Lífið í febrúar 01-11 2006 | Lífið í febrúar 12-18 2006 | Lífið í febrúar 19-28 2006

>>>>>>>>>>> Lífið í febrúar 01-11 2006

 

Til forsíðu
Til baka
Sjúkraflutningar
Handboltastelpur
Íþróttamaður 2005
Fríður hópur




Ljósmyndasafn Steingríms
á netinu.

Steingrímur Kristinsson Siglufirði
G-892-1569
S-467-1569

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Siglfirski fréttavefurinn  Lífið á Sigló- s. 892-1569 - h.s: 467-1569
GagnagrunnurMynda-albúmMyndamöppurTenglasíða- 1
Tenglasíða-2Að gefnu...
123.is/sksigloMyndavél-sagaMakka-notendurSAMKOMURUmræðan
HádegisveðriðVeðrið NÚNAVefmyndavélFærð á norðurlandiFærð á vesturlandi

 SAMKOMUR + Skíðasvæðið -  Smelltu HÉR til að skoða, og/eða settu inn tilkynningu sjálfur HÉR 

Laugardagur 11. febrúar 2006  Aðsent: Á síðunni www.austurferd.blogspot.com   segir af ferð Jóns Bjarka Magnússonar Siglfirðings ásamt vini sínum Sigga austur um Síberíu, Mongólíu, Kína, Víetnam og nú í Kambodíu. 
Þá er síðan www.gongu.garpar.com  teng Siglufirði að því leyti að þar má finna myndir og lýsingar af mörgum gönguferðum sem ég hef farið í undanfarin ár með góðum hópi fólks. Siglfirðingar eru allstaðar. Á fjöllum sem í austurvegi.
Ég skoða síðuna þína reglulega og hef raunar fylgst með gangi mála á Sigló nær einvörðungu með því að kíkja hérna inn. Ef síðunnar nyti ekki við hefðu tengsl mín við fjörðinn rofnað enn meir en raun ber vitni. -  Kveðjur til Siglfirðinga  -- Magnús Hannibal Traustason…( Maggi á Sauðanesi )……

Laugardagur 11. febrúar 2006  Eru Siglfirðingar komnir í "guðatölu" ? -- Það taka víst ekki allir allt það sem heilagan sannleika sem í Dagblaðinu stendur, en ef eitthvað er að marka það sem meðfylgjandi mynd segir, þá er að minnsta kosti einn Siglfirðingur kominn í guðatölu, svona eins og kenningar segja í fornbókmenntum. Þarna er átt við Hauk Snorrason. (son Snorra Dalmars og Hildar)  (Dagblaðið í gær -aðsent)  Hérna geturðu farið inn á sjálft viðtalið í Dagblaðinu, og orð landlæknis við þessari "guðstrú" og ef þú villt fræðast meira um þessa "dýrlinga" geturðu farið hingað

Laugardagur 11. febrúar 2006    Hádegisveðurmynd og hús dagsins eru  HÉRNA

Laugardagur  11. febrúar 2006  Siglfirðingar áberandi á Akureyri:
Prófkjör Sjálfstæðisflokksins á Akureyri fer fram um helgina vegna komandi bæjarstjórnarkosninga. Kosið verður um sex efstu sætin og taka tuttugu þátt í prófkjörinu. Á kjörskrá eru á annað þúsund manns. Siglfirðingar eru áberandi í prófkjörinu. Þau Baldur Dýrfjörð og Jóhanna Hlín Ragnarsdóttir sækjast bæði eftir bæjarstjórnarsæti á framboðslistanum. Formaður kjörstjórnar er Siglfirðingur, Anna Þóra Baldursdóttir. (Dóttir Baldurs Eiríkssonar)  -- Og síðast en ekki síst er Siglfirðingur framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi; Guðmundur Skarphéðinsson. Guðmundur er búsettur hér á Siglufirði, en er með fasta viðveru á skrifstofu flokksins á Akureyri. -- Myndirnar eru af frambjóðendunum, Jóhönnu Hlín og Baldri Dýrfjörð.   Ég var á Akureyri í gær og komst ekki hjá því að sjá þessi andlit sem allstaðar blöstu við á stórum myndum.  -  Hvernig ætli að gangi með uppstillingarnar til sveitarstjórnarkosninganna hjá flokkunum á Siglufirði og Ólafsfirði ?

