|
Jólakveðjur
til vina og vandamanna. Nú fyrir jólin gefst ÖLLUM sem
það vilja, tækifæri til að koma jólakveðju með mynd og stuttum texta hér
á Lífið á Sigló. Viðkomandi sendir
mér á
Netfangið mitt
einfaldan texta og mynd,
og ég birti það síðan á sérstakri síðu. Allt án endurgjalds.
Ljósmynd gæti verið fjölskyldumynd eða
einhver falleg sem einhver úr fjölskyldunni hefur tekið. |
|
Laugardagur
20. nóvember 2004 Afmælismót Tennis og Badmintonfélags
Siglufjarðar er haldið í Íþróttahúsi Siglufjarðar í dag, þar keppa
unglingalið frá Akranesi Hafnarfirði og fleiri stöðum. Mikil stemming
var þar þegar ég heimsótti mótið um klukkan 15:00 í dag. Félagið var 40
ára á þessu ári. |
|
Laugardagur 20. nóvember 2004
Nýir bílar. Björgunarsveitin Strákar keypti sér tvo nýja
öfluga bíla í flota sinn- og verða þeir til sýnis kl. 13:00 í dag.
Þetta eru breyttir Land Rover jeppar með öllum nauðsynlegum búnaði sem
krafist er í dag til björgunarstarfa. Þetta er fjárfesting upp á um 9
miljónir króna. Þeir áttu fyrir helmingnum af verðinu, en fengu hitt að
láni. Þeir gera ráð fyrir að leita eftir aðstoð vegna fjáröflunar á
næstunni og er því hver króna í sjóðinn vel þegin. En nú má segja að
Björgunarsveitin Strákar, með aðstoð margra góðra manna auk heimamanna,
sé eins vel búin tækjum og kostur er, bæði til lands og sjáfar, og
félagarnir ávalt reiðubúnir til að fórna tíma sínum og jafnvel lífi, til
að aðstoða þá sem í nauðum lenda. Á myndinni eru bílarnir, og
bílstjórarnir Ómar Geirsson og Ægir Bergsson |
|
Laugardagur 20. nóvember 2004
Sólin sést ekki lengur í byggð á Siglufirði, en nú er
einnig farið að líða að þeim tíma, sem sólargeislarnir á fjallatoppana
hverfa einnig, og koma ekki í ljós fyrr en á næsta ári. En þann 21.
desember ætti þó síðustu geislar sólar á árinu að sjást í heiðskýru
veðri á blátoppi Hafnarhyrnu og Strákafjalls. Þessi mynd er
tekin eftir hádegið í dag, framan við Síldarminjasafnið. |
Laugardagur 20. nóvember 2004
Veðrið í hádeginu:
Hitastig -6,8 °C
Sunnan andvari
Úrkomulaust |
|
Laugardagur
20. nóvember 2004 Ein gömul: Helgi Hallsson -
Baldvin Jóhannsson - Einar Björnsson -Geir Guðbrandsson og Marteinn
Jóhannesson.
Fimm smiðir, Pálsmenn austur á Seyðisfirði á hlaupársdegi 1964 |
|
Föstudagur 19. nóvember 2004
Undanfarin 3-4 ár hefi ég haft slæma "vöðvabólgu" og verki sem því
tilheyra, ég hefi látið mig hafa það að mestu, bitið á jaxlinn og bölvað
í hljóði. En þegar ég átti orðið erfitt með að lyfta upp myndavélinni
minni, þá varð eitthvað að gera í málinu. Ég prófaði sprautur hjá lækni,
bólgueyðandi lyf og jafnvel nálastungur. Ekkert dugði, þar til læknirinn
ráðlagði mér nudd. - Á Heilbrigðisstofnun Siglufjarðar fékk ég rækilega
meðferð hjá Marisku, sem fór um mig bæði mjúkum og hörðum höndum. Í dag
eftir nokkurra vikna meðferð einu sinni til tvisvar í viku, er ég sem
unglingur og stöðugir verkir farnir bak og burt. Kærar þakkir stelpur,
fyrir allt- og brosin líka. Á myndinni, sem ég tók í morgun eru Mariska
van der Meer sjúkraþjálfi - Aafke Roelfs sjúkraþjálfi og Sigurbjörg
Björnsdóttir ritari og aðstoðarstúlka. |
Föstudagur
19. nóvember 2004
Veðrið í hádeginu:
Hitastig -0,6 °C
Sunnan andvari
Smá-él |
|
Föstudagur
19. nóvember 2004 Ein gömul:
Hótel Höfn 8. febrúar 1964; Sigríður Ásmundsdóttir - Lára
Stefánsdóttir - Guðný Garðarsdóttir og Ester Sigurðardóttir |
Föstudagur
19. nóvember 2004
Ágúst Stefánsson
er 57 ára í dag |
Föstudagur 19. nóvember
2004
Sædís Eiríksdóttir
er 5 ára í dag.
