Lífið 1-11 Jan 2004 | Lífið 12-18 jan 2004 | Lífið 19-25 jan 2004 | Lífið 26.-31. jan.2004

>>>>>>>>>>> Lífið 12-18 jan 2004

 

Til forsíðu
Til baka
Þeysill ehf.
Siglunes ehf.
Snjómyndir




Ljósmyndasafn Steingríms
á netinu.

Steingrímur Kristinsson Siglufirði
G-892-1569
S-467-1569

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

18. janúar 2004   Það hefur heldur betur lagast veðrið, maður er laus við vindinn og snjókomuna, 2ja gráðu frost og logn, var þegar þessi mynd var tekin klukkan 14:38 í dag En hún sýnir svæðið sem óttast var að úr kæmi snjóflóð, á dögunum. Lítill snjór hefur myndast á hættuslóðunum efst uppi (sem betur fer) og vel sést í snjóflóðavarnirnar, efst uppi nálægt miðju. Smelltu á myndina.

Þessi mynd birtist í Dagblaðinu MYND sumarið 1961. það eru ekki margir af ungu kynslóðinni sem vita af hverju myndin er, en þetta er Rauðka, síldarverksmiðja Siglufjarðarkaupstaðar, á þeim tíma þegar nóg var af síld og vinnu. Tilefni myndatökunnar var þessi sögulegi strompur við aflstöð verksmiðjunnar. Hann var hlaðinn úr múrsteinum, en kominn vel til ára sinna og kolareykurinn kom út á fleiri stöðum en upphaflega var ráðgert. Ljósmynd. S.K.  Hér birt til að fylla upp í skarð fárra viðburða.

   Þeir eiga afmæli í dag, 18. janúar 2004

17. janúar 2004  Ég stóðst ekki freistinguna, er ég rakst á þessa ljósmynd af hljómsveitin Stormar, einni af vinsælustu unglingahljómsveit á Norðurlandi, um þær mundir er myndin var tekin árið 1966 - Þetta eru Hallvarður Óskarsson, Gestur Guðnason, Theódór Júlíusson, Ómar Hauksson og Árni Jörgensen. Svona er gott í tilbreytingarleysinu í skammdeginu, þegar lítið er um fréttir og viðburði..

    
    Þau eiga afmæli í dag,
17. janúar 2004
Þeir eiga afmæli í dag  16. janúar 2004 

15. janúar 2004  Þetta er hann Velli, eins og allir kalla hann Sverrir Björnsson, skipstjóri og útgerðarmaður, hákarlaveiðimaður og verkandi. Ég heimsótti hann í morgun í "Sunnubraggann" þar sem hann hefur aðstöðu, þar var hann var að yfirfara og skoða hákarlabeitur sem hann hefur verkað. Hann aflaði á síðasta ári um 30 hákarla, tók sjálfur til verkunar 4-5 stykki, en seldi restina til smærri og stærri verkanda, víðsvegar um landið.

15. janúar 2004  Fjallið (kl. 10:30 í morgun) þar sem óttast var, að snjóflóð gæti fallið úr (miðsvæðis) samkvæmt útreikningum veðurstofu, reyndist sem betur fer nær snjólaust í morgunsárið er þessi mynd var tekin. Þó er erfitt á átta sig á snjóalögum, ásvæði snjóflóðavarnanna efst uppi í fjallinu, en, það sést þó í grindverkin á milli élja og ekki virðist vera þar mikill snjór, frekar en annarsstaðar í fjallinu. En aldrei er of varlega farið í þessum efnum. Fólk fékk að fara heim til sín að nýju í morgun, þeim sem sagt var að yfirgefa hús sín í gærkveldi. Ég hefi fengið nokkra "pósta" í gærkveldi og í morgun þar sem ég hefi verið beðinn að sýna "hinn mikla snjó" sem lesa má út úr fréttum fjölmiðla, að sé á Siglufirði. Ég leitaði af þessum snjó, en varð lítils var, miðað við þær væntingar sem lesa mátti út úr póstinum til mín (og fréttum)  Ég fann aðeins eina snjómynd, sm  minnti á "gamla daga" þegar virkilega snjóaði á Siglufirði, - en það tel ég ekki að  hafi skeð nú. Smelltu á myndina og skoðaðu nokkrar myndir

15. janúar 2004  Hús rýmd á Siglufirði vegna snjóflóðahættu   Ákveðið var í gærkveldi að rýma húsin á svonefndum G reit á Siglufirði, (en það eru húsin ofan Hávegar, frá Kára Jóns norður að kirkjugarði) að höfðu samráði Veðurstofu Íslands, sýslumanns og almannavarnanefndar á Siglufirði. Þetta voru fyrst og fremst öryggisráðstafanir. Um er að ræða fjögur íbúðarhús með alls 14 íbúum sem eru í umsjá Rauðakrossdeildar Siglufjarðar og gista þeir ýmis í Skeljungshúsinu svonefnda og á Gistiheimilinu  Hvanneyri.

