25. janúar 2004 Þessi mynd var tekin sumarið 1982, er Lionsfélaga ofl. unnu við að þekja kirkjuturninn með "trapissujárni". Talið frá vinstri; sr.Vigfús Þór Árnason, Sverrir Sveinsson, Hermann Jónasson, Haukur Jónasson, Salmann Kristjánsson, Haraldur Árnason, Anna Júlía Magnúsdóttir,Ásgeir Björnsson, Jón Dýrfjörð og Pétur Garðarsson
25. janúar 2004 Videoval. Nýir rekstraraðilar hafa tekið við rekstri fyrirtækisins. Það eru hjónin Fanney Margrétardóttir og Þorsteinn Sveinsson, (Fanney og Steini) þau hafa tekið staðinn á leigu næstu 2 árin, og nefna hann Videoval. Auk þess, að vera með videospólur og DVD diska til leigu, þá eru þau með ýmsan annan varning, sælgæti, skótau, og jafnvel hundamat ofl.
Smelltu á myndina
24 janúar 2004 Þetta eru "Pálsmenn" vinnuhópur undir stjórn Páls G Jónssonar byggingameistara hjá SR. - Þarna eru þeir staddir í helgarpásu í Ásbyrgi, en þeir voru að vinna við uppbyggingu á verksmiðju SR á Raufarhöfn. Talið frá vinstri: Páll G Jónsson, Jónmundur Hilmarsson, Geir Guðbrandsson, Steingrímur Kristinsson, Júlíus Gunnlaugsson, Einar
Björnsson, Þorleifur Hólm og Óskar Garðarsson Myndin er tekin 1962
Þeir eiga afmæli í dag 24 janúar 2004
23. janúar 2004 Egilssíld hf var enn einu sinni að taka við viðurkenningu, fyrir vöruvöndun og fleira. Þetta er í 5. sinn sem Egilssíld fær viðurkenningu frá ICELANDIC USA INC Og það sem vekur sérstaka athygli, það er að viðurkenningin er 100%- engir gallar, né athugasemdir hafa verið gerðar varðandi
framleiðsluferlið, allt frá starfsfólki hjá Egilssíld, að borði neytanda úti í USA eða annarsstaðar. Til hamingju, Hansi og starfsfólk Myndir sýnir Hansa með síðustu viðurkenninguna Fleiri myndir frá fyrirtækinu Egilssíld, ef þú smellir á myndina.
23. janúar 2004 Í briminu undanfarna daga, hefur að venju safnast mikill sandur í fjörunni norðan flóðvarnargarðsins, þessum sandi safna bæjarkarlarnir saman í haug, og flytja síðan til geymslu, og ma. notað til að bera á götur og gangstíga vegna hálku.
23. janúar 2004 Í morgun var verið að flytja stórgrýti norðan úr fjalli, sem notað verður til að fylla upp í gap innan við bryggjurnar í Bátadokkinni. Bás er með þetta verk
22. janúar 2004 Síldarminjasafnið "keppir til úrslita á Ólympíuleikvanginum"
Tilkynning hefur borist frá Safnaráði Evrópu (Europian Museum Forum) um að Síldarminjasafnið á Siglufirði hafi verið valið til áframhaldandi keppni til Evrópsku safnverðlaunanna 2004.
Hefðin er sú að dómnefnd skoðar öll þau söfn sem tilnefningu hljóta og velur um 60% þeirra til aðalkeppninnar. Á árlegum fundi ráðsins, sem að þessu sinni verður haldinn í Aþenu 5.-8. maí í vor, verða úrslit kunngerð og verðlaun veitt. Til þessa fundar er boðið fulltrúum þeirra 40 safna sem standa eftir í keppninni.
Þessi tíðindi eru mjög ánægjuleg og mikils virði fyrir Síldarminjasafnið. Einnig ætti þetta að vera fagnaðarefni fyrir Safnaráð sem tilnefndi Síldarminjasafnið og ákvað þar með fyrstu þátttöku Íslands í þessari virtu keppni.
22. janúar 2004 Snjóflóð á Vatnsenda í Héðinsfirði. Þann 21. janúar voru tveir snjósleðamenn á ferð í Héðinsfirði og sáu þá að snjóflóð hafði fallið á Vatnsenda í Héðinsfirði.
Sleðamennirnir létu Þorstein Jóhannesson einn af eigendum hússins vita af tjóninu, og fór hann ásamt þeim á staðinn til þess að skoða aðstæður. Hér á eftir fer lýsing Þorsteins á aðkomunni:
Snjóflóðið hefur sennilega fallið laugardaginn 17. janúar á sama tíma og flóðið sem lenti á borholum hitaveitunnar í Skútudal. Flóðið
kom úr Vatnsendaskál, lenti á sumarhúsinu á Vatnsenda, braut það niður og færði hluta þess út á Héðinsfjarðarvatn.
