8. nóvember Það hafa ekki allir tekið eftir því að fyrsti snjóflóðagarðurinn í norðurhluta bæjarins er risinn (að mestu). Það fer ekki mikið fyrir honum, en ef snjóflóð fellur úr fjallinu fyrir ofan hann í vetur komandi, þá mun þessi garður örugglega beina því frá byggðinni, fyrir neðan.
8. nóvember Aðsend mynd Ég stóðst ekki freistinguna, er ég fékk þessa flottu og sögulegu mynd, senda í tölvupósti í gærkveldi- og birti hana hér. Ég hringdi í ljósmyndarann Baldvin Jóhannsson, og veitti hann mér góðfúslega leyfi til að birta hana. Ekki mundi hann hvað drengirnir heita, en sá sem sendi mér giskar á: Ævar Friðriks, Jóhann Sigurðsson, Humbi og Palli heitinn Birgis. Ég lýsi ég því hér með eftir staðfestum, fullum nöfnum þeirra og aldri, þegar myndin var tekin. - Ekki sakaði, ef með fylgdi góð saga frá þessu gullaldar-tímabili, sem ég vil nefna. Á morgun munu birtast margar myndir frá Hjalta Gunnars, er hann tók um borð í Keilir SI á snurvoðaveiðum austan við Hrísey og við Hvanndalabjarg, 25. október síðastliðinn.
8. nóvember "Hann setti svip á bæinn" (og gerir enn) Haukur Jónasson bólstrari. fæddur 17. júlí 1926
7. nóvember Málararnir, Ránargötuehf. 14, Opnaði í dag málningar og byggingavöru verslun að Ránargötu 14, í dag klukkan 13:00. Ég leit auðvitað þangað inn til að heilsa upp á fólkið. Þar var manni boðið upp á kaffi og vöfflur með sultu og rjóma. Verslunin er lítil en snotur - og lofar góðu. Það sem ekki er til á staðnum, verður séð um að panta, sem og kemur með næstu ferð, sama dag, eða daginn eftir, - eftir því hve snemma dags um er beðið. Til hamingju Bjarni og fjölskylda, og gangi ykkur allt í haginn.
7. nóvember Bensínstöðin á Siglufirði, Þar ráða ríkjum systkinin Guðný Sölvadóttir og Ásgeir Sölvason. Ég leit til þeirra systkina og tók af þeim mynd. Einnig skrapp ég yfir í verslun Olís. þar hitti ég á þá í kaffi, starfsmenn Olís, Jón Sigurðsson, og Snævar Jón Andrjesson, ásamt Stefáni Einarssyni verktaka og bi´lstjóra hjá Vörumiðlun, Helga Rafni. Smelltu og skoðaðu.
7. nóvember "Hann setti svip á bæinn" Aage Schiöth lyfsali, fæddur 27. júní 1902
6. nóvember (lestu fyrst hér)Veiðafæraverslun Sig. Fanndal. Þessir kampakátu félagar, smiðirnir Róbert Pálsson og Sveinn Þorsteinsson. Það eru þeir sem koma til með að vinna að uppsetningu á Veiðafæraverslun Sig Fanndal, sem opnuð verður í sumar.(væntanlega) Svar við því hver muni reka fyrirtækið, og hvar það verður til húsa, kemur í ljós ef þú smellir á myndina af þeim félögum. og lest textann undir myndinni.
Skjálftar á Norðurlandi sl. 48 klst. Uppfært á 5 mín. fresti. Upplýsingarnar í rammanum neðst á myndinni sýna hvenær hún var teiknuð. Liturinn á punktum táknar tíma síðan skjálftinn varð. Skjálftar á síðustu klukkustundum eru rauðir en dökkbláir punktar tákna skjálfta sem urðu fyrir meira en 24 klst. Skjálftar stærri en 3 á Richterkvarða eru táknaðir með grænum stjörnum, óháð því hvenær innan tímabilsins þeir urðu.Svartir þríhyrningar tákna jarðskjálftastöðvar Veðurstofu Íslands. Brúnar línur eru vegir. Þetta eru óyfirfarnar frumniðurstöður úr sjálfvirkri úrvinnslu.
