|
SAMKOMUR +
Skíðasvæðið
- Smelltu
HÉR
til að skoða, og/eða settu inn tilkynningu sjálfur
HÉR |
|
Vegna ágangs og árása erlends tölvuglæpahyskis
á vef minn, neyðist ég til að loka um stundasakir a.m. Umræðuvefnum |
|
Þriðjudagur
28. febrúar 2006 Aðsent:
Nú er hafinn
endaspretturinn við byggingu Reykjanesvirkjunar. --- Aðalverktaki við
vélbúnað er Véla og skipaþjónustan Framtak í Hafnarfirði. Framtak hefur
nú á lokasprettinum bætt við all mörgum mönnum þar á meðal 4
Siglfirðingum frá SR-Vélaverkstæði. Þeir hafa unnið við frágang á
holutoppum í blíðunni á Reykjanesi. -- Kapparnir heita Jónas
Halldórsson, Arnar Ólafsson, Hans Ragnarsson og Ingvar Erlingsson.--
Eins og sjá má á einni myndinni þarf að hugsa mikið við þessa framkvæmd
– þannig að rýkur úr sumum S.Ó.E. >>
 |
|
Þriðjudagur 28. febrúar 2006
Hádegisveðurmynd og
hús dagsins eru HÉRNA |
|
Þriðjudagur
28. febrúar 2006 Síðustu minjar síldaráranna, sem
ekki hefur verið komið fyrir á Síldarminjasafninu:
Þarna eru gamlir bryggjustaurar að gægjast upp á yfirborðið á
stórstreymisfjöru, sem var um klukkan 17:00 í gær |
|
Þriðjudagur
28. febrúar 2006 Það voru fleiri hundruð manns á skíðum í
Skarðsdal á sunnudag í indælis veðri og góðu skíðafæri. Í gær var sama
blíðan og ekki síðra skíðafæri, en enginn á skíðum þegar ég leit upp í
dalinn klukkan 17:15.
Af hverju ? Ég spurði tvo vegfarendur á heilsubótagöngu: "Það er lokað á
mánudögum, þeir eru........." Ég vil ekki hafa eftir restina af
svarinu sem fylgdi !
Aðsend viðbót: Skíðasvæðið í Skarðsdal var lokað í gær
vegna þess að bæði menn og tæki þurftu hvíld eftir streð helgarinnar það
þurfti að laga troðarann því hann hefur ekki kólnað síðan á fimmtudaginn
var því það var erfitt að koma svæðinu í stand eftir veðrin sem geisuðu
á okkur í síðustu viku og ekki viljum við fá fólk á óunnið svæði og fá
fólk óánægt í burtu þess vegna vildum við ekki hafa svæðið opið með von
um skilning … það tókst rosalega vel um síðustu helgi og unnu okkar menn
kraftaverk með svæðið og voru allir þeir sem hingað komu og tóku þátt í
mótinu sammála að þetta er eitt BESTA SKÍÐASVÆÐI LANDSINS og vil
ég fyrir hönd Skíðafélagsins þakka öllum þeim sem komu og hjálpuðu okkur
við mótið kærlega fyrir því ef við hefðum ekki þetta góða fólk þá væri
þetta ekki hægt … þúsund þakkir ÁE |
|
Þriðjudagur
28. febrúar 2006 Á hálu svelli. Þessir drengir voru í gær
að leika sér á svelli sem er á uppfyllingunni vestan Langeyrarvegar |
|
Þriðjudagur
28. febrúar 2006 Ein gömul:
Ekki er ég viss um að allir átti sig á því svona í hvelli hvaða húsgrunn
er verið að byggja þarna. En við nánari athugun ættu þó Siglfirðingar að
átta sig fljótlega.
Ekki smella strax hérna,
en þar er svarið. |
Þriðjudagur
28. febrúar 2006
Hún Lóa mín er fertug í dag
Til hamingju með daginn.
Jón Tryggvi -
Karen Ósk og Helgi Fannar |
Þriðjudagur
28. febrúar 2006
Bjarki Baldursson
er 7 ára í dag
Hann er sonur Guðrún Sonju og Baldurs.
