Lífið í feb. 1-5 2005 | Lífið í feb. 6-12 2005 | Lífið í feb. 13-19 2005 | Lífið í feb.20-28 2005

>>>>>>>>>>> Lífið í feb. 13-19 2005

 

Til forsíðu
Til baka
Rafbæjarmót
Orri Vigfússon




Ljósmyndasafn Steingríms
á netinu.

Steingrímur Kristinsson Siglufirði
G-892-1569
S-467-1569

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Siglfirski fréttavefurinn  Lífið á Sigló- s. 892-1569 - h.s:467-1569
GagnagrunnurMynda-albúmÁ döfinniLoðnulöndunSkíðasvæðið

Laugardagur 19. febrúar 2005
Veðrið í hádeginu:
Hitastig 1 °C
Sunnan gola
Úrkomulaust

10:30

Laugardagur
19. febrúar 2005

Í gærkveldi
hófst aftur á nýju ári, spurningakeppnin Gettu betur.is, að Kaffi Torg. Þar kom fram starfsfólk nokkurra fyrirtækja. Ég leit þar inn stuttu eftir að keppnin hófs og voru þá lið Tunnunnar: Þórhallur Ásmundsson, Þórarinn Hannesson og Albert Gunnlaugsson annarsvegar og starfsmenn Íslandspósts: Anna Hermína, Þorsteinn Sveinsson og Halldóra María hinsvegar að keppa.
Stjórnandi var Ægir Bergsson og dómari Guðmundur Gauti Sveinsson.
Margir fylgdust með af spenningi. 

Laugardagur 19. febrúar 2005 Baráttan fyrir því að laxveiðum verði hætt á hafi úti og með netum almennt er nú að nálgast lokatakmarkið - En þar er athafnamaðurinn og Siglfirðinginn Orri Vigfússon í fararbroddi. Hér er fréttaskot á ensku. Því miður er ég ekki í stakk búinn til að þýða þennan texta, þó svo ég geti stafað mig fram úr honum, en set hann hér handa þeim sem geta lesið ensku og kunna að hafa áhuga á til fróðleiks. Smelltu hér

Laugardagur 19. febrúar 2005  Ein gömul:  1963-1964 (?)
Á hvað ætli maðurinn sé að horfa?
Svarið kemur í ljós, ef þú ferð með músabendilinn hingað
Laugardagur 19. febrúar 2005
Birgitta Þorsteinsdóttir
er 15 ára í dag  
Laugardagur 19. febrúar 2005
Birkir Ingi --- son  ?
er 16 ára í dag, vinstra megin við hann er Stefán Geir og hægra megin er Hlynur

Föstudagur 18. febrúar 2005
Veðrið
í hádeginu:
Hitastig -3 °C
Sunnan 6- 8 m/s
Úrkomulaust

10:00

Föstudagur 18. febrúar 2005
Karlmenn, munið konudaginn þann 20. febrúar

Að því tilefni sérstaklega, verður opið í Aðalbúðinni
Sunnudaginn 20. febrúar, frá kl 11:00-15:00 
EKKI láta konuna/kærustuna þína bíða eftir blómvendinum sem aldrei kemur.

Föstudagur 18. febrúar 2005 Hestamannafélagið Glæsir er vel lifandi og vinsæll félagsskapur, enda er hestamennska sívaxandi afþreying. Þeir hjá Glæsi hafa verið reglulega með námskeið og þjálfara á sínum snærum, og ætíð valið þjálfara úr fremstu röð. Ég leit suður í "Hestahverfið" seinnipartinn í gær þar sem Skapti Steinbjarnarson frá Hafsteinsstað í Skagafirði, var að þjálfa nokkra félaga úr Glæsi í stjórnun á hestum sínum. Ég er að vísu enginn hestamaður, ekki komið á hestbak síðan ég var 10 ára gamall og fór á hesti í sveit yfir Skarðið (áður en akvegurinn kom) til Stórureykja í Fljótum, og síðar til baka. En ég gat ekki séð betur en að nemendunum tækist bara vel að ná tökunum undir leiðsögn þjálfarans

Föstudagur 18. febrúar 2005 Ein gömul:  Tekin árið 1966

Hver er hann ?   Svarið kemur í ljós, ef þú ferð með músabendilinn hingað

 
Föstudagur 18. febrúar 2005
Svanhildur Freysteinsdóttir
er 65 ára í dag
Föstudagur 18. febrúar 2005
Sigurlaug Guðjónsdóttir
er 40 ára í dag.
Til hamingju með daginn elsku Silla okkar. -- Kveðja, fjölskyldan.