Laugardagur  11. febrúar 2006  Ein gömul:  
 

Bæjarstjórn Siglufjarðar fundar í Bókasafninu á Siglufirði árið 1965

Laugardagur  11. febrúar 2006
Sigurbjörg Jónasdóttir, dóttir hennar Svövu minnar og Jónasar Hallgrímssonar á afmæli í dag, hún er 24 ára.
Bestu hamingjuóskir J.H. og mamma

Laugardagur  11. febrúar 2006
Þór Jóhannsson
er 45 ára í dag
Laugardagur  11. febrúar 2006
Margrét M Steingrímsdóttir
er 51 árs í dag  -- Til hamingju með daginn - pabbi og mamma 
Laugardagur  11. febrúar 2006
Skúli Jónsson
er 55 ára í dag
Föstudagur 10. febrúar 2006  Ég skrapp til Akureyrar í morgun - verð kominn til baka seinni partinn  S.K.

Föstudagur 10. febrúar 2006 Eins og fram kom í gær (neðar) þá kom Sigurvin með veiðibátinn Jón Steingrímsson RE 7 til hafnar í fyrrakvöld, en báturinn hafði fengið veiðarfæri í skrúfuna. Báturinn var á Grálúðuveiðum í net. Svo óheppilega vildi til í slæmu veðri að netatrossa flæktist í skrúfunni. Báturinn er með tvær hliðarskrúfur svo hann gati haldið sjó þar til veður lægði aðeins og Sigurvin sótti hann. Í allan gærdag börðust tveir kafarar við trossuna sem kirfilega og þétt vafin var um öxul og skrúfu. En því verki lauk seinni partinn í gær. Meðfylgjandi myndir tók Sveinn Þorsteins af öðrum kafaranum Skúla Jónssyni á leið upp með netapart í eftirdragi, sem og hann fékk sér smá kaffisopa í leiðinni til að fá hita í kroppinn eftir volkið neðansjáfar.
Við hlið hans stendur hinn kafarinn Guðmundur Einarsson.

Föstudagur 10. febrúar 2006  Ein gömul:  

    Þessi mynd er tekin 19. september árið 1992
Föstudagur 10. febrúar 2006
Guðmundur Jónasson
er 88 ára í dag
Föstudagur 10. febrúar 2006
Arnar Freyr (sonur Ellu Maju)
er 11 ára í dag,
afmæliskveðjur frá fjölskyldunni
 

Fimmtudagur 9. febrúar 2006  Bryndís Sunna Valdimarsdóttir  tengdadóttir Guðrúnar Árnadóttur og Arnars Ólafssonar Suðurgötu 58 Sigló, keppir við karlmennina á úrslitakvöldinu í Söngvakeppni sjónvarpsins  2006. Lag hennar Hjartaþrá sem Sigurjón Brink flytur þann 18. febrúar er eina lagið í úrslitum sem samið er af konu. -----   Lestu meira með því að smella á myndina
Hér tengill til síðu þar sem hægt er að hlusta á lagið hennar:
http://servefir.ruv.is/frame2/15.html

Fimmtudagur 9. febrúar 2006    Hádegisveðurmynd og hús dagsins eru  HÉRNA

Fimmtudagur 9. febrúar 2006 Björgunarbáturinn Sigurvin fór í gærmorgun um 80 sjómílur norður í haf til að ná í veiðiskipið Jón Steingrímsson RE 7 973, en skipið hafði fengið veiðarfæri í skrúfuna. Leiðinda veður var á þessum slóðum en ekkert amaði af áhöfninni og höfðu þeir það þokkalegt, en bógskrúfan gat beitt skipinu með stefnið í vind og öldur. Sigurvin og kom að bryggju á Siglufirði með bátinn klukkan 23:35 í gærkveldi, en ferðin hafði gengið vel, ganghraði mun hafa verið um 6 sjómílur með bátinn í togi

Fimmtudagur 9. febrúar 2006 Langir skuggar og stingandi strá.