Ekki er vitað um að snjóflóð hafi áður fallið á þessum stað, og almennt hefur verið talið að snjóflóð geti ekki borist fram úr Vatnsendaskálinni vegna þess hvað botn hennar er hallalítill.
Árið 1725 féll snjóflóð á bæinn á Vatnsenda, en hann stóð þá um 200m sunnar en steinhúsið sem nú brotnaði niður. Í flóðinu 1725 fórust a.m.k. fjórir.
Eftir þetta mannskæða flóð var bærinn færður 100m til norðurs, og var búið á því bæjarstæði fram til 1936. Fyrir aldamótin 1900 mun snjóflóð hafa fallið rétt sunnan við þennan torfbæ, og sumar heimildir segja að skemmdir hafi orðið á húsinu.
Þessi snjóflóð munu hafa átt upptök í hlíðinni sunnan við Vatnsendaskál, og norðurjaðar þeirra náð að húsunum.
Þegar Þorvaldur Sigurðsson bóndi á Vatnsenda byggði nýtt steinhús á jörðinni 1936, færði hann bæjarstæðið um 100m til norðurs á stað, sem talinn var öruggari en gamli bæjarhóllinn. Afkomendur Þorvaldar höfðu endurbyggt steinhúsið og gert það að sumarbústað. Tjón eigendanna er sérstaklega mikið vegna tilfinningalegra tengsla við
þennan fagra stað. E.S Myndin til vinstri sýnir bústaðinn eins og hann var síðastliðið sumar, en hin tekin í gær, sýnir það sem eftir er af húsinu. Ljósmyndir: Þ.J.
22. janúar 2004 Fiskverkun Daníels Baldurssonar ehf., er lítið frystihús, raunar eina frystihúsið á Siglufirði þar sem verkaður er bolfiskur til frystingar og útflutnings. Þar vinna þegar mest er 8-10 manns, en þegar mig bar að garði voru þar aðeins þrír að störfum, Daníel Baldursson, sonur hans Baldvin Jörgen Daníelsson, og Sólrún Elíasdóttir. Þeir feðgar kaupa mest allan fisk, sem þeir
verka frá markaði. Það er að vísu nokkuð dýr fiskur, en kostirnir er þó margvíslegir, þeir spara vinnu og tafir við verkunina, miðað við það að vakta komu smábátanna og sækja fiskinn sjálfir, því flutningsaðilinn færir þeim fiskinn heim í hús. Svo geta þeir ráðið magninu sem þeir taka til verkunar hverju sinni, með hliðsjón af þeim tíma sem þeir hafa til að skila sem ferskastri vöru. Fyrir utan bolfiskinn, verka þeir allar tegundir sem
þeir geta fengið, þeir verka þeir einnig Tindabikkju, allt til útflutnings. Með því að ganga sjálfir í öll verkin varðandi verkunina, þá gengur dæmið vel upp hjá þeim feðgum, en oft er þó langur vinnudagurinn hjá þeim, en það koma þó stundir á milli sem minna er að gera. Smelltu á myndina
22. janúar 2004 Vegna umræðu þeirrar, sem aftur hefur skapast um Héðinsfjarðargöng, eftir fund utanríkisráðherra í fyrrakvöld, þá birti ég hér til gamans mynd sem tekin var árið 1959 - en þá var "hafist handa" við Strákagöng, með því að sprengdir voru um 30 metrar inn í fjallið, þetta var gert með "viðhöfn" (fyrstu
aðgerðir) og á staðinn mættu þingmennirnir; Gunnar Jóhannsson og Einar Ingimundarson, sem börðust sem harðast fyrir Strákagöngum á þessum tíma.
En eftir að 30 metrunum var náð, varð langt hlé á framkvæmdum, eða þar til haustið 1965 að "Efrafall hf." var falin framkvæmdin, sem "lauk" 10. nóvember árið 1967 (skoðið hér)
Myndin hér fyrir ofan er af þeim, er hófu vinnu við 1. alvöru jarðgöngin á Íslandi árið 1959:
Einar Hermannsson bifreiðastjóri , Skúli Magnússon bifvélavirki, Ókunnur strákur, Jón Jónasson verkamaður, Hallgrímur Jónsson bifreiðastjóri, Sigurður Jónsson verkamaður, Guðni Guðnason bifreiðastjóri, Friðgeir Árnason ýtustjóri + sprengimaður, Kári Jónsson verkamaður Hlynur Óskarsson verkamaður, Gunnar Jóhannsson alþingismaður og Einar Ingimundarson alþingismaður.
Þau eiga afmæli í dag 22. janúar 2004
21. janúar 2004 Þessa smiði, hitti hjá Olís í morgun, þetta eru þeir Hallgrímur Vilhelmsson og Sverrir Jónsson, báðir starfsmenn Berg hf.