Kveðja fjölskyldan |
Þriðjudagur
28. febrúar 2006
Telma Björk Birkisdóttir
er 28 ára í dag
Kveðja, Flautustrumpur. |
Þriðjudagur
28. febrúar 2006
Ragnar Óli Ragnarsson
er 3 ára í dag
(foreldrar Raggi Hauks og Ólöf Ásta) Kveðja frá ömmu og afa |
Þriðjudagur
28. febrúar 2006
Steinunn Svanhildur Heimisdóttir,
yngsta dóttir okkar er 1 árs í dag
Með kveðju frá mömmu, pabba, Rakel Rut og Birnu Björk.
Kata og Heimir |
Þriðjudagur
28. febrúar 2006
Steinar Þór Jónsson (sonur Agnesar og Jóns Helga) er 20
ára í dag
og hvetjum við alla til að kyssa hann í tilefni dagsins. Við óskum
þér alls hins besta í dag og í framtíðinni, kveðja frá fjölskyldunni |
Þriðjudagur
28. febrúar 2006
Eyrún Guðmundsdóttir
á afmæli í dag. (dóttir Guðmunds fyrrverandi bæjarstjóra og
Soffíu)-
Til hamingju með daginn elsku Eyrún mín. Kveðja, Lilja Minný
Sigurbjörnsdóttir
Myndin er af okkur vinkonunum, Eyrún hægra megin. |
|
|
Þriðjudagur
28. febrúar 2006
Páll Gunnlaugsson
er 70 ára í dag |
Þriðjudagur
28. febrúar 2006
Ásdís Baldvinsdóttir
er 55 ára í dag |
|
 Mánudagur
27. febrúar 2006 Strákar við gæslu á skíðamóti --
Einhver ónefndur á netfangi Björgunarsveitarinnar sendi mér þessar
myndir, með fyrrnefndum texta, sem ef til vill segir "allt" sem sendandi
vildi koma á framfæri |
|
Mánudagur 27. febrúar 2006
Hádegisveðurmynd og
hús dagsins eru HÉRNA |
|
   
Mánudagur 27. febrúar 2006 Aðsent: -
Ég kom við á Skálarhlíð um helgina og rakst þar á þessa tölvunema
Þetta er þær Svava Aðalsteinsdóttir, Guðborg Franklínsdóttir og Geirrún
Viktorsdóttir.
Þær eru í námi hjá Júlíusi Hraunberg og eru alveg að ná tökum á þessu.
Keli á Kambi var að vísu ekki í tölvunni en hann stillti sér upp fyrir
framan myndina af Hjalta SI 12 - Kv. GJA |
Mánudagur
27. febrúar 2006 Nýjar fréttir frá Siglfirðingafélaginu
eru á vef
Siglfirðingafélagsins |
|
Mánudagur
27. febrúar 2006 Ein gömul: Það eitt að horfa á
þessa mynd, nægir til að rifja upp gamlar minningar frá síldarárunum,
stóriðju þess tíma þegar peningalyktin og allur grúturinn á sjónum, á
bryggjustaurum og í fjörum. Grúturinn var stundum hvimleiður og jafnvel
lyktin einnig, en þeir sem gerðu sér grein fyrir því að Íslenska þjóðin
beinlínis lifði og dafnaði, eftir því hvort veiddist síld eða ekki létu
sér fátt um finnast. Orðið mengun var ekki til á þeim tíma. Það breytti
engu hvort um var að ræða síld sem fór til söltunar eða til bræðslu.
