_small.JPG) |
Laugardagur 23. apríl 2005
Veðrið í hádeginu
Hiti 12 °C
Logn
Úrkomulaust |
08:30
Sæby húsið |
|
|
_small.JPG) Laugardagur 23. apríl 2005
Hafnarfjall - Sá sem er á brún suðurhluta
Hafnarfjalls, annarri myndinni í gilinu og hinn á efstu brún, heitir
Óskar Berg Elefsen. Það liggur við að þekkja megi hann á innfelldu
myndinni, þar sem hann virðist svífa í lausu lofti á töfrateppi. Hann
þekkti bílinn minn þar sem hann var á Suðurgötunni,hringdi í mig og úr
varð þessi myndataka þar sem hann veifar til mín. |
|
Laugardagur 23. apríl 2005
Íslandsmót Garpa í sundi fer nú fram
um helgina í Sundhöll Siglufjarðar. En Garpar eru sundkappar, margir
þeirra landsþekktir hér áður fyrr, en komnir af yngsta skeiðinu en eru
sperrtir ennþá og njóta þess að synda og vera með, þar sem 1. sætið er
ekki aðalatriðið. Þetta er fólk úr öllum landshornum, bæði konur og
karlar. - Ég staldraði þarna við í morgun um hálftíma, og
tók nokkrar myndir
Garpar |
|
Laugardagur
23. apríl 2005 Félagar Eldri borga á
Siglufirði og í Fljótum kom í gærkveldi til baka úr 6 daga ferð og
gistingu að Hótel Örk í Hveragerði.
Þetta var dásamleg ferð sagði kona mín Guðný, - og brosti út að eyrum !
Myndir sem Guðný eru hér á:
Hótel Örk
|
_small.JPG) Laugardagur
23. apríl 2005 Vorhreingerning
hjá slökkviliðsstjóranum, Ámunda Gunnarssyni
svennith@simnet.is |
|
Laugardagur
23. apríl 2005 Góður afli hefur
fengist á línu síðustu dagana, vænn og stinnur fiskur, bæði þorskur og
ýsa.
Myndin er tekin á löndunarbryggjunni í gær. |
|
Laugardagur
23. apríl 2005 Ein gömul: Frá
árinu 1968
Á myndinni má meðal annarra sjá; Unglinginn Anton Pálsson - Harald
Gunnlaugsson síldarmatsmann -Kristján Sturlaugsson kennara mfl. og
Þorgeir Bjarnason beyki. Frekar er sagt frá myndefninu
HÉR |
Laugardagur
23. apríl 2005
Birgitta Ósk Örvarsdóttir
er 7 ára í dag (dóttir Lárey)
|
Laugardagur
23. apríl 2005
Reynir Karlsson
er 45 ára í dag |
|
Föstudagur 22. apríl 2005
Aðsent: Kynning á fjarnámi í
iðnfræði á Skagaströnd, Hvammstanga og Siglufirði ---
Haldinn verður kynningarfundur á iðnfræðinámi frá Háskólanum í Reykjavík
laugardaginn 23. apríl kl. 14:00. Kynningin fer fram í fjarfundi í
Námsstofunni á Hvammstanga, Höfðabraut 6, Námsstofunni Skagaströnd,
Mánabraut 3, Námstofunni Gránugötu 24, Siglufirði og SÍMEY, Þórsstíg 4 á
Akureyri og eru allir áhugasamir velkomnir. Markmiðið HR er að
styrkja stöðu nemenda á vinnumarkaði og gera þá hæfari til að takast á
við fleiri og fjölbreyttari störf. --
Iðnfræðin
er í boði hjá tækni- og verkfræðideild Háskólans í Reykjavík og er
hagnýtt 45 eininga nám á háskólastigi. Iðnfræði er eingöngu kennd í
fjarnámi og er gert ráð fyrir að námið taki þrjú ár samhliða vinnu. Með
fullu námi má ljúka iðnfræði á einu og hálfu ári. Víða á landsbyggðinni
fá nemendur aðstöðu til hópvinnu í starfsstöðvum, en á
höfuðborgarsvæðinu býðst nemendum vinnuaðstaða í skólanum. Skilyrði
fyrir inngöngu er iðnmenntun að viðbættri einni önn á frumgreinasviði HR
eða sambærilegur undirbúningur. |
|
Föstudagur 22. apríl 2005
Aðsent:
Stóra upplestrarkeppnin í 7. bekk Keppnin var
haldin á þrjátíu og þremur stöðum víðsvegar um landið. Að keppninni
standa Raddir, samtök um vandaðan upplestur og framsögn í samvinnu við
skólaskrifstofur, skóla og kennara um land allt. Lestu meira
HÉR
-
Og skoðaðu myndir hér >
 |
_small.JPG) |
Föstudagur 22. apríl 2005
Veðrið í hádeginu
Hiti 8 °C
Logn
Úrkomulaust |
10:30
Hlíðarvegur 42 |
|
|
Föstudagur 22. apríl 2005
Fréttabréf Kiwanis
HÉR ---
Áríðandi fyrir Kiwanismenn. |
|
Föstudagur
22. apríl 2005 Aðsent: Myndir
teknar á Sumardaginn fyrsta í vélsleðaför. Með í för voru Mummi Einars,
Jón Helgi og hann Siggi hennar Píu en allir vinna þeir hjá Norðurfrakt.