Dóttir Eika Fúsa og Margrétar |
|
|
Fimmtudagur
18. nóvember 2004
Eins og sagt var frá hér
neðar
á síðunni þá taka þeir á
SR-Vélaverkstæði að sér að útbúa prófíla, það er allskyns mynstur
eftir óskum viðskiptavina úr hinum svokölluðu ljósaslöngum; jólatré,
bjöllur ofl. Nú eru þeir að huga að fjöldaframleiðslu með sölu á
Reykjavíkurmarkaði og fleiri stöðum. Hér sést verslunarstjórinn
Guðmundur Ó Einarsson hjá SR-Byggingavörur á Siglufirði með eitt
af sýnishornunum, en myndin var tekin í gærkveldi hjá SR-Byggingavörur. |
|
Fimmtudagur
18. nóvember 2004 Þessa heiðursmenn hitti ég í kaffi hjá
Olís í morgun; Elías Þorvaldsson og Kjartan Einarsson. |
Fimmtudagur
18. nóvember 2004
Veðrið í hádeginu:
Hitastig -2,6 °C
Norðan 4-6 m/s
Úrkomulaust |
|
Fimmtudagur
18. nóvember 2004 Ein gömul: Þeir sem eldri eru,
muna áreiðanlega eftir þegar Tunnuverksmiðjan brann, en myndin sýnir
rústirnar 10 dögum eftir sjálfan brunann , það er 19. janúar 1964 |
Fimmtudagur
18. nóvember 2004
Fanney Vernharðsdóttir
er 75 ára í dag |
Fimmtudagur
18. nóvember 2004
Fanney Hafliðadóttir
er 51 árs i dag |
|
|
Miðvikudagur
17. nóvember 2004 Loðnuskipið Gullber VE 292 kom
hingað í morgun vegna brælu, en skipverjar þess hafa verið ásamt 7 öðrum
skipshöfnum á skipum sínum, við loðnuleit út af Norðurlandi og
norðanverðum Vestfjörðum. Lítið hefur fundist af loðnu til þessa, en
eitt skipið mun þó hafa landað um 50 tonnum á Bolungavík. |
|
Miðvikudagur
17. nóvember 2004 Talsverð skjálftavirkni hefur
verið síðustu 48 klukkustundirnar í kring um Grímsey, samkvæmt
upplýsingum frá vef
Veðurstofunnar.
Skjálftahrina hefur staðið yfir austur af Grímsey í nótt og í morgun.
Stærsti skjálftinn hingað til, samkvæmt sjálfvirkum skjálftamæli
Veðurstofunnar, mældist um 3,0 á Richter um klukkan rúmlega átta í
morgun. Skjálftar eru algengir á þessu svæði, sem er um 18 km austur af
eynni.
-- Skjálftar stærri en 3 á Richterkvarða eru táknaðir með grænum
stjörnum, óháð því hvenær innan tímabilsins þeir urðu. |
|
Miðvikudagur
17. nóvember 2004 Um og yfir 30 m/s vindhraði var á
tímabili í nótt, upp úr kl. 02:00 úr norðri og norðaustan, þetta á að
vísu við snörpustu kviðurnar, samkvæmt sjálfvirkum mælingum vegagerðar
og veðurstofu staðsettum norðan til við Siglufjarðarveg og í botni
Siglufjarðarjarðar. Sáralítil úrkoma fylgdi þessu, en í staðinn
skafrenningur, og sá litli snjór sem kom í fyrradag er nær allur fokinn
burt, samber meðfylgjandi mynd sem tekin var klukkan 10:30 í morgun. Snjórinn hefur líklega fokið suður á
land því þar er víða talsverður snjór á þeirra mælikvarða. |
Miðvikudagur
17. nóvember 2004
Veðrið í hádeginu:
Hitastig -0,6 °C
Norðan 10-12 m/s
Snjókoma |
|
Miðvikudagur
17. nóvember 2004 Stórþvottur. Starfsmenn
Síldarvinnslunnar á Siglufirði voru í gær og í morgun að þvo hitaelement
úr þurrkaraofnum bræðslunnar. Þetta er mikið verk, fyrir utan það
að ná elementunum úr ofnunum, en fyrst eru þeir fluttir niður að
löndunarbryggju, þar er spúlað af þeim mestu óhreinindunum, sóti og
ryki, þá er hverju elementi fyrir sig dýft í sjóinn nokkrum sinnum og
síðan farið með þau upp í verksmiðju þar sem þeim er dýft í sérstök kör
með sterkri sýruupplausn og síðan góða spúlun með heitu vatni, sem gerir
þá endanlega hreina sem nýja. Þessi mynd var tekin í gær á Óskarsbryggju |
|
Miðvikudagur
17. nóvember 2004 Ein gömul: Tunnuverksmiðjubruninn
9. janúar 1964. Jóhannes Egilsson Sigurður Elefsen og Egill
Stefánsson að undirbúa reykgrímur, einhver forvitinn (?) í bak. |
Miðvikudagur
17. nóvember 2004
Magnús Eiríksson
er 53ja ára í dag |
|
|
|
Þriðjudagur 16. nóvember 2004
Lionsklúbbur Siglufjarðar sem er fyrsti Lionsklúbburinn sem
stofnaður er utan Reykjavíkur, er 50 ára í dag.