Stundum gátu fjármálaráðherrar vart haldið vatni af eftirvæntingu yfir
því hve mikið þeir gætu veðsett í afla dag frá degi til að geta haldið
þjóðfélaginu gangandi. En síldin er horfin í þeirri mynd sem var og mun
aldrei skapa þá vakningu sem sveif yfir vötnum á þeim tíma. Nú virðist
áhugi ráðherranna mestur í stóriðju á sviði álframleiðslu, svo miklum
áhuga að þeir gleymdu að gera ráð fyrir því að raforku þyrfti til þess,
raforku sem ekki var næg til, til að gera drauma þeirra og loforð að
veruleika. - Hvernig væri að þeir færu að endurgreiða þeirri kynslóð sem
kom Íslensku þjóðinni á legg ? Það er gamla fólkinu sem nú fær ekki einu
sinni að njóta ævikvöldanna saman, samber fréttir fjölmiðla að
undanförnu. Farið að skila því fé sem þið takið af skattborgurum, til
þeirra aðgerða sem þeir eru eyrnamerktir. |
Mánudagur
27. febrúar 2006
Elfa Sif Kristjánsdóttir
er 12 ára í dag -- innilegar hamingju óskir frá
fjölskyldunni
(með henni á myndinni er systursonur hennar) |
Mánudagur 27. febrúar 2006
|
|
Mánudagur
27. febrúar 2006
Halldór Guðjónsson
er 36 ára í dag
Bestu hamingju óskir frá Irene og
krökkunum. Strákurinn er sonur
Völlu Halldórs og Guðjóns Jóhanns kveðjur frá þeim líka. |
Mánudagur 27. febrúar 2006
Joachim Birgir Andersen
er 4 ára í dag
Joachim er sonur Áka Vals og Katrínar Andersen Bestu
afmæliskveðjur frá Mömmu, Pabba, Ágúst Orra og Mao. |
|
|
Sunnudagur 26. febrúar 2006
Hádegisveðurmynd og
hús dagsins eru HÉRNA |
|
Sunnudagur 26. febrúar 2006
Á skíðasvæðinu í gær voru mörg hundruð manns að skíða, skíðafélagið hélt
skíðamót fyrir 13-14 ára krakka sem komu frá 13 stöðum á landinu og voru
keppendur um 80 auk margra fararstjóra, foreldra og þjálfara. Er það nú
alveg ljóst að skíðasvæði okkar er mjög gott mikill snjór og góðar
brekkur. Allt gistirými hér í bæ er fullt og mikið um að vera á
veitingastöðum. Ferðamannaiðnaðurinn er að blómstra nú í vetur sem
aldrei fyrr, gerum út á þetta. (ljósmynd KLM tekin í des sl.) |
|
Sunnudagur 26. febrúar 2006
Mótsgestir blaksmótsins og fleiri
heimsóttu Bátahúsið í gærkveldi, Sveinn Þorsteins var þar og tók nokkrar
myndir.
Á myndinni hér við hliðina er Ástríður Valbjörnsdóttir (Þorlákssonar)
Linda Gylfadóttir og Þuríður Þorsteinsdóttir.
Fleiri myndir >>>>
 |
|
Sunnudagur
26. febrúar 2006 Blakfélögin
Hyrnan og Súlur héldu blakmót í íþróttahúsinu í gær Þetta voru 5
karlalið og 7 kvennalið. Leikirnir hófust kl.10:00 og mótslok voru um
kl.17:00 aðgangur var ókeypis. Að móti loknu fóru blakarar í Bátahúsið
og síðan var snæddur kvöldverður á Bíó Café. Ég skrapp í Íþróttahúsið
smástund og tók slatta af myndum þann tíma sem ég stoppaði og eru þær
hér >>
 |
Sunnudagur 26. febrúar 2006
Ein
gömul: Ekki veit ég hvor þeirra það var sem krækti í þennan
lax sem Gústi heldur á, sennilega Gústi. En af brosinu þeirra mætti
halda að báðir hefðu krækt í þann stóra. Þetta eru Bragi Magnússon og
Gústaf Nílsson árið 1962 |
|
Laugardagur 25. febrúar 2006
Hádegisveðurmynd og
hús dagsins eru HÉRNA |
|
Laugardagur
25. febrúar 2006 Aðsent:
RK
Félagarnir Reynir og Siggi á Júlíu SI-62 fengu þetta flykki á
línuna, 4-5 metrar og 960 kíló. Júlía SI 62 er plastbátur sem gerður er
út á línuveiðar og er í eigu Reynis Karlssonar og fjölskyldu.
Hann hefur sennilega verið þungur í drætti þessi hákarl -og sennilega
hefðu þeir verið ánægðari með 960 kg. af þorski eða stórlúðu, svona 3-4
svipaðri þeirri sem Reynir kom með að landi 9. desember síðastliðinn. |
|
Laugardagur
25. febrúar 2006 Það er orðið æ sjaldnar sem
flutningaskip koma að bryggju á Siglufirði, þá helst rækjuflutningaskip
til Þormóðs Ramma Sæberg eða olíuskipið Keilir með olíu, en þarna er
Keilir við Óskarsbryggju í gær. |
|
Laugardagur
25. febrúar 2006 Atvinnulausir
snjóflóðavarnargarðar. Stóri boli sá norðari, Litli boli sá syðri.
