Lífið í maí 1-7 2005 | Lífið í maí 8-14 2005 | Lífið í maí 15-31 2005

>>>>>>>>>>> Lífið í maí 15-31 2005

 

Til forsíðu
Til baka




Ljósmyndasafn Steingríms
á netinu.

Steingrímur Kristinsson Siglufirði
G-892-1569
S-467-1569

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Siglfirski fréttavefurinn  Lífið á Sigló- s. 892-1569 - h.s:467-1569
GagnagrunnurMynda-albúmMyndamöppurÁ döfinniTenglarAð gefnu...
Umræðan

Þriðjudagur 31. maí 2005 Smábátarnir sem gerðir eru út nú á sumarvertíð, línu og færabátar hefur verið að fjölgað upp á síðkastið, enda drjúgur aflinn - og stundum svo, að komið hefur fyrir að bátarnir hafi ekki borið allan aflann í einn ferð frá einni lögn, og þurft að fara tvær ferðir til að klára að draga línuna. Aukning flotans sem gerður er héðan út stafar aðallega frá aðkomumönnum sem frétt hafa af aflasældinni og fá þá gjarnan senda línubalana annarsstaðar frá með flutningabílum. Þá hefur það borið við að um hreina löndunarbið sé að ræða, þar sem aðeins eru tvö löndunartæki fyrir bátana. En þetta eru rólegir drengir og þolinmóðir.

Þriðjudagur 31. maí 2005
Veðrið í hádeginu
Hiti 11 °C
Norðan gola
Sólskin

10:10
Hólavegur 21

Þriðjudagur 31. maí 2005  Aðsent: Ég vildi bara vekja athygli á að Íris Gunnarsdóttir var að gefa út geisladisk með nokkrum af hennar bestu lögum. Diskurinn var tekinn upp í febrúar með aðstoð Helga Sv. Helgasonar og Davíðs Þórs Jónssonar auk þess sem Bogomil Font syngur með Írisi í einu lagi. Fjöldi annarra tónlistarmanna lagði hönd á plóginn við gerð disksins með Írisi.  Endilega kíkið inn á heimasíðuna: www.irisgunnars.com  þar sem hægt er að heyra brot úr lögunum, skoða texta, myndir o.fl.    --  S.H.

Þriðjudagur 31. maí 2005  Nýjar Heimasíður Siglfirðinga:
Strandir.is (Ester Sigfúsdóttir og maki)  og Íris Gunnarsdóttir  + á Tenglar

Þriðjudagur 31. maí 2005  Golfkennsla 4. júní.  --
Gunnlaugur Erlendsson, golfkennari verður með kennslu á Hóli, Siglufirði laugardaginn 4. júní næstkomandi. 
   Lestu meira HÉR

Þriðjudagur 31. maí 2005
Hallfríður J Hallsdóttir
er 44 ára í dag
Þriðjudagur 31. maí 2005
Þriðjudagur 31. maí 2005 Ein gömul:
Löndunarbið hjá SR -- einhvern tíma fyrir 1940
Mánudagur 30. maí 2005  Haldið í róður, myndin er tekin eftir hádegið í dag

svennith@simnet.is

Mánudagur 30. maí 2005 VEÐURÁHUGAMENN og aðrir lesendur HJÁLP -- 
Ég verð að játa að ég er ekki einn í þeim hópi sem spái mikið í veðrið eða hlusta og horfi á veðurfregnir og spár. En eins og allir sem heimsækja þessar síður mína vita, þá eru þar daglegar fréttir og ljósmyndir sem tengjast veðrinu eins og það er í hádeginu á Siglufirði hverju sinni. Þessi þáttur var í upphafi settur á síðuna eftir ósk brottfluttra Siglfirðinga, sem flestir hafa svo sterkar taugar til Siglufjarðar, að þeir fylgjast með ástandinu heima og þar með veðrinu. Síðan bættist við mynd af einhverju húsi, sem venjulega var tekin fyrir hádegið og sett við hlið “veðurmyndarinnar”    -- VINSAMLEGA Smelltu HÉR til að lesa meira

Mánudagur 30. maí 2005
Veðrið í hádeginu

Hiti 14 °C
Norðan gola
Sólskin

11:55
"tveir af þremur "verkamanna -bústöðum"
við Hvanneyrarbraut

Mánudagur 30. maí 2005 Árgangur 1945 héldu hér á Siglufirði nú um helgina árgangsmót, þar komu saman 74 fyrrverandi skólasystkini og makar þeirra.

Skoðið Myndamöppur 1945  --- og árgangurinn; takið við skilaboðum.

Mánudagur 30. maí 2005 Nýútskrifaður stúdent 28. maí:
Ágúst Már Kristinsson, sonur Kristins Steingrímssonar og Elínborgar Ágústsóttur.  -- Hjörtur Halldórsson skólabróðir hans og vinur, er til hægri á myndinni. Þeir  útskrifuðust sama dag úr Verslunarskólanum. Ágúst Már hyggur á nám í arkitektúr á Ítalíu á næsta ári, en Hjörtur í lögfræðinám hér heima.
(Ágúst Már er sonarsonur minn, SK)

Mánudagur 30. maí 2005 Nýútskrifaður stúdent 27. maí: Stefán B Stefánsson og móðir hans Hulda Guðbjörg Kristinsdóttir.  (Hulda er systir mín, SK)
Stefán hyggur á nám í sálfræði, fyrst hér heima og síðan í Bandaríkjunum.

Mánudagur 30. maí 2005 Ég fékk þessar tvær sendar frá Hrönn Einars: Önnur af borgarísjakanum á Eyjafirði og hin frá Miklavatni.
Hrönn er komin með nýja myndavél - eins og sjá má á góðum myndum.