Mynd frá í gær klukkan 15:28 - rétt áður en sólin hvarf "undir" fjallatoppana og hætti að skína á þessa þúfutoppa of fleira í norðurbænum.

Fimmtudagur 9. febrúar 2006  Það hafa verið talsverð viðbrigði fyrir okkur hér fyrir norðan á Sigló og raunar víðar að verða fyrir þessari kuldabylgju sem skall á okkur aðfaranótt þriðjudags, fyrst úrhellis rigningu og slyddu og síðan -10-15 °C vindkælingu, sé miðað við hitann sem verið hafði undanfarna daga þar áður. Sumir áttu erfitt með að komast inn í bíla sína á þriðjudagsmorgni síðastliðins vegna allt að 5 mm þykkrar klakabrynju sem á þeim var og frosinna bílhurða.
En hvað sem því líður, þá hefur örugglega verið kaldara þarna uppi á slóð flugvélarinnar á myndinni sem flaug yfir Siglufjörð klukkan 15:30 í gær og hefur að líkindum verið í 30-40 þúsund feta hæð.

Fimmtudagur 9. febrúar 2006 
Í tilefni dagsins langar mig að biðja þig að koma á framfæri afmæliskveðju til :
Stellu M Einarsdóttur sem er 66 ára í dag
og -  Björgvins S Jónssonar sem er 64 ára í dag

Kveðja Ó.Þ.Ó. og co
Fimmtudagur 9. febrúar 2006 
Hún Helga Eir
er 10 ára í dag.
(dóttir Sidda og Huldu)
Sendum henni innilegar hamingjuóskir
með daginn.
Fimmtudagur 9. febrúar 2006 
Stefán Geir Andrésson
er 17 ára í dag  Við viljum óska honum til hamingju með afmælisdaginn, kveðja frá mömmu, pabba og Jón Óskari á Ítalíu og fjölskyldunni í Reykjavík -- og  n.n.

Fimmtudagur 9. febrúar 2006  Ein gömul:  Í gær miðvikudag birtist á síðunni mynd af þremur stúlkum sem stilltu sér upp fyrir ljósmyndarann með hljóðnema í hendi og "tóku lagið" -- Þessi þrjú hér sem eru á þessari mynd, eru af árgangi ´32 eru að spila og taka lagið uppi á sviði fyrir jafnaldra sína og maka þeirra á árgangsmóti árið 1992 á Hótel Höfn (eða Læk) - Fleiri en þar voru hafa sennilega ekki heyrt þetta tríó leika fyrr eða síðar, en þennan dag.  -- En þetta eru Jón Helgason - Guðný Friðfinnsdóttir og Óli Björnsson

Miðvikudagur 8. febrúar 2006   Hádegisveðurmynd og hús dagsins eru  HÉRNA

Miðvikudagur 8. febrúar 2006  Á varðbergi gæti þessi mynd kallast, en hún sýnir enda Stórabola, snjóflóðavarnargarðsins í suðurbænum og einn af hinum fjölmörgu "skokkurum" á Siglufirði, hvíla lúin bein sín þar í stutta stund samhliða því að virða fyrir sér gott útsýnið.

Miðvikudagur 8. febrúar 2006  Það er að verða æ algengara í dag að bátum af þessari hefðbundnu stærð sé breytt með því að byggja yfir þá. Nýlega byggði JE-Vélaverkstæði yfir Freyr KÓ 77 2575  - en þessum bát Baddý SI 277 2545 var einnig breytt fyrir stuttu annarsstaðar. -- Myndin er frá í gær, þar sem báturinn lá við bryggju í heimahöfn.

Miðvikudagur 8. febrúar 2006  Ein gömul:  Þær hafa held ég aldrei komið fram opinberlega saman þessar, en þær virðast þó greinilega hafa tekið lagið saman. Myndin er tekin í bílskúr einhvers staðar í Reykjavík, þar sem allt var til reiðu  til hljómflutnings, magnarakerfi, hljóðfærin og jafnvel upptökubúnaður, eins og raunar mun hafa verið mjög algengt síðustu áratugina í hundraða tali, alt til dagsins í dag.
Þetta eru Systurnar Gústa og Billa og Gerða dóttir Billu.
Það er Ágústa Lúthersdóttir - Sigurjóna Lúthersdóttir og  Ásgerður Guðbrandsdóttir.

