|
Laugardagur 30. apríl 2005
Vorsýning Grunnskólakrakka opnaði klukkan 13:00 í skólahúsinu, ég mætti
þar og tók nokkrar myndir sem erfitt var að velja, þar sem hugmyndaflug
krakkanna er mikið.
Myndaalbúm með sýnishorni á því sem þar var að sjá í dag koma á morgun. |
|
Laugardagur 30. apríl 2005
Karlakórinn Jökull frá Hornafirði ásamt fylgdarliði
heimsótti Síldarminjasafnið og þáði léttar veitingar í boði Karlakórs
Siglufjarðar í hádeginu í dag. Ég tók slatta af myndum þar, sem því
miður verða að bíða birtingar í albúmi þar til á morgun, en ég þarf að
koma sinna öðrum verkefnum í dag sem tekur tíma.- Karlakórinn Jökull
verður með tónleika í
kirkjunni klukkan 17:00 í dag |
_small.JPG) |
Laugardagur 30. apríl 2005
Veðrið klukkan 13:30
Hiti -1 °C
Norðan andvari
Snjó él
Nokkur logndrífa í nótt og í morgun |
13:30
Hvanneyrarbraut 69 |
|
|
_small.jpg) Laugardagur
30. apríl 2005 Aðsent:
Þarna er stoltur drengur með nýjan farskjóta. Skyldi hann ætla að hjóla
í vinnuna? (2-13 maí)
Þórhallur Daníelsson alltaf
klár í slaginn.
ÓBE |
|
_small.jpg) Laugardagur
30. apríl 2005 Tvær gamlar:
Systurnar Rannveig Sveinsdóttir og Sigurlaug Sveinsdóttir (Silla)
Núverandi hús Kára Jóns í bakgrunni. Myndin af manni, í fjörunni
við Sörbukten á Jan Mayen árið 1968, með 100 kg. drumb í fanginu,
Sigurður Jónsson
tók við af tveim félögum sínum sem höfðu borið drumbinn á milli sín, en gáfust upp eftir 50 metra
puð, en
hann tók við og bar hann restina; 50 metra til viðbótar. Þannig fékk
hann nafnbótina Siggi drumbur (um borð í Haferninum). Sjálft ævintýrið og tilefni þessa
verknaðar, er svo önnur og löng saga sem ekki verður sögð hér. |
Laugardagur
30. apríl 2005
Halldóra María Þormóðsdóttir
er 30 ára í dag
|
Laugardagur
30. apríl 2005 |
|
Föstudagur 29. apríl 2005
Aðsent:
Þessi æðarkóngur er búinn að vera í Siglufjarðarhöfn í okkar daga.
Myndin tekin fyrr í dag af Hafnarbryggju. Æðarbliki fjær til
samanburðar.
Kveðja. SÆ
|
_small.JPG) |
Föstudagur 29. apríl 2005
Veðrið í hádeginu
Hiti 5 °C
Norðan gola nú- hvasst í morgun
Sólskin |
10:00
Hvanneyrarbraut 35 |
|
|
Föstudagur
29. apríl 2005 "Pokaönd", Það er blómlegt fuglalíf í firðinum
okkar nú á vordögum, og nægt augnayndi fyrir fuglaskoðara.
En fuglinn á myndinni er Æðarkolla eins og eflaust allir vita, en
sagan um "pokaöndina" er eftirfarandi : Ónefnt yfirvald hér á Siglufirði
á fyrri hluta 20.aldar, þótti æðarfugl góður matur. En æðarfuglinn var
friðaður eins og er í dag, þannig að þeir sem útveguðu yfirvaldinu
hnossgætið urða að koma með fuglinn í strigapoka, og þaðan kemur nafnið:
"Pokaönd".
svennith@simnet.is |
|
Föstudagur
29. apríl 2005 Aðsent:
Hólminn í Langeyrartjörn og endinn á Stóra Bola virkar eins og
eldfjall í bakgrunni.
ÓBE |
_small.jpg) Föstudagur
29. apríl 2005 Tvær gamlar:
Ráeyri og Örlygsstaðir, handan við fjörðinn.