Mánudagur 30. maí 2005
Kristín Ottesen
er 44 ára í dag
 
Mánudagur 30. maí 2005 Ein gömul: 

Hjónin Magnús Ásmundsson bifreiðastjóri og Guðrún Sigurhjartardóttir
Sunnudagur 29. maí 2005
Hersteinn Karlsson
hann er 57 ára í dag
Sunnudagur 29. maí 2005

Sunnudagur 29. maí 2005 Æðarbóndinn blessar búbótina ! Var textinn sem fylgdi þessari mynd af Örlygi Kristfinnssyni þar sem hann er á varpsvæðinu skammt frá sumarbústað sínum í dag.

svennith@simnet.is

Sunnudagur 29. maí 2005
Veðrið í hádeginu

Hiti 7 °C
Norðan kul
Sólskin

Hvanneyrarbraut


svennith@simnet.is

Laugardagur 28. maí 2005 Slökkviliðsæfing. Þeir notuðu veðurblíðuna í dag, slökkviliðsmennirnir á Sigló og fóru yfir tækjabúnaðinn og skipulagningu.

svennith@simnet.is

Laugardagur 28. maí 2005
Veðrið í hádeginu
Hiti 12 °C
Sunnan andvari
Sólskin

Suðurgata 84


svennith@simnet.is
Laugardagur 28. maí 2005
Ása Sverris
er 26 ára í dag
Laugardagur 28. maí 2005

Föstudagur 27. maí 2005  Verið að byggja sólpall hjá bræðrunum Valtý Sigurðssyni og Jóhanni Sigurðssyni.
Ólafur Kárason og hans menn vinna þarna hörðum höndum.
Suðurgata 80            svennith@simnet.is

Föstudagur 27. maí 2005  Skarphéðinn Guðmundsson  stendur í stórræðum, hann er nú að innrétta húsbíl, sem hann ætlar sér að ferðast á í sumar.   svennith@simnet.is

Föstudagur 27. maí 2005
Veðrið í hádeginu
Hiti 8 °C
Norðan kul
Sólskin

Suðurgata 82


svennith@simnet.is
Föstudagur 27. maí 2005
Unnur Guðrún Rögnvaldsdóttir
er 26.ára í dag.
(Valda Gosa og Auðar)
Föstudagur 27. maí 2005

Föstudagur 27. maí 2005 Enn eina ferðina enn. Nú þarf ég að skreppa suður vegna útskrifta tveggja menntaskólanema, á föstudag sonur Huldu systir, Stefán B Stefánsson (til vinstri) og sonarsonur minn Ágúst Már Kristinsson (til hægri) á laugardag. -- Það er nokkuð öruggt að ég fer ekki fleiri ferðir úr bænum í maímánuði. (ha, ha.)
Síða mín verður ekki uppfærð aftur fyrr en á mánudag 30. maí.

Föstudagur 27. maí 2005 Frá Skíðafélaginu: Ég var beðinn að benda á fréttasíðu Skíðafélagsins; nýjar fréttir. Smelltu HÉR

Föstudagur 27. maí 2005
Hún er ekki bangin þessi kolla, sem þarna situr á eggjum sínum við vegarkantinn á Langeyrarvegi. En Óskar Berg Elefsen sendi mér þessar myndir sem hann tók klukkan 19:00 í gærkveldi. Kollan var mjög spök. Vonandi fær fuglinn að koma sínum ungum á sporð í friði. Og einhverjir setji upp skilti við enda vegarins til að vara við ungum á ferð, áður en mjög langt um líður.

Föstudagur 27. maí 2005 Nýfæddur Siglfirðingur.  Þessi stúlka fæddist á sjúkrahúsinu á Akureyri þann 02.05.2005 - Foreldrar hennar eru þau Jóhanna Unnur Haraldsdóttir (dóttir Lóu og Halla Björns) og Arnar Ingi Jónsson  --  Stúlkan vó 3180gr og var 50cm

Föstudagur 27. maí 2005 Ein gömul: 
Hraðfrystihúsið Ísafold og nágrenni 19??

Föstudagur 27. maí 2005
Hermann Jónasson
er 48 ár í dag
Föstudagur 27. maí 2005
Hrafnhildur Jóna Hjartardóttir
er 10 ára í dag

Fimmtudagur 26. maí 2005 
Ég fékk nokkrar
skemmtilegar myndir sendar frá kennurum leikskólans Leikskálar sem þú sérð ef þú smellir á Myndamöppur Sveitaferð

Fimmtudagur 26. maí 2005
Veðrið í hádeginu
Hiti 11 °C
Norðan andvari
Sólskin

11:50
Túngata 30
Fimmtudagur 26. maí 2005
Kristín M.H. Karlsdóttir
er 35 ára í dag
Fimmtudagur 26. maí 2005
Sigurður Hrannar Sveinsson
er 12 ára í dag
Fimmtudagur 26. maí 2005
Siglufjarðarkirkja, mynd tekin í gærmorgun frá óvenjulegu sjónarhorni.
(f/10 - 1/500 sek 480 mm.
Fimmtudagur 26. maí 2005 Ein gömul: 
Netamenn á bryggju SR, einhvern tíma fyrir 1940

Ljósmynd: Kristfinnur Guðjónsson

Miðvikudagur 25. maí 2005 Andlitslyfting. Gústi og Hjalli hafa að undanförnu verið að vinna við endurbætur og klæðningu á Suðurgötu 30 - húsi þeirra Baldvins og Ingu sem flestir Siglfirðingar þekkja orðið, sum betur en aðrir eins og gengur. Myndin var tekin í morgun klukkan 11:32 SÞ
sveinnth@simnet.is

Miðvikudagur 25. maí 2005 Snjóflóðavarnargarðar & útivistarsvæði. Ég fékk mér göngutúr á vinnusvæðið í morgun til að skoða verkið og aðstæður, ekki síst vegna þess að mér hefur sýnst neðan frá götu séð, að verkinu hafi mjög vel. Það var alls ekki nein missýn, sem sást þegar á vettvang var komið. Skoðið myndir hérna >> Myndamöppur