6. nóvember Í Tunnunni sem út kom í gær, vöktu tvær heilsíðuauglýsingar athygli. Önnur var frá Bjarna Þorgeirs, málarameistara, þar sem hann tilkynnir opnun byggingarvöruverslunar að Ránargötu 14 í samvinnu við Húsasmiðjuna. - Og hin auglýsingin, frá SR-Vélaverkstæði, sem einnig ætlar að opna byggingarvöruverslun, að Vetrarbraut 14 í samvinnu við BYKO. Þá mun Olís vera að undirbúa sölu á verkfærum ofl, álíka og var til hjá Húsasmiðjunni áður en þeir lokuðu. Og á götubylgjunni er talað um að Rafbær sé að huga að sölu á rafmagnsverkfærum, vöruflokki sem þeir hafa ekki áður verið með. OG SVO rúsínan í pylsuendanum; Stefnt er að því að Veiðafæraverslun Sig.Fanndal opni í sumar komandi, en nú þegar er hafinn undirbúningur við þá vinnu. Hvar sú verslun verður til húsa, og hverjir að endurreisn hennar standa, segi ég frá, hér seinna í dag, á þessari síðu.
6. nóvember Skrifstofulið, Siglufjarðarkaupstaðar, úti í náttúrunni. Þessi mynd var tekin í gær í góða veðrinu, við tjörnina sunnan við Stórabola.
6. nóvember "Hann setti svip á bæinn" Hinrik Andrésson umboðsmaður, fæddur 3. júní 1926
5. nóvember Til hvers er verið að gróðursetja? Stundum er "stórt spurt" Ég er sjálfur ekki mikill áhugamaður um skógrækt, eða annan gróður. En mér blöskraði er ég átti erindi í nágrenni Stórabola í dag, og sá förin eftir "leikföng stóru krakkanna." Hjólför út um allt fjallið, og víða farið yfir svæði sem áhugasamir höfðu gróðursett tré og runna. Sumt hefur ef til vill sloppið við þennan barnalega átroðning, en víða var þetta brotið niður við rót. Þið vitið það drengir, þið ættuð a.m.k.. að vita það, að svona lagað er stranglega bannað. Sumt af þessu stóð upp úr snjónum og þið hljótið að hafa séð það, áður en þið ókuð yfir svæðið.. Svona sæmir ekki fullorðnum mönnum.
5. nóvember Rækjuskipið Gissur ÁR sem legið hefur hér síðustu mánuði í innri höfninni, fór héðan í morgun en skipið var selt til Húsavíkur, eins og sagt hefur verið frá á síðu minni. Myndir frá tilfærslum brottförinni tengdri sjást á fleiri myndum er þú smellir á myndina
5. nóvember Flutningaskipið Haukur Kom hingað í morgun og losaði hér um 100 tonn af loðnumjöli sem kemur frá Síldarvinnslunni í Helguvík, en hér verður mjölinu blandað og síðan flutt til Fóðurverksmiðju Síldarvinnslunnar í Eyjafirði. Einnig var skipið nú lesta með 440 tonnum af loðnumjöli til útflutnings
5. nóvember "Hann setti svip á bæinn" Björn Magnússon, bifreiðastjóri, fæddur 27. september 1921
4. nóvember Biluð vatnslögn. Verið var að gera við bilaða vatnslögn í Hvanneyrarbrautinni í dag (myndin tekin 14:40) Gert er ráð fyrir að vatn verði komið á vel fyrir kvöldið.
