Lífið 1-11 Jan 2004 | Lífið 12-18 jan 2004 | Lífið 19-25 jan 2004 | Lífið 26.-31. jan.2004

>>>>>>>>>>> Lífið 1-11 Jan 2004

 

Til forsíðu
Til baka
Aðsent KLM
Skíðasvæðið
Guðmundur Ólafur
JE-Vélaverkstæði
Þrettándafagnaður
Karlakór Siglufjarðar
Grímuball
Lífsval
Kátir karlar




Ljósmyndasafn Steingríms
á netinu.

Steingrímur Kristinsson Siglufirði
G-892-1569
S-467-1569

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Hann á afmæli í dag: 11 janúar 2004  

10. janúar 2004   Lítið fréttnæmt, var um að vera í bænum í morgun - ég hitti þó á afgreiðslu Norðurfrakt, nokkra káta karla. Fyrst er þar að nefna, sem var þar í heimsókn, Guðmundur Eggertsson, sem hefur verið á suðurlandinu undanfarin ár. Hann notar enn skó númer 48, en hefur þurft að fata sig upp að nýju, þar sem hann hefur losnað við rúma tvo tugi kílóa og er orðinn nær eins grannur og faðir hans. Þarna er hann og Sigurður Jón Arnbjörnsson, í anddyri afgreiðslunnar. Fleiri voru inni.

10. janúar 2004             Hún á afmæli í dag.

9. janúar 2004  Heilbrigðisstofnun Siglufjarðar Talsverðar breytingar hafa verið gerðar á húsnæði Heilbrigðisstofnunar Siglufjarðar að undanförnu, verkinu er fyrirhugað 4 áfangar.

Þeim fyrsta er lokið, og annar áfangi er í burðarliðnum og mun kosta um 40-50 miljónir.

Þetta eru breytingar til hagræðis og til að fullnægja nýjum kröfum og reglugerðum. Þriðji og fjórði áfangi mun aftur á móti verða all nokkru dýrari, það er um 350-400 miljónir og verktími hans áætlaður 3-4 ár, og er framkvæmdin ætluð að mæta væntanlegum verklokum “væntanlegra” jarðgangagerðar, Héðinsfjarðargöng.

Mun fyrirhugað að Heilsugæslusviðið, þjónustusvæðið, verði stækkað frá núverandi, "Fljót og Siglufjörður", til Ólafsfjarðar.

Nú í dag er fundur í ráðuneytinu, varðandi mál þetta, sem er að fullu frágengið af hálfu framkvæmdastjórnar Heilbrigðisstofnunar Siglufjarðar, verkfræðinga, arkitekta, og ekki hvað síst forstjórans Konráðs Baldvinssonar.

Og nú mun beðið eftir ákvörðun fundarins í dag um frekar framgang, hvort ráðherrann kveikir á græna ljósinu, eða því rauða !  eins og annar ráðherra gerði á sínum tíma vegna Héðinsfjarðarganga.

Konráð Baldvinsson, sést hér á myndinni við skrifborð sitt, en hin myndin er af grunnteikningu af fyrirhugaðri stækkun. Ljósari hluti teikningarinnar er, af væntanlegri viðbyggingu á tveim hæðum, með möguleikum á þriðju hæðinni, síðar.  Þá eru einnig fleiri möguleikar fyrir hendi, sem gert var ráð fyrir í upphafi, byggingarferilsins frá árinu 1965-1966, en eru þó ekki á dagskrá nú.

9. janúar 2004   Þau eiga afmæli í dag

8. janúar 2004  Suðurverk hefur hafist handa að nýju við gerð snjóflóðavarnargerðanna eftir jólafríið. En þeir hófust handa aftur sl. mánudag 5. janúar

8. janúar 2004  Vinna er hafin við stækkun á Íþróttahúsinu á Siglufirði, verið er að grafa úr grunnsvæðinu og fjarlægja stoðveggi. Vélamennirnir Þröstur Ingólfsson og Kári Hreinsson (mynd til vinstri) eru að vonum ánægðir yfir hverju nýju verkefni, ekki síður smiðir og aðrir sem að verkinu koma. Hin myndin; Þarna eru starfsmenn Síldarvinnslunnar Viggó Jónsson og Kristinn Bogi Antonsson að saga frá, einn af stoðveggjunum sem er á grunni norðurgafls íþróttahússins. og starfsmaður Óla Kára, Baldvin Kárason  styður við stoðvegginn. Í stækkun hússins felst aðallega bætt aðstaða fyrir starfsfólk og gesti.