Við fórum um fjöllin hér inn af Siglufirði á þessu blíðskapardegi. Kv
Gestur
Vélsleðaferð |
|
_small.JPG) _small.JPG) Föstudagur
22. apríl 2005 Þessir krakkar undu sér vel á grasfletinum
fyrir neðan "Verkamannabústaðina" við Hvanneyrarbraut í gær. |
|
Föstudagur
22. apríl 2005 Baseball Þennan boltaleik hefi ég ekki áður
séð leikinn á Siglufirði. En það var mikil spenna og hávaði í krökkunum
á "tjaldsvæðinu" sunnan við Torgið seinnipartinn í gær er ég átti þar
leið um.
Krakkarnir virtust njóta þess vel í logninu og blíðunni að leika sér
úti. Minnti mann óneitanlega á það sem við kölluðum "slá bolta",
en þar ríktu að vísu öðruvísi reglur en við höfðum gaman af.
 |
|
_small.JPG) Föstudagur
22. apríl 2005
Góð auglýsing fyrir Ljósmyndasafn Steingríms og Lífið á Sigló er á
síðu bátsins Júlía SI 62 sem þarna sést koma úr róðri í gær. |
Föstudagur
22. apríl 2005 066. Tómt
klúður /
Ein af mörgum frábærum, smelltu
HÉR -
Auglýsing í glugga
myndbandaleigu:“Grófu barnamyndirnar komnar.” |
|
Föstudagur
22. apríl 2005 Annar ágætur
bloggari, en aðeins orðljótari, en kann að segja frá. Smelltu
HÉR |
Föstudagur
22. apríl 2005 Ein gömul:
Saltað á Hafnarbryggjunni sumarið 1968 |
|
|
Föstudagur
22. apríl 2005
Sigþóra Gústafsdóttir
er 52ja ára í dag |
|
Fimmtudagur 21. apríl 2005
Aðsent: Með rörtangirnar á lofti. Norðurlandakeppnin í
pípulögnum verður haldin núna um helgina 21 -24 apríl 2005 í Perlunni.
Fyrir Íslands hönd keppir Tómas I. Helgason. Kærasta Tómasar er
Ragnheiður Birna Guðnadóttir, dóttir Guðna Sveins og Helgu í Versló.
Þannig að það má segja að Siglfirðingar eigi sinn mann í keppninni.
Nánari umfjöllun um keppnina er í fréttablaðinu í dag, á bls 20. og á
síðunni www.pip.is
en þar má einnig sjá beina útsendingu af
keppninni. Þeir sem eru staddir á höfuðborgarsvæðinu og hafa gaman af
pípum og rörtöngum, skora ég eindregið á að kíkja í Perluna og styðja
okkar mann og þjóð. Guðmundur Gauti Sveinsson
www.blog.central.is/gauti |
|
Fimmtudagur 21. apríl 2005
Einn af vorboðunum: Þetta er ein af fjölmörgum flugum sem verið
hafa að angra mig, raunar hræða mig því ég er lítt hrifinn af flugum í
þessum stærðarflokki en þessar eru MJÖG stórar (á þriðja sm) og
minna mig á flugur og kvikindi sem ég hefi kynnst í hitabeltislöndum,
Afríku og víðar.
