31. janúar 2004 Ég hafði ákveðið að fara á þorrablót í Allanum,
í gærkveldi, en oft fer öðruvísi en ætlað er. Fyrst fékk konan mín
einherja pesti, svo að við hættum við. Svo hafði ég ætlað mér að mæta á
Þorra mót hjá Snerpu í morgun, þar sem Bæjarstjórnin keppti við
Snerpu í Boccia, en ég þurfti endilega, ! að fá sömu pestina og konan og
hreinlega gleymdi mótinu. En "Óli Kára" ætlar að láta senda mér myndir
sem teknar voru á mótinu, svo og blótinu sem verður í kvöld, á morgun.
Mér bauðst tækifæri til að fara þangað í kvöld, en matarlistin er ekki í
lagi sem stendur. En ég vona að myndirnar komi í fyrralagi á morgun svo
ég geti sett þær á netið. SK
31.
janúar 2004 Allir fullorðnir Siglfirðingar þekktu þessar
konur, en fyrir þá sem ekki vita, þá voru þær allar við vinnu á
Sjúkrahúsi Siglufjarðar (gamla og "nýja") og heita. Elenóra
Þorkelsdóttir hjúkrunarkona, Jónína Sveinsdóttir ljósmóðir og Þorfinna
Sigfúsdóttir matráðskona.
30. janúar 2004
Með kveðju frá Nonna, sem sumir eru
búnir að gleyma og aðrir ekki. Hann bað mig að kynna nýlega heimasíðu
sem hann hefur verið að dunda við: Fullt af nýjum myndum, (frá Sigló)
farðu að skoða núna. Ef það er ekki mynd af þér, þá er það ekki af því
að mér þyki ekki vænt um þig, bara að "filman var búinn". Smella bara á
slóðina hér
http://groups.msn.com/VinirNonnaBjorgvins/picturesLove
Nonni
30.
janúar 2004 Eva Karlotta
(Regínu og Einars) er að spila á skemmtistaðnum Celtic Cross á
Hverfisgötu í Reykjavík um helgina 30-31. janúar. Allir Siglfirðingar
sem eru á svæðinu, eru því hvattir til að mæta þangað
30.
janúar 2004 Hafaldan EA 87 -2327,
Þennan bát var verið að hífa í morgun, út frá JE-Vélaverkstæði,
eftir að hafa verið þar í viðgerð og lagfæringum. Stuttu síðar var
báturinn kominn á flot. Báturinn er frá Grímsey
30.
janúar 2004 Þetta eru þeir Jón Andrjes Hinriksson,
umboðsmaður Olís, Ragnar Ragnarsson útgerðamaður, og Sigurjón
Erlendsson rafvirkjameistari hjá Rarik.
En ég tók þessa mynd í morgun, er ég heimsótti Olís.
29.
janúar 2004
Fréttatilkynning. Bæjarstjóri
Siglufjarðarkaupstaðar, Guðmundur Guðlaugsson, hefur óskað eftir því að
vera leystur frá störfum af persónulegum ástæðum. Samkomulag hefur
verið gert um starfslok hans og mun Guðmundur láta af störfum þann 1.
febrúar n.k. Skrifstofustjóri Siglufjarðarkaupstaðar, Þórir Hákonarson,
mun gegna starfi bæjarstjóra þar til nýr bæjarstjóri hefur verið ráðinn.
Guðmundur til vinstri - Þórir til hægri.
29.
janúar 2004 Skipaafgreiðslan ehf. Þangað fór ég í
morgun og hitti á máli Friðfinn Hauksson, sem er í forsvari fyrir
félagið. Skipaafgreiðslan sér um alla upp og útskipun á fiskafurðum á
Siglufirði, og ýmislegt fleira sem þeir hafa á könnunni.
Hjá honum voru staddir Ægir Bergsson og Sturlaugur Kristjánsson.
Aðspurður, sagði Friðfinnur, að þeir væru með hugmyndir á prjónunum til
að auka umfangið, en það væri enn á umræðu og athugunarstigi, svo ekki
væri tímabært að ræða það að sinni, en ég fengi að fylgjast með ef
eitthvað yrði úr því máli. Á myndinni eru: Friðfinnur Hauksson, Ægir og
Sturlaugur.
29. janúar 2004
Buldi við brestur, / brotnaði þekjan, /reið niður rjáfur / og
rammir ásar. Segir ískemmtilegri langri drápu, um atburðinn,
þegar Ákavíti hrundi þann 24. mars 1947 undan snjó sem safnaðist fyrir á
"milli þaka" eftir sólahrings snjókomu, og "örlítilli utanaðkomandi
hjálp." Ljósmynd: Kristfinnur . Heimild: Síldarævintýrið á
Siglufirði, eftir Björn Dúason.