Árið 1968 |
|
Fimmtudagur 28. apríl 2005
Karlakórinn Jökull frá Hornafirði heldur tónleika í
Siglufjarðarkirkju á laugardaginn 30. apríl klukkan 17:00 ---
Stjórnandi: Jóhann Moráveg -- undirleikari: Guðlaug Hesrnes og
Einsöngvari: Erlingur Arason. |
|
Fimmtudagur 28. apríl 2005
Þáttakan hjá
Heilbrigðisstofnuninni Siglufirði í ártakinu
"Hjólað í vinnuna" er komin upp í 57% |
_small.JPG) |
Fimmtudagur 28. apríl 2005
Veðrið í hádeginu
Hiti 15 °C
Suðaustan andavri
Sólskin
|
10:20
Hvanneyrarbraut 33 |
|
|
Fimmtudagur 28. apríl 2005
Vorsýning / afrakstur vetrarins hefur staðið yfir síðustu tvo
daga og líkur í dag á (15:00-16:00) En á þessa uppákomu er foreldrum og
aðstandendum barna sem verið hafa á Leikskálum í vetur boðið. --
Ýmsar uppákomur og leikir af hálfu krakkanna koma gestum fyrir sjónir,
og hefur verið boðið er upp á kaffi og meðlæti að auki. -- Ég leit
þar við í gær og tók slatta af myndum, sem ég ætlaði að velja úr, en
gafst upp við það, svo ég skellti bara ÖLLUM myndunum sem ég tók, í
Vorsýning |
|
Fimmtudagur 28. apríl 2005
Glæpamenn ? Stórt er spurt, en að gefnu tilefni; þegar
alþingismenn skammta sjálfum sér og starfsfélögum góð aukalaunum í formi
"ellilauna" svo milljónum skiptir úr sjóðum almennings. Halda þessir
menn að þeir eigi skilið einhver sérréttindi, eins og að geta bæði verið
á góðum launum í fullri vinnu og einnig ÓSKERTUM lífeyri á sama tíma? Ef
hinn almenni borgari, meðal annarra ég sem kominn er á ellilaunaaldur,
fæ "sæmilegan" lífeyrir frá almennum lífeyrisjóði, þá skerðist
greiðsla frá lífeyristryggingu verulega, tryggingarstofnun sem ég hefi
greitt til frá 16 ára aldri. Og ef ég, eins aðrir sem fá þessa hungurlús
í formi lífeyristekna hafa þrek, vilja og getu til að næla sér í nokkrar
krónur með launaðri vinnu, ÞÁ SKERÐAST ÞESSAR TRYGGINGABÆTUR EN MEIRA,
viðbótar skattinum sem greiða þarf af þessari hungurlús. Ef þetta er
ekki glæpur, þá eru þingmennirnir væntanlega ekki heldur
glæpamenn, því þeir setja jú lögin sem heimila alla þessa vitleysu. Eða
er það? SK |
|
Fimmtudagur 28. apríl 2005
Ein gömul: Svona litu húsin út við Túngötuna árið 1968 - áður en
malbikað var.
Nýmáluð húsin eins og þetta sem málað hafði verið einn góðviðrisdag,
varð eins og sést á myndinni næsta rigningardag.
|
Fimmtudagur 28. apríl 2005
Birgir Guðlaugsson
er 64 ára í dag |
Fimmtudagur 28. apríl 2005
Salmann Héðinn Árnason
er 18 ára í dag |
_small.JPG) |
Miðvikudagur 27. apríl 2005
Veðrið í hádeginu
Hiti 10 °C
Norðan andavri
Sólskin |
10:50
Hvanneyrarbraut 31 |
|
|
Miðvikudagur 27. apríl 2005
Áskorun til allra fyrirtækja og stofnana á Siglufirði að taka
þátt í átakinu á vegum ÍSÍ

Heilbrigðisstofnunin Siglufirði er komin á skrá nú þegar með 2
lið –
Er enn von á
einu…?
|
|
Miðvikudagur
27. apríl 2005
Bílskúrinn sem Gummi Einars er að láta reisa sunnan við hús sitt er
kominn á skrið, en fyrsta steypan,- í súlurnar fór fram í gær.