4. nóvember "15 tonna" Plastbátur þessi bátur kom nú um helgina með Mánafoss. Hann var smíðaður hjá Sigla ehf. á Suðurlandinu, fyrir JE-Vélaverkstæði. Þetta er annar báturinn sem JE-Vélaverkstæði lætur þá smíða fyrir sig, en JE-Vélaverkstæði klárar smíði bátanna og gerir þá sjóhæfa, með innréttingum og öllum búnaði. Eru bátarnir þegar seldir, og mun eigandi þessa báts, væntanlega verða Gunnar Odds.
4. nóvember "Hann setti svip á bæinn" Guðni Gestsson afgreiðslumaður (Olís) fæddur 5. mars 1928
3. nóvember Bingó, Kvenfélags Sjúkrahússins. Nokkrar ljósmyndir frá "Bingóinu". Smelltu á myndina
3. nóvember "Hann setti svip á bæinn" Jón Þorsteinsson kennari, fæddur 19.október 1915
2. nóvember Kvenfélag Sjúkrahússins var með Bingó og fleira til fjáröflunar, í Alþýðuhúsinu. Ég leit þangað inn laust fyrir 5 í dag og tók þar slatta af myndum. Þær koma á vefinn í fyrramálið. Myndin sýnir hluta af vinningunum, eitthvað hafði þegar runnið til vinningshafa, er myndin var tekin.
2. nóvember Sleðaferð. Þessi ungu hjón eru þarna með börnin sín í sleðaferð, (snjóþotur kallast farartækin víst í dag ) um 5 leitið í dag, örlítið hafði bætt á snjóinn, og lítilsháttar logndrífa var , eins og sést á myndinni, sem flögra á milli myndavélar og þeirra sem myndin var tekin.
2. nóvember Fyrsti moksturinn á vetrinum, fór fram á götum bæjarins í morgun, ekki þó vegna þess að um ófærð væri að ræða, heldur til að gera vegfarendum lífið léttara. Það var auðséð á vinnubrögðunum að tækjamennirnir hafa ekki gleymt hvernig á að moka göturnar, því þær voru rennisléttar, og vel tekið tillit til íbúanna við göturnar, það er ekki skilinn eftir ruðningur við heimkeyrslur, þar sem á annað borð er hægt að komast hjá því. Gott hjá ykkur drengir.
2. nóvember "Hann setti svip á bæinn" Stefán Stefánsson skrifstofustjóri, frá Móskógum. fæddur 5. desember 1905
1. nóvember Sýning og uppákomur, fóru fram í skólahúsunum í dag á milli klukkan 13 og 16, Þar kom saman fjöldi fólks, ásamt nemendum og kennurum. Hellingur (87 st.) af myndum koma í ljós ef þú smellir á myndina af Grunnskólanum við Hlíðarveg, sem tekin var í sumar sem leið.
1. nóvember Vatnslagnir. Þarna er "Bás-menn" að vinna við að draga svera vatnslögn, upp hlíðina neðan Hvanneyrarskál
1. nóvember Grunnskólinn - Fatahönnunarkeppni Þessar hnátur eru að fara á suður á Fatahönnunarkeppni. Þetta er afraksturinn af tæplega 2ja tíma vinnu, sem þarna sést. en þetta eru Hafey, Helen, Birgitta og Stefanía. --- 13 stúlkur úr 7. og 10. bekk Grunnskólans tóku þátt í Fatahönnunarkeppni Grunnskólanna. Þær komust allar áfram, með samtals 23. kjóla og munu mæta með þá ásamt textílkennaranum sínum, Guðnýju Erlu Fanndal, á lokakeppnina í Kringlunni, sunnudaginn 9. nóvember. --- Þær hafa aðeins tvær vikur til að sníða og sauma kjólana. Þema keppninnar er "Nýta þú mátt þó nóg hafir" svo kjólarnir eru saumaðir úr sturtuhengjum, rúmfötum, gömlum fötum o.s.frv. 'I sunnudagsmogganum á morgun verður grein um þær. Einnig munu tvær stúlkur vera í viðtali í "Íslandi í bítið" á næstkomandi föstudagsmorgun. Það eru þær Sigurbjörg Elmars 10.bekk og Pálína Dagný Guðnadóttir 9.bekk
1. nóvember BYKO og Húsasmiðjan Í gær sagði ég frá því að Byko, væra að koma hingað með þjónustu ( lestu um það hér) Og nú í morgun var mér sendur tölvupóstur, og þar taldar góðar heimildir fyrir því að Húsasmiðjan hafi komist að samkomulagi við Litaríki, í eigu Bjarna málara og Co um að þar verði haldið áfram starfsemi Húsasmiðjunnar. Einnig hafði viðkomandi frétt af Gjafakot, að sú starfsemi yrði aðeins til áramóta, en Hrólfdís, starfsmaður þar, sagði honum að viðtökur Siglfirðinga hefðu verið með því móti, að mjög líklega yrði þessari verslun haldið áfram eftir áramót.