Miðvikudagur 8. febrúar 2006
Hann pabbi okkar Sverrir Gíslason
er 43ja ára í dag.  Við viljum senda honum
kærar afmælis kveðjur þar sem hann er fjarri
heimili sínu og mamma vill einnig senda
kærar kveðjur...!!
Miðvikudagur 8. febrúar 2006
Sverrir Sigurjón Jónsson
er 53ja ára í dag
Þriðjudagur 7. febrúar 2006  Nú eru nafnhugmyndirnar vegna nýja sveitarfélagsins komnar yfir 70 talsins.
<<<< Smelltu á Nafn-hugmyndir á vinstri spássíunni og lestu síðan á "Umræðan"
Þriðjudagur 7. febrúar 2006   Hádegisveðurmynd og hús dagsins eru  HÉRNA

Þriðjudagur 7. febrúar 2006  Grétar Rafn fær óvæntan samning hjá AZ Alkmaar -- Landsliðsmaðurinn Grétar Rafn Steinsson skrifaði í dag undir nýjan samning við hollenska félagið AZ Alkmaar sem gildir til sumarsins 2011 og vakti það mikla athygli enda gekk hann til liðs við félagið fyrir hálfu ári og gerði þá samning sem gildir til 2008 með möguleika á tveimur árum til viðbótar. Hollenska félagið vildi hinsvegar verðlauna hann fyrir góða frammistöðu með þessum samning. Mynd: Fótbolti.net - Andri Janusson  Fengið að láni hjá Fotbolti.net  Lesa meira  ---  Þeir sem ekki þekkja til Grétars, þá er hann sonur Guðlaugar I Guðmundsdóttur og Steins Elmars Árnasonar

Þriðjudagur 7. febrúar 2006 Ein gömul:    Bryggjuball á Síldarævintýrinu 1992

Þriðjudagur 7. febrúar 2006  Einu sinni Siglfirðingur, alltaf Siglfirðingur.
Friðrik Ingi Frímannsson (Gjertsen), sem ungur flutti héðan til Noregs og býr þar núna, í Olden, er fertugur í dag.
Foreldrar hans eru Sigrún Friðriksdóttir (Hrefnu og Fidda) og Frímann Ingimundarson.
Á myndinni, sem tekin var 2003, er hann með Þóru Frímannsdóttur, ömmu sinni.

Þriðjudagur 7. febrúar 2006
Þorsteinn Sveinsson
er 40 ára í dag
Þriðjudagur 7. febrúar 2006
Mánudagur 6. febrúar 2006   Hádegisveðurmynd og hús dagsins eru  HÉRNA

Mánudagur 6. febrúar 2006  Íþróttamaður ársins var kjörin í 27. sinn af hálfu Kiwanis klúbbsins Skjaldar á Siglufirði seinni partinn í gær á Bíó Café, nú fyrir árið 2005. Einnig voru tilnefndir íþróttamenn sem skarað hafa fram úr á árinu 2005.
Ég var á staðnum og tók nokkrar myndir við þetta tækifæri. Myndirnar á tenglinum >> Íþróttamaður 2005  Og listi hinna útvöldu eru með myndinni hér til hliðar (undir myndinni)

Mánudagur 6. febrúar 2006 Ein gömul:   Þessi mynd er til fyrir á vefnum mínum, en hún er vissulega þess virði að skoða hana aftur, og frásögn í Morgunblaðinu árið 1970, sem varð tilefni myndatökunnar. En allir Siglfirðingar kannast við þessa kappa

Mánudagur 6. febrúar 2006  Siglfirðingur fæddist á laugardagsmorgun (4.febrúar ) kl.7:20 á fæðingadeild Landsspítalans. Hún er dóttir Ólafs Björnssonar (Biddýar) og Sóleyjar Önnu Pálsdóttir (Möggu Gunnars). Hún vó 14 merkur og var 49 cm að lengd.