Afmælishátíð félaga verður þann 20 nóvember kl.20:00 Húsið opnar kl.
19:30 |
|
Þriðjudagur 16. nóvember 2004
Á hinum ólíklegasta stað má sjá að blessuð
jólin nálgast. Þeir Örlygur og Sveinn á Síldarminjasafninu voru í óða
önn í morgun að telja jólakort og stinga í umslög til að senda
áskrifendum víða um land en 1250 kort eru seld með þeim hætti auk þess
að seljast á heimamarkaði til einstaklinga og helstu fyrirtækja í bænum.
Um 3000 kort seljast árlega og af sölunni er umtalsverður hagnaður fyrir
safnið. -- Alls hafa 16 kort komið út þau 15 ár sem Félag áhugamanna um
minjasafn hefur verið starfandi og eru á þeim vatnslitamyndir sem
Örlygur safnstjóri hefur unnið fyrir útgáfuna. Myndirnar fylgja hér í
réttri röð og geta þeir sem áhuga hafa á að kaupa kort og styrkja um
leið safnið pantað áskrift í síma 863-1605 eða sent boð í tölvuskeyti:
herring@siglo.is -- Smelltu
hér til að skoða kortin |
|
Þriðjudagur
16. nóvember 2004
Ein "gömul" frá árgangsmóti,
árgangs ´53 -
Tekið 14. júlí 1990 -- Ljósmynd V.S.(?) -- Ég þekki suma,
ekki alla. |
Þriðjudagur 16. nóvember 2004
Veðrið í hádeginu:
Hitastig -2,6 °C
SA 1-2 m/s
Úrkomulaust |
|
Mánudagur
15. nóvember 2004 Engin uppgerð veikindi áttu sér
stað í Grunnskóla Siglufjarðar í dag, eins og heyrst hefur í fréttum af
"veikinda" faraldri kennara í skólum á Reykjavíkursvæðinu. Kennsla
fór fram að venjubundnum hætti í Grunnskóla Siglufjarðar í morgun. Það
er greinilegt að úti á landsbyggðinni vilja kennarar gefa börnunum gott
fordæmi um að gera sér ekki upp veikindi, né brjóta lög. |
|
Mánudagur
15. nóvember 2004 Komnir í jólaskap. Það væri synd
að segja að ekki hafi legið vel á félögunum hjá SR-Byggingavörur í dag
eftir hádegið sem ég leit þar inn. Hjá þeim er allt morandi í jólavörum,
svo miklu að það hálfa væri nóg, eins og máltækið segir. Fyrir utan
lýsandi jólatré og fleiru sem fólk notar um jólin, þá taka þeir að sér
að útbúa prófíla, allskyns mynstur eftir óskum viðskiptavina, úr hinum
svokölluðu ljósaslöngum; jólatré, bjöllur ofl. eftir hugmyndum
viðskiptavinarins. Þá eru þeir einnig með búnað sem notaður er í
kirkjugörðum, eins og til dæmis festingar fyrir krossa. Sjón er sögu
ríkari farið og lítið inn hjá drengjunum, það er ávalt kaffi á könnunni
og stundum með því. Á myndinni eru Hermann Einarsson og Guðmundur Ó
Einarsson. --------
Til baka, til 18.