Miðvikudagur 25. maí 2005
Veðrið í hádeginu
Hiti 13 °C
Logn
Sólskin

09:50
Hólavegur 35
Miðvikudagur 25. maí 2005 Ein gömul:  Óskarsstöð og SRN og 30 í bak

Þriðjudagur 24. maí 2005 Verkfundur "undir vegg" Hvaða launráð ætli þessi hópur sé að brugga þarna í skjóli við kindakofann hans Hafsteins Hólm? -
Ég sá þá út um eldhúsgluggann minn þar sem ég sat yfir kaffibollanum mínum klukkan 15:40 í dag, og smellti á þá þessari mynd.
Ekkert hættulegt var þarna á ferð, en þarna voru starfsmenn bæjarins Sigurður Hlöðversson tæknifræðingur bæjarins, Verktakinn Sveinn Ástvaldsson (Bás ehf), landslagsarkitektinn Reynir Vilhjálmsson og fleiri að glugga í teikningar vegna útlits á útivistarsvæðinu þarna norðan við, aðgengi að snjóflóðagörðunum vegna útivistar og fleira.
En svona verkfundir á vettvangi fara fram vikulega vegna áður nefndra framkvæmda.

Þriðjudagur 24. maí 2005
Veðrið í hádeginu
Hiti 4 °C
Norðan andvari
Úrkomulaust

10:10
Túngata 32
Áður íbúðarhús Rósmundar og Maríu, nú "bílskúr"

Þriðjudagur 24. maí 2005 Undanfarnar vikur hefur verið unnið við lagfæringar ,breytingar og viðbætur á golfvelli okkar Siglfirðinga. Verktakafyrirtækið BÁS hefur séð um framkvæmd verksins. Fyllt hefur verið í skurð á brautum 3 og 4 og fyllt í skurð á braut 6 þar sem áður var blár skurður á móts við flötina. Skurðum á milli bauta 1 og 2 hefur verið lokað. Sandglompa við flöt 1 hefur verið stækkuð. Búið er að móta gróflega flötina á braut 2 og verður hún fullmótuð og lagt á hana gras í vikunni. Nú er unnið við að loka skurði við 7 flöt og gerð sandglompu á því svæði ásamt fleiri smá verkum sem of langt mál væri að telja upp. --  Fleiri fréttir síðar. og svo er hér orðsending til FÉLAGSMANNA GOLFKLÚBBSINS: Vinnukvöld hjá Golfklúbbnum nú í vikunni: Þriðjudagur klukkan 19:30 --- Fimmtudag klukkan 19:30 -- Meðal þess sem vinna á við er flötin á 2. - Sandgryfju við 7. flöt, setja saman bekki og flytja á teiga, göngustíg að 4 teig og fleira smátt. - VONAST EFTIR GÓÐRI ÞÁTTTÖKU FÉLAGSMANNA
Vallarstjóri, ---- V. Ingi Hauksson .--  Meðfylgjandi mynd var tekin yfir 7. braut, í hríðarmuggu sem var þarna suðurfrá í morgun klukkan 10:00 - en vinnuvél var þarna að fylla upp í skurð.

Þriðjudagur 24. maí 2005 Unnið er að því nú að endurgera gangstíg sem var raunar áður var bæði "gangstígur" akvegur fyrir vörubíla eins og þeir voru í kring um 1940-1950 En nú á að gera þarna um eins og hálfs metra breiðan gangstíg frá  Suðurgötunni og niður að Snorragötu við Síldarminjasafnið. Á myndunum er Arnar Heimir Jónsson garðyrkjufræðingur bæjarins, - sem því miður fer að yfirgefa okkur, en hann heldur til frekara náms í Svíþjóð áður en langt um líkur.

Þriðjudagur 24. maí 2005  Hjólað í vinnuna Myndamöppur Hjólað-2

Þriðjudagur 24. maí 2005  Ein gömul / löngu horfið:
Ásgeirshús, var þetta stóra lagerhús kallað í "gamla daga" þegar það stóð norðan við  Ránargötu, og var notað til að hýsa allskonar varning, allt frá síldarafurðum, tunnum, salti, ýmsum áhöldum, til heilu svifflugvéla, sem þarna voru einnig geymdar. -- Stóra SR- mjölhúsið "Ákavíti" stendur nú sunnan við Ránargötu, "hinum megin" götunnar

Þriðjudagur 24. maí 2005
Sigurjón Ásgeirsson
er 21 árs í dag.
 
Þriðjudagur 24. maí 2005
Jón Aðalsteinn Hinriksson
er 46 ára í dag
Þriðjudagur 24. maí 2005
Elías Þorvaldsson
er 57 ára í dag

Mánudagur 23. maí 2005 Við erum nú ókunnir hérna. Sagði skipstjórinn á Gísla KÓ 10 1909 Guðmundur Geirdal hæverskur, þegar ég spurði um aflann, sem var 8 tonn, fiskað á línu úr 20 bölum. Mjög góður afli sýnist mér, enda báturinn hlaðinn. Mér er sagt að hann sé "smitaður" Siglfirsku blóði, en hann býr í Kópavogi og er að byrja róðra héðan frá Siglufirði, og afi hans mun vera Gísli Sigurðsson "Grímseyingur" sem eldri Siglfirðingar þekkja vel. Mér var einnig sagt að sá sem með honum sé heiti Sævar.........