8. janúar 2004  Fleiri myndir frá barnaballi, nú frá

                        Kveðja Bigga Björns

7. janúar 2004  Sparisjóður Siglufjarðar hefur fært út kvíarnar, eins og greint var frá hér nú eftir áramótin. Starfsemin er til húsa í Aðalgötu 16 og þar eru skráðar allar upplýsingar varðandi "Lífsval" allra Sparisjóðanna, í landinu. Þarna starfa til að byrja með 3 starfsmenn. En Lífsval er viðbótarsparnaður viðskiptavina Sparisjóðanna. Smelltu á myndina til að líta inn.

7. janúar 2004  Aðsendar myndir  Sendi þér nokkrar myndir frá grímuballi í Allanum.  -  Gilla.

7. janúar 2004  Karlakór Siglufjarðar, ásamt undirleikurum eru um þessar mundir að æfa fyrir tónleika, sem haldnir verða að Kaffi torg. næstkomandi laugardag kl. 20:30 Stjórnandi kórs og hljómsveitar er Elías Þorvaldsson tónlistakennari. Á eftir tónleikunum, verður haldinn dansleikur á sama stað. Ég leit inn á æfingu í gærkveldi og tók þar nokkrar myndir.

7. janúar 2004 Þrettándabrenna, ásamt tilheyrandi álfaskrúðgöngu var haldin í gærkveldi upp úr klukkan 18:00.

Ég lét mig ekki vanta þar og tók nokkrar myndir í leiðinni. 

7. janúar 2004    Hún á afmæli í dag.
6. janúar 2004   Hún á afmæli í dag.

5. janúar 2004  Þetta sást þegar litið var til norðurs frá Siglufirði í dag klukkan 13:30. Tunglið rösklega fyrir ofan sjóndeildahringinn.

5. janúar 2004  Hjá JE-Vélaverkstæði gengur samkvæmt áætlun vinna við stóran plastbát sem Gunnar Oddsson á. Ég leit þar inn í morgun.

5. janúar 2004  Loðnuleit Hafró árangursrík  Loðnuleit Hafrannsóknarstofnunar hefur borið góðan árangur. Mikil loðna hefur fundist víða fyrir norðan land. Skipin eru að skoða svæðið betur með tilliti til þéttleika torfanna, en ekki mun veiði vera hafin að ráði, þó bárust fréttir af því að Guðmundur Ólafur ÓF 91 væri byrjaður að frysta eitthvað af loðnu. Þeir Þórhallur og Þórður Andersen hjá Síldarvinnslunni á Siglufirði, eru bjartsýnir að vanda, og vonast eftir loðnu aðra nótt. Við vonum að von þeirra rætist.

4. janúar 2004    Þau eiga afmæli í dag

4. janúar 2004  Guðmundur Ólafur ÓF 91 frá Ólafsfirði (ekki Akureyri eins og sagt var í fréttatilkynningu) kom hingað í gærkveldi til að sækja veiðarfæri., á netastöðina hér. En Skipið er að fara til loðnuleitar, eins og segir í fréttatilkynningunni hér fyrir neðan.

Ég tók nokkrar myndir við það tækifæri, smelltu á myndina.

3. janúar 2004  Skíðasvæðið í Skarðdal var opið í dag, enda nægur snjór, hiti um frostmark og logn.  Ég tók þar nokkrar myndir, en aðeins neðst í hlíðinni, enda ekki búinn til fjall eða skíðaferða,- og fór því ekki langt frá hlýjum bílnum mínum. Smelltu a myndina.