Þessi er að vísu steindauð af völdum flugnaeiturs, sem og margar fleiri
ásamt þessum venjulegu húsflugum. Hvort þetta er býfluga eða eitthvað
annað verra veit ég ekki, en þetta er mjög óvenjulegt á mínu heimasvæði. |
|
Fimmtudagur 21. apríl 2005
Suðurverk, verktakar við snjóflóðavarnargarðana eru komnir á
staðinn til að undirbúa framkvæmdir að nýju, sem legið hafa niðri í
vetur.
Myndin sýnir 2 af bílum þeirra á vinnusvæðinu, tilbúna til átaka. |
_small.JPG) |
Fimmtudagur 21. apríl 2005
Veðrið í hádeginu
Hiti 13 °C
Norðaustan andvari
Sólskin |
10:30
Hlíðarvegur 32 |
|
|
Fimmtudagur
21. apríl 2005 Lífið á Sigló
óskar öllum lesendum sínum gleðilegs sumars. ---
Við hér norður á nafla alheimsins, Siglufirði; ætlum að hafa hlýtt og
gott veður í allt sumar.
Ljósmynd: Sveinn Þorsteinsson |
|
Fimmtudagur
21. apríl 2005 Vorblíðan sem verið hefur síðustu daga hér
á Siglufirði hefur óspart verið notuð til vorverka, tiltekt á
lóðum og jarðvegurinn undirbúinn fyrir sumarið og fleira. Svipuð sjón og
á myndinni sést, blasti við mér nokkrum sinnum á ferð minni um bæinn í
gær, þar sem konurnar voru að ditta að rósabeðum sínum.
|
Fimmtudagur
21. apríl 2005
Þessa mynd sendi Hrönn Einars mér, en hún tók myndina í gærkveldi
er sólin var horfin ern geislar hennar léku um ský á himni. |
Fimmtudagur
21. apríl 2005 Ein gömul:
Eggert Theódórsson og Sigurjón Sigtryggsson. |
Fimmtudagur
21. apríl 2005
Daníel Pétur Daníelsson
er 27 ára í dag |
Fimmtudagur 21. apríl 2005
Haukur Jónsson
er 23 ára
í dag
Kveðja frá
strákunum í Primex
|
|
Miðvikudagur
20. apríl 2005
Samstarfsverkefni Kvenfélagasambands Íslands og Barnahjálpar
Sameinuðu þjóðanna, Unicef á Íslandi teygir anga sína einnig til
Siglufjarðar þar sem Kvenfélagskonur úr Kvenfélaginu Von taka höndum
saman um verkefnið.
Verkefnið sem ber yfirskriftina "Ef þú menntar stúlkur, menntar þú
einnig samfélag" Þeim kvenfélagskonum finnst verkefnið bæði
spennandi og gefandi, en það felst í því að sauma dúkkur, ekki færri en
10 talsins, sem síðar verður safnað saman, og væntanlega um næstu jól
seldar til ágóða fyrir menntun ungra stúlkna í Gíneu Bissá. Þegar ég
heimsótti konurnar í dag á Vinnustofu Abbýar við Aðalgötu, voru þar
saman komnar; talið frá vinstri á myndinni Anna Snorradóttir, Anna
Jóhanna Jóhannsdóttir , Arnfinna Björnsdóttir og Erla Eymundsdóttir,
ásamt dúkkuhópnum. |
|
Miðvikudagur
20. apríl 2005
Guðmundur Ó Einarsson staðfesti það á dögunum, að hann er ekki
einn af þeim sem hugar að flótta úr bænum. Hann er núna að undirbúa
byggingu á bílskúr, sem verður á "súlum" sunnan við hús þeirra hjóna,
við Hvanneyrarbraut 52 á Siglufirði. |
_small.JPG) |
Miðvikudagur 20. apríl 2005
Veðrið í hádeginu
Hiti 14 °C
Norðan andvari
Sólskin
|
11:45
Hlíðarvegur 30 |
|
|
Miðvikudagur 20. apríl 2005
Fróðleiksmoli: Hvernig dregið er gat á rör ……. þarna er
verið að draga 154mm gat út úr 204mm röri.