Mánudagur 23. maí 2005  Hjólað í vinnuna - Nýjustu fréttir af hópi stafsmanna Sjúkrahússins á Siglufirði: Þeir mættu á réttum tíma í Húsdýragarðinn klukkan 12:00 til að taka við 2. verðlaunum í margræddri keppni "Hjólað í vinnuna" Þau komu raunar um þrjú leitið í Mosfellsbæ, en hópurinn gisti hjá Jóni Sigurbjörnssyni fyrrverandi forstjóra Sjúkrahússins, í nótt. -- Hópurinn lagði svo aftur stað hjólandi frá  Mosfellsbæ upp úr klukkan 10 og mættu sem fyrr segir klukkan 12 í Húsdýragarðinum í Reykjavík.  Á morgun fæ ég svo væntanlega myndasyrpu frá ferðalaginu og birti þær á "Lífið á Sigló"

Mánudagur 23. maí 2005 Álftirnar á hólmanum á Langeyrartjörn. Myndin til vinstri var tekin 11 mái síðast liðinn, er Örlygur Kristfinnsson var að dreifa  heyi á hólmann, í von um að álftirnar settust þar að til varps. Í morgun voru þær komnar (í þriðja eða fjórða sinn ?) á hólmann og létu fara vel um sig, en þó aðallega að virtist í heimsókn og til að bíta gras. Við vonum að þær fari að gera sig heimakomna.

Mánudagur 23. maí 2005
Veðrið í hádeginu
Hiti 6 °C
Norðan andvari
Úrkomulaust

11:30
Túngata 34

Mánudagur 23. maí 2005  Guðmundur Albertsson sendi mér nokkrar myndir frá Kaffifundi Siglfirðingafélagsins í safnaðarheimili Grafarvogskirkju.
Smelltu á tengilin Myndamöppur - Kaffimyndir

Einnig geturðu séð fleiri myndir á síðu Guðmundar HÉR

Mánudagur 23. maí 2005 Aðsent:  Nítján nemar útskrifuðust með full réttindi eða 4.stig frá Vélskóla Íslands síðastliðinn laugardag 21.maí, en 4.stigið gefur réttindi á ótakmarkaða vélarstærð í skipum. Í þessum hópi var einn Siglfirðingur; Hjalti Gunnarsson, og er hann að flytja norður á Siglufjörð aftur ásamt unnustu sinni Söndru Finnsdóttir, og stefnir hann á að leggja stund á sjómennsku nú strax að loknu námi. - Á myndinni er Hjalti og Sandra.

Mánudagur 23. maí 2005 Nýfæddur Siglfirðingur; stúlka sem fæddist 20.05. 2005, á heimili foreldra sinna í Reykjavík. Þau eru Börkur Þórðarson ( Signýjar og Dodda Björns) og Brynja Guðmundsdóttir. Stúlkan vó 3640gr. og var 53 cm. Ég geri ráð fyrir því að hún verði í framtíðinni undrandi á því hve margir Siglfirðingar flagga í tilefni af afmælisdeginum hennar. -- Kveðja Signý

Mánudagur 23. maí 2005  Ein gömul:
Skagfirðingur SK 1, - við Pólstjörnubryggju, einhvern tíma fyrir 1940

Ljósmynd: Kristfinnur Guðjónsson
Mánudagur 23. maí 2005
Gylfi Pálsson
er 51 árs í dag

Til hamingju gamli vinur, SK
Mánudagur 23. maí 2005

Sunnudagur 22. maí 2005 klukkan 16:25 - Hjólað í vinnuna -- Hópurinn var kominn til Varmahlíðar klukkan 16:20 í dag - erfiðasti hluti leiðarinnar reyndist vera síðasti spölurinn, frá gatnamótum þjóðvegar 76 og þjóðvegi nr. 1,  á leiðinni til Varmahlíðar, en þar var allsnarpur íssssssssssskaldur vindur beint í fangið á þeim sem hjólaði þann spölinn. -- Og að Staðarskála voru þau komin klukkan 21:00

Sunnudagur 22. maí 2005  Hjólað í vinnuna - Hópur stafsmanna Sjúkrahússins á Siglufirði fór klukkan 13:00 frá dyrum sjúkrahússins áleiðis hjólandi til Reykjavíkur. Þetta er um 400 kílómetra leið eins og flestir vita, en hjólreiðunum mun þannig háttað að einn mun hjóla í einu. og annar leysa af til skiptis.  Fyrstur fór af stað frá anddyrinu, yfirlæknirinn sjálfur Andrés Magnússon sem mun hjóla samkvæmt áætlun fyrsta áfangann á Ketilás í  Fljótum, en þar mun Valþór Stefánsson læknir taka við af honum og síðan koll af kolli, en þátttakendur eru alls 12 plús fylgdarlið. smelltu á tenglana Myndamöppur + Hjólað (1)

Sunnudagur 22. maí 2005
Veðrið í hádeginu
Hiti 2 °C
Norðan 4-6 m/s
Úrkomulaust

11:30
Túngata 36

Sunnudagur 22. maí 2005  Vortónleikar Tónskóa Siglufjarðar  og skólaslit fór fram í Siglufjarðarkirkju seinni partinn í gær. Þarna var góð stemming er nemendur og kennarar létu heyra í hljóðfærum sínum, svo og tóku tveir nemendanna lagið. Krakkar sem þarna voru með foreldrum sínum nutu þess einnig vel og voru greinilega í góðu skapi. Smelltu á tengilinn og skoðaðu.
Mynda-albúm Vortónleikar  
"Betra"
er að smella á Myndamöppur á aðal tenglasíðu

Sunnudagur 22. maí 2005 Ein gömul:
Sigurður Jónsson (á bak við) - Gunnar Tómasson og Salmann Kristjánsson, staddir á veitingastaðnum Wintergarden í Grimsby á Englandi. 1967(68)

Sunnudagur 22. maí 2005
Sigurjón Steinsson
er 76 ára í dag
Sunnudagur 22. maí 2005

Laugardagur 21. maí 2005 Miklar breytingar eru að verða á svæðinu þar sem bæjarmörkin til Siglufjarðar byrja, skiltið af korti bæjarins er horfið í bili og vinnuvélar á fullu við að breyta útliti svæðisins, sem sagt er muni verða; mjög skemmtilegt og hreint augnayndi.
Myndin var tekin í morgun klukkan 10:10

