Lífið 1.-8. nóvember | Lífið 9.-16. nóv. 2003 | Lífið 17.-23. nóv. 2003 | Lífið, 24.-30. nóv. 2003

>>>>>>>>>>> Lífið 17.-23. nóv. 2003

 

Til forsíðu
Til baka
Félag Eldri Borgara (1)
Félag Eldri Borgara (2)
GSM samband
Gallerí Sigló
Aron og Sædís
Iðja dagvist.
Kvenfélag Sjúkrahússins
Kvenfélag -ávarp H.J.
Sögufélag Siglufjarðar




Ljósmyndasafn Steingríms
á netinu.

Steingrímur Kristinsson Siglufirði
G-892-1569
S-467-1569

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

****** AUGLÝSINGAR ******

23. nóvember 2003  Hingað til Siglufjarðar, komu í kvöld um kl. 19:00, Sænsku sendiherrahjónin í Reykjavík, þau Bertil Jobeus og kona hans Marie Luise. Þau munu dvelja hér á Siglufirði í 2 daga.
Sænski konsúllinn Björn Jónasson tók á móti þeim. - Ég hitti þau upp úr klukkan 21:00 á Síldarminjasafninu, þar sem þeim var boðið upp á Íslenska síldarrétti ofl. ásamt því að skoða safnið. Þar voru og mættir forseti bæjarráðs, Ólafur Kárason, safnvörðurinn Örlygur Kristfinnsson og makar.
Á myndinni eru, talið frá vinstri: Örlygur Kristfinnsson safnvörður, Guðný Róbertsdóttir, Ásdís Kjartansdóttir, Bertil Jobeus sendiherra,og kona hans Marie Luise, Björn Jónasson sænskur konsúll á Siglufirði, Ólafur Kárason og Þórey Guðjónsdóttir.  Smelltu á myndina

23. nóvember 2003  Sögufélag Siglufjarðar endurvakið eftir um 30 ára svefn. Fundurinn var haldinn á Safnaðarheimilinu, síðdegis í dag. Félagið var endurvakið formlega og kosin ný stjórn. Stjórnina skipa: séra Sigurður Ægisson formaður, Jóna Kr. Ámundardóttir og Sigurður H Sigurðsson.  Smelltu á myndina.

23. nóvember 2003  "Landlega"  196? ljósmynd: Knútur Jónsson

23 .nóvember 2003  Kvenfélag Sjúkrahúss Siglufjarðar 50 ára. Ég varð þess heiðurs aðnjótandi í gærkveldi að vera einn í 40-50 kvenna hóp, er þessar ötulu konur, héldu upp á 50 ára afmæli félags síns sem í gegn um árin hefur safnað fé til gjafa vegna tækjabúnaðar og ýmsa annarra muna til Sjúkrahúss Siglufjarðar og einnig Skálarhlíðar, en upphæðirnar í gegn um árin skipta tugum miljóna. Smelltu hér til að lesa ávarpið.  Og smelltu á myndina, af núverandi stjórn félagsins, til að skoða 52 myndir sem ég tók á afmælishátíðinni.

23. nóvember 2003  "Hún setti svip á bæinn"  Ásta Einarsdóttir, fædd 14. maí 1928

22. nóvember 2003   Hann er fimmtugur í dag, hann Þorleifur Halldórsson. Hjartans hamingjuóskir minn gamli góði vinur og vinnufélagi.  - S.K.

22. nóvember 2003   Langt komið.  Þeir hafa verið röskir drengirnir hans Bigga, hjá Berg hf., við að þekja Bátahús, Síldarminjasafnsins. Þarna hömuðust þeir í gær og létu ekki í rigningarsuddann hafa áhrif á sig, enda vel gallaðir.

22. nóvember 2003  Hverjar eru stúlkurnar?  Hafliðaplanið 1965

22. nóvember 2003  "Hún setti svip á bæinn"  Steinunn Friðriksdóttir, fædd 17. júní 1907

21. nóvember  Opið hús , föstudaginn 21. nóvember frá 14-16 OG 22. nóvember frá 11-15  í tilefni árs fatlaðra.  Sýning á stórskemmtilegum munum er fatlaðir hafa unnið í Iðju dagvist. Margt góðra muna til jólahaldsins, ofl.   Sjón er sögu ríkari, en ef þú smellir á myndina sérðu sýnishorn.

21. nóvember 2003  Þessi á afmæli dag, og er orðin 13 ára  Þessir eiga líka afmæli í dag:   Guðný Pálsdóttir forseti bæjarstjórnar 60 ár
Hreinn Júlíusson
62 ára og Hlöðver Sigurðsson 30 ára Smelltu á myndina

21. nóvember 2003  Þessi tvö, komu í heiminn á árinu.