---
Þrátt fyrir að geysistór snjóflóð hafi fallið á austurfjöllunum þann 17.
og 18. febrúar síðastliðna, þá féllu ekki skriður í vesturfjöllunum og í
gær viku seinna þegar þessi mynd var tekin, er nánast enginn snjór í
fjöllunum vestan fjarðarins á Siglufirði. |
|
Laugardagur
25. febrúar 2006 Fuglaflensa: Í fréttum erlendis
frátröllríða nú fréttir um að greinst hafa "fuglaflensa" bæði farfuglum
og alifuglum, nú síðast í Frakklandi. Og í gærkvöld var þess getið í
útvarpi að álftin (farfuglar) væru komin til Íslands. Það er því full
ástæða til að foreldrar brýni fyrir börnum sínum; að ef þau sjá dauða
fugla í vor og í sumar, að snerta þá alls ekki, svona til vonar og
vara. Segja þó frá slíku ef upp kemur, til dæmis Örlygi og eða Páli sem
örugglega munu vita hvernig bregðast skuli við. En vonandi eru þessar
hugleiðinga mínar ástæðulausar, en þó: Aldrei er of varlega farið. |
|
Laugardagur
25. febrúar 2006 Mér var bent á því í gær að
loftþrýstingur sýndur á vef mínum "Veðrið núna" hjá Veðurstöðinni
í Bakka á Siglufirði hafi verið í sögulegu hámarki 1047,2 hPa
klukkan 13:29, eftir athugun sá ég einnig nær því sama á
veðurmælingu Veðurstofunnar við flugvöllinn á Siglufirði það er
1047,5 hPa kl. 15:00
Ég er sem áður segir ekki veðurfróður maður og fór því að leita gagna á
netinu og fann þar
Veður og veðurfar þar sem
rætt er um loftþrýsting og veðurfar. Eftir þann lestur er ég litlu
fróðari um loftþrýsting og veðurfar, því þar segir að hár loftþrýstingur
sé samfara hvössum vind, en í dag hefur verið nánast logn og spáð er
áframhaldandi hægviðri (sagði konan mín) en loftþrýstingur fer nú
fallandi "hvað sem það nú þýðir" ! -Sennilega hefi ég ekki haft nægan
áhuga á námsefninu til að ná árangri |
Laugardagur
25. febrúar 2006 Fyrir 60 árum - Morgunblaðið 29.
ágúst 1946 --
Smelltu á myndina |
|
Laugardagur
25. febrúar 2006 Ein gömul: Ég man ekki hvort
þessi mynd hefur komið á vef minn áður, að minnsta kosti ekki í þessari
stærð. En þetta er vel kunnugt svæði sem ekki þarf að skíra nánar.
En myndina tók ég árið 1980 |
Laugardagur
25. febrúar 2006
Guðrún Jónasdóttir
er 58 ára í dag |
Laugardagur 25. febrúar 2006 |
|
|
Föstudagur
24. febrúar 2006
Ég var að fá fregnir af því að vegurinn yfir Lágheiði væri
orðin slétt og þurr eftar að hafa verið hefluð í morgun, rennislétt og
fín eins og að sumarlagi. |
|
Föstudagur 24. febrúar 2006
Hádegisveðurmynd og
hús dagsins eru HÉRNA |
|
Föstudagur
24. febrúar 2006
Nýtt á
http://www.123.is/sksiglo
Myndasería (undir myndbönd) með hreyfiáhrifum og tónlist, sungið
af Vorboðakórnum. Myndir teknar á Aðalfundi Félags eldri borgara á
Siglufirði og í Fljótum 19. febrúar síðastliðinn. Raunar sömu myndir og
birtust þann 20. en allt öðruvísi framsetning. |
|
Föstudagur
24. febrúar 2006 Fiskmarkaður Siglufjarðar er að
flytja í húsnæði það sem áður hýsti netaverkstæði. Þetta hús sem sést
efst á miðri myndinni hér til vinstri, hentar mjög vel undir stafsemi
fiskmarkaðar og er margfalt hagkvæmara en það fyrra, hvernig sem á er
litið og var all fjarri höfninni og kostnaðarsamur flutningur því
samfara.
Unnið er af því hörðum höndum að innrétta kæligeymslu og fleira sem til
þarf í húsinu. Vonast forráðamenn að móttaka fiskjar þarna hefjist í
byrjun næsta mánaðar.