15. janúar 2004  Þau eiga afmæli í dag

14. janúar 2004  Það er farið loftið úr hinum yfirlýsingafullu aðilum, frá því að þeir tilkynntu: "gífurlegt magn" af loðnu fyrir Norðurlandi þann 5. janúar sl. --- Samkvæmt frétt Morgunblaðsins  í dag, þá eru: Loðnuveiðar bannaðar í hálfan mánuð  Loðnuveiðar hafa verið bannaðar í hálfan mánuð meðan Hafrannsóknastofnun endurmæli stofninn. Sjávarútvegsráðuneytið hefur bannað allar loðnuveiðar í hálfan mánuð, eða til 29. janúar. Er þetta gert að tillögu Hafrannsóknastofnunar, sem hefur lokið mælingu á stærð loðnustofnsins, sem gerð var eftir að 10 loðnuskip höfðu kannað hugsanlegt útbreiðslusvæði loðnunnar í samvinnu við stofnunina 3.-5. janúar. Segir Hafrannsóknastofnun að enda þótt víða yrði vart við loðnu út af Norður- og Norðausturlandi hafi hún verið mjög dreifð. Niðurstaða mælingarinnar hafi því verið sú að loðnustofninum gæti stafað hætta af ef veiðunum verði nú fram haldið.   (myndir er frá fyrstu loðnukomunni til Siglufjarðar á sumarvertíð 2003)

14. janúar 2004  Siglunes ehf er lítið útgerðarfélag á Siglufirði, rekið af Gunna Odds. (Gunnlaugur Oddsson) Þar voru er ég kom Gunni og Tómas Pétur Óskarsson að setja upp grásleppunet, um 50 stykki. Þegar ég var að far þaðan kom Óðinn Gunnarsson í heimsókn og auðvitað smellti ég einnig mynd af honum, hann er til vinstri á myndinni, þá Tómar og Gunni, smelltu á myndina til að skoða fleiri.

14. janúar 2004 Þeir eiga afmæli í dag
13. janúar 2004   Hann á afmæli í dag

13. janúar 2004   Samkvæmt korti Vegagerðarinnar klukkan 11:55 er ófært til Siglufjarðar.

13. janúar 2004  Miðað við myndir sem sáust í sjónvarpinu, af veðurham og snjókomu, sérstaklega frá Akureyri, má segja að við Siglfirðingar hafi sloppið vel. Því engin snjókoma, heldur rigning og slydda var hér í allan gærdag, með 8-10 m/s vindi seinnipartinn og allir vegir færir, án þess að moksturstæki kæmu þar nærri. Eitthvað snjóaði í nótt, sem gerði einstaka (fáa) götukafla, þar sem skafið hafði í skafla, ófæra fólksbifreiðum, en á mörgum götum festi ekki snjó. Tækjakarlar bæjarins fóru snemma á fætur að vanda og allar götur orðnar færar upp úr klukkan 9. síðan var þegar allt var opið, var farið í að hreinsa almennilega. Tækjamaðurinn á myndinni er Guðmundur Sigurjónsson, en hin er af einni af "auðu" götunum, sunnan Síldarminjasafnsins.

13. janúar 2004  Rafmagnið fór af Siglufirði og víðar um 9 leitið í morgun, grunur lék á að snjóflóð hafi fallið á raflínu, sunnan Ólafsfjarðarmúla, á leiðinni til Dalvíkur. Menn eru á leið á vettvang og leita bilunar. Rafmagn komst aftur á, á Siglufirði eftir 20 mínútur til 45 mínútna, eftir hverfum, en dieselvélar á Siglufirði og Dalvík voru gangsettar, á meðan landsstrengurinn er rofinn.  Myndin svarta var sett þarna að beiðni "Stefáns, hjá OLÍS" en honum langaði að vita hvernig mynd af rafmagnsleysinu liti út.

12. janúar 2004   Ég fékk sendar upplýsingar í kvöld, um þær mæðgur Sigrún Agnarsdóttir og Guðlaug Konráðsdóttir sem eiga afmæli á þessum degi 12 janúar  Lauga er fædd 1936 og Sigrún er fædd 1956 því miður fylgdu ekki myndir  af þeim, en þessu er komið á framfæri, --- til hamingju.

12. janúar 2004   Þeysill ehf. er litið fiskverkunarfyrirtæki á Siglufirði, sem kaupir fisk frá nokkrum smærri bátum, á Siglufirði og verkar hann til útflutnings. Fyrirtækið er í eigu Óðins Gunnarssonar (Gunnars Jóhanns og  Valey), þar vinna nú 5 manns. Ég hitti á þau í kaffitímanum í morgun og smellti af þeim myndum.

12. janúar 2004   Nýfæddur Siglfirðingur
 Þeir eiga afmæli í dag