s
Rigning
Miðvikudagur 10. nóvember 2004
Björn Jóhann Ólafsson
er 8 ára í dag.
Hann býr í Greenville í Bandaríkjunum,
(sonur Ólafs Ásgeirs (Óla löggu) og Pam.)
Miðvikudagur 10. nóvember 2004
Eva Björk Ómarsdóttir
er 25 ára í dag
(hún er fremst á myndinni í ljósum jakka)

Þriðjudagur 9. nóvember 2004  Þeir eru enn við sama heygarðshornið Framsóknarmenn í Skagafirði í dag, sem og mergur þeirra var fyrir 70 árum, er þeir gerðu allt hvað þeir gátu til að gera Siglfirðingum lífið leitt á uppgangi síldaráranna, þegar Siglufjörður og önnur síldveiðiþorp og bæir "stálu" frá bændunum í Skagafirði leiguliðunum sem lifðu fyrir náð bændanna, en gátu loks frjálsu höfði strokið með öðrum launum en fæði og húsaskjóli, með því að fara til vinnu á Sigló og fleiri síldarstaða. Og enn reyna þeir að hafa áhrif á tilveru okkar Siglfirðinga, ef marka má ályktun Kjördæmisþing Framsóknarflokksins í Norðvesturkjördæmi sem beinir eindregnum tilmælum til Alþingis að fresta gerð Héðinsfjarðarganga milli Ólafsfjarðar og Siglufjarðar.  Lesið nánar hér á fréttavef Vísir.is

Þriðjudagur 9. nóvember 2004  Málaraverkstæðið: Bjarni Þorgeirsson málarameistari rekur ásamt fjölskyldu, litla málningarvöruverslun þar sem allt fæst til málningarvinnu, allt frá minnstu penslum til tæknilegra leiðbeininga beint frá meistaranum. Einnig hefur hann á sínum snærum röska og góða málara sem ætíð eru til í fjölbreytta málaravinnu. Ég leit inn hjá Bjarna málara í morgun og spjallaði við hann, en verslunardeildin varð eins árs síðastliðinn sunnudag 7. nóvember.   Myndin er af Bjarna við "kassann," bak við hann er málverk sem Bjarni hefur málað.

Þriðjudagur 9. nóvember 2004  Ein aðsend mynd, sem ég fékk með einni af mörgum tilkynningum um afmæli Leós Ólasonar. En á myndinni eru Leó, Guðmundur Ragnarsson og Magnús Guðbrandsson

Þriðjudagur 9. nóvember 2004
Veðrið í hádeginu:
Hiti 0,7 °C
Norðan gola
Slydda

Þriðjudagur 9. nóvember 2004 Ein gömul:  Sem betur fer þá er þetta þoka inni á Siglufirði sem felur byggðina og sjóinn á myndinni, en ekki sjór eins og þeir svartsýnustu vísindamenn hafa spáð, að verði eftir eina til tvær aldir.
Þó eru til vísindamenn sem telja slíka hækkun sjávar hreina þvælu. Hvað um það, það er tilkomumikil sjón að sjá fjörðinn okkar hulinn slíkri þoku. 
Myndin er tekin í ágúst 1963

Mánudagur 8. nóvember 2004  Aðsent:
Í gær kl.15:30 fór fram athöfn í Tónlistarskóla Siglufjarðar, þar sem Louise Kr Theodórsdóttir tónmenntakennari gaf til minningar um eiginmann sinn Ragnar Má Hansson rafvirkja, sem lést þann 18. október 2003, litla harmonikku af Delicia gerð.  Elías Þorvaldsson tók við gjöfinni fyrir hönd skólans og þakkaði þann hlýhug sem Louise sýndi tónlistarskólanum. Helen S. Hraunberg spilaði þvínæst eitt lag á hina nýju harmonikku.  J.H.

Mánudagur 8. nóvember 2004 BINGÓ - HAPPDRÆTTI Kvenfélags Sjúkrahússins var í Allanum í gærdag seinnipartinn. Fullt hús gesta var og keppt var um fjölda eigulegra vinninga.
Hér á þessum stað sem áður hét Alþýðuhúsið voru annarskonar samkomur haldnar á þessum degi; 7. nóvember árlega, öðru til dýrkunar en þeirri hjálpsemi og kærleika  sem nú er í fyrirrúmi. Það var þegar kommúnisminn og leiðtogarnir voru dýrkaðir í þessu húsi.  Ég mætti hjá kvenfélagskonum í gær og tók nokkrar myndir (ég spila ekki bingó) Smelltu á myndina til að sjá hana stærri. Og hérna ef þú villt skoða fleiri myndir.

Mánudagur 8. nóvember 2004
Veðrið í hádeginu:
Hiti 10,3 °C
Logn
Úrkomulaust

Mánudagur 8. nóvember 2004 Ein gömul: Mikið þreyttur og að niðurlotum kominn, eftir langa og dygga þjónustu við eigendur sína. Pylsu"vagninn," sem stóð baka til við Norska sjómannaheimilið. (nú Tónskólinn)
Myndin er tekin 3. ágúst 1963

Sunnudagur 7. nóvember 2004
Veðrið í hádeginu:
Hiti 8,3 °C
Logn
Rigningarúði

Sunnudagur 7. nóvember 2004  Ein gömul: Lífið á Sigló 3. júlí árið 1963, á Aðalgötunni fyrir framan Snyrtibúð og Aðalbar (áður Apótek; Schiöth) Aðalbúðina, þar sem fólkið er að bíða eftir Morgunblaðinu, sem aldrei var borið út á þessum tímum, en kom oftast í bæinn að kvöldi um klukkan 22:00-23:00. Og þar neðar í götunni er gamla Póst og Símahúsið.

Sunnudagur 7. nóvember 2004
Gabríel Reynisson
er 14 ára í dag