Og nú verða á komandi sumarvertíð smábátanna, fjórir löndunarkranar í
stað tveggja til þessa, svo löndunarbið ætti að verða styttri í sumar,
en oft var nokkur löndunarbið síðastliðið sumar. |
|
Föstudagur
24. febrúar 2006 Það er dapurlegt til þess að vita,
þegar horft er á þessa mynd og hugsað til stóra hússins til vinstri á
myndinni, húsið "Ákavíti" sem einu sinni var stærsta hús landsins hýsir
nú vart meira en ryk sem þar hefur safnast. Og hina glæsilegu og
fullkomnu loðnuverksmiðju til hægri á myndinni, en bæði þessi mannvirki
og búnaður er nú verkefnalaust sem varað hefur nú um árabil. Það má
raunar segja um fleiri loðnuverksmiðjur á landinu vegna ástandsins á
loðnustofninum (samkvæmt mælingu fiskifræðinga) Þetta minnir á þegar
síldin brást hér á Siglufirði forðum og allt var gert til að bæta þann
skaða, meðal annars með því að gera út á þorskinn gula og verðmæta. Nú
er nánast enginn þorskur unninn á Siglufirði, meirihluti kódans leigður
eða seldur til annarra byggðarlaga og unninn þar. Og einnig meiri hluti
þess afla sem hingað kemur á land er seldur á fiskmarkað og einnig
fluttur úr bænum. Eini ljósi punturinn er þó sá hluti fiskjar sem seldur
er á Fiskmarkað Siglufjarðar, og skapar mikla atvinnu til þeirra sem þar
vinna, en eins og segir hér fyrir ofan þá er Fiskmarkaður Siglufjarðar
að færa út kvíarnar. |
Föstudagur
24. febrúar 2006 Ein gömul: Þessa mynd tók
Hulda systir og sendi mér |
|
Föstudagur
24. febrúar 2006 Gamalt póstkort sem mér var
send mynd af á dögunum. Vatnslitamynd eftir Selmu P. Jónsdóttur,
útgefandi sólarfilma sf. No. 714 |
Föstudagur
24. febrúar 2006
Andri Freyr Sveinsson
er 12 ára í dag
Við sendum honum bestu kveðjur
Kristín, Pálína & Guðrún. |
Föstudagur 24. febrúar 2006
Hulda Magnúsdóttir
er 44 ára. í dag
Kveðja frá fjölskyldunni.
|
|
|
Fimmtudagur 23. febrúar 2006
Hádegisveðurmynd og
hús dagsins eru HÉRNA |
|
Fimmtudagur
23. febrúar 2006 Ein gömul: Kirkjukórinn,
þarna er á Kirkjuloftinu og söngstjórinn er Guðjón Pálsson -----
1982 |
Fimmtudagur
23. febrúar 2006
Margrét Kristinsdóttir
Mamma er 30 ára í dag
og við sendum bestu kveðjur til hennar
Kveðja Kristín Ágústa og Kristinn Tómas.. |
Fimmtudagur
23. febrúar 2006
Ívar Franz Arnarsson
er 1 árs dag. (Auður María og Arnar)
Afmæliskveðja frá foreldrum
og systkinum. |
Fimmtudagur
23. febrúar 2006
Jón Einar Ólason
er 1 árs í dag.
Bestu kveðjur mamma,
pabbi og systkini |
|
|
Miðvikudagur
22. febrúar 2006
Vor í febrúar -- Enn eitt vorið er
komið á Sigló -
Þessi mynd var tekin um 10:30 í morgun. Tjörnin við innkeyrsluna í
bæinn.
(að norðanverðu) |
|
Miðvikudagur 22. febrúar 2006
Hádegisveðurmynd og
hús dagsins eru HÉRNA |
|
Miðvikudagur 22. febrúar 2006
Kynningarfundur um ferðamál fór fram á Bíó
Café í gærkveldi. Þar höfðu framsögu fulltrúar hagsmuna aðila ferðamála
á Norðurlandi. Þetta var fróðlegur fundur um fjölbreytt mál sem varða
almenna ferðaþjónustu, um uppbyggingu ferðaþjónustu, miðlun fræðslu til
þeirra sem að ferðaþjónustu koma og áhuga hafa á að takast á við
verkefnið í framtíðinni, því síðarnefnda fannst mér sérlega fróðlegt
erindi um starf Háskólans að Hólum í Hjaltadal, hvað fræðslu um
ferðamál snertir, sem skólinn sinnir. Þá var fundarmönnum boðið að
spyrja frummælendur út í þau erindi sem þeir höfðu fram að færa.