Fimmtudagur 17. febrúar 2005
Veðrið
í hádeginu:
Hitastig 3 °C
Sunnan 6- 8 m/s
Úrkomulaust

11:10

Fimmtudagur 17. febrúar 2005  Loðnumagnið hingað komið á land um 18500 tonn Loðnulöndun  Myndin sýnir "Færeyska" skipið HÖGABERG, "skráð á Akureyri"(?) við löndun í morgun.

Fimmtudagur 17. febrúar 2005 Fréttatilkynning: "Síðastliðinn þriðjudag 15. febrúar fór fram afhending Kaupmannafélags Siglufjarðar, vegna tilnefningar á manni og fyrirtæki febrúarmánaðar 2005. Tilnefningu manns febrúarmánaðar hlaut Ásdís Baldvinsdóttir safnari, sjóstangaveiðimaður og hagyrðingur.
Og tilnefningu fyrirtækis mánaðarins hlaut fyrirtækið Guðrún María fiskverkun, og tók Ragnar Hauksson við viðurkenningunni fyrir fyrirtækisins hönd. Myndirnar sýna  Ásdísi og Ragnar með viðurkenningarnar."-     Freyr Sigurðsson formaður Kaupmannafélag Siglufjarðar.

Fimmtudagur 17. febrúar 2005  Ein gömul:
Frændurnir og nafnarnir; Þorleifur Bessason og Þorleifur Hólm, þarna staddir í forstofu í gamla Sjúkrahúsinu, þar sem sá eldri dvaldi árið 1964 - en sá yngri var í heimsókn. --
Það er Leifi Bessa og Leifi Hólm, eins og þeir voru ávalt nefndir.
Fimmtudagur 17. febrúar 2005
Guðjón Bjarki Sverrisson
er  52 ára í dag
Fimmtudagur 17. febrúar 2005
Guðný Ósk
er 21 árs í dag
Fimmtudagur 17. febrúar 2005
Margrét Dóra Árnadóttir
er 38 ára í dag
Fimmtudagur 17. febrúar 2005
Anna Björnsdóttir

er 84 ára í dag

Miðvikudagur 16. febrúar 2005
Veðrið í hádeginu:
Hitastig -2 °C
Sunnan 8-10 m/s
Úrkomulaust

10:20

Miðvikudagur 16. febrúar 2005 Ánægjuleg tíðindi. - Nú fyrir nokkrum dögum var handsalaður samningur á milli fyrirtækjanna Seigla ehf  í Reykjavík og JE-Vélaverkstæðis á Siglufirði, um stofnun fyrirtækis hér á Siglufirði, sem heitir Siglufjarðar Seigur ehf - sem hafa mun að aðalverkefni, smíði plastbáta að gerðinni Seigur 1100, sem er ekki ósvipaður þeim sem er á myndinni hér til hliðar. Undirskriftir um samninginn munu  væntanlega fara fram nú um helgina. En undirbúningur er hafinn vegna útboðs á innréttingum og aðstöðu bátasmíðanna í húsnæðinu Siglfirðings-skemman, sem er við hliðina á húsnæði JE-Vélaverkstæði. Þessir plastbátar sem hér verða smíðaðir eru eins og áður segir af gerðinni; Seigur 1100  sem er 12 tonn brúttólestir að stærð, 11 metrar að lengd og 3,3 metrar á breidd. Eins og fram hefur komið hér áður á síðum mínum, þá hafa þeir félagar á JE-Vélaverkstæði, sérhæft sig á breytingum, viðgerðum og uppbyggingu nýsmíðaðra plastskrokka, einmitt frá Seiglu, og raunar fleiri fyrirtækjum.

Miðvikudagur 16. febrúar 2005 Nýtt félag hefur verið stofnað hér á Siglufirði sem kallast "The Untouchables" og er snjóbrettafélag, enn sem komið er þá erum við 4 í félaginu, og við erum Gunnar F, Logi, Sigurjón og Stúlli.. Efst hjá okkur er snjóbrettamynd sem við erum að vinna í því að taka upp þessa dagana og komum svo til með að klippa og "gefa út". -- Einnig er fyrirhugað hjá okkur að vera með snjóbrettanámskeið fyrir börn sem og fullorðna í skarðinu um páskana.
Við erum með vefsíðu sem er reyndar á frumstigi eins og er en slóðin er http://theuntouchable.tk  og allar fyrirspurnir til félagsins skulu vera sendar á gunnarf@simnet.is   Kveðja Gunnar F.

Miðvikudagur 16. febrúar 2005 Aðsent:  Sunnudagaskólinn er hafinn.
Og er hann alla sunnudaga kl. 11:15 í Safnaðarheimili Siglufjarðarkirkju.