Í áratugi þá var SR-Vélaverkstæði á Siglufirði, eini staðurinn á
Íslandi sem gat unnið svona verk, það er "drillað" eins og það er oftast
kallað mismunandi stór göt með sérstakri vél á flestar tegundir röra
allt upp í 406 mm. Ef þú smellir á
finnur "SR-Drill" þá sérðu búnaðinn að verki
obe@srv.is
|
|
Miðvikudagur
20. apríl 2005 " Er ´ann ekki hættur að snjóa ? "
Nú er tími til kominn að skipta um dekk, það er ekki nokkurt vit í
að vera að slíta vetrardekkjunum lengur. Eða hvað ?
svennith@simnet.is |
|
Miðvikudagur
20. apríl 2005 Ein gömul: Þeir eru varla að
ræða um pólitík þessir pólitísku andstæðinga en vinir, þeir Bjarni
Jóhannsson forstjóri ÁTVR á Siglufirði (framsóknarmaður) og
Hlöðver Sigurðsson skólastjóri (alþýðubandalagsmaður.) En myndin er
tekin þar sem þeir voru staddir sem áheyrendur (í hléi) á
lúðrasveitarmóti á "skólabalanum" framan við Barnaskólann árið 1968 |
Miðvikudagur
20. apríl 2005
Kristján Bjarnason
er 53ja ára í dag |
Miðvikudagur
20. apríl 2005
Kristján Hauksson
er 55 ára í dag
Við sendum honum kveðjur að norðan. |
|
_small.JPG) _small.JPG) Þriðjudagur
19. apríl 2005 Er vorið komið?
Það mætti halda það miðað við hitastigið, í hádeginu var 16 °C en
klukkan rétt fyrir 14:00 var hitinn kominn upp í 18 °C bæði minn mælir
og á Sparisjóðnum. Myndirnar sýna Sparisjóðinn, trillukarla í rökræðum
og unglinga slappa af framan við Bensínstöðina. Tímabil 13:45 - 14:00 í
dag |
|
Þriðjudagur
19. apríl 2005 Hellan er komin út, með
margbreytilegu efni að vanda:Viðtal við Stúlla - Siglfirðingar
mánaðarins - Opna frá nemendum -Ferðasaga úr Dölum - Fréttir úr bænum og
fleira. svo eitthvað sé nefnt |
_small.JPG) |
Þriðjudagur
19. apríl 2005
Veðrið í hádeginu
Hiti 16 °C
Austan andvari
Sólskin |
11:30 |
|
|
Þriðjudagur 19. apríl 2005
Kæru
Leikfimistjörnur –
þakkir fyrir föstudagskvöldið!! Því miður fellur niður tíminn í
dag þriðjudag, sjáumst seinna! Kv
Hanna Hrefna |
|
Þriðjudagur
19. apríl 2005 " VORBOÐAR " Í dag kom til að skoða
Síldarminjasafnið; Philippe Patay Petursson, (lengst t.v.á meðfylgjandi
mynd) en hann rekur ferðaskrifstofuna "Fjallabak"
ásamt eiginkonu sinni Sigríði Arnardóttur. Sigríður er dóttir Arnars
Herbertssonar listmálara og Kristjönu Aðalsteinsdóttur (systur Eysteins
í Fiskbúðinni). Í för með Filip voru franskir starfsmenn hans og
ferðamenn. svennith@simnet.is |
|
Þriðjudagur
19. apríl 2005 Aðsent: ---
Gísli Súrsson og Stolnar stundir
Síðasta vetrardag, miðvikudaginn 20. apríl nk kl. 20.00, ætla bræðurnir
Þórarinn og Elfar Logi Hannessynir að vera með uppákomu í Möguleikhúsinu
við Hlemm. Þar mun Elfar Logi sýna einleik sinn um Gísla Súrsson, í
leikstjórn.................. Lestu meira
HÉR |
Þriðjudagur
19. apríl 2005 Ein gömul:
Grána, myndin er tekin einhvern tíma á árunum 1934 -1940
Ljósmynd: Ólafur Thorarensen, filman fengin hjá Ragnari Thorarensen
(yngri) |
|
Þriðjudagur
19. apríl 2005 Nýr Siglfirðingur fæddist á
Landspítalanum 14 . apríl síðastliðinn stúlkubarn. - Foreldrar
Jóhann Örn og Fanney |
Þriðjudagur
19. apríl 2005
Bára Stefánsdóttir
er 85 ára í dag |
Þriðjudagur 19. apríl 2005
Beinta Jakobsdóttir
er 25 ára í dag |
|
_small.JPG) |
Mánudagur 18. apríl 2005
Veðrið í hádeginu
Hiti 7 °C
Norðan 5-6 m/s
Úrkomulaust |
10:45 |
|
|
_small1.JPG) Mánudagur
18. apríl 2005 Aðsent:
Nú er báturinn hjá mér búinn í þeim breytingum sem ég lét gera fyrir
mig. Mig langar til að biðja þig að koma þessu á framfæri fyrir mig. Ég
er yfir mig ánægður með hvernig til tókst hjá JE-Vélaverkstæði,
ekki bara hvað viðkemur breytingunni sjálfri, heldur hvernig staðið var
að verki. Ég fékk 4 tilboð, og að vel athuguðu máli tók ég tilboði frá
JE, og sé ekki eftir því.