Laugardagur 21. maí 2005 Gólfplatan steypt í nýja bílskúrinn hans Guðmundar Ó Einarssonar við Hvanneyrarbraut. Þarna er allt tilbúið, og verkið rétt að hefjast. --
Myndin var tekin í morgun klukkan 10:20

Laugardagur 21. maí 2005
Veðrið í hádeginu
Hiti 2 °C
Norðan 4-6 m/s
Úrkomulaust
 

11:00
Túngata 38-36
Verkstæði Símans, og íbúðarhús

Byggðin var hvít í nótt og snemma í morgun af föl sem hvarf þó að mestu í "birtingu" er "hlýnaði"

Laugardagur 21. maí 2005 Borgarísjaki. Þessi tignarlegi borgarísjaki hefur síðustu  vikur og  daga verið að færa sig austar og austar. Ég tók mynd af honum síðastliðinn Laugardag 14. maí 2005, þá djúpt norður af Sauðarnesi (myndin til vinstri). Sveinn Þorsteinsson tók myndina til hægri í gær klukkan 14:00 í gær, þar sem jakinn er strandaður við Árskógsströnd inni á Eyjafirði og hefur hann breytt talsvert um lögun vegna bráðnunar.

Laugardagur 21. maí 2005 Aðsent:
Birgir Agnar Sigurðsson, sonur Sigga og Lóu var að útskrifaðist í gær frá Stýrimannskólanum í Reykjavík. Þetta er síðasti árgangur sem útskrifast í nafni Stýrimannaskólans. Á næsta ári verða nemendur útskrifaðir frá Fjöltækniskóla Íslands. Birgir er að útskrifast sem skipstjóri með III stig, sem sagt full réttindi á öll skip nema varðskip.  --  Heppilegur dagur til útskriftar;  20 maí, afmælisdagur Siglufjarðar. S.L.

Laugardagur 21. maí 2005 Aðsent:   Ég var að gramsa í gömlum filmum og rakst þá á þessa gömlu mynd frá bátadokkinni. Þarna er dýpkunarskipið Leó sem var að moka upp sandi þarna í dokkinni. Held að þetta sé á árunum uppúr 1960 en kannski muna einhverjir þetta nákvæmar. Til gamans setti við hliðina myndi sem ég tók um hvítasunnuna á svipuðum stað.  Guðmundur Albertsson

Laugardagur 21. maí 2005 Ein gömul: Ekki vil ég fullyrða það, - en tel þó nokkuð víst að þessi kofi, verkstjóraskrifstofa og afdrep löndunarmanna hjá SR forðum daga, sé enn í notkun hér innan við fjall og notað sem sumarbústaður. En þarna er verið að koma skúrnum niður af hábryggjum, rétt áður en þær voru rifnar einhvern tíma eftir 1960

Laugardagur 21. maí 2005
Júlíus Hraunberg Kristjánsson
er 51 árs í dag
Laugardagur 21. maí 2005

Föstudagur 20. maí 2005 Hvar eru Siglfirðingar EKKI ? Ég fékk þessa skemmtilegu mynd senda, af Siglfirðingum sem allir starfa hjá VÍS.  -  
Í tilefni
þess að afmæli Siglufjarðar er í dag komum við í Siglfirðingafélaginu í VÍS saman og létum smella af okkur mynd.  Við störfum öll í höfuðstöðvum Vátryggingafélagi Íslands og rekjum ættir, eða höfum búið á Sigló lengri eða skemmri tíma Við biðjum öll fyrir góðar kveðjur á Siglufjörð!  - Aftari röð frá vinstri: (1) Bragi M. Reynisson foreldrar Reynir Sigurðsson og Sigríður Bragadóttir (Braga Magg). Heimili á Sigló - Suðurgata 78 (1965-1970)  (2) Sigurður R Stefánsson: foreldrar Stefán Þór Haraldsson og Fríða Sigurðardóttir. (3) Sigríður Jóhannesdóttir: Bjó á Siglufirði frá 1992-2002 á Hverfisgötu 6. Var í sambúð með Skúla Jóhannssyni.(4) Sverrir Jón Gylfason: faðir Gylfi Eiríksson fæddur og uppalinn á Sigló, amma og afi Eiríkur Guðmundsson og Herdís Ólöf Jónsdóttir úr Fljótum, bjuggu á Siglufirði frá 1945 til 1965. Eiríkur var bæjarverkstjóri á Siglufirði til fjölda ára. (5) Sigurjón Lýðsson: faðir Lýður Ægisson er fæddur og upp alinn á Siglufirði. Amma í föðurætt, Þóra Frímannsdóttir býr á Sigló Einnig var amma í móðurætt frá Siglufirði og langafi hét Ólafur Hvanndal og var lögreglumaður á Siglufirði (6) Ólafur Lúther Einarsson: móðir Aðalbjörg Lúthersdóttir fædd og uppalin á Sigló, amma og afi í móðurætt Sigríður Stefánsdóttir og Lúther Einarsson rafvirki. (7) Guðmundur Albertsson: foreldrar Albert Sigurðsson (Alli í Mó) og Guðborg Franklíndóttir búsett á dvalarheimilinu Skálarhlíð. Fremri röð (1) Guðmundur J. Helgason: fæddur og ólst upp á Siglufirði til 16 ára aldurs. Foreldrar Helgi Jóhannsson og Svandís Óskarsdóttir. Afi í föðurætt Jói á Nesi. (2) Anna Rós Ívarsdóttir: fædd og uppalin á Sigló. Foreldrar Ívar Geirsson og Sigrún Ásta Gunnlaugsdóttir búsett á Siglufirði til 1996. Móðuramma Anna Vignis býr á Siglufirði. (3) Inga Rún Elefsen: fædd og uppalin á Siglufirði. Foreldrar Sverrir Elefsen og Karlotta Evertssen og búsett á Sigló. - Á myndina vantar Gylfa Gaut Pétursson, sonur Péturs Gauts sem var bæjarfógeti á Siglufirði. Gylfi bjó á Sigló frá 1961-1966. Aðrir Siglfirðingar hjá VÍS er Sigurbjörn Bogason þjónustjóri VÍS á Sauðárkróki og svo að sjálfsögðu Magnús Eiríks og Guðrún hjá VÍS á Sigló.