Umsjónarmenn eru Þórunn Alda, Steini og Elísa. Boðið er upp á ávexti og djús.
Kveðja Þorsteinn Sveinsson.           Efst á síðu            

Miðvikudagur 16. febrúar 2005 Ein gömul: 
Sigló Síld, árið 1966
Ekki þekki ég með vissu hverjar þær eru stúlkurnar, en þær eru þarna að líma miða á dósir með niðurlagðri síld í.
Efst á síðu

Miðvikudagur 16. febrúar 2005
Auður Björnsdóttir
er 69 ára í dag
Efst á síðu

Þriðjudagur 15. febrúar 2005  Skíðafélag Siglufjarðar hefur opnað nýja og glæsilega heimasíðu, þar munu verða birtar fréttir í máli og myndum af starfssemi félagsins, upplýsingar um æfingar og mót, skíðamarkaður sem og upplýsingar um veður, hita, færi og opnunartíma fyrir hvern dag.
Tengill til síðunnar er hér  Skíðasvæðið og fyrir fyrir ofan   Efst á síðu

Þriðjudagur 15. febrúar 2005 Kaupmannafélag Siglufjarðar, Aðalfundur félagsins var haldinn í desember síðastliðinn og kosin var ný stjórn eins og venja er á aðalfundum.
Í stjórn voru kosin; formaður; Freyr Sigurðsson, ritari; Guðrún Hauksdóttir, gjaldkeri; Helga Freysdóttir; - Elín Þór Björnsdóttir; og Guðmundur Gauti Sveinsson. -- Nú í janúar síðastliðinn var samþykkt tillaga þess efnis að næstu mánuði á árinu verði tilnefndur einstaklingur mánaðarins, og einnig fyrirtæki mánaðarins. Með þessu vilja kaupmenn sýna að margt býr í Siglfirskri bæjarsál,- sem er meira en margur heldur. Ég frétti að nú í dag mundu fyrstu tilnefningarnar fara fram vegna febrúarmánaðar. Ég ætlaði auðvitað að mæta, en komst að því óvænt, að "Lífið á Sigló" verður ekki velkomið á þessa athöfn, en utanaðkomandi hagsmunaaðili á þar hlut að máli. Þannig að því miður, þá mun ég ekki birta neitt, eða sækjast eftir því í framtíðinni að nálgast viðkomandi efni, -til að spilla ekki sölumöguleikum viðkomandi.  Efst á síðu

Þriðjudagur 15. febrúar 2005 Aðsent: Nokkrir af starfsmönnum Sparisjóðs Siglufjarðar fóru upp á leikskóla á föstudaginn til þess að afhenda börnunum sundpoka sem Sparisjóðurinn gaf.  Meðfylgjandi myndir voru teknar við það tækifæri.
Mynda-albúm    Efst á síðu

Þriðjudagur 15. febrúar 2005
Veðrið í hádeginu:
Hitastig 9 °C
Sunnan 8-10 m/s
Úrkomulaust

10:00

Þriðjudagur 15. febrúar 2005 Örninn KE var að landa í morgun, áætlað um 1100 tonnum, en Bjarni Ólafsson losaði í gærkveldi 1320 tonnum. Væntanlegur er í kvöld Bjarni Sveinsson með um 1100 tonn af loðnu til losunar hér hjá Síldarvinnslunni, þannig að því komnu muna haf borist á land á Siglufirði um 15 þúsund tonn af loðnu á þessari vertíð.  Efst á síðu

Þriðjudagur 15. febrúar 2005 Aðsent: ÍSLANDSBANKI. bauð krökkum sem æfa blak hjá glóa undir stjórn Svetlonu íþróttakennara. Þetta er í 3 sinn frá því i september sem Íslandsbanki hefur boðið í pizzuveislu og hafa krakkarnir verið rosalega ánægð með þetta og eru alltaf til i pizzuveislu. Einnig styrkti Íslandsbanki Krakkablaks-hópinn okkar til að geta keypt keppnisbúninga fyrir hópinn. Svetlana og Anna Hermína  Mynda-albúm   Efst á síðu

Þriðjudagur 15. febrúar 2005  Ein gömul:     Á þróarvæng S.R.P. árið 1962
Jón Sigurðsson - Ólafur Gíslason og Njáll Jónasson.