Í tilboði Guðna Sigtryggssonar og félaga hjá JE, var út frá því gengið að verkið tæki 3 vikur,
en hver varð raunin, Júlía SI var sjósett að nýju á 14.vinnudegi.
Afgreiðslan hjá þessum mönnum sem vinna hjá JE er til fyrirmyndar og er
leitun að öðru eins. Allur frágangur til þvílíkrar fyrirmyndar að ég
hreinlega trúi ekki að hægt sé að toppa þetta. Svo ég taki nú bara eitt
dæmi þá hef látið gera hitt og þetta fyrir mig síðan ég byrjaði í
útgerð, en aldrei áður hef ég orðið vitni að því að menn koma með heitt
vatn og sápu og þrífa eftir sig, aldrei,hvað þá að forstjórinn sjálfur
skuli láta sjá sig vera að bograst með ryksugu til að þrífa eftir
sjálfan sig í stýrishúsinu. Og svo annað, þegar báturinn hafði verið
sjósettur, var farið í prufukeyrslu, þar á eftir skilaði ég mönnunum frá
JE að bryggju. Um hálftíma seinna kom Sverrir Júll og spurði hvort ekki
væri allt í lagi, ég sagði ekki svo vera, eitthvað virkaði ekki í
tækjunum í stýrishúsinu sem skildi. Hvað?, var svarið, við finnum þetta
og reddum þessu. Ég tek fram að venjulegum vinnutíma Sverris var lokið.
Á endanum komst allt í lag. Hvar annars staðar, mér er spurn, fengi
maður svona þjónustu. Enn og aftur þakka ég Guðna og hans mönnum fyrir
frábæra afgreiðslu á þessu dæmi. Megi þetta fyrirtæki lengi lifa.
Gullhamrar??? Allt í lagi, en mér ber skylda til þess, sem
viðskiptavinar þessa fyrirtækis. Þeir sem gera vel á að hampa, ekki
flóknara en það. Kærar þakkir enn og aftur. Reynir Karlsson. |
Mánudagur
18. apríl 2005 Aðsent: Tekið
í róðri á Júlíu SI 62 2319
RK
|
|
Mánudagur
18. apríl 2005 Ein gömul: Nýja Bíó Siglufirði
eftir brunann árið 1936.
Ljósmynd: Ólafur Thorarensen, - filman fengin hjá Ragnari Thorarensen
(yngri)
Frásögn af atburði
HÉR
|
Sunnudagur
17. apríl 2005
Aðalheiður Rögnvaldsdóttir
er 79 ára í dag |
|
Sunnudagur
17. apríl 2005 Félagar eldri borgara á Siglufirði og í
Fljótum, um fjörutíu talsins, héldu áleiðis í morgun í 6 daga ferð til
dvalar á Hótel Örk og til skoðunarferða þar í nágrenni. |
_small.JPG) |
Sunnudagur
17. apríl 2005
Veðrið í hádeginu
Hiti 7 °C
Norðan Kul
Sólarglæta |
11:15 |
|
|
Sunnudagur
17. apríl 2005 Safnverðir. Tíu
Akurnesingar eru í heimsókn hér um helgina. Þetta er átta manna stjórn
Byggðasafns Akraness í Görðum og tveir starfsmenn og eru þeir hér í
nokkurs konar pílagrímsför til að kynnast því hvernig við Siglfirðingar
höfum byggt upp safnið okkar og hvernig við varðveitum skip og báta inni
í húsi. Eins og alkunna er þá eiga þeir Akurnesingar marga báta í safni
sínu og er gamli kútterinn Sigurfari þeirra þekktastur, illa farinn af
fúa þar sem hann stendur óvarinn fyrir veðri og vindum. Jón Allansson
safnstjóri er fararstjóri í þessum leiðangri en hann var hér gestur við
vígslu Bátahússins sl sumar. ö.