Mánudagur 6. febrúar 2006 Þessi litla hnáta, Margrét, fæddist 2. febrúar síðastliðinn kl. 06.26 á FSA. Hún var 15  -- merkur tæpar (3.630 gr.) og 52 cm á lengd. Stóri bróðir hennar (nýlega orðinn tveggja ára) heitir Mikael. Foreldrar eru Arnheiður Jónsdóttir og Sigurður Ægisson.

Mánudagur 6. febrúar 2006 
Gunnar Freyr Þorleifsson
er 14 ára í dag ---  Foreldrar og systkin óska honum innilega til hamingju með daginn. Þessi mynd er tekinn í Liverpool og er af Gunnar og einum frægasta leikmanni Liverpool fyrr og síðar Steven Gerrard, núverandi fyrirliða Liverpool. - Gunnar er sonur Þorleifs Elíasar og Kristínar Ottesen

Mánudagur 6. febrúar 2006
Hörður Þór Hjálmarsson
er 54 ára í dag
Mánudagur 6. febrúar 2006
Gunnar Jóhannsson
er 79 ára  í dag
Sunnudagur 5. febrúar 2006   Hádegisveðurmynd og hús dagsins eru  HÉRNA

Sunnudagur 5. febrúar 2006  Þorra-Blót Snerpu  var haldið í gærkveldi, sem framhald af Þorramótinu fyrri part dagsins í gær.
Þar fór fram að loknu borðhaldi, verðlaunaafhending, smáuppákomur, Iðjukórinn söng og svo var dansað á eftir. 
Nokkrar myndir frá kvöldinu eru hér >> Þorra Blót + myndir Sveins Þorsteins

Sunnudagur 5. febrúar 2006  Ein gömul:  Ekki man ég hvort þessi mynd hefur komið hér áður á vef minn, en þetta eru handboltastúlkur frá Siglufirði og Hofsós, tekið í lok kappleiks sem fram fór á Hofsós sumarið 1966
Ég væri þakklátur ef einhver pældi í nöfnum þeirra og sendi mér, - mun ég þá setja nöfnin neðan við myndina

Sunnudagur 5. febrúar 2006 Sunnudagur 5. febrúar 2006

Laugardagur 4. febrúar 2006Þorramót Snerpu - Myndasyrpan - Sigurinn lenti í höndum bæjarstjórnarinnar.
Mín "neikvæðu" áhrif og óstuð Óla Kára virðast ekki hafa haft áhrif á sigurvilja bæjarstjórnarinnar sem heildar.
  Þorramót

Laugardagur 4. febrúar 2006  Þorramót Snerpu stóð sem hæst þegar ég yfirgaf svæðið rétt fyrir hádegið, ekki veit ég hvort mér tókst að trufla bæjarstjórnina í leik sínum, en þeir sýndu ýmis góð tilþrif, en útundan mér heyrði ég þó Óli Kára segja að hann "væri ekki í stuði"
Stór myndasyrpa frá mótinu kemur seinna í dag

Laugardagur 4. febrúar 2006    Hádegisveðurmynd og hús dagsins eru  HÉRNA

Laugardagur 4. febrúar 2006  Ágangur 1982 kominn með heimasíðu >> Komið þið sæl árgangur 1982 ! - Slóðin á síðuna okkar er http://www.blog.central.is/siglo82  -- Þar getum við öll verið í sambandi og ákveðið bekkjamótið og fleira sem er ákveðið að halda í sumar. Síðan er í fullri vinnslu og hvetjum við ykkur öll að skila inn upplýsingum svo við getum náð í ykkur s.s aðeins árgangur ´82. og svo verður þetta lifandi síða fyrir okkur öll. Kveðja, Ívar Örn Elefsen    --- Athugið, einnig er tengill til síðurnar á "Tenglasíða-2"

Laugardagur 4. febrúar 2006  Þorramót íþróttafélagsins Snerpu. Keppt verður í Boccia við bæjarstjórnina klukkan 10:30 í dag í Íþróttahöllinni. Báðir hópar telja sigur sinn vísan, og mikil spenna er í lofti.  Ég ætla að mæta og reyna að taka bæjarstjórnina á taugum með því að skjóta á þá ört með myndavél minni -- því auðvitað held ég með Snerpuliðinu (konan mín er í því liði) 
Deginum mun svo ljúka í sameiginlegri gleði um kvöldið á þorrablóti á Bíó Café.

