|
Laugardagur
12. febrúar 2005 Aðsent:
Stofnfundur Félagsins Hollvinir Hólsdalsins var stofnaður í dag klukkan
13. Tilgangur félagsins varðar útlit, fegrun og notagildi Hólsdalsins
til útivistar. Mál sem varðar alla Siglfirðinga. Þetta er félagsskapur
sem er öllum opinn, sem áhuga hafa á fegrun og öðru sem betur má fara í
dalnum.
 |
|
|
|
Föstudagur
11. febrúar 2005 Næstu daga; Í dag föstudag,- og laugardag
mun ég vera á Akureyri, hjá dóttur minni Margréti sem er 50 ára í dag.
Ég kem til baka aftur á Sunnudag . Á meðan verður síða mín EKKI
uppfærð.
Sveinn Þorsteinsson ætlar að vera á varðbergi fyrir mig á meðan, taka
fyrir mig veðurmyndir og vera til taks ef eitthvað skeður. Sími hans er
H.467-2169 og GSM.848-4143 - Það efni sem upp kann að koma á meðan
ég er fjarri, verður sett inn seinnipartin á Sunnudaginn 13. febrúar.
Bæði það sem kann að koma frá Sveini, og eða beint til mín í tölvupósti. |
|
Föstudagur
11. febrúar 2005 Ein gömul: Spurningin er:
Hverjir eru þetta, hvar eru þeir og hvað eru þeir að gera? Skoðaðu
myndina fyrst, og farðu síðan með músabendilinn hér að ,>>
þá færðu svarið. |
Föstudagur
11. febrúar 2005
Skúli Jónsson
er 54 ára í dag |
|
Föstudagur
11. febrúar 2005
Margrét Marsibil Steingrímsdóttir
er 50 ár í dag |
Föstudagur
11. febrúar 2005
Þór Jóhannsson
er 44 ára í dag |
_small.JPG) |
Fimmtudagur 10. febrúar 2005
Veðrið í hádeginu:
Hitastig 0 °C
Sunnan 6-8 m/s
Úrkomulaust |
11:30 |
|
|
Fimmtudagur 10. febrúar 2005 Um síðustu
áramót var nýskráningum og breytingum í Netfangaskrám hér á síðum
mínum, hætt eins og verið hefur. -- Ég vil
minna á, að í staðinn gefst öllum þeim er einhver tengsl eiga
við Siglufjörð, kostur á kynna netföng sín og þær upplýsingar sem
viðkomandi óskar eftir. (allt að 10 línum) Það eindregin ósk að
mynd fylgi (ekki krafa) þeim upplýsingum sem viðkomandi sendir - í
tölvupósti á
netfang mitt - Nú þegar hafa nokkur nöfn og upplýsingar
borist, sem þú getur skoðað
hér og á tenglinum "Gagnagrunnur" á forsíðu
"Lífið á Sigló" Skráðu þig |
|
Fimmtudagur
10. febrúar 2005 Pokaþvottur, það er ekkert líkt með
pokaþvotti og "kisuþvotti" en þessir drengir vinna hjá
Síldarvinnslunni á Siglufirði við að þvo og þurrka stóra mjölpoka. Ég
leit þar við í gær (gamla ketilhús SR) og tók nokkrar myndir af
drengjunum.
 |
|
_small.JPG) Fimmtudagur
10. febrúar 2005 Hressar konur. Þessar myndir voru
teknar í kaffipásu í þvottahúsinu á Heilsugæslunni í gær, kona mín Guðný
var þar í heimsókn og beið eftir því að ég kæmi til að sækja hana.
Vinstri myndin: Birna Björnsdóttir - Guðný Ósk Friðriksdóttir, Gréta
Jóhannsdóttir og Sigríður Björnsdóttir. Á hinni myndinni eru Sigríður
Björnsdóttir og Gunnjóna Jónsdóttir ljósmóðir |
|
Fimmtudagur
10. febrúar 2005 Ein gömul: Svona "glæfrastökk" hafa
krakkar og unglingar, ekki upplifað síðustu áratugina,sem var algengt
hér áður fyrr. Þarna er stokkið framaf, og inn á Aðalgötuna af þaki
Pósts og Síma, þann 11. mars 1966 er húsið var enn í smíðum, og nægur
snjór til að sökkva á bólakaf við lendingu. Þetta var ekki uppmokaður
haugur, heldur snjór eftir nokkurra daga norðan snjókomu. |
Fimmtudagur
10. febrúar 2005
Arnar Freyr Birgisson
er 10 ára í dag |
Fimmtudagur
10. febrúar 2005 |
Miðvikudagur 9. febrúar 2005
"Aðsent" Nokkrar myndir frá danssýningunni sem var í gærkveldi í
Íþróttahúsinu.
Myndin hér er af dansparinu: Elísabet Sif Haraldsdóttir og Maxim Petrov.
En þau eru í
"Topp 20" í heiminum í dag í Suðuramerískum dönsum.