En þarna
er hópurinn ásamt safnverði okkar; Örlygi Kristfinnssyni. |
|
Sunnudagur
17. apríl 2005 All þokkalegur afli hefur fengist í
hrognkelsanetin, bæði af hrognkelsi og vænum þorski, á bátana sem gerðir
eru út frá Siglufirði. Á þessi mynd sést Minna BA 322 2280 koma inn í
gærdag, vel lestuð. |
|
Sunnudagur
17. apríl 2005 Sædís SI 19 2419 er hér að losa í gær
þokkalegan afla af vænum þorski og slatta af hrognum. |
|
Sunnudagur
17. apríl 2005 Tynes húsið, Kratahöllin eða "Græna húsið"
eins og sumir eru farnir að kalla það. Var selt á dögunum, kaupandinn
var Bergþór Mortens listmálari og unnusta hans Elín Aðalsteinsdóttir
hjúkrunarfræðingur. Ég leit þar inn í gær, þar dundu við hamarshögg og
fleiri hlóð sem tengjast niðurrifi. Það var ekki laust við að mér brygði
er inn var komið, því húsið flott og fínt að utan, en allt í hassi
innandyra. Þar var ekki ein fjöl eða veggur sem hægt er að nota, þau
þurfa að innrétta húsið allt frá grunni, veggi gólf og loft. Greinilegt
er að þau eiga mikið verk fyrir höndum, en þau ætla að byrja á að gera
upp efri hæðina, þar sem þau ætla að búa um sig og hefja síðan
allsherjar byltingu í húsinu, með vinnustofu og fleira á neðri hæðinni.
Gangi ykkur allt í haginn (Bergþór er barnabarn Hauks Mortens og
Ragnheiðar) |
|
Sunnudagur 17. apríl 2005
Valdar glefsur frá lesendum, (sent til mín í pósti) vegna umræðunnar um
Héðinsfjarðargöng. Smelltu.
|

Sunnudagur
17. apríl 2005 Margir hafa spurt mig hver þessi
Eiríkur sé, sem er á vörum svo margra í umræðunni manna á milli. Ég var
raunar einnig forvitinn, og tók að leita á netinu með "Goole". Það er
greinilegt að þessi maður hefur komið víða við, og virðist alls ekki
líklegur til að vera eins orðljótur og raun ber vitni hvað
Héðinsfjarðargöng varðar. Ég sótti stutta lýsingu á netið, eina af
mörgum. Hann virðist alls ekki vera alvondur, þó svo að mörgum kunni að
hafa grunað það, auk þess sýnist mér maðurinn vera bráðmyndarlegur og
vinalegur.
Hér kemur tilvitnun af vefnum
www.skerplu.is: "Veiðimaður og
ritstjóri Eiríkur St Eiríksson, höfundur bókarinnar Stangarveiði, er að
góðu kunnur fyrir ritstörf sín um stangaveiði. Hann er fyrrverandi
ritstjóri Veiðimannsins, tímarits Stangaveiðifélags Reykjavíkur. Hann
hefur áður skrifað bækurnar Helnauð (1993), Áin mín (1998) og Á
Íslandsmiðum árið um kring (2001). Hann er vitaskuld mikill áhugamaður
um stangaveiði. Eiríkur hefur verið blaðamaður frá árinu 1978, lengst af
við Fiskifréttir eða í tæp 16 ár. Frá því í byrjun september 2000 hefur
hann unnið brautryðjendastarf í fréttamiðlun um sjávarútveg á netinu, nú
á Skipum.is sjávarútvegsvef Fiskifrétta." -
Og svo rúsínan í pylsuendanaum við, ég og hann erum óbeinir
vinnufélagar, þó hvorugur þekki hinn, (!) - það er við blaðið
Fiskifréttir. |
Sunnudagur
17. apríl 2005 Ein gömul: Um borð í Haferninum 1968
Jónas Björnsson messi, Björg Friðriksdóttir (smyrjara) -Guðný
Friðriksdóttir (timburmanns) Dómhildur S Glassford (stýrimanns) og Víóla
Pálsdóttir (?) |