svennith@simnet.is |
Miðvikudagur
27. apríl 2005 Ein gömul:
Sigurður Jóhannesson og ? |
Miðvikudagur
27. apríl 2005
Regína Erla Mikaelsdóttir
er 50 ára í dag |
Miðvikudagur
27. apríl 2005
Árni Haukur Þorgeirsson
er 4 ára í dag |
_small.JPG) |
Þriðjudagur 26. apríl 2005
Veðrið í hádeginu
Hiti 7 °C
Norðan gola
Sólskinsglæta |
10:00
Hvanneyrarbraut 23 |
|
|
Þriðjudagur 26. apríl 2005
Ég heimsótti meinatæknana á Heilsugæslustöðinni í morgun, þar voru að
venju María Jóhannsdóttir og Björg Friðriksdóttir. Erindið var að láta
þær taka úr mér blóðsýni og taka hjartalínurit og fleira í pakka sem
kallað er "alsherjatjakk" (?) Ég er í eðli mínu mjög hræddur við nálar
og forðast að horfa á slíkt, meir að segja þegar það ber við í
sjónvarpi, en þetta verður að gerast annað slagið svo maður lætur sig
hafa það og reynir að bera sig "karlmannlega" Ég hafði farið til
Andrésar Magnússonar yfirlæknis í gær, sem mældi blóðþrýsting og fleira,
þar fékk ég að vita að blóðþrýstingurinn hjá mér og fleira væri í
samræmi við það sem teldist eðlilegt hjá rúmlega fertugum karlmanni, svo
ég fór til þeirra vinkvenna með dálítilli reisn.
Ég tók sjálfur myndir hjá stelpunum, auk þess sem María tók myndavélina
mína og tók á hana myndir =
Meinatækni |
|
Þriðjudagur
26. apríl 2005 Söngvaþáttur á Danska TV2
VOKSENSANG (16 ÅR OG OP)... "Scenen er din"
Vi leverer live musik - du leverer stemmen! -- Hvis du kan
synge, og har lyst til at fortolke et hit på scenen, så er det her din
chance for at vise publikum, dommerne og hele landet hvad du kan.
Eva Karlotta Einarsdottir 25-årige Eva Karlotta
Einarsdottir er - som navnet antyder - oprindelig fra Island, men bor nu
i Jelling med sin kæreste. Eva optrådte første gang som 6-årige ved et
bryllup i Norge - hvilket var en overraskelse for alle, inklusiv hende
selv! Siden har hun blandt andet gået på skuespillerskole og spiller
musik så ofte hun kan komme til det. Inspirationen henter hun hos
kvinder, der ved, hvad de vil - fx Tina Turner, Joni Mithcell, Tori Amos
og Bjørk - og at Eva også ved det, kommer hele Danmark nu til at mærke,
når hun går på scenen og synger 'Bitch'!
Foto: Jakob Mydtskov /
TV 2 Danmörk (Eva er
frá Sigló - ég vona að flestir lesi Dönsku) |
Þriðjudagur
26. apríl 2005 Ein gömul: Suma krakkan þekki
ég, en þarna er á meðal tvö af mínum börnum. Ég hefi grun um hver sum
þeirra eru en vil ekki setja inn ágiskanir. Einhver vonandi, sendir mér
nöfnin. |
Þriðjudagur
26. apríl 2005
Björn Frímannsson
er 88 ára í dag |
|
Þriðjudagur
26. apríl 2005
Arnar Eyjólfur Ólafsson
er 49 ára í dag |
Þriðjudagur
26. apríl 2005
Sigurjón Erlendsson
er 58 ára í dag |
_small.JPG) |
Mánudagur 25. apríl 2005
Veðrið í hádeginu
Hiti 13 °C
Norðan kul
Sólskin |
11:00
Hvanneyrarbraut 29 |
|
|
_small.JPG) %20(2)_small.JPG) Mánudagur
25. apríl 2005
Þessar myndir voru tekið í kirkjunni í gærkveldi þar sem
æraleysismessa var. Þar var slatti af fólki en ég er ekki með tölu yfir
fjöldann, en mikið
var sungið undir stjórn Stúlla og Steina nú svo söng kvennakórinn þar
sem hann var að æfa sig fyrir kóramót næstu helgi en nú verður það
Hafnarfirði. kveðja Hrönn Einars |
|
Mánudagur
25. apríl 2005 Jón Óðinn Reynisson var á ferð um Blönduós
síðastliðiðið föstudagskvöld og tók þessa fallegu sólarlagsmynd. Honum
fannst myndin góð og vildi lofa fleirum að njóta njóta hennar.