Smelltu á aðra myndina.

21. nóvember 2003  Þessi mynd er tekin í gærkveldi, inni á Videoval, þetta er eigandinn, Þórarinn Hannesson. En hann verslar með m.a. sælgæti, fatnað ofl og ennfremur leigir hann út Video og DVD myndir.

21. nóvember 2003  Og enn er verið að salta !  Þessi mynd er tekin um 1964

21. nóvember 2003  "Hún setti svip á bæinn" og gerir enn. Rósa Magnúsdóttir, fædd 20. desember 1924

20. nóvember 2003   Hverjar eru hnáturnar? Þær voru að salta á Hafliðaplaninu um 1965

20. nóvember 2003  "Hann setti svip á bæinn" Ragnar Jóhannesson skattstjóri. fæddur 2. júní 1911

19. nóvember 2003  Hafliði Guðmundsson. Hver var þessi maður, sem á sér eina minnisvarða, um einstakling sem reistur hefur verið á Siglufirði. það er til annar minnisvarði um merk hjón sem allir þekkja, séra Bjarna Þorsteinsson og frú, staðsettur í garði að Hvanneyri, við Siglufjörð. En mér finnst alltof lítið hafa verið gert til að halda nafni þessa sómamanns á lofti, manns sem á sér stóran sess í sögu Siglufjarðar, mikið stærri  en látið hefur verið í ljós með þeirri þögn og aðgerðarleysi, sem raun ber vitni. En í tilefni af þeirri "100 ára" afmælishátíð sem í vændum er á næsta ári, og ekki síst ef kóngafólkið norska sem sagt er að komi hingað í tilefni þessa atburðar. Ég tel að þáttur hans sem hreppstjóra, er fyrsta herpinótasíldin barst til söltunar á Siglufirði, þau embættisverk sem hann vann til að koma því í kring að leyfi fengist fyrir fyrir þessum aðgerðum, erlendra aðila. Hann átti ekki hvað minnstan þátt í því að allt þetta gerðist á sínum tíma. Það er mjög fróðlegur kafli um persónuna Hafliða Guðmundsson hreppstjóra í bók Björns Dúasonar; Síldarævintýrið á Siglufirði - Og í lokin mætti minnast, að hér í dag, er einn af afkomendum þessa mikilmennis, í fullu fjöri á meðal vor, sennilega eini afkomandi, þessara stórmenna sem gerðu bæinn okkar frægan á árunum fyrir og eftir aldamótin 1900, sem enn býr hér á Siglufirði - og hann á sér afkomendur.- Björn Dúason kemst ma. svo að orði, í bók sinni: "Brátt gerðist Siglufjörður frægur. Og hann varð meira. Hann varð illræmdur. Hann eignaðist fjölda öfundarmanna, óvina og andstæðinga"  Minnumst Hafliða veglega á afmælishátíðinni, á næsta ári.  Ragnar Arnalds mun minnast hans í leikriti er hann samdi, og sagt hefur verið frá á síðu minni, en það er ekki nóg. -  Steingrímur.

19. nóvember 2003  Aron og Sædís. Hvað eiga þessi nöfn sameiginlegt?

Smelltu á myndina, þá kemstu að því.

19. nóvember 2003   Hann á afmæli í dag hann Ágrímur Finnur Antonsson og er orðinn 26 ára. Hann er sonur Antons Sigurbjörns og Pöllu.  Ásgrímur hefur bróðurpart sinnar stuttu ævi unnið á netaverkstæðinu en er nýbyrjaður að vinna hjá Primex.
 

  Steinkanturinn fyrir framan SR í smíðum, í ágúst 1962, niðri við uppsláttinn eru Ásgeir Björnsson Siglunesi, Óskar Garðarsson og Geir Guðbrandsson, uppi á kantinum er Bjarni Bjarnason (Boddi)

19. nóvember 2003  Gallerí Sigló Ég leit þangað inn í dag og skoðaði hvað þær væru að gera. Þær voru á fullu við tilbúning, allskonar skrautmuna, og tækifærisgjafa, hvort heldur til gjafa á jólum eða á öðrum tímum ársins. Allt er þetta handunnir gripir. Smelltu þú á myndina og skoðaðu.

19. nóvember 2003  Sunnudaginn 9. nóvember var Fatahönnunarkeppni Grunnskólanna haldin í Kringlunni í Reykjavík.

