|
Laugardagur 16. júlí 2004
Seglskútur. Yfir tugur seglskúta, stórar og smáar frá
mörgum þjóðum, sem og innlendar hafa heimsótt Siglufjörð það sem af er
sumri, allt frá Bandaríkjunum - Norður Ameríku svo og ýmsum Evrópulöndum
og komið hefur fyrir að allt að 3-4 skútur hafi legið í höfninni í einu.
Þessar tvær lágu í Bátahöfninni í morgun. |
|
Laugardagur 16. júlí 2004
Þormóður Rammi Sæberg hf. hafa í sumar safnað að sér óvenjulega
mikið af frosinni úthafsrækju, bæði frá stórum erlendum
rækjuveiðiskipum, innlendum og sínum eigin skipum- sem og nokkrum förmum
erlendra flutningaskipa. Allar geymslur þeirra eru nær fullar, auk þess
sem mikið magn er geymt í tugum frystigáma. Þetta eru framsýnir menn,
sem safna hráefni á meðan framboð er mikið og verðið lágt- og hafa svo
nægt hráefni til vinnslu á komandi mánuðum, fyrirtækinu og starfsfólki
til góða. - Myndin sýnir eitt flutningaskipið losa frosna rækju til
Þ.R.S. í morgun. |
|
Laugardagur 16. júlí 2004
Þessar fallegu stúlkur eru starfsmenn Síldarminjasafnsins, þær
eru þarna að "slappa af" áður en fyrstu gestir safnsins koma í dag.
myndin var tekin rétt eftir opnun safnsins klukkan 10 í morgun- og þær
heita Aníta Elefsen og Steinunn Sveinsdóttir |
|
Laugardagur
16. júlí 2004 Ein gömul: - Guðmundur Baldvinsson
-- Jón Ágústsson
og Hansína Jónatansdóttir. Frystihús SR 1963 (+/-) |
|
Föstudagur
16. júlí 2004 Loðnu og kolmunnaafli kominn á land
hjá Síldarvinnslunni á Siglufirði nú í sumar er kominn upp í rúm 16
þúsund tonn + 5.222.520 tonn frá lélegri vetrarvertíð á árinu.
Skoðaðu aflaskýrsluna.
Fjögur Norsk skip eru væntanleg með slatta. |
|
Föstudagur
16. júlí 2004 Gömul veghleðsla. Verið er að hreinsa mold
og gróður af veghleðslunni við Suðurgötu. Á myndinni sést hvernig
hleðslan lítur út, þarna mótar einnig fyrir löngu horfnum vegi, sem lá niður að
Snorragötu- og notaður var í gamladaga til að komast niður að Skaftaplani og
fleiri stöðum sem voru við Snorragötuna. |
|
Föstudagur
16. júlí 2004 Næstu daga kemur út ný hljómplata
(geisladiskur) með lögum frá Siglufirði. Það er Siglfirðingurinn Leó
Ólafsson sem stendur fyrir útgáfu hennar. Platan ber nafnið
Svona var á Sigló, skip og bátar bryggjur og plön. Margir góðir
söngvarar koma við sögu. m.a. Hlöðver Sigurðsson, Þorvaldur Halldórsson,
Baldvin Júlíusson, Rafn Erlendsson, Stefán Friðriksson, Þorsteinn
Sveinsson, Ómar Hlynsson, Hófí dóttir Rabba, Kristbjörn Bjarnason, Eva
Karlotta og fleiri góðir. Lög eins og Lindin Tær, Kveiktu Ljós, Eftir
ballið, hljóma á þessari plötu. |
|
Föstudagur
16. júlí 2004 Sumarkvöld í kirkjunni. Í gærkveldi
voru Þorvaldur Halldórsson og kona hans Margrét Scheving með kvöldstund
á þægilegum nótum í Siglufjarðarkirkju, við talað orð og söng. Þetta fór
vel fram eins og búast mátti við. Hljómuðu raddir þeirra í söngnum vel í
mínum eyrum- og ekki hefur Þorvaldur misst röddina, því hann söng með
sama krafti og hingað til. Vel var tekið undir með söng þeirra, þegar
þau hjónin hvöttu til- og fóru allir ánægði heim að þessu loknu. Þau eru
á ferðalagi hringinn í kring um landið og halda samkomu í sem flestum
kirkjum, á vegum þjóðkirkjunnar. |
Föstudagur
16. júlí 2004 Ein gömul: Ég þekki flest andlitin, en
man ekki öll nöfnin. Myndin er tekin á kvenfélagsferðalagi. |
|
Fimmtudagur
15. júlí 2004 Norska loðnuskipið Teigens losaði rúm
500 tonn í gærkveldi - Havfisk var að landa um 500 tonnum af loðnu í
morgun. Þriðja norska skipið kemur eftir hádegið með um 600 tonn og
Björg Jónsdóttir er væntanleg í nótt með loðnu.
Þá er 15.000 tonna markinu náð. Vonandi verður það tvöfalt þetta magn
a.m.k. sem hingað kemur á sumarvertíð. |
|
Fimmtudagur
15. júlí 2004 Veraldarvinir-Worldwide friends, erlendu
unglingarnir sem hér hafa verið undanfarnar vikur- og sagt var frá
Laugardaginn 10. júlí sl. héldu
einskonar kveðjuhóf fyrir þá sem þeir hafa kynnst á meðan þeir dvöldu
hér. Þetta eru 11 krakkar frá 8 löndum. Hvert og eitt þeirra kynntu sig
með smá ræðustúf á enska tungu- og buðu síðan viðstöddum að bragða á 8
þjóðarréttum þeirra, sem kalla mætti forrétti. Þetta voru allskonar
réttir sem þau höfðu hjálpast að við að matreiða- og vildu þakka fyrir
það hlýlega viðmót sem þau sögðust allstaðar hafa fundið fyrir á
Siglufirði. Hófið var haldið í Lionshúsinu. Upphaflega var ráðgert að
halda þetta utandyra á tjaldstæði bæjarins,- en það fór að rigna
lítilsháttar, svo þetta var flutt inn. Ég var þarna mættur- og þakka ég
fyrir veitingarnar og öll brosmildu andlitin. Smelltu á myndina til að
skoða fleiri. |
Fimmtudagur
15. júlí 2004 Ein gömul: Jóhann Guðnason (afgr.Eimskip)
og Þórarinn Dúason hafnarvörður. |
|
_