Laugardagur 4. febrúar 2006 Seinni partinn í gær fór fram kynning hjá "SR-Byggingavörur" á ýmsum vörum sem verslunin selur frá BYKO -
En sérfræðingar frá Byko voru þar með sérstaka kynningu á nýjum tegundum af "Gipsonit" plötum, allskyns festingum, verkfærum frá AGA og fleiru.
Þarna voru boðaðir byggingameistarar, smiðir, rafvirkjar og fleiri sem ætla mátti að gagn hefðu af.
Gestum var boðið upp á léttar veitingar meðan á kynningum stóð. Á myndunum eru;
Hermann Einarsson innkaupastjóri SR-Byggingavörur og yfirlitsmyndir af hluta hópsins sem mættur var.

Laugardagur 4. febrúar 2006  Ein gömul:  Á leið heim í hádegismat. Þessi gata væri betur mokuð og meira pláss fyrir bíla og gangandi árið 2006 (ef það væri einhver snjór).
En á þessum tíma fyrri part árs þegar myndin var tekin, voru fleiri á ferðinni á tveimur jafnfljótum, en fjórum hjólum. --  Nú telst það jafnvel viðburður að menn fari gangandi heim í hádeginu, öfugt við það sem var þarna árið 1966.

Laugardagur 4. febrúar 200   
Heiðrún Sólveig Jónasdóttir
er 39 ára í dag  
Við viljum óska henni til hamingju með afmælisdaginn, kveðja frá fjölskyldunni

Laugardagur 4. febrúar 2006
Mamma okkar,amma og tengdamamma Jósefína Benediktsdóttir
er 48 ára í dag og viljum við senda henni STÓRT knús og kossa í tilefni dagsins.. Kveðja að sunnan..Bryndís,Rósa Marý,Benni,Þorsteinn Frímann og Bríet Stefanía með henni á myndinni er einmitt Briet Stefanía barnabarn hennar

Laugardagur 4. febrúar 2006
Adolf Árnason
er 42ja ára í dag
Laugardagur 4. febrúar 2006
Guðmundur Árnason
er 77 ára í dag

Föstudagur 3. febrúar 2006  Blátoppur í byrjun febrúar.
Það er full snemmt sagði Óskar Berg Elefsen, sendandi myndarinnar af "blómstrandi" blátoppsrunna sem er í garðinum hans, en hann rak augun í þetta í morgun og tók mynd.

Föstudagur 3. febrúar 2006     Hádegisveðurmynd og hús dagsins eru  HÉRNA
Föstudagur 3. febrúar 2006  Skoðið nafnalistann: Tengillinn Nafn-hugmyndir á vinstri spássíu

Föstudagur 3. febrúar 2006 Hrafnaþing?
Nei þetta er einn og sami hrafninn ofan á ljósastur við Snorragötu framan við Síldarminjasafnið, að gæða sér á leifum af þorskhaus í gær.

Föstudagur 3. febrúar 2006  Ein gömul:  Dýnamít   Þær voru ekki upp á marga fiska reglurnar um flutning og meðferð dýnamíts árið 1966, þegar verið var að skipa upp frá borði erlenda skipsins Irena nokkrum bílförmum af dýnamíti til nota vegna jarðangagerðar í gegn um Strákafjall. Þarna voru jú tveir lögregluþjónar til kvaddur og stendur annar þeirra (Bragi Magg) í dyrum vörubifreiðarinnar. Að öðru leiti gekk uppskipunin sinn vana gang eins og um mjölsekki eða eitthvað álíka væri um að ræða. Ég ásamt öðrum forvitnum komust óáreittir á vettvang. Enginn lögreglubíll með blikkljós framan við og aftan vörubifreiðarnar sem fluttu farminn út að gangnamunna, aðeins lögregluþjónar sem sátu inni í vörubílunum á leiðinni.