nóvember |
|
Mánudagur
15. nóvember 2004
Þessi drengur sem fæddist 14.október
2004 á FSA, hann var 14 merkur og 54 cm. Foreldrar hans eru Sigurbjörn
Bogason (sonur Boga og Helgu) og Kristrún Snjólfsdóttir en þau eru
búsett á Sauðárkróki. |
|
Mánudagur
15. nóvember 2004 Happdrætti Badmintonfélags
Íslands. Þessar stúlkur voru að selja happdrættismiða HBÍ í gærkveldi-
en þær heita Elísa og Heiða. Þær brostu fyrir mig, á meðan kona mín fór
til að finna peninga í pyngju sinni. |
Mánudagur
15. nóvember 2004
Veðrið í hádeginu:
Hitastig -2,8 °C
Norðan 4-6 m/s
Snjókoma / él |
|
Mánudagur
15. nóvember 2004 Ein gömul: Páll Jónsson -
Þorsteinn Einarsson - Eggert Theódórsson - Sigurður Elefsen - Stefán
Stefánsson - halldór bjarnason og Sigurður Sigurðsson, hlíða á erindi
Vilhjálms Guðmundssonar um ansjósuveiðar og bræðslu í Peru, í
Æskulýðsheimilinu 29. desember árið 1963 |
|
Sunnudagur 14. nóvember 2004
Nýfæddur Siglfirðingur Þessi litla stúlka fæddist 5. nóvember sl
á sjúkrahúsi Akraness. Hún heitir Líney Lára Kristinsdóttir. Hún
var 18 merkur og 54 cm. Líney er dóttir Ásdísar Sigurðardóttur og
Kristins Reimarssonar. -- ( smá útúrdúr hér, en við vorum á
tímabili 5 Siglfirðingar á deildinni, ég og Líney Lára á sængurlegu, ein
ljósmóðirin Erla Björk ( alin upp í húsinu sem Ingþór á við hliðina á
Videoval, deildarstjórinn er dóttir Sveinu og Björns (systir Sævars
Björns), hjúkrunarfræðingur var svo Margrét Kristinsdóttir dóttir Víólu
og Kristins. Auðvitað vorum við allar mjög stoltar af því að vera frá
Siglufirði) Kveðja frá Akranesi Á.S.
Það rennur víða Siglfirskt blóð í æðum S.K. |
|
_small.JPG) Sunnudagur
14. nóvember 2004 Afdrep til að dvelja í vegna heimsókna á
Skíðasvæði Siglfirðinga, átti þetta hús að verða í upphafi er þau keyptu
það. En það varð að sumardvalaparadís í augum hinna nýju eiganda,
tveggja fjölskyldna og barna þeirra. Í raun má þó segja að það séu öll
tímabil ársins sem komið hafi við sögu frá því þau keyptu húsið í
maí síðastliðnum, því þau koma hingað eins oft og kostur er, bæði til að
dytta að húsinu og til að njóta þeirrar friðsældar og vináttu sem þau
finna fyrir hér. Það kom fljótlega í ljós að það var fleira en
Skíðasvæðið sem dró að sér, sem þau segja vera svo margt að vart sé hægt
að nefna neitt einstakt, auk þess sem kom í ljós að þau áttu rætur að
rekja til séra Bjarna. -- Eigendurnir að Hvanneyrarbraut 66 eru þau
Hjónin Hannes Bjarnason og Ingibjörg Tómasdóttir og Pétur Bjarni
Magnússon og Ragnhildur Erla Bjarnadóttir ásamt börnunum þeirra Magnús
Mar Pétursson og Sigrún Erla Pétursdóttir - Bjarni Hannesson og Jón
Gunnar Hannesson. --- En myndin sýnir fjölskyldurnar fyrir utan húsið
sitt í gær, en Ingibjörg var fjarverandi og vantar því á myndina. --- Ég
heimsótti þau í gær og þáði hjá þeim kaffi og meðlæti. Þetta er mikið
skíðaáhugafólk, en Hannes er formaður skíðadeildar Ármanns og Pétur
ritari. Þau lögðu áherslu það ma., að við Siglfirðingar yrðum að gera meira
en hingað til, til að kynna þá fjölmörgu möguleika sem Siglufjörður hefur upp á
að bjóða, nota tildæmis hinn árvissa hóp ferðamanna sem kemur á
Síldarævintýrið, með því dreifa til þeirra bæklingum og fleira. Myndin af húsinu, er
auðvitað Hvanneyrarbraut 66. |
Sunnudagur
14. nóvember 2004
Veðrið í hádeginu:
Hitastig -1,8 °C
Norðan 4-6 m/s
Snjókoma |
|
Sunnudagur
14. nóvember 2004 Ein gömul: Í kaffistofu SR
Tréverkstæðis. "Pálsmenn:" Helgi Sigurðsson Ásgeir Björnsson - Jón
Sigurðsson og Hafsteinn Hólm.
Myndin er tekin 16. maí 1962 |
Sunnudagur
14. nóvember 2004
Arnar Heimir Jónsson
31 árs í dag |
Sunnudagur 14. nóvember
2004
Guðný Rós Þorsteinsdóttir
og Elías Ævar Jósefsson
eru 9 ára í dag. Þau eru systrabörn |
|