|
Laugardagur 7. maí 2005
Ég er kominn heim - aðeins fyrr en ég ætlaði. Hér fyrir
neðan er efni sem beið komu minnar. |
Laugardagur
7. maí 2005
Magnús Traustason
hann er 51 árs í dag |
Laugardagur
7. maí 2005
Ljósbrá Anna Óskarsdóttir.
er 6 ára í dag
|
|
|
|
Föstudagur
6. maí 2005 Nú á næstunni verður gamla Herhúsið í nýjum
búningi vígt sem gestavinnustaður fyrir listamenn. Ætlunin er að hafa
þar svolitla frásögn um hjálpræðishersstarfið í 65 ár. Stjórn
Herhúsfélagsins auglýsir eftir gömlum ljósmyndum sem tengjast þessari
sögu. Þeir sem kunna að eiga myndir og vilja lána þær eða gefa Herhúsinu
eru vinsamlega beðnir að snúa sér til formanns félagsins Brynju
Baldursdóttur í síma 8676928
brynjabald@simnet.is eða Örlyg í síma 8631605
infosiglo@simnet.is.
Meðfylgjandi ljósmyndin sýnir Birgi Ingimarsson trésmið að störfum við
Herhúsið fyrir tveimur árum. Birgir er starfsmaður Ólafs H. Kárasonar
byggingameistara sem hefur annast viðgerð hússins. |
Föstudagur
6. maí 2005
Tekið í dag
hronneinars@simnet.is |
|
|
|
Fimmtudagur
5. maí 2005 Starfslið Heilbrigðisstofnunarinnar á Siglufirði.
Búið var að biðja mig (SK) að taka þessa mynd, en þar sem ég var
fjarverandi þá lenti það á séra Sigurði Ægisyni Ég hafði hugsað
mér að birta einnig nöfnin viðkomandi, en væntanlega koma nöfnin síðar. |
|
|
|
Fimmtudagur
5. maí 2005 Nú eru alls fimm álftir á Siglufirði, þrjár á
Langeyrartjörninni og tvær á grasvellinum við Hól. Myndin er af annarri
þar, tekin í dag. Kveðja. SÆ |
|
  Fimmtudagur
5. maí 2005 Dagur aldraða var í dag, - Ég skellti mér í
kirkju og tók þessar myndir en ekki voru margir sem mættur. Styðjum
aldraða og mætum í kirkju framvegis. Hrönn.
hronneinars@simnet.is |
|
|
|
Miðvikudagur 4. maí 2005
Smá frí Ég fer í smáfrí í dag, kem til baka
væntanlega, næstkomandi sunnudag (mánudag)- Síða mín verður því ekki
uppfærð á þeim tíma. En það efni sem kann að berast á meðan ég er
fjarverandi, verður sett inn þegar ég kem úr fríinu. |
|
Miðvikudagur
4. maí 2005 Hin vinsæla söngskemmtun "Allt frá óperu
til Idols", verður endurtekin enn einu sinni vegna fjölda áskoranna
föstudaginn 13. maí í Allanum sportbar. |
|
Miðvikudagur
4. maí 2005 Ekki veit ég hver tilgangur "húsbíla manna"
er, en ég fékk ábendingu um könnun sem fram fer á vef þeirra
www.husbilar.is - um
viðhorf landsmanna vegna Héðinsfjarðarganga. En svona til skoðunar þá
nefni ég þetta hér til fróðleiks. |
|
Miðvikudagur
4. maí 2005 Ein gömul:
Dekkliðið á Haferninum, á leið til Hollands í desembermánuði 1968.
Talið frá vinstri ofanfrá: Sigurður Jónsson háseti - Steingrímur
Kristinsson timburmaður - Gunnar Tómasson háseti - Sigurjón Kjartansson
háseti - Birgir Þórbjarnarson stýrimaður - Ægir Björnsson bátsmaður og
Guðmundur Björnsson dælumaður. |
Miðvikudagur
4. maí 2005
Guðni Sigtryggsson
er 43ja ára í dag |
Miðvikudagur
4. maí 2005
Haraldur Árnason
er 83ja ára í dag |
_small.JPG) |
Þriðjudagur 3. maí 2005
Veðrið í hádeginu
Hiti 6 °C
Sunnan 4-5 m/s
Sólskin |
10:25
Hvanneyrarbraut 45
Hvanneyri |
|
|
Þriðjudagur 3. maí 2005
Þær virðast vera ástfangnar þessar Turtildúfur, sem Sveinn Þorsteinsson
náði á myndavélina sína klukkan 16:52 í gær, á flötinni framan við
Síldarminjasafnið, þar sem þær halda oftast til, í leit að fæðu, annað
hvort frá Hafsteini, starfsmönnum safnsins og fleirum sem rétta að þeim
mola.