Föstudagur 3. febrúar 2006
Hafsteinn Hólm Þorleifsson
er 71 árs í dag
Föstudagur 3. febrúar 2006
Júlíus Jónsson
er 55 ára í dag -- bestu kveðjur frá Jónínu og Sigga- og þínum vini, SK
Fimmtudagur 2. febrúar 2006   Hádegisveðurmynd og hús dagsins eru  HÉRNA

Fimmtudagur 2. febrúar 2006 Nú hefur Vörumiðlun hætt öllum vöruflutningum til og frá Siglufirði og Norðurfrakt tekið alfarið við þeim flutningnum, en síðasta ferð þeirra Vörumiðlunarmanna var í gær. Þetta er sagt gert í hagræðingarskyni, og má satt vera þar sem vitað er að suma daga vikunnar hefur það komið fyrir að bílar beggja komi hingað hálftómir. En svona samkomulag mun hafa verið gert víðar á landinu, þar sem Landflutningar og Flytjandi hafa skipt á milli sín flutningaleiðum, til að vera ekki að berjast í samkeppni um takmarkaðan flutning í mörgum tilfellum. Svo er að vona að farmgjöldin hækki ekki í framhaldi af samkomulaginu hér, til og frá Siglufirði.

Fimmtudagur 2. febrúar 2006 Aðsent:  Ég fékk það skemmtilega verkefni sem sérlegur upplýsingafulltrúi saumaklúbbsins Sjöstjarna að senda þér línu og mynd frá okkur skvísunum í saumaklúbbnum eftir Siglufjarðarferðina okkar um síðustu helgi. Ég fékk samstundis að vita að komin væri mynd af mér, Jónu Báru Hauks og Rikku Guðjóns á heimasíðuna þína, enda ert þú með virkustu fréttamiðlun til Siglfirðinga í heiminum og því varst þú á undan mér, en það aftrar mér nú ekki frá því að ljúka verkefninu sem mér var falið...
Ferðin okkar um síðustu helgi var farin til að halda upp á afmæli hennar Steinu okkar Matt sem er eina okkar sem býr á Siglufirði núna og átti hún fertugsafmæli í fyrra dag (til hamingju Steina okkar) og síðan varð Jónu Bára sem varð fertug 1. janúar og því tvöföld ástæða. Við gistum allar á gistiheimilinu hjá Öllu sem gerði þetta enn skemmtilegra og eins og myndirnar sýna á http://www.123.is/herdis  þá skemmtum við okkur konunglega. Við fórum í verslunarferðir og kusum í sameiningarkosningunum með Steinu á laugardeginum, fórum í kosningakaffi til Gunnu Finna. Við fórum svo út að borða eðalmat á Bíó-Kaffinu um kvöldið hjá þeim Finna, Sibbu, Höddu og Ægi og skemmtum okkur (og vonandi öðrum) fram eftir nóttu. Sem sé kveðja til þín Steingrímur og allra hinna sem við hittum og náðum ekki að hitta á Siglufirði um helgina, Sjöstjörnur- Rikka, Hulda Alfreðs, Elsinga Konráðs, Konný Agnars, Steina Matt, Rakel Björns, Jóna Bára og Herdís - myndin er tekin á barnum á laugardagskvöldinu

Fimmtudagur 2. febrúar 2006 Halló - á hvaða leið ert þú, litla flotkríli?

Fimmtudagur 2. febrúar 2006  Ein gömul: Það er vart hægt að ætlast til að yngri kynslóðin átti sig strax á því af hverju þessi mynd er, en með því að skoða fjöllin fara þeir yngri fljótt að átta sig á að myndin er frá Siglufirði en þeir eldri sjá og vita að þetta eru húsakynni Síldarverksmiðjunnar Rauðku, efnarannsókn, skrifstofa og geymslurými í dökkleita húsinu til vinstri Lagerhús í miðju og ketilhús til vinstri. Allt á horni Gránugötu og Tjarnargötu -- árið 1965

Fimmtudagur 2. febrúar 2006
Guðný Erla Fanndal
er 35 ára í dag

Fimmtudagur 2. febrúar 2006

Fimmtudagur 2. febrúar 2006
Hann Viktor Daði Sævaldsson er 9 ára í dag
Hann er hér á mynd sem gæti best heitið "Ber er hver að baki nema bróður eigi sér", svo þétt stendur bróðir hans að baki honum á myndinni sem tekin var á fótboltamóti síðasta sumar!  Viktor Daði er sonur Hönnu Hrefnu og Sævalds.