Frá Grunnskóla Siglufjarðar fóru 13 keppendur. Sjö úr 8.bekk, tvær úr 9.bekk og fjórar úr 10.bekk.

Bara það að þær voru valdar til að sýna flíkurnar sínar gerði þær allar af sigurvegurum.  Engin verðlaun voru í keppninni í formi hlutar, þ.e.a.s. bikar og svoleiðis. Heldur unnum við: Kjóll í fjöldaframleiðslu: Pálína Dagný Guðnadóttir úr 9.bekk.

Þátttaka í Iceland Fashion Week í febrúar, þær fara sem hönnuðir:

Sigurbjörg Hildur Steinsdóttir, 10.b. Sunna Lind Jónsdóttir, 10.b. Pálína Dagný Guðnadóttir, 9.b. Stefanía Regína Jakobsdóttir, 8.b.

Þriðju verðlaun fyrir hár og förðun: Pálína Dagný Guðnadóttir, 9b. Ljósmynd: Guðný Erla

19. nóvember 2003  "Hann setti svip á bæinn"  Hannes Sölvason, fæddur 6.janúar 1903

18. nóvember 2003  GSM sambandið á Siglufirði bætt.  Landssíminn er að láta koma fyrir nýju GSM loftneti, nú staðsettu á stóra strompinum hjá gömlu ketilstöðinni (Síldarvinnslunnar). Eftir það ætti samband að batna og ég ofl. losnað við að hlaupa út á svalir til að geta ansað í GSM-símann  þegar hringir. En samband hefur sumstaðar, sérstaklega inni í ýmsum húsum, verið afleitt. Smelltu á myndina.

18. nóvember 2003   Sérkennilegur regnbogi yfir Siglunesi. Ekki sást til sólar klukkan 11:52 í hádeginu, þegar þessi mynd var tekin. En þoku eða rigningarsuddi hékk "yfir" nesinu.

18. nóvember 2003  Fanneyjar Hafliðadóttur er 50 ára í dag. Fanney starfar hjá Leikskálum og fékk heimsókn leikskálakrakka. Börnin sungu afmælissönginn fyrir hana og fengu svo súkkulaðimola frá Fanneyju í kveðjugjöf.

Smelltu á myndina.

18. nóvember 2003  Nýfæddur Siglfirðingur.  Smelltu á myndina. 

"Taka tunnu"  hrópuðu stúlkurnar í síldinni. Þessi maður, Jóhannes Hjálmarsson, sá um það verk á Hafliðaplaninu um 1965

18. nóvember 2003  "Hún setti svip á bæinn" Ásta Einarsdóttir, fædd 14. maí 1928

Hver á afmæli, í dag, morgun eða næsta dag? Þeir sem vilja, vonandi sem flestir Siglfirðingar, geta sent mér upplýsingar um afmælisdaga, og ljósmynd af afmælisbarninu, ásamt smá kynningu á viðkomandi persónu. Persónurnar mega vera á öllum aldri allt frá fæðingu barna, og til afmælisdaga frá  1ári - til yfir 100 ára.!!!
Frá fæðingu á ég við nýkominn í heiminn. Þessar upplýsingar munu verða birtar á sérstökum síðum: "Nýfæddir Siglfirðingar" og "Á afmæli í dag"  -- þegar upplýsingar berast.

17. nóvember 2003  Hálfmáni, yfir Siglunesi klukkan 22:22 í gærkveldi.

17. nóvember 2003  SÖGUFÉLAG SIGLUFJARÐAR. Ákveðið var á fundi í gær, sem haldinn var á kirkjuloftinu, af frumkvæði Sigurðar Ægissonar sóknarprests, að endurvekja Sögufélag Siglufjarðar, sem legið hefur í dvala un nokkuð langt skeið. Ákveðinn hefur verið formlegur fundur um málið, næstkomandi sunnudag.

17. nóvember 2003  FÉLAG ELDRI BORGARA, Siglufirði og Fljótum.  Félagar héldu upp á 20 ára afmæli félagsins, að Skálarhlíð í gær 16. nóvember. Hefðbundin veisla, með kaffi og tertum, ræðum og söng. Fram komu, meðal annarra, nýstofnaður kvartett, sem ekki á sér nafn ennþá, og kór aldraðra á Siglufirði; Vorboðinn. Þar var ég einnig mættur (unglingurinn) og tók slatta af myndum, eins og fyrri daginn.

17. nóvember 2003  Saltað á Sigló  (1964-1965(?)) 

17. nóvember 2003  "Hann setti svip á bæinn"  Þórir Konráðsson bakari, fæddur 10. júlí 1916