Miðvikudagur 9. júní 1976
Fréttin Mbl. Ljósmyndir Kristinn Steingrímsson
Steinunn í sérflokki stúlknanna á Skarðsmótinu, en piltarnir deildu með sér verðlaununum
 |
Þær röðuðu sér í efstu sætin á Skarðsmótinu, Kristín Úlfsdóttir Steinunn Sæmundsdóttir og Aldís Arnardóttir. |
STEINUNN Sæmundsdóttir var í sérflokki kvennanna, sem mættu til leiks á Skarðsmóti á skíðum sem fram fór i Siglufirði um helgina. Sigraði Steinunn bæði í svigi og stórsvigi og hafði yfirburði i báðum greinunum.
Í
stórsvigi karla má
segja að allt
hafi farið eftir
bókinni þar sem
Ólympíufararnir Sigurður Haukur og Árni röðuðu sér i efstu sætin.
Í svigi karla var það hins vegar sá “gamli" kappi Hafsteinn Sigurðsson, sem skaut þeim yngri aftur fyrir sig og fékk fjórum sekúndum betri tíma en næsti maður, sem var Austfirðingurinn Valþór Þorgeirsson. 1 sviginu voru þeir ýmist dæmdir úr leik eða urðu að hætta keppni Árni, Tómas, Karl, Haukur og Sigurður.
Hafsteinn sigraði einnig í alpatvíkeppni karla.
 |
Þeir stóðu sig best í stórsvigi Skarðsmótsins og á skíðamótum vetrarins í heild. Árni Óðinsson. Sigurður Jónsson og Haukur Jóhannsson. |
Veður var gott til keppni á laugardaginn, en á sunnudaginn var hins vegar erfiðara þar sem bæði þoka og rok hrjáðu skíðamennina. Þeir létu veðrið þó ekki aftra sér en áttu með sér hörkukeppni í knattspyrnu að mótinu loknu að hefðbundnum sið. Sigruðu heimamenn, en þó ekki fyrr en að lokinni vitaspyrnu.
Skarðsmótið var um leið og það var síðasta skíðamót keppnistímabilsins, nokkurs konar uppskeruhátíð og voru þeim einstaklingum sem best stóðu sig á mótum vetrarins afhent sérstök verðlaun.
Steinunn Sæmundsdóttir sigraði í kvennaflokki á undan þeim Margréti Baldvinsdóttur og Jórunni Viggósdóttur, en hvorug þeirra var meðal keppenda á Skarðsmótinu.
Í karlaflokki sigraði Haukur Jóhannsson, Arni Óðinsson var annar og Sigurður Jónsson í þriðja sæti.
Helstu úrslit á Skarðsmótinu urðu sem hér segir:
Stórsvig karla:
Sigurður Jónsson Ísafirði 88.76
Haukur Jóhannsson Akureyri 89.48
Árni Óðinsson Akureyri 90.41
Karl Frímannsson Akureyri 90.79
Tómas Leifsson Akureyri 90.80
Svig karla:
Hafsteinn Sigurðsson Ísafirði 84.51
Valþór Þorgeirsson UIA 88.44
Ágúst Stefánsson Siglufirði 91.06
Einar V. Kristjánsson I 94,28
Jónas Sigurbjörnsson Akureyri 95.56
Alpatvíkeppni karla:
Hafsteinn Sigurðsson Ísafirði 17.9 stig
Ágúst Stefánsson Siglufirði 136.38 stig
Jóhann Vilbergsson Reykjavík 189.91 stig
Ganga 10 km.
Magnús Eiríksson Siglufirði. 30.54
Guðjón Höskuldsson Ísafirði 33.21
Jónas Gunnlaugsson Ísafirði 33.26
Þröstur Jóhannesson Ísafirði 34.05
Páll Guðbjörnsson Reykjavík 34.14
Jónas Gunnlaugsson Ísafirði 33.26
Þröstur Jóhannesson Ísafirði 34.05
Páll Guðbjörnsson Reykjavík 34.14
|
Stórsvig kvenna:
Steinunn Sæmundsdóttir Reykjavík 78.25
Aldís Arnardóttir Akureyri 88.48
Kristín Úlfsdóttir Ísafirði 91.44
Svig kvenna:
Steinunn Sæmundsdóttir Reykjavík 66,84
Aldís Arnardóttir Akureyri 73.01
Kristín Úlfsdóttir Ísafirði 97.85
Alpatvíkeppni kvenna:
Steinunn Sæmundsdóttir Reykjavík 0.00 stig
Aldís Arnardóttir Akureyri 121.62 stig.
Kristín Úlfsdóttir ísafirði 280.36 stig
[Ljósmyndir Kristinn Steingrímsson. Því miður, þá eru filmurnar ekki við höndina, þannig að myndirnar eru skannað beint úr Morgunblaðinu.] |
|