Gísli Elíasson fv. verksmiðjustjóri SREggert Theódórsson fv. lagestjóri SRÓkunn blómarós hjá SRStrákagöng við SiglufjörðFrá vígslu KFS 1966Togarinn Hafliði og GoðinnHaförninn "fastur í ís"

Ljósmyndasafn Steingríms, á netinu

>LEITARVÉLIN

Hafðu samband:

Póstfangið mitt

Gefðu mér upplýsingar um nöfn sem mig vantar

Ljósmyndasafn Steingríms, á netinu

 

Til forsíðu Forsíða heimablaða Strákagöng Sundlaug ofl. flugbraut
Frambjóðendur Myndasyrpa      
NORÐANFARI Þriðjudagur 6. júní 1967 (Kosningablað). Viðtöl: Norðanfari !. Ljósmyndir: Steingrímur

[Þessum myndum hér fyrir neðan fylgdi í blaðinu NORÐANFARA viðtöl við alla viðkomandi, en af einhverjum ófyrirséðum ástæðum hefi ég ekki haldi þeim öllum til haga, þannig að sum viðtölin vantar hér. En ég mun bæta úr því síðar með því að leita þau uppi á Bókasafninu.]

HREINN JÚLÍUSSON

Á Siglufirði hittum við að máli Hrein Júlíusson  byggingameistara.

 Fyrir rúmu ári stofnaði Hreinn, ásamt öðrum, trésmiðjuna Björk og við spyrjum hann  fyrst, hvort mikið hafi verið að………….

GUÐFINNA INGIMARSDÓTTIR

BJÖRN JÓNASSON

ÞÓRUNN ÞÓRÐARDÓTTIR

JÓNÍNA HJARTARDÓTTIR

Jóninna Hjartardóttir vinnur á kosn-ingarskrifstofu Sjálfstæðisflokksins á Siglufirði.

- Ertu fædd hér Jóninna ?

- Já, ég er fædd hérna og hef alltaf verið hér, nema nokkra mánuði sem ég var í skóla á  Englandi. Eftir heimkomuna vann ég fyrst í Útvegsbankanum og síðan á sjúkrahúsinu.

-Er mikið félagslíf hér hjá ungu fólki ?

- Ég held það megi segja svo. Það eru helst þeir sem hafa verið.............

KARA JÓHANNESDÓTTIR

Kara Jóhannesdóttir heitir hún og segist vera fædd á Siglufirði, þar hafi hún alltaf  dvalist, utan nokkra mánuði, sem hún vann í Reykjavik.

- Og hvað finnst þér nú um jafnaldra þína, Kara ?

-   Mér finnst að það vanti allt samstarf meðal ungs fólks. Ég held t.d. að það væri miklu  meira félagslíf hjá ungu fólki hér ef það ynni meira saman að sínum áhugamálum. Það  gæti áreiðanlega komið hér upp miklu fjölbreyttara félagslífi, ef það aðeins stæði betur  saman.

ÁRDÍS ÞÓRÐARDÓTTIR

JÓHANN MATTHÍASSON

Á einni bryggjunni á Siglufirði hittum við að máli Jóhann Örn Matthíasson sjómann,  sem verið hefur á togurum mörg undanfarin ár og ræðum við hann um togaraútgerð og  kosningarnar.

- Hvað gerir þú nú, Jóhann ? - Sem stendur vinn ég hjá Síldarverksmiðju ríkisins, en hef  verið á sjónum síðan 1959, aðallega á togurum, og geri ráð fyrir að verða það áfram.  Kjörin mættu kannski vera betri og ég held að vinnufyrirkomulagið 12/6 svo kallaða  komi ekki til greina.

- Togaraflotinn okkar er orðinn úreltur, flestir togaranna eru byggðir á árunum 1947 til  51-52 og segja má að þeir hafi skilað sínu. Þeir fylgja ekki lengur kröfum tímans. Þess  vegna þarf að endurnýja togaraflotann og þá sýnist mér að skuttogarar komi þar helst til  greina. Það eru mjög skiptar skoðanir um stærð skipanna og raunar sitt hvað fleira í  þessu sambandi, en þetta er mál sem kanna verður til hlítar áður en í byggingu slíkra  tækja er ráðist Við höfum ágætar aðstæður til að kinna okkur þessi skip því Þjóð-verjar og Bretar eiga ágæt skip af þessari tegund.

- Ég mundi álíta að heppilegasta stærðin fyrir okkur væri 1000-1500 tonn.  Þessi skip þurfa að vera það stór að þau geti sótt fjarlæg mið, en við þurfum einnig að gæta okkar á því að vera ekki of stórtækir í  byggingu þeirra. Þessi skip munu verða lengi að veiðum, jafnvel 60 daga í túr.

-  Mér líst vel á kosningarnar. Ég er ánægður yfir því að fá hér tækifæri til að lýsa  sérstakri ánægju minni með framboð Sjálfstæðisflokksins hér í kjördæminu. Það hefur  verið mín skoðun frá því að ég fór að mynda mér skoðanir í þessum málum að ungir  menn þyrftu að komast að, og listi okkar er sérstaklega glæsilegur nú.