Efst á síðu |
_small.JPG) |
Miðvikudagur 9. febrúar 2005
Veðrið í hádeginu:
Hitastig 0 °C
Sunnan gola
Úrkomulaust |
10:45 |
|
|
Miðvikudagur 9. febrúar 2005
Opinn stjórnmálafundur Framsóknarmanna var haldinn í
gærkveldi á Kaffi Torg. Frummælendur voru Valgerður Sverrisdóttir
iðnaðar og viðskiptaráðherra og Birkir J Jónsson alþingismaður.
Fundurinn var fjölmennur, miðað við síðustu stjórnmálafundi sem hér hafa
verið haldnir, eða á milli 70-80 manns. Fundurinn var fjörugur og
málefnalegur, og óvenju margir fóru í ræðustól með fyrirspurnir, sem
greiðlega var svarað. Fundinum lauk um 22:40.
 |
|
_small.JPG) Miðvikudagur
9. febrúar 2005 Varið ykkur, Lögreglan er á vaktinni
sem endranær. Í gær stöðvaði lögreglan þennan bíl sem er fyrir framan
lögreglubílinn á myndinni til vinstri. Sennilega fyrir of hraðan akstur.
Það skiptir
ekki máli hvort svo var eða ekki, en gott er að við vitum
að þeir stöðva okkur ef við förum yfir hraðamörkin, það heldur aftur af
okkur.
EN Lögreglan mætti gjarnan fara að kenna Siglfirðingum að leggja
bílum sínum rétt og samkvæmt umferðalögum, ekki láta okkur komast upp
með það að leggja einhvernvegin, af því að við nennum því ekki, og eða nennum ekki ganga nokkra "auka"metra,- og stundum
jafnvel að loka
umferðinni, þannig að bílar þurfi að fara upp á gangstétt
til að komast fram hjá, sérstaklega efst í Aðalgötunni og framan
við verslanir yfirleitt. Þetta er sérlega áberandi með stóru jeppana.
Einnig mætti lögreglan minna bíleigendur á, þegar þeir mæta "eineygðum"
bílum, oft sömu bílunum viku eftir viku, að það sé ekki í lagi.
Lögreglan gæti farið hægt í sakirnar, til dæmis með því að setja miða á
"vinnukonur" viðkomandi bifreiða, sem fyrstu aðvörun um brot á umferðalögum.
Myndin til hægri, var tekin í gær klukkan 16:28 er ég beið eftir konu
minni inni á Efnalaug. Bíllinn merktur gulu doppunni á myndinni, varð að fara upp á
gangstétt til að komast leiðar sinnar niður Aðalgötu. Fyrir aftan þann
bíl er annar á gangstéttinni sjálfri og einnig ólöglegar bílastöður á götunni hinum
megin. Gott dæmi um það tillitsleysi sem hér ríkir, sem því miður er alltof algengt.
Efst á síðu |
|
Miðvikudagur
9. febrúar 2005 Ein gömul: Frá síðast félagsfundi
Verkalýðsfélafsins Þróttar seinnipartinn í mars árið 1966 -
Verkalýðsfélagið Vaka var stofnað í framhaldi af þessum fundi.
Á myndinni eru:
Ólína Hjálmarsdóttir, Jóhann G Möller og Óska Garibaldarson
Efst á síðu |
Miðvikudagur
9. febrúar 2005
Stella Minný Einarsdóttir
er 65 ára í dag |
Efst á síðu |
Miðvikudagur
9. febrúar 2005
Björgvin Sigurður Jónsson
er 63ja ára í dag |
Miðvikudagur 9. febrúar 2005
Stefán Geir Andrésson
er 16 ára í dag
Efst á síðu |
|
Þriðjudagur
8. febrúar 2005 Kæru Siglfirðingar og aðrir sem hafa hjartað á réttum
stað! Þetta bréf er til ykkar komið, vegna þess að ég hef reynt að sækja um
hjá Tryggingastofnun ríkisins, um nýtt þríhjól
með hjálparmótor fyrir..............
Lestu hér
Efst á síðu |
|
Þriðjudagur
8. febrúar 2005
Fréttatilkynning: Félagsstofnun:
Hollvinir Hólsdalsins!
Kynningarfundur
um
stofnun félags til verndar Hólsdalnum og endurbóta á umhverfi Hólsár
verður haldinn í fundarsal Bátahússins laugardaginn
12. febrúar kl. 13. Hvernig getum við bætt og fegrað dalinn svo hann
nýtist sem flestum? Þetta mál snertir golfara, hestamenn,
knattspyrnufólk, stangveiðimenn, göngufólk, skógræktarfólk og skíðamenn.
Kynning á gömlum skipulagsteikningum og umræður. Allir áhugamenn
og hagsmunaaðilar hvattir til að mæta! Undirbúningsnefnd. |
|
Þriðjudagur
8. febrúar 2005
Fréttatilkynning: Spurningarkeppnin Gettu betur punktur is
hefst föstudaginn 18. febrúar að Kaffi Torg. Dregið verður miðvikudaginn
16. febrúar. Skilafrestur fyrir skráningu þriðjudagurinn 15.febrúar.
