Lífið 1.-8. nóvember | Lífið 9.-16. nóv. 2003 | Lífið 17.-23. nóv. 2003 | Lífið, 24.-30. nóv. 2003

>>>>>>>>>>> Lífið 9.-16. nóv. 2003

 

Til forsíðu
Til baka
Rarik
Bátahúsið
Baldi bakari
AUGLÝSINGAR
APOTEKIÐ
Mjölútskipun
Síldarvinnslan
Knattspyrna




Ljósmyndasafn Steingríms
á netinu.

Steingrímur Kristinsson Siglufirði
G-892-1569
S-467-1569

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

****** AUGLÝSINGAR ******

16. nóvember 2003  Unglingamót í knattspyrnu. Unglingar  á Norðurlandi, kepptu í Íþróttahúsinu á Siglufirði í dag. Mættir eru krakkar úr flestum byggðum, sitt hvorumegin við Siglufjörð. Ég leit þar inn í hádeginu og smellti nokkrum myndum.

16. nóvember 2003  Síðbúnar myndir frá ferðalagi starfsmanna Síldarvinnslunnar (Starfsmannafélag SR) til Búddapest. Aðsendar myndir sem Birgitta Pálsdóttir tók 2-6 október 2003

16. nóvember 2003  Harðir golfarar.  Þeir létu ekki deigan síga Þór Jóhannsson og félagar, en þeir voru að leika golf í logninu og "frostmarkinu" í gærdag. Þeir létu einstaka snjóbreiðu engin áhrif hafa á sig. Snjórinn var harður eftir næturfrostið og leit út eins og besti völlur, það vantaði bara græna litinn á stöku stað.

Eðvald Eiríksson  er þarna að sinna löndunartór, krana 2,  hjá SR. Sennilega um árið 1964

16. nóvember 2003   Sjúkraflug. Áætlunarflug á Siglufjörð hefur fyrir nokkuð löngu síðan lagst af, og eru Siglfirðingar nauðbeygðir  til að fara með rútu til Sauðárkróks, vilji þeir fljúga til eða frá Reykjavík, (eða annað) Það er því sjaldgæft á sjá flugvél af þessari tegund lenda á Siglufjarðarflugvelli, má raunar segja sem betur fer í þessu tilfelli, - þar sem þessi vél kom í gær til að sækja sjúkling.

16. nóvember 2003  "Hann setti svip á bæinn"  Björn Björnsson síldarmatsmaður, fæddur 5. desember 1908

15. nóvember 2003  1.640 tonn af loðnumjöli frá Síldarvinnslunni á Siglufirði, var verið að lesta í þetta skip AUDRE frá Klaipedia (Litháen) í morgun.

Hraðfrystihús SR - ca 1964   Stefán Friðleifsson og Hallur Garibaldarson -- Kári Sumarliðason í bakgrunni.

15. nóvember 2003  Apótekið Siglufirði, þar stóð yfir kynning á snyrtivörum, og þar smellti ég á nokkrum myndum af starfsfólkinu, kynningardömunni.

15. nóvember 2003  "Hún setti svip á bæinn"  (og gerir enn) Svava Baldvinsdóttir fædd 13. mars 1929

14. nóvember 2003  Síldarvinnslan á Siglufirði, hefur undanfarið verið að blanda loðnumjöl á ákveðinn hátt,  sem síðan er sent jöfnum höndum með Norðurfrakt til til Fóðurverksmiðjunnar Laxár í Eyjafirði. Fóðurverksmiðjan Laxá, er dótturfyrirtæki Síldarvinnslunnar sem sérhæfir sig í framleiðslu á fiskeldisfóðri. Samtals munu um 1500 tonn. fara þangað,  en bróðurparturinn er þegar kominn á áfangastað. Myndin sýnir er verið er að lesta einn bílinn í morgun.

14. nóvember 2003  Bátabryggja. Það gengur eins og í sögu, hjá þeim að ramma niður staurunum, í hinn nýja viðlegukant í bátadokkinni, sem unnið er að núna.

14. nóvember 2003   Skuggar hrafnsins. Þessir tveir hrafnar nutu útsýnisins í morgun, er þeir tylltu sér á krossinn á turni Siglufjarðarkirkju.

Árið 1963 (ca)  Hafliðaplanið sennilega árið 1963. Hver þekkir litlu stúlkurnar, sem sennilega eiga kannski jafngamlar stúlkur, eða eldri í dag.

14. nóvember 2003     Aflatölur báta og skipa í október 2003

14. nóvember 2003  "Hún setti svip á bæinn"  Hólmfríður Magnúsdóttir skrifstofukona, fædd 26. janúar 1922

 

13. nóvember 2003  SR-Vélaverkstæði lætur nú vinna við það á fullum krafti, utan sem innan, við undirbúning við opnun verslunar sinnar, á Siglufirði. Þarna er Elmar Árnason, ásamt aðstoðarmanni að vinna við að slá upp fyrir tröppu við dyrnar, sem einnig verða endurnýjaðar.

13. nóvember 2003 Önnur flotkvíin hans Sigtryggs Kristjánssonar, er komin að landi, mikið líf er í kvínni og vel alinn fiskur virðist vera þarna á ferðinni, væntanlega tilbúinn til slátrunar. En Siddi hefur látið allan smærri fisk sem hann hefur aflað í sumar, í kvína og alið tittina, þar til nú að þeir virðast fullvaxnir.