Myndir af frummælendum og þeim sem til máls tóku, eru hérna á tenglinum
>>>>
 |
|
Miðvikudagur
22. febrúar 2006 Ég vil þakka öllum sem sendu mér
hamingjuóskir í tilefni
52ja
ára afmæli
mínu í gær, innilegt þakklæti - Og ósk eftir fyrirgefningu fyrir að
ég hafi ekki þakkað hverjum einstökum fyrir kveðjurnar. |
|
Miðvikudagur
22. febrúar 2006 Ég skrapp til Akureyrar í gær eins og fram
kom á vefnum í gær. Ég álpaðist til að fara Lágheiðina til baka. Ég
ráðlegg þeim sem þurfa til Akureyrar að fara ekki yfir Lágheiði á meðan
það ástand ríkir sem var í gær, - ein drulluleðja meirihluta
leiðarinnar, ásamt því að vera mjög holótt. Ég hafði á tilfinningunni að
ég væri í torfærukeppni á mýrlendi. Það er ekki að efa að sá
ofaníburður sem þarna hefur verið notaður er fyrirtaks efni -- EF
ekki svo óheppilega hafi viljað til að sífeldir umhleypingar með bleytu
og frosti hefðu ekki haft jafn neikvæð áhrif og raun ber vitni, það er
vegurinn fékk ekki tækifæri til að þjappast og þorna. - Vegagerðin hefur
nú auglýst 5 tonna hámarks öxulþunga yfir Lágheiði. Ég mundi í þeirra
sporum loka veginum alveg og freista þess að hann nái að þorna. |
|
Miðvikudagur
22. febrúar 2006 Ein gömul: Sungið með hárri
raust:
Anna Magnúsdóttir - Líney Bogadóttir -Pétur Baldvinsson - Ingimar
Þorláksson - Sveinn Björnsson og Gunnlaugur Jónsson
1993 |
Miðvikudagur
22. febrúar 2006
Guðrún Pála Hannesdóttir
er 67 ára í dag |
Miðvikudagur
22. febrúar 2006
Baldur Jörgen Daníelsson
er 41 árs í dag |
|
|
Þriðjudagur
21. febrúar 2006 Ýmsir aðilar
sem vinna að ferðamálum á Norðurlandi heimsóttu Siglufjörð í dag. Farin
var gönguferð um bæinn eftir hádegið og gestum kynntir staðhættir.
Sveinn Þorsteins hitti hópinn er hann slappaði af yfir kaffisopa á Bíó
Café. Í kvöld verður svo opinn kynningar fundur um ferðamál á Bíó Café
Nokkrar myndir til viðbóta eru hér >>>>
frá í dag. |
|
Þriðjudagur 21. febrúar 2006
Hádegisveðurmynd og
hús dagsins eru HÉRNA |
|
Þriðjudagur 21. febrúar 2006
Ég
verð ekki í bænum í dag, þarf til Akureyrar - kem seinni partinn til
baka S.K. - Hafið samband við Svein Þorsteins í
síma: 467-2169 eða 848-4143 ef eitthvað verður um að vera. |
|
Þriðjudagur 21. febrúar 2006
Morgunroðinn á myndinni
hér
fyrir neðan frá í gær, átti samkvæmt hjátrúnni að vera tákn um
vætu eða rigningu seinni hluta dagsins. Það kom eingin rigning í gær,
heldur þurrt og hið besta veður. -- Svona til að staðfasta að ekki er
mikið að marka svona fyrirbæri sem einhvern vísdóm. |
|
_small.jpg) Þriðjudagur
21. febrúar 2006 Tvær gamlar:
Tveir í marki ? Þetta er frá árinu
1973, nánar til tekið 17. júní. En þarna voru að keppa í fótbolta
starfsmenn Siglufjarðarkaupstaðar og bæjarstjórn. Ekki man ég betur en
að þessir kappar, Jónas Stefánsson og Bjarki Árnason hafi verið í sitt
hvoru liðinu, gæti þó verið misminni. En ég er þó nokkuð viss um að það
er ekki venja að tveir markverðir séu í sama markinu. Sennilega hefur
þessi óvenjulega staða beint myndavél minni til þeirra. Sum af
andlitunum baka til eru kunnugleg, þó ég ekki viti nöfnin. |
Þriðjudagur