svennith@simnet.is |
Þriðjudagur
3. maí 2005 Ein gömul:
Góðir áheyrendur: Gusti guðsmaður og nokkrir Bakkaguttar |
Þriðjudagur
3. maí 2005
Hrönn Einarsdóttir
er 41 árs í dag |
Þriðjudagur 3. maí 2005 |
_small.JPG) |
Mánudagur 2. maí 2005
Veðrið í hádeginu
Hiti 6 °C
Sunna 4-6 m/s
Úrkomulaust |
10:30
Hvanneyrarbraut 37-39
Sjúkrahúsið |
|
|
Mánudagur
2. maí 2005 --- 1. maí í Bátahúsi
Síldarminjasafnsins. Hátíðisdagur verkalýðsins var haldinn að þessu
sinni í Bátahúsinu í gær. Þar var komið saman talsvert fjölmenni, þar
sem fram fór fjölbreyttri dagskrá, auk hinnar hefðbundnu hátíðarræðu sem
Signý Jóhannsdóttir hélt. Ég var á vettvangi tog tók nokkrar myndir sem
þú sérð með því að smella á
VAKA |
|
_small.jpg) Mánudagur
2. maí 2005 Tvær gamlar:
Sölvahúsið, löngu horfið og Hólakot sem stendur enn, fjær á
myndinni til vinstri, þar í bak lýsistankar SR, sem einnig eru horfnir.
Og Bátahöfnin á myndinni til hægri.
Báðar myndirnar eru teknar árið 1968 |
Mánudagur
2. maí 2005
Jón Rögnvaldsson
er 82ja ára í dag |
Mánudagur 2. maí 2005
Fjóla Kristjánsdóttir
er 30 ára í dag
Til hamingju með daginn |
|
Sunnudagur
1. maí 2005 Aðsent: Þessa tvo ferðalanga rak upp á
fjörurnar hér í Osló. Siglfirðingurinn í mér bauð mér að senda ykkur
frétt. Auðvitað voru þessir heiðursmenn að bera hróður Siglufjaðrar til
frænda vorra Norðmanna. Saman fóru þeir með lest til Þrándheims með
viðkomu á Litlahamri. Erindið var að skoða tónlistarsöfn. Gunnsteinn brá
sér síðan til Voss í nágrenni Björgvinjar og flutti Vossingum erindi og
síðan hélt hann til Oslóar og hélt erindi á málþingi á Háskólanum í
Osló. Örlygur hélt aftur á móti til Stafangurs á ráðstefnu og hélt
erindi um síldina og söguna og safnið.
Það er gaman að vita af slíkum fulltrúum Siglufjarðar á ferð.
- Albert Einarsson |
_small.JPG) |
Sunnudagur
1. maí 2005
Veðrið í hádeginu
Hiti 6 °C
Logn
Sólskin |
11:30
Hvanneyrarbraut 74 |
|
|
Sunnudagur
1. maí 2005 Dagur verkalýðsins er í dag.
Verkalýðsfélagið Vaka verður baráttufund í Bátahúsinu í dag þar sem
ýmisar uppákomur verða: Hljóðfæraleikur nemanda Tónskólans - Trúbador
söngur Þórarins - Karlakórinn ofl. auk hefðbundinnar dagskrár, og gestum
verður boðið upp á kaffi og meðlæti í tilefni dagsins.
Meðfylgjandi ljósmynd sýnir síldarstúlkur á söltunarstöð Kristins
Halldórssonar (?) hér áður fyrr:
Ókunnur ljósmyndari.
Til hamingju með daginn. |
|
Sunnudagur
1. maí 2005 Vorsýning Grunnskóla Siglufjarðar á ýmsum
verkum nemanda var í gær - og smellirðu á
Vorsýning Gru.. þá sérðu sýnishorn af því sem krakkarnir hafa
verið að gera í vetur, allt frá teikningum saumaskap, smíði, og til
rafeindatækja. |
|
Sunnudagur
1. maí 2005 Karlakórinn Jökull Hornafirði, hélt tónleika í
Siglufjarðarkirkju í gær klukkan 17:00 -- þá heimsóttu kórfélagar og
fylgdarlið Síldarminja safnið í hádeginu á gær eins og sagt var fá hér í
gær, laugardag.
Þar tók ég myndir sem þú sérð hér í
Karlakórinn Jökull -- En myndin hér til hliðar sýnir kórinn í
Siglufjarðarkirkju í gær. Einnig tóku þeir lagið saman Karlakórinn
Jökull og félagar úr Karlakór Siglufjarðar, á tónleikunum. |
|
Sunnudagur
1. maí 2005 Nýtt á síðunni:
einnig verður "sami" tengill efst á síðum dagsins:
Umræðuvettvangur
- Þar geta þeir sem heimsækja "Lífið á
Sigló" tjáð skoðanir sínar, annað hvort á því sem efst er á baugi á
hverjum tíma eða öðru sem þeim liggur á hjarta...., þeim
málum sem tengjast okkur Siglfirðingum beint eða óbeint. |
|
Sunnudagur
1. maí 2005
Tilgangurinn er
HÓPMYNDATÖKUR til birtingar á síðum “Lífið á
Sigló” - þetta væri viðkomandi............... Lesið
meira; neðst á síðunni:
 |
|
 Sunnudagur
1. maí 2005 Tvær gamlar: Sundlaugin Siglufirði, mér
er sagt að þetta muni vera Helena Guðlaugs sem er á svifinu á mynd til
vinstri, en það gæti þó verið Regína systir hennar(?)
Hin myndin er eldri (1935 ?), og er af systrunum Rannveigu Sveinsdóttur
og Sigurlaugu Sveinsdóttir (Sillu) , en bakgrunnurinn er
kunnuglegur, þar sem núverandi hús Kidda G. er í smíðum. |
| Sunnudagur 1. maí 2005 |