3. janúar 2004    Hann á afmæli í dag Hallgrímur Vilhelmsson

Einnig Árni Teitur Steingrímsson (vantar mynd)

3. janúar 2004  Aðsendar myndir: Áramótakveðja

Smelltu á myndina til að sjá fleiri myndir

3. janúar 2004      Athygliverður vefur:  Fyrir þá sem huga hafa á, eða vantar upplýsingar um útlit og heiti hinna ýmsu plantna og dýra sem finnast á landinu og við það ofan sem neðansjáfar, ættu að kíkja á þennan vef http://www.fauna.is/   Þarna eru nú um 1200 myndir (teiknaðar) ýmissa lífvera og stöðugt er bætt við safnið eftir því sem myndir verða til eða losna til birtingar.

3. janúar 2004  Frétt af síðu HAFRÓ - 2. jan. 2004

    Loðnuleit í janúar 2004

Loðnuvertíðin 2004 hefst með skipulagðri leit sem spannar svæðið vestan úr Víkurál norður- og austur um eins og sýnt er á meðfylgjandi korti. Um 10 mílur eru milli leggja. Gert er ráð fyrir 4 leggjum á skip og í skaplegu veðri ætti ekki að taka nema tvo sólarhringa að ljúka þessari yfirferð.

Fjögur skip fara frá Austfjörðum 3. janúar: Hólmaborg, Jón Kjartansson, Börkur og Beitir. Örninn fer svo þann 4.

Frá Akureyri fara tvö skip þann 3. janúar: Guðmundur Ólafur og Júpíter.

Af Faxaflóasvæðinu koma Víkingur, Ingunn, Bjarni Ólafsson og Árni Friðriksson.

Steini á Hólmaborginni hefur góðfúslega tekið að sér að halda utan um Austfjarðaflotann og Jón Axelsson mun gegna sama hlutverki varðandi norðursvæðið.

Leiðangursstjóri sér um afganginn auk þess að vera í sambandi við alla bátana a.m.k. tvisvar á dag.

Skipin frá Akureyri munu taka svæði 6 og 7 og þau tvö skip sem fyrst leggja af stað af Faxaflóasvæðinu munu halda norður um og taka svæði 8 og 9.

Hin skipin taka Vestfjarðasvæðið ef hægt er vegna veðurs. Það er einhver ís vestur í Sundi og þess vegna verður fljótlegt að afgreiða þetta svæði. Ef ekki verður hægt að afgreiða Vestfirðina strax, verður það gert síðar á Árna (utan þessarar áætlunar).

Leiðangursstjóri er Hjálmar Vilhjálmsson. 

2. janúar 2004  Sparisjóðurinn breiðir úr sér. Nú er hluti af starfsemi Sparisjóðsins að flytja aftur til fyrra húsnæðis, Aðalgötur 16, þar sem Sparisjóðurinn var til húsa fyrir all mögum árum, en síðustu árin hefur Þormóður Rammi verið þar til húsa eins og kunnugt er, en hann flutti sig um set fyrir nokkru.. Meðfylgjandi myndir sýnir iðnaðarmenn sem eru að gera húsnæðið klárt, áður en starfsemin hefst eftir helgina. Þetta eru þeir Þorgeir Bjarnason, Mark Duffield málarar, og  Axel Hermannsson og Helgi Magnússon pípulagningarmenn

1. janúar 2004  Gleðilegt ár og þökk fyrir það liðna 
1. janúar 2004   Gleðilegt ár og þökk fyrir það liðna 

Myndin er tekin 1 mínútu yfir 12 á miðnætti 1. janúar 2004, litið suður Hvanneyrarbraut, frá bílastæði mínu.

1. janúar 2004   Við óskum öllum gleðilegt nýtt ár. Hanni, Dísa og fjölskylda í Flekkefjord
1. janúar 2004  "Hann setti svip á bæinn" Þorleifur Sigurðsson smiður, fæddur 28. október 1897