Efst á síðu

Mánudagur 14. febrúar 2005 Loðna  - Bjarni Ólafsson AK  kom um klukkan 14:30 með loðnu til löndunar hjá Síldarvinnslunni á Siglufirði - og Örn KE er á leiðinni með loðnu- og er væntanlegur með morgninum

Efst á síðu

Mánudagur 14. febrúar 2005
Veðrið í hádeginu:
Hitastig -2 °C
Logn
Úrkomulaust

09:43

Mánudagur 14. febrúar 2005 Aðalfundur Eldri borgara á Siglufirði og í Fljótum, var haldinn í gærkveldi með prump og prakt að venju. Kona mín Guðný Ósk Friðriksdóttir,  mætti þar galvösk með myndavélina sína.
Mynda-albúm
Efst á síðu

Mánudagur 14. febrúar 2005 "Bikarmót á skíðum", sem sagt var frá lauslega að hafi farið fram (samkvæmt auglýsingu) var ekki haldið um helgina eins og ég hélt, Því var frestað, og fór  Rafbæjarmót í stórsvigi fram í staðinn. Myndirnar hér til hliðar eru aðeins stærri, en í albúmi. 
                                                       Mynda-albúm  Úrslitin eru hér      Efst á síðu

Mánudagur 14. febrúar 2005   Aðsent.-
Eins og flestir Siglfirðingar vita, þá hefur Heilbrigðisstofnunin á Siglufirði ákveðið að leggja niður þvottahús stofnunarinnar, sem rekið hefur verið frá upphafi starfsemi sjúkrahúss á Siglufirði, og kaupa þjónustuna frá verktaka hér innanbæjar. Við þessa breytingu hættu tvær af starfstúlkunum á vinnumarkaðinum, nokkru fyrr en þær ætluðu og voru við það tækifæri kvaddar af vinnufélögum sínum með blómum og fleiru síðastliðinn föstudag. Þetta eru þær Svava Aðalsteinsdóttir og Greta Jóhannsdóttir. Ljósmyndir: Hrönn Einarsdóttir     Efst á síðu

Mánudagur 14. febrúar 2005 Ein gömul:  Einco - við Tjarnargötu. Myndin til vinstri; nokkru áður en kveikt var í húsinu vegna æfingar, og brennt til grunna af "brennuliðinu, deild innan" Slökkviliðs Siglufjarðar. Hin myndin sýnir Slökkviliðsstjórann Kristinn Georgsson, ganga í rólegheitunum afslappaður að vanda, þrátt fyrir hið gífurlega eldhaf í bakgrunni. En blanka logn var þennan dag og Slökkviliðsdeildin hafði gott vald á eldinum og engin hætta, þrátt fyrir nálægð Bensínafgreiðslunnar.

Mánudagur 14. febrúar 2005
Hörður Ingi Kristjánsson
er 2ja ára í dag -
 
Mánudagur 14. febrúar 2005
Thelma Dögg Þorsteinsdóttir
er 3ja ára í dag
Efst á síðu
Finnur Mar Ragnarsson
er 11 ára í dag
Mánudagur 14. febrúar 2005
Jón Hólm Hafsteinsson
er 38 ára í dag
Mánudagur 14. febrúar 2005
Helga Guðrún Sverrisdóttir
er 40 ára í dag

Efst á síðu

Sunnudagur 13. febrúar 2005  Frá Tónlistarskóla Siglufjarðar:  Tónleikar söngnemenda á 6. stigi (sem vera áttu 4. febrúar síðastliðinn, en var frestað vegna veikinda) verða í Siglufjarðarkirkju miðvikudaginn 16. febrúar kl. 20.00.
Aðgangur ókeypi
s, allir velkomnir. Skólastjóri.    Efst á síðu

Sunnudagur 13. febrúar 2005 Bikarmót á skíðum fór fram nú um helgina 12-13 febrúar uppi í Skarðsdal. (samkvæmt auglýsingu) Ég var fjarri góðu gamni, staddur á Akureyri, en ég lét mér nægja, stuttu eftir að hafa komið heim í dag og smellti þessari mynd af svæðinu um kl. 14:45 í dag. Þarna virðist vera meir en nægur snjór, og engar tilfæringar á snjó hefur þurft á svæðinu, eins og Akureyringar þurftu að gera á sínu svæði - og þarna var líf og fjör að sjá, í gegn um sjónauka.  Efst á síðu

Sunnudagur 13. febrúar 2005 Ein gömul
Hverjir og hvar eru þeir? 
Skoðaðu myndina fyrst, og farðu síðan með músabendilinn hér
,  þá færðu svarið.
Efst á síðu

Sunnudagur 13. febrúar 2005
Veðrið
í hádeginu:
Hitastig 2 °C
Logn
Úrkomulaust
Ljósmyndir: Sveinn Þorsteinsson