13. nóvember 2003  Baldi bakari. Baldvin S Ingimarsson bakari, er nýkomin heim frá Lettlandi, þar sem var verið að baka fyrir hann Siglfirskt Laufabrauð. Hann samdi við Lettnskt bakarí um framleiðslu, sem er áætluð um 300.000-350.000 kökur. Nú hefur hann gert víðtækari samninga við Lettana, um fleiri tegundir, sem hann mun svo flytja inn til Íslands. Hann fer aftur utan í næstu viku. Nokkrar myndir sem hann tók í "bakaríinu," úti, sjást er þú smellir á myndana af Balda bakara.

13. nóvember 2003  "Hann setti svip á bæinn"  Sigurður Elefsen vélsmiður, fæddur 1. september 1928

12. nóvember 2003   Henriksen-planið 1963(sennilega) Hverjir þekkja sjálfan sig?   © Steingrímur...

12. nóvember 2003 Nýlega hófst vinna við endurnýjun á hluta smábátahafnarinnar inni í "Dokkinni" á Siglufirði. Sami verktaki og var með bryggjuna fyrir framan Síldarminjasafnið í sumar, sér um þetta verk einnig. þessi mynd er tekin í morgun.

12. nóvember 2003 Olíuskipið KEILIR lagðist að bryggju kl. 11:00 í morgun, til að losa hér um 600 tonn af Flotolíu og um 200 tonn af MB olíu, til Olís (Olíudreifing)

12. nóvember 2003  Lýsisskipið WEST MASTER, skráð á Bahama, með Lettneskri áhöfn, lestaði hér frá Síldarvinnslunni 1.250 tonn af lýsi í nótt. Skipið var að búast til brottfarar kl.9:50 í morgun, er þessi mynd var tekin.

12. nóvember 2003  Bátahúsið við Síldarminjasafnið, "þokast" áfram, hægt og sígandi. Þeir voru í kaffi í gærmorgun er ég heimsótti þá, verkið gengur vel, samkvæmt áætlun. Verið er að þekja húsið og mála það að utanverðu, það er millivegg, en gróf klæðning kemur utan á húsið eins og það sést ´hér á myndinni.

12. nóvember 2003  "Hann setti svip á bæinn"  Bjarni Bjarnason, verkamaður,  fæddur 12. júlí 1921

"11 nóvember 2003"  + september 1963  Hverjir þekkja sjálfa sig?

Þessi mynd var tekin í september 1963, © Steingrímur

11. nóvember 2003   Rarik á Siglufirði. -  Rarik, annast bæði raforku og heitavatns-dreifingu á Siglufirði. Þar er ekki fjölmennt lið. Hjá hitaveitunni starfa tveir, og hjá rafmagnsdeildinni, einnig tveir - og svo skrifstofan, þar sem eru tveir starfsmenn. Ég heimsótti bækistöðvarnar og hitti þar starfslið skrifstofu og rafveitu. Smelltu á myndina.

11. nóvember 2003 "Hann setti svip á bæinn"  Hilmar Jónsson byggingameistari, fæddur 3. október 1914

10. nóvember 2003   Auglýsing úr Einherja 25. apríl 1945

 

 Aðvörun
Nefndin vill alvarlega aðvara þá utanbæjarmenn, sem keypt hafa eða ætla að kaupa íbúðir í bænum, að gera ekki ráðstafanir til að flytja í þær eins og stendur, það því vegna tilfinnanlegrar húsnæðiseklu fá engir aðkomumenn að setjast hér að, nema þeir sem rétt hafa til þess samkvæmt húsaleigulögum.
Af sömu ástæðu eru húseigendur í bænum varaðir við að leigja utanbæjarfólki. Þeir, sem slíkt gera, mega búast við að verða sóttir til sekta, og aðkomufólkið verði borið út.

Siglufirði, 16. apríl 1945.
Húsaleigunefnd Siglufjarðar.

10. nóvember 2003  Lítið um að vera. Ekkert fréttnæmt bar fyrir augu mín í morgun, svo ég tók þessa mynd, sem sýnir morgunsólina skína á skýin sem eru yfir og bak við Hólshyrnuna og fjöllin okkar. 

10. nóvember 2003  "Hann setti svip á bæinn"  Helgi Kristjánsson vélstjóri, fæddur 29. september 1904

9. nóvember Á vef Fáskrúðsfjarðar:   http://www.faskrudsfjordur.is/  birta þeir reglulega stöðuna á framkvæmdum við göngin þar, og er það að sjálfsögðu, góð þjónusta. Mér var voru sendar upplýsingar um stöðuna við Héðinsfjarðargöng. Ef þú hefur áhuga á að skoða og minna þig á "stöðuna" við "framkvæmdirnar" við Héðinsfjarðargöngin, þá smellirðu á kortið.

9. nóvember 2003  Þetta hús, hefur Sigurjón Sæmundsson prentsmiðjustjóri falast eftir til kaups og niðurrifs. Gera má ráð fyrir að samningar um kaupin gangi eftir í þeirri viku sem nú er að hefjast. Ég hefi áður sagt frá áformum Sigurjóns, að kaupa lóð undir Prentsmiðjusafn. (frásögnin, neðarlega á bls.smelltu hér) En  Sigurjón stefnir á að byggt verði einmitt á þessu svæði, á milli Suðurgötu og Lindargötu,  veglegt hús sem hýsa muni Prentsmiðjusafn Íslands, en hann hefur nú þegar fest kaup á lóðinni þar sem "Hólar" stóð á og Sjómannaheimilið. Heyr fyrir þér Sigurjón.  

9. nóvember 2003 Keilir SI 145 - Hjalti Gunnarsson sendi mér 33 ljósmyndir, sem hann tók um borð í Keilir SI 145 og koma þær í ljós ef þú smellir á myndina af Keilir, mynd sem ég tók snemma í sumar.

9. nóvember 2003 "Hann setti svip á bæinn" Ásgrímur Björnsson, vélstjóri, fæddur22. febrúar 1927