Föstudagur 20. maí 2005 Landsbjörg, félagar björgunarsveita um allt land koma saman nú um helgina til fundar á Akureyri til skrafs og ráðagerða. Þar verða til sýnis ýmis búnaður sveitanna. Björgunarbáturinn Sigurvin hefur þegar lagt af stað til Akureyrar, þessi snjóbifreið er að ferðbúast á fleti sem flutt verður til Akureyrar á bíl og nýlegir bílar Björgunarsveitarinnar Strákar eru einnig farnir til þessa móts. Á næsta ári má svo búast við að Björgunarsveitin strákar fái til umráða nýjan og fullkomnari björgunarbát en núverandi bátur Sigurvin, sem þó hefur sýnt og sannað að er góður bátur, en alltaf má fá betra skip.

Föstudagur 20. maí 2005 Kiwanisklúbburinn Skjöldur afhenti fyrir hádegið fyrir hönd Eimskip, hjálma til sjö ára krökkum barnaskólans. Þar voru mættir fyrir hönd Kiwanis þeir Guðmundur Skarphéðinsson og Steinar Baldursson, fulltrúi lögreglu, Adólf Árnason sem skýrði fyrir krökkunum tilgang og notkun hjálmanna auk fór yfir umferðamálin. Fulltrúi Heilbrigðistofnunar lýsti áhrifum þess að vera með hjálm og þegar ekki væri verið með hjálm er slys ber að höndum. skoðið myndir á Mynda-albúm Öryggishjálmar

Föstudagur 20. maí 2005 Eftir sönginn á kirkjutröppunum hófst allskonar leikjakeppni á Skólabalanum, sem lauk með grilluðum pylsum og góðgæti.
Skoðið myndir frá því hér á Mynda-albúm Skólabali

Föstudagur 20. maí 2005 Söngur barnaskólakrakka. Barnaskólakrakkar ásamt kennurum fjölmenntu á tröppur kirkjunnar í morgun, þrátt fyrir nepjuna sem fremur vísaði til hausts en sumarkomu. Þau mættu þarna til að taka lagið í tilefni af afmælisdegi Siglufjarðarkaupstaðar. Krakkarnir sungu nokkur lög án þess að láta kuldann ná tökum á sér og ánægjan skein úr andlitum þeirra eins og sjá má hér á:  Mynda-albúm Sungið

Föstudagur 20. maí 2005
Veðrið í hádeginu
Hiti 2 °C
Norðan 6-8 m/s
Úrkomulaust

09:30
Túngata 40

Föstudagur 20. maí 2005 Sönghópurinn Dyfra verður með söngskemmtun í kvöld á Allanum. Ýmislegt efni verður á boðstólnum, allt frá léttri jazzmúsík til Siglfirskra dægurlaga. Þá koma fram gestasöngvarar, Danni Pétur - Bjössi Sveins og Steini Bjarna. Stjórnandi og undirleik annast Renanta Ivan -
Ég leit inn á æfingu þeirra í gærkveldi og hlustaði stund, einnig var Danni Pétur að æfa . --- 
Siglfirðingar, mætið á Allan Sportbar og hlustið á fjöruga músík

Föstudagur 20. maí 2005 Abbý -- Arnfinna Björnsdóttir opnar málverkasýningu sína í vinnustofu sinn að Aðalgötu 13 á Siglufirði, klukkan 15:00 í dag. Opið verður um helgina frá klukkan 15-17
Þarna eru ýmsar eigulegar myndir, og raunar munir einnig, sem Abbý hefur gert. Ég leit þar inn í gær er Abbý var að undirbúa sýninguna og tók þessa mynd af henni við það tækifæri.

Föstudagur 20. maí 2005 Ein gömul:
Haki EA 533 við eina af bryggjum SR, fyrir árið 1940

Ljósmynd: Kristfinnur Guðjónsson
Föstudagur 20. maí 2005
Siglufjarðarkaupstaður
á afmæli í dag

Föstudagur 20. maí 2005.
Albert Sigurðsson (Alli í Mó)
er 87 ára í dag, á afmælisdegi Siglufjarðar. Fæddur sama dag og Siglufjörður fékk kaupstaðarréttindin.

Föstudagur 20. maí 2005
Heimir Birgisson
er 29 ára í dag
 
Föstudagur 20. maí 2005
Hreinn Magnússon
er 73ja ára í dag

Fimmtudagur 19. maí 2005
Veðrið í hádeginu
Hiti 4 °C
Norðan gola
Úrkomulaust

11:00
Hvanneyrarbraut 63

Í gærkveldi á Kaffi Torgi Siglufirði boðaði til framhaldsstofnfundar félagið "Ný sókn á Norðurlandi". --- Tilgangur félagsins er stuðla að uppbyggingu stóriðju á Norðurlandi og að vatns- og gufuafl á Norðurlandi verði nýtt og beislað í því skyni.  Félagið leggur höfuðáherslu á að kynna kosti Eyjafjarðar sem heppilegs staðar fyrir stóriðju.  Tilgangi sínum hyggst félagið ná með því að standa fyrir opinni umræðu um málið og með útgáfu á kynningarefni.  Lestu HÉR um tilkynninguna. og  á  Mynda-albúm  Ný sókn til að skoða myndir. Myndin hér til hliðar, er af hluta nýkjörinnar stjórnar og þeim sem fluttu erindi á fundinum.