Fyrirtæki, Saumaklúbbar, Rauðvínsklúbbar, Tipparar, Föndurhópar svo
eitthvað sé talið upp.
Nú er bara að drífa sig og berja saman í lið. Því að númer 1,2,3 og það
ert þú og ég sem ætlum að hafa gaman af þessu. A T H það verður frítt
inn
Efst á síðu |
|
Þriðjudagur
8. febrúar 2005 Danssýning var fyrir skólabörn klukkan
11:40 í dag -- Þetta var sýning þeirra sömu, sem sýna á sama stað
klukkan 08:15 í kvöld í Íþróttahúsinu, auglýsingin hér
Mikið fjör var og greinilegt að krakkarnir - sem og kennararnir höfðu
gaman af. Ekki var þó nema ein stúlka sem hafði kjark til að dansa með,
er krökkunum var boðið upp í dans. Dansparið sem sýnir eru Elísabet Sif Haraldsdóttir og Maxim Petrov.
En þau eru í
"Topp 20" í heiminum í dag í Suðuramerískum dönsum.
Elísabet er Siglfirðingur, dóttir Haralds Erlendssonar (Ella Gústa)
Efst á síðu |
_small.JPG) |
Þriðjudagur
8. febrúar 2005
Veðrið í hádeginu:
Hitastig 2 °C
Sunnan andvari
Úrkomulaust |
11:00 |
|
|
Þriðjudagur
8. febrúar 2005 Grámáfur, held ég að þetta sé, þarna á
leið til að hremma æti. Tekið í sólinni í gær eftir hádegið.
Efst á síðu |
Þriðjudagur
8. febrúar 2005 Ein gömul: 1966
Sigurjón Sæmundsson - Sigurður Demens Fransson og Geirharður
Valtýsson
Efst á síðu |
Þriðjudagur
8. febrúar 2005
Sverrir Eyland Gíslason
er 42ja ára í dag |
Sverrir
Sigurjón Jónsson
er 52ja ára í dag
Efst á síðu |
_small.jpg) |
Mánudagur 7. febrúar 2005
Veðrið í hádeginu:
Hitastig 7 °C
Sunnan 4 -6 m/s
Úrkomulaust |
10:00 |
|
|
Mánudagur 7. febrúar 2005 Ný heimasíða:
Heimasíða Siglóbarna hefur verið opnuð, tengillinn er
hér Sjón er sögu ríkari skelltu þér á síðuna og
skoðaðu. |
|
Mánudagur
7. febrúar 2005 Íþróttamaður ársins 2004 var kjörinn á
vegum Kiwanis seinnipartinn í gær á Kaffi Torg. Auk þess voru heiðraðir
ýmsir aðrir sem skarað höfðu fram úr á síðastliðnu ári í ýmsum íþróttum.
Nöfn vantar, einfaldlega vegna þess að ég þekki ekki nema lítinn hluta
af fólkinu, auk þess sem ég hefi ekki listann yfir þá sem viðurkenningu
fengu. Ef einhver nennir að skrá það miðað við númer myndanna í albúminu
og þeirri stóru hér til vinstri og senda mér í tölvupósti, Þá er
það vel þegið og ég kem því fyrir á viðkomandi stöðum við myndirnar.
Myndin hér til hliðar ("stóra myndin") er ekki í albúminu sjálfu,
smelltu á myndina og síðan á
Efst á síðu |
|
Mánudagur
7. febrúar 2005 Ein gömul:
Haraldur Þór Friðbergsson við rennibekkinn sinn á verkstæði Rauðku
árið 1966.
Efst á síðu |
Mánudagur
7. febrúar 2005
Þorsteinn Sveinsson
er 39 ára í dag |
Mánudagur
7. febrúar 2005
Bjarni Kristjánsson
er 25 ára í dag
Efst á síðu |
|
Sunnudagur 6. febrúar 2005
Danssýning verður í Íþróttahúsinu næstkomandi
þriðjudag klukka 20:15 - Gengið inn um suðurendann.
Smelltu hér
til að lesa nánar
Efst á síðu |
_small.JPG) |
Veðrið í hádeginu:
Hitastig 5 °C
Sunnan 6-8 m/s
Úrkomulaust
|
10:37 |
|
|
Sunnudagur
6. febrúar 2005 Ein gömul: Jónmundur
Hilmarsson - Tómas Hertervig - Þórhallur Þorláksson - Elías Þorvaldsson -- Guðmundur
Þorláksson, Magðalena Jóhannesdóttir - Guðný Hilmarsdóttir og Marteinn Jóhannesson
|
Sunnudagur
6. febrúar 2005
Hörður Þór Hjálmarsson
er 53ja ára í dag |
Sunnudagur
6. febrúar 2005
Gunnar Jóhannsson
er 78 ára í dag
Efst á síðu |