Þessi eiga afmæli í dag: 29. janúar 2004
Einnig: Símon Helgason, en ég fékk enga mynd senda með
upplýsingunum og á víst
enga.
28. janúar 2004
Nemendur í 1.-3. bekk í grunnskólanum, sungu af fullum krafti fyrir gesti og
gangandi, uppi á snjóruðningi, fyrir framan kirkjuna, rétt fyrir hádegið
í dag og biðu eftir að sólin léti sjá sig. Þau voru að vísu aðeins of
snemma á ferðinni, því vart má ætla að sólin hafi breytt hegðun sinni,
en hún kemur væntanlega ekki upp fyrir fjallahringinn fyrr en vel eftir
"hádegið" ca 13:30
28. janúar 2004
Sólarkaffi, - - og pönnukökur frá Sjálfsbjörg. Það var mikið um að vera hjá kvennadeild Sjálfsbjargar í morgun, en
þær voru í óðaönn við bakstur og frágang á hinum hefðbundnu
sólarpönnukökum, sem þær baka árlega til fjáröflunar. Hópur krakka hafði
heimsótt þær í morgun, en ég missti af því, hef sennilega verið að sötra
kaffi hjá Jóni Andrés hjá Olís, eins og ég geri flesta morgna, og nú
eins og á flestum vinnustöðum á þessum degi 28. janúar, er boðið upp á
pönnukökur þar, frá Sjálfsbjörg.
28.
janúar 2004 Sjálfstæðisflokkurinn hélt almennan
kynningar og stjórnmálafund, á Kaffi torg í gærkveldi. Frummælandi var
Árni M. Matthiesen sjávarútvegsráðherra. Margar fyrirspurnir til
ráðherra voru bornar fram, fyrir ráðherra er hann lauk sinni framsögu,
auk þess sem forseti Alþingis Halldór Blöndal sem einnig var þarna, tók
til máls og svaraði spurningum. Hann margítrekaði í sinni framsögu og
svörum, að ríkisstjórnin mundi eindregið standa við sín loforð sem síast
voru gefin sveitafélögunum og kjósendum, jarðgöngin verða boðin út á
kjörtímabilinu. (Því hefur jú áður verið lofað, minnir mig, ! nema þeir
ætluðu að klára þau ef þeir kæmust til valda eftir kosningar) Annars
varðandi umræðurnar, þá fóru þær vel fram og spurningarnar voru
málefnalegar og rökfastar og sjávarútvegsráðherra svaraði þeim vel, nema
kannski í aðeins of löngu máli, sumum þeirra. Á fundinn mættu um 60-70
manns. Smelltu á myndina
27. janúar 2004
Þessi mynd er tekin af hópi vélsmíðanema árið 1982
27. janúar 2004
Nýfæddur Siglfirðingur
27.
janúar 2004 Þeir
eiga afmæli í dag
26.
janúar 2004
Þessi polli fæddist, rétt fyrir áramótin, sl.
26. janúar 2004
Beðið er velvirðingar, á því að síðan mín var í ólagi. ALLT fór
úr sambandi í gær eftir hádegi vegna einhverra tæknivandræða, sem ég
kann ekki fullkomin skil á. Síðan er í lagi í tölvu minni, svo ekkert er
glatað, en eitthvað fór úrskeiðis í tengslum við miðlarann. Það er
mikið verk eftir að lagfæra, en ég verð að laga þetta í áföngum þar sem
þetta er mikil og tímafrek vinna. En með þolinmæðinni kemur þetta.
Leikfélagsmyndirnar ætlaði ég að setja á netið í gær, en það var
ekki mögulegt á þeim tímapunti. En þær eru þó komnar núna.
26. janúar 2004 Ef þið þurfið að
skoða eitthvað gamalt, þá prufið leitarvélina, hún ætti að finna
eitthvað. Allar síðurnar eru komnar inn aftur á netið, en þær eru
ótengdar, enn þá.
26.
janúar 2004 Leikfélag Siglufjarðar, hefur hafið
undirbúning og samlestur vegna væntanlegs flutnings á leikriti eftir
Ragnar Arndals, Silfur hafsins. Leikritið verður flutt í tilefni
af 100ára afmælis
síldarævintýris Íslendinga. Fjallar verkið
eins og nafnið gefur til kynna
um sögu síldveiðanna og vinnslunnar en
fyrst og fremst um mikilvægan
kafla í sögu byggðarinnar okkar hér
í Siglufirði.
Um létt og skemmtilegt leikrit er að ræða. Ekki er endanlega búið að
velja alla leikendur, en áhugasamir hafa mætt á samlestraræfingar, til
athuga málið með framhald í huga. Smelltu á myndina og skoðaðu
fleiri myndir, sem teknar voru í gær.