21. febrúar 2006
Halldóra Helga er 2ja ára í dag
(dóttir Rutar og Sindra)
Bestu afmælis kveðjur frá
mömmu, pabba og Jakobi. |
Þriðjudagur
21. febrúar 2006
Karl Ragnar
er 15 ára . hann er sonur Freysteins og Kristínar |
Þriðjudagur
21. febrúar 2006
Ingibjörn Jóhannsson
er 57 ára í dag
Til hamingju -- S.K. |
Þriðjudagur
21. febrúar 2006
Steingrímur Kristinsson
er 72ja ára í dag |
|
|
Mánudagur 20. febrúar 2006
Hádegisveðurmynd og
hús dagsins eru HÉRNA |
|
Mánudagur
20. febrúar 2006
Morgunroðinn vætir -segir máltækið - svo er að gá að því síðar í
dag -- hvort rignir - eða hvort þetta á við daga í síðustu viku ! |
|
Mánudagur 20. febrúar 2006
Tilkynning til aðildarfélaga SKÍ
Bikarmót 13-14 ára verður haldið á Siglufirði 25-26 febrúar ---
Laugardaginn 25 febrúar
Svig stúlkur start kl 11:00 --- Stórsvig drengir start kl:12:00
Sunnudaginn 26 febrúar - Svig drengir start kl 11:00 --
Stórsvig stúlkur start kl 12:00
Skráning skisigl@simnet.is
- Leikstjóri Egill Rögnvaldsson s. 893-3116 --
Upplýsingar um gistingu og veitingar heimasíða SSS
www.siglo.is/skisigl/
Fararstjórafundur í Ráðhúsi kl 20:30 -- Nánari dagskrá
verður send síðar. Mótanefnd Skíðafélags Siglufjarðar .
Nokkra myndir frá öðru skíðamóti sem fram fór í gær, sendar af
Ásmundi Einars >>>
 |
|
Mánudagur
20. febrúar 2006 Aðalfundur
Félags eldri borgar á Siglufirði og í Fljótum var haldinn í gærkveldi.
Að loknum dýrlegum kvöldverði. (ég get borið þess vitni, því ég mætti
aldrei þessu vant) fóru fram ýmis skemmtiatriði sem vel var tekið. Ég
mætti með myndavélina (auðvitað) og tók slatta af myndum sem eru hérna á
tenglinum >>
Og svo eru einnig myndir frá kvöldinu á síðunni hans Sveins
HÉRNA |
|
 Mánudagur
20. febrúar 2006 Aðsend athugasemd. -- Í
fréttum útvarps og sjónvarps í gær, sunnudag, var sagt frá því að 5-6 km
breitt snjóflóð hefði fallið í Skútudal 17.-18. febrúar. Hvernig má það
vera að svo breitt snjóflóð falli í dal sem er ekki nema um 4 km á
lengd. Ef vel var hlustað þá sagði undirritaður í sjónvarpsviðtalinu,
sem útvarpsfréttin var byggð á, að áætla mætti að brotlína snjóflóðsins
(upptökin) eftir öllum fjallalbrúnum væri um 5-6 km löng. Nú hef
ég mælt þetta með sæmilegri nákvæmni á korti og fæ út töluna 5.5 km. Ef
hinsvegar er mælt um miðbik flóðsins í svolítið sveigðri línu með
landslaginu þá má fá nærri 4 km breidd - en sé að síðustu skoðuð útlína
eða jaðar flóðsins að neðan (þar sem það endar) þá er talan orðin 8-9
km. Vildi koma þessum upplýsingum á framfæri til gamans því allt er
þetta mjög óvenjulegt og spurning hvort menn hafi áður vitað um svo
breitt snjóflóð á landinu? Íslandsmet? Líkur eru á því að
starfsmaður Veðurstofunnar komi hingað norður á morgun til nákvæmari
mælinga. Minni á að aðstæður í fjöllunum ofan við bæinn voru allt
aðrar og ólíkari en í Skútudal. --- Örlygur Kristfinnsson |
Mánudagur
20. febrúar 2006 Ein gömul (en gæti verið ný )
199? |
Mánudagur
20. febrúar 2006 Hérna er mynd af barnabarni okkar, sem er það
þriðja í röðinni,
Drengurinn fæddist þann 18 febrúar, hann var 14 merkur og 49 cm.