21. janúar 2004 Fundur Halldórs Ásgrímssonar utanríkisráðherra, var haldinn á Kaffi Torg í gærkveldi. Þetta var fjölmennur fundur á mælikvarða venjulegrar fundarsóknar á Siglufirði, rúmlega 70 manns. Þetta var málefnalegur fundur, og margir fundarmenn tóku til máls, og komu með fyrirspurnir til ráðherrans, sem og hann svaraði skilmerkilega. Ein af spurningunum var, varðandi framkvæmdir við
brúargerð, vegalagningu og raflagnir að fyrirhuguðu jarðgangaopi vegna Héðinsfjarðarganga, yfir Hólsána og inn í Skútudalinn. Svar hans var afdráttarlaust. "Það verður byrjað á þessum framkvæmdum í sumar, hvað sem hver segir." (nærri því orðrétt) Smelltu á myndina og skoðaðu fleiri frá fundinum.
21. janúar 2004 Aðalskipulag Siglufjarðar 2003 – 2023
Kynningarfundur um skipulagstillöguna var haldinn í Ráðhúsinu 2. hæð í gær 20. jan. kl. 17:00 Halldór Jóhannsson landslagsarkitekt mætti á fundinn og gerði grein fyrir skipulagstillögunni. Nokkrar fyrirspurnir og athugasemdir komu fram. Kynnirinn, tók ma. fram að nánari upplýsingar og kort mætti skoða á vefnum, án þess þó að það væri skýrt nánar. Ég tók sem svo að það hlyti að
vera á www.siglo.is -- Þar er nú kominn tengill sem heitir "Aðalskipulag"
Þau eiga afmæli í dag 21. janúar 2004
20. janúar 2004 Þessi litli snáði kom í heiminn 11. janúar sl. - Til hamingju
20. janúar 2004 Hann á afmæli í dag
20. janúar 2004 Sundlaug Siglufjarðar, þar kom ég við í morgun ma. í leit frétta. Þar var ekkert að ske um 11 leitið, aðeins einn gestur á leið út. Ég spurði afgreiðslustúlkuna (myndin er af stúlkunni)
sem heitir Ásta Oddsdóttir, hvar forstöðumaðurinn væri. - Jú hann var að slappa af, eftir annasaman morgun í heitapottinum. Þangað fór ég og þar hitti ég Sigurð Friðriksson afslappaðan og brosmildan. Hann sagðist oft skreppa í pottinn, þegar tækifæri gæfist, en það væri oftast á þessum tíma dagsins. Sigurður Friðriksson og kona hans Jónína Kristín Jónsdóttir hafa rekið Sundlaug Siglufjarðar um nokkurra ár skeið
og líkar það vel, hún var því miður ekki viðstödd að sinni.
19. janúar 2004 Rarik karlarnir fóru til að kanna skemmdir inni í Skútudal, vegna snjóflóðs sem féll á þrjú af dæluhúsunum þar. Litlu er viðað bæta, nema því að flóðið mun haf verið um 250 metra breitt, ekki mjög þykkt, en það stoppaði þó ekki fyrr en það hafði farið yfir Skútuána neðst í dalnum. Viðbót við skemmdir voru brotna lofttúður og ljósastaurar. Þeir félagar
tóku nokkrar myndir fyrir mig, smelltu á myndina.
19. janúar 2004 Litlu er hægt að bæta við fréttina hér fyrir neðan um snjóflóðið, en Árni Skarphéðinsson, starfsmaður veitunnar sendi mér þessa mynd, er sýnir einn starfsmann, á leið að einu dæluhúsinu með skóflu. Loftnet vegna fjarstýribúnaðar og ljósabúnaður hefur sópast af húsinu, en húsið stendur óhaggað. Árni ætlar að taka þarna fleiri myndir í
dag, ma. af snjómokstrinum og senda mér, seinnipartinn.
19. janúar 2004 Snjóflóð fór yfir þrjú dæluhús Hitaveitu Rarik á Siglufirði, sennilega á laugardag. Skemmdir urðu á fjarskiptabúnaði, útiljósum og grindverki. Ég fékk upplýsingar um þetta í gærkveldi. Ég mun leita nánari frétta um þetta seinna í dag. Engar skemmdur hafa þó orðið á dælubúnaðinum, né það stöðvað eðlilegt
rennsli veitunnar. En húsin sjálf eru hönnuð með það fyrir augum að þola snjóflóð, sem þau hafa oft sannað á undanförnum árum, þar sem snjóflóð hafa áður fallið yfir þau án þess að skaða húsin sjálf.
Meðfylgjandi mynd tók ég um kl 14:30 í gær, án þess að veita neinu eftirtekt, en við skoðun á myndinni stærri, þá sést akkúrat ekkert nema snjór, engin ljós sem þó lifa venjulega allan sólarhringinn þarna við dæluhúsin, eða þá önnur auðkenni, allt virðist á kafi í snjó