|
|
Mánudagur
25. apríl 2005 Þetta fékk ég sent um Jaðrakann sem ég tók mynd af
um daginn, hann var hér síðast árið 2000 og þá sá Biggi sem var með
hótelið hann hérna í Siglufirði. Upplýsingarnar eru flókna, en þær eru
HÉR
svennith@simnet.is |
|
Mánudagur 25. apríl 2005
Ein gömul: --- Síldarsöltun um borð í Haferninum á Jan
Mayen miðum , sumarið 1968 --- Salmann Kristjánsson háseti - Guðmundur
Arason 1. stýrimaður - aðeins sést í Sigurjón Kjartansson háseta - og
baksvipurinn á Ægi Björnssyni bátsmanni. En alls voru saltaðar þarna um
borð rúmlega 400 tunnur af úrvals síld, en hráefnið gat ekki verið
ferskara. Enda besta síldin sem Sigló-Síld hafði fengið til
gaffalbitaframleiðslu frá upphafi; sagði Þóroddur Guðmundsson
síldarsaltandi, með fleiru. -- Meira um þetta
HÉR |
Sunnudagur 24. apríl 2005
"Vegir liggja til allra átta" gæti þessi mynd heitið !
svennith@simnet.is |
_small.JPG) |
Sunnudagur 24. apríl 2005
Veðrið í hádeginu
Hiti 13 °C
Norðan gola
Sólskin |
11:22
Hlíðarvegur 44 |
|
|
Sunnudagur
24. apríl 2005 Keppendur og gestir
á
Íslandsmóti Garpa í sundi,
heimsóttu Síldarminjasafnið í gærkveldi í boði Bæjarstjórnar
Siglufjarðar, þar var einnig fréttaritari "Lífið á Sigló"
svennith@simnet.is og tók hann
nokkrar myndir við það tækifæri, sem þú sérð ef þú smellir á:
Garparnir. |
|
Sunnudagur
24. apríl 2005 Aðsent: Fjallganga upp á Hafnarfjall. Þarna
horfir ljósmyndarinn; Óskar Berg Elefsen norður eftir
Hafnarfjallshryggnum.
Fleiri myndir
sem teknar voru fyrir hádegið í gær:
Hafnarfjall |
|
 Sunnudagur
24. apríl 2005 Aðsent:
Í marsmánuði fögnuðu Kittý Gull og Óttar Gull 100 ára sameiginlegu
afmæli með mikilli gleði ásamt sínum nánustu í Víkingsheimilinu í
Reykjavík. -- Kittý varð 60 ára 28. mars. en Óttar varð 40 ára
þann 20. mars. Sjá mynd af afmælisbörnunum (vinstri myndin)
Kittý Gull í kvikmyndabransanum: Þessa mynd fékk ég senda af Kittý ásamt
leikaranum Ron Pearlman, en myndin var tekin á veitingastað í
Reykjavík þar sem Kittý var úti að borða ásamt sonum sínum á sjálfan
afmælisdaginn. Leikarinn kom yfir til þeirra þar sem hann þekkti
strákana hennar Kittýjar en þeir hafa veriðað vinna vinna við
kvikmyndina sem leikarinn var að leika í, en myndin heitir Cold Water
og er hrollvekja. -- Leikarin ásamt fríðu föruneyti, leikstjóra og öðrum
leikurum söng afmælissönginn fyrir Kittý á veitingastaðnum. kv;
Erla Gull. |
|
Sunnudagur
24. apríl 2005 Aðsent:
Fleiri myndir frá ferðalagi eldra fólksins til Hveragerðis.
Ljósmyndir Hreinn Magnússon
Hótel Örk II |
|
Sunnudagur
24. apríl 2005 Þessar myndir voru teknar í gærmorgun inn í firði,
Sigurður prestur segir að þetta sé Jaðrakan.
En ef vel er gáð, þá eru fimm merki á fótum fuglsins sem fuglafræðingar
hafa merkt, og geta lesið upplýsingar varðandi þennan tiltekna
einstakling.
svennith@simnet.is |
|
Sunnudagur
24. apríl 2005 Ein gömul: Horfin hús
við Snorragötu -- Snorragötu sem einnig er horfin.
Myndin er tekin í september 1968 |