Faðirinn er Birgir A Sigurðsson og móðirin Ágústa Þ Jóelsdóttir.
Amman og afinn eru Siggi Rikki og Lóa. |
Mánudagur
20. febrúar 2006
Gísli Jón Elíasson
er 50 ára í dag.
Kveðja frá Iðjufélögum.
|
|
Mánudagur
20. febrúar 2006
Magnús Erlingsson
er 36.ára í dag!! (Sólrúnar og Erlings).
Afmæliskveðja frá vinum og vandamönnum. |
Mánudagur
20. febrúar 2006
Jóhann Þór 24 ára í dag
sonur Guðjón Jóh og Völlu Halldórs
kveðja frá lýðnum vinum og vondum mönnum til lukku kútur.
|
Mánudagur
20. febrúar 2006
Siggi Sverris
er 33 ára í dag.
Kveðja frá systrunum Ásu og Dóru |
Mánudagur
20. febrúar 2006
Margrét Pétursdóttir
er 83ja ára í dag
Bestu kveðjur frá börnum, tengdabörnum
og barnabörnum.
|
Mánudagur
20. febrúar 2006
Stórhöfðinginn Sæmundur Bj Árelíusson
er sextugur í dag
Sæmundur er Siglfirðingum vel kunnugur. Var framkvæmdastjóri Þormóðs
ramma hf til margra ára.
Sæmundur fær kæra afmæliskveðju frá aðdáendum - og Lífinu á Sigló |
|
Sunnudagur
19. febrúar 2006
Hádegisveðurmynd og
hús dagsins eru HÉRNA |
|
Sunnudagur
19. febrúar 2006 Fallegur bátur, nýr "úr kassanum"
var sjósettur í gær klukkan 15:40 Báturinn var
smíðaður hjá JE-Vélaverkstæði.
Addi afi GK 302 2701 heitir báturinn og er skráður í Sandgerði,
en verður væntanlega gerður út frá Siglufirði |
|
Sunnudagur
19. febrúar 2006 Svarthöfði og Obi-Wan Kenobi berjast um
yfirráð alheimsins. Nei annars þetta eru bara tveir drengir úr
norðurbænum að leika sér, þeir Patrekur og Kristinn |
Sunnudagur
19. febrúar 2006 Vélsleðaferð í
Skútudal og Skarðsdal.
Nokkrar myndir frá Ásmundi Einars

|
Sunnudagur
19. febrúar 2006 Siglufjörður í gær eftir hádegið. |
|
 Sunnudagur
19. febrúar 2006 Eftir "langan og leiðinlegan vetur"
- það er undanfarna leiðinda frost, hríð og rigningardaga - var
greinilegt að það voru fleiri en mannfólkið sem fagnaði sólinni sem
skein í allan gærdag, svo lengi sem fjöllin ekki komu í veg fyrir það.
Sveinn Þorsteinsson rak augun í þessa sendlinga á Hafnarbryggjunni
laust eftir hádegið. |
|
Sunnudagur
19. febrúar 2006 Ein gömul:
Togarajaxlar frá þeim tíma sem sjómennskan var oftar en ekki
þrælavinna og aðeins fær full hraustum drengjum.
Þessa mynd tók Jóhann Örn Matthíasson. -- Ég þekki suma þarna örugglega,
en eftir öllum nöfnum man ég ekki. Þeir sem þekkja sendi mér nöfnin og
ég bæti þeim við. |
Sunnudagur 19. febrúar 2006
Hún besta amma og mamma okkar,
Hanna Guðrún
Pétursdóttir
er 67 ára í dag.
Hún fær kærar kveðjur frá börnum og
barnabörnum.
Hér
er hún ásamt syni sínum, Pétri Bjarnasyni á góðri stundu.
|
Sunnudagur 19. febrúar 2006
Birgitta Þorsteinsdóttir
er 16 ára í dag.
Hún er dóttir Fanneyjar og Steina Sveins.
Innilegar afmælisóskir. Amma og Afi.
|
|