Fimmtudagur 19. maí 2005 Björgunarsveitin Strákar hélt aðalfund sinn í gærkveldi. Guðmundur Gauti Sveinsson sendi mér nokkrar myndir, sem þú sérð á Mynda-albúm Strákar

Fimmtudagur 19. maí 2005 Safnaráð Íslands var í heimsókn á Síldarminjasafninu í gær og hélt hér fund. Voru sumir í ráðinu hér í fyrsta sinn þótt það hafi verið Safnaráð sem ákvað það á sínum tíma að senda safnið okkar í Evrópukeppni safna sem svo frægt varð. Þegar ég spurði fólkið hvernig því litist á, þá svaraði Jón Gunnar Ottósson forstöðumaður Náttúrufræðistofnunar að þetta væri alveg ótrúlegt, hann væri hér í fyrsta sinn og væri alveg undrandi. Ólafur Kvaran forstöðumaður Listasafns Íslands og formaður Safnaráðs sagði að hér á safninu væri allt með þeim hætti að það hlyti að skapa ný viðmið fyrir safnastarf í landinu.
    Á ljósmyndinni eru: Rakel Halldórsdóttir, framkvæmdastjóri Safnaráðs, Álfheiður Ingadóttir, útgáfustjóri Náttúrufræðistofnunar, Sigrún Ásta Jónsdóttir, safnstjóri í Reykjanesbæ, Jón Gunnar Ottósson, Gísli Sverrir Árnason kynningarfulltrúi Þjóðminjasafnsins, Ólafur Kvaran og Örlygur Kristfinnsson.  -- Margrét Hallgrímsdóttir þjóðminjavörður var nýfarin þegar myndin var tekin.

Fimmtudagur 19. maí 2005  HALLÓ ALLIR SAMAN!!!  Nú er komið að því, messa og kaffi í Grafarvogskirkju sunnudaginn 22 maí. Viljum minna á hið árlega kaffi Siglfirðingafélagsins sem nú verður haldið í Grafarvogskirkju nk. sunnudag 22 maí og með sérstakri Siglfirðingamessu á undan. Séra Vigfús Þór Árnason ásamt öðrum fyrrverandi og núverandi prestum Siglufjarðar munu messa. Messan hefst kl. 13:30 og kaffið þar í framhaldi um kl. 15:00  ---  Meðlæti er ávallt vel þegið og þeir hvattir sem tök hafa á að gera kaffiborðið hið glæsilegasta með sínu framtaki. --  Stjórn Siglfirðingafélagsins

Fimmtudagur 19. maí 2005 Ég fékk ábendingu um þessa síðu 
Síðu "Gumma Kobba"
Síðan hefur að geyma margar frábærar ljósmyndir frá "Æfingum á Siglufirði vegum Skíðasambands Íslands og alpagreinanefndar," við góðar aðstæður, eins og segir á síðunni.

Fimmtudagur 19. maí 2005 Þessi sími; MAXON Er SELDUR. --  Þetta er NMT farsími, sáralítið notaður. NMT er kerfi sem er langdrægara en hið hefðbundna GSM kerfi, og því mikið notað á gönguferðum utan byggðarkjarna og úti á sjó. Hleðslutæki; bæði fyrir 220 volt og kveikjaratengi 12 volt Verð kr 2.000 Upplýsingar hjá Steingrími í síma 892-1569

Fimmtudagur 19. maí 2005 Ein gömul:  Hringur SI 1 -- Hét áður Siglunes SI 15, þá eign Henrik Henriksen frá 1923 til 1930, skipið fór víða á flakk og skipti oft um nafn og eigendur, síðast Vísundur RE 280, talið ónýtt og tekið af skrá 1963. Heimild: "Íslensk skip"  eftir Jón Björnsson

Fimmtudagur 19. maí 2005
Ásgeir Rúnar Magnússon
er 35 ára í dag
Fimmtudagur 19. maí 2005
Vigdís Theodórsdóttir
er 25 ára í dag

Miðvikudagur 18. maí 2005 Maður mánaðarins; Sveinn Björnsson.
Í dag tilnefndi stjórn Kaupmannafélags Siglufjarðar mann mánaðarins; Svein Björnsson, fyrir margvíslega forustu í félagsstörfum og fleiri störf, En Sveinn hefur til langs tíma verið driffjöður í meðal annars Björgunarsveitinni, Félagi aldraðra og fleiru. Á myndinni eru Freyr Sigurðsson formaður, Guðmundur Sveinsson stjm., Guðrún Hauksdóttir stjm., Sveinn Björnsson og kona hans Guðný Guðmundsdóttir og Elín Þór Björnsdóttir

Miðvikudagur 18. maí 2005 Fyrirtæki mánaðarins; Bás ehf.
Í dag tilnefndi stjórn Kaupmannafélags Siglufjarðar fyrirtæki mánaðarins.
Á myndinni eru Freyr Sigurðsson formaður - Helga Freysdóttir - Elín Þór Björnsdóttir - Sveinn Zophoníasson og Sveinn Ástvaldsson.

Miðvikudagur 18. maí 2005 Þessi fríði hópur; 10. bekkur Grunnskólans lauk í morgun "Samræmdu prófi" og eru þarna á tröppum skólans ásamt farastjóra  Sigmundi Sigmundssyni og bílstjóranum Gísli Jónsson. En hópurinn er að leggja í óvissuferð, eitthvað út í buskann. 