1. nóvember Frétt af Siglufjarðarvefnum: Reynir Vilhjálmsson og Landslag ehf. nefnd til evrópskra verðlauna í landslagsar Reynir Vilhjálmsson landslagsarkitekt og teiknistofa hans, Landslag ehf., hafa verið nefnd til evrópskra verðlauna í landslagsarkitektúr fyrir hönnun fyrsta áfanga snjóflóðavarna á Siglufirði. Dómnefnd valdi 14 verkefni af alls 450, sem til álita komu, þar á meðal Siglufjarðarverkefnið. Nánar hér
1. nóvember: Barnaskóli Siglufjarðar, er 120 ára i dag. "Barnaskóli Siglufjarðar er 80 ára -- Barnaskóli Siglufjarðar var stofnsettur í des. 1883. Var fyrst kennt í lítilli stofu í litlu tómthúsbýli, sem þá hét Búðarhóll, við fremur léleg og fátakleg skilyrði. --- Fyrsti skólastjóri var Helgi Guðmundsson, þáverandi héraðslæknir. Þegar leið að síðustu aldamótum var litla stofan í Búðarhóli orðin ofsetin vegna vaxandi barnafjölda. Var þá ráðist í að byggja timburhús við Aðalgötu, þar sem nú stendur pósthúsið. Fljótlega úr aldamótum byrjaði innflutningur fólks í bæinn í atvinnuleit, börnum fjölgaði ört, svo fyrirsjáanlegt var, að á næstu árum væri litla timburhúsið ófullnægjandi og myndi ekki fullnægja þeim kröfum, sem þá var farið að gera til barnfræðslu í landinu. Árið 1913 var hafist handa með byggingu stærra skólahúss úr varanlegu efni, sem valinn var staður þar sem það nú stendur. Á þessu húsi hafa á síðari árum farið fram miklar breytingar, kennslurými stækkað ma. og má það nú teljast með veglegustu skólahúsum." Með þessum orðum hóf Stefán Friðbjarnarson pistil sinn í Siglfirðing, árið 1963, í tilefni af 80 ára afmæli skólans Alla greinina má lesa hér Í tilefni af afmælinu, Verður skiplögð dagskrá í báðum skólahúsunum, Barnaskólanum við Norðurgötu og Grunnskólanum við Hlíðarveg, frá klukkan 13-16 í dag. -- Allir velkomnir. Og ég mun að sjálfsögðu mæta með myndavélina - Og afraksturinn; nokkrir tugir ljósmynda frá þessum viðburði í skólunum verður kominn á vef minn í kvöld.
1. nóvember Lýsisskipið Polartank, kom hingað seinnipartinn í gær, til að lesta hér frá Síldarvinnslunni 1260 tonn af loðnulýsi.
1. nóvember "Hann setti svip á bæinn" Páll Jónsson matsveinn, fæddur 9. september 1921