Miðvikudagur 1. febrúar 2006 Mikil umræða fer nú fram í fjölmiðlum, alþingi og á meðal almennings í landinu, hvort ríkisstjórn og alþingi ætli nú endanlega að ganga frá farmannastétt og farmskipaútgerð dauðri. Ég sem gamall "farmaður" finn til með þeirri þróun sem hefur farið hratt niður á við undanfarin ár og ef ekkert verður að gert nú á næstu vikum og mánuðum verður svo komið meðal annars að íslenska ríkið verði orðinn styrkþegi Normanna og Færeyinga, þar sem þeir borga nú þegar með flutningum til og frá Íslandi. Í tengslum við þessa þróun, þá var mér send þessi fróðleiksmoli varðandi skipið Green Atlantic sem sést hér fyrir ofan í höfn á Siglufirði 10 apríl 2005
 Húsavík 31 Janúar 2006. - Sæll Steingrímur.  Ég var að lesa hjá þér og skoða síðuna “Lífið á Sigló” og rakst þar á mynd af flutningaskipi sem heitir Green Atlantic, en skipið hefur oft komið hingað til lands, með frosnar fiskafurðir. Það hefur hins vegar aldrei verið getið um það í blöðum, að skipið var á sínum tíma smíðað fyrir Skipadeild sambandsins (SÍS). -- Skipið hét Jökulfell og var þriðja skipið sem bar það nafn hjá útgerðinni jafnframt sem Jökulfellið var síðasta skipið, sem smíðað var fyrir Sambandið. Það var selt úr landi fyrir nokkrum árum. -- Með bestu kveðjum Hafliði Óskarsson           

Miðvikudagur 1. febrúar 2006    Hádegisveðurmynd og hús dagsins eru  HÉRNA

Miðvikudagur 1. febrúar 2006  Listi yfir þær nafnahugmyndir sem "Lífið á Sigló" hefur frétt af, er að finna HÉR Bætið við nöfnum á listann með því að senda mér, eða senda á Umræðan

Miðvikudagur 1. febrúar 2006   Í gær fór fram athöfn í fundarsal Bátahússins þar sem forráðamenn Sparisjóðs Siglufjarðar afhentu Síldarminjasafninu 5 milljónir króna að gjöf, en það voru þeir Ólafur Marteinsson stjórnarformaður og Ólafur Jónsson, sparisjóðsstjóri. Þar voru og stjórnarmenn Fáum og fréttamenn. -- Í gjafabréfi segir m.a. að gjöfin sé viðurkenning fyrir ómetanlegt starf við að varðveita sögu síldaráranna og Siglufjarðar.
Aðspurður um það hvað gera ætti við þessa miklu peninga sagði Örlygur safnstjóri að þeir yrðu notaðir til að greiða niður skuldir safnsins. Mikill skuldabaggi hvíldi enn á safninu eftir uppbyggingu síðustu ára en nú sæju menn fram á að honum verði að mestu létt af eftir tvö ár.
Á myndinni eru: Örlygur Kristfinnsson safnstjóri - Ólafur Marteinsson stjórnarformaður Sparisjóðs Siglufjarðar - Ólafur Jónsson Sparisjóðsstjóri og Hafþór Rósmundsson Stjórnarformaður Síldarminjasafnsins.  
Nokkrar myndir frá afhendingunni >>  5 miljónir

Miðvikudagur 1. febrúar 2006
Í gær fór fram við Heilbrigðisstofnun Siglufjarðar smá athöfn í tilefni af því að Sýslumaðurinn afhenti Heilbrigðisstofnunni lyklana af Sjúkrabíl Rauða krossins. En stofnunin tók þar með við rekstri bifreiðarinnar, sem um langt tímabil hefur verið í höndum lögreglu Siglufjarðar 
Athugið: Tvær myndir koma upp á sömu síðu sé smellt á aðra hvora myndina.

Miðvikudagur 1. febrúar 2006 Ein gömul:  Siglufjörður 1965
Miðvikudagur 1. febrúar 2006
Bryndís Jónsdóttir
er 92ja ára í dag
Miðvikudagur 1. febrúar 2006