Miðvikudagur 18. maí 2005 Aðsent: Ég var að lesa "ádrepu" þína um skort á myndum af skíðaæfingum í Siglufjarðarskarði um hvítasunnuna. Ég var fyrir norðan um helgina með myndavélina. Fór ég nokkrar ferðir fram á fjörð og skimaði til fjalla. Ekki varð ég var neinna skíðamanna utan ég mætti einum jeppa sem var að koma ofan úr Skarði. Ætlun mín var að ná myndum af fólki á skíðasvæðinu en ég kom ekki auga á þá. Má vera að ég hafi ekki verið þarna á réttum tíma. --- Aftur á móti hitti ég Gunnar Trausta og Dóru Jónasar þar sem þau voru á göngu fram á firði. kv Guðmundur J. Albertsson

Miðvikudagur 18. maí 2005
Veðrið í hádeginu
Hiti 8 °C
Logn
Úrkomulaust

09:50
Hvanneyrarbraut 61

Miðvikudagur 18. maí 2005  Síldarminjasafnið. Í morgun setti starfsmaður safnsins Sveinn Þorsteinsson, upp skiltið; tilvísun á Síldarminjasafnsið, sem hefur verið við innkeyrsluna í bæinn undan farin sumur.

Miðvikudagur 18. maí 2005 Góður gestur, hefur komið sér fyrir í gluggaopi á heimili Júlíusar Þorkelssonar á annarri hæð, og verpt þar 5 eggjum.  Glugginn hefur staðið opinn undanfarnar vikur, en límt fyrir með flugnaneti að innanverðu. Þetta er skógarþröstur, sem sést í gegn um flugnanetið, liggja í hreiðri sínu á vinstri myndinni en á hinni myndinni var hann floginn en netið fjarlægt til að hreiðrið sæist betur.

Miðvikudagur 18. maí 2005

Ljósmynd: Hrönn
 

Miðvikudagur 18. maí 2005 Ein gömul:  Síldarbáturinn Auðbjörg GK 301 á leið inn til löndunar á Siglufirði einhvern tíma um 1940. Ellefu manna áhöfn stillir sér upp fyrir ljósmyndarann Kristfinn Guðjónsson.
Báturinn sökk á Húnaflóa 27. júní árið 1979, þá undir nafninu Vinur ST 21, -- Tveir menn sem þá voru um borð björguðust í gúmmíbát, og síðan um borð í Jökulfell, sem fór með þá til lands.

Miðvikudagur 18. maí 2005
Arna Sverrisdóttir
er 2 ára í dag
........................................................
Miðvikudagur 18. maí 2005
Álfhildur Stefánsdóttir
er 64 ára í dag
Miðvikudagur 18. maí 2005
Eysteinn Aðalsteinsson
er 64 ára í dag

Þriðjudagur 17. maí 2005
Veðrið í hádeginu
Hiti 3 °C
Norðvestan 6-8 m/s
Úrkomulaust

11:03
Hvanneyrarbraut 59

Þriðjudagur 17. maí 2005 Skíðaæfingar á Siglufirði Frétt af síðu Skíðasambandsins  www.ski.is þann 12.5.2005 - Landsliðið í alpagreinum hóf í dag æfingar á Siglufirði sem standa yfir fram á mánudag.  Landsliðsþjálfararnir James Dunlop og Pavel Cebulj eru komnir til landsins og munu sjá um æfinguna.  Um helgina verður nokkrum ungum og efnilegum keppendum boðið að taka þátt í æfingunni.
     Nægur snjór er á Siglufirði og snjóaði þar í síðastliðinni viku.  Að sögn Pavel var færið mjög gott og hart í morgun.  Hann telur að betri aðstæður finnist hvergi í Evrópu á þessum árstíma og er bjartsýnn á að æfingar verði góðar um helgina.
ATH.  Ég fékk ábendingu um þessa frétt í morgun, raunar frétti ég einnig frá "óviðkomandi" aðila, af þessu á föstudag, ég fór upp á skíðasvæðið eftir hádegið sama dag, en sá þar enga hreyfingu, frétti raunar að viðkomandi mannskapur hefði farið í sjóferð klukkan 13:00. - Þar sem ég þurfti úr bænum á laugardag og kom ekki til baka  fyrr en seinnipart mánudags, þá gat ég ekki kannað þetta betur. -- En eitt er víst; að ef aðstandendur þessa viðburðar, þar með taldir þeir Siglfirðingar sem sem tóku þátt í þessum undirbúningi, hefðu haft einhvern snefil af áhuga á, að Lífið á Sigló, fjallaði um og birti myndir frá þessum einstöku æfingum og möguleikum í leiðinni á góðri kynningu á Skíðasvæðinu okkar, þá hefðu lesendur mínir örugglega fengið að njóta þess.
En svona er Ísland í dag, sagði maðurinn.

Þriðjudagur 17. maí 2005  Ein gömul: Hjörtur Pétursson SI 80.
Þessi bátur fórst í Faxaflóa í febrúar árið 1941 - og með honum fórst öll áhöfnin, 6 menn.
 

Þriðjudagur 17. maí 2005
Jóhann St Sigurðsson
er 40 ára í dag
 
Þriðjudagur 17. maí 2005
Rögnvaldur Gottskálksson
er 50 ára í dag -- myndin er frá því þegar
kappinn var ungur - 1973
Þriðjudagur 17. maí 2005
Ólafur Matthíasson
er 60 ára í dag
Þriðjudagur 17. maí 2005
Ástþór Óli Halldórsson  
er 23ja ára í dag
 
Þriðjudagur 17. maí 2005
Áki Valsson
er 37 ára í  dag
Þriðjudagur 17. maí 2005 
(afmælismyndir sem voru sendar vegna 11 og 14 maí, eru á viðkomandi síðu Lífið í maí 15-31 2005)
Mánudagur 16. maí 2005
Veðrið klukkan 18:18 í dag  (Kom heim úr "fríinu" klukkan 18:00)
Hiti 7 °C
Norðan kul
Sólskin
Sunnudagur 15. maí 2005
Systurnar Helga Óladóttir
og Birna Óladóttir
eru
Fimmtugar í dag
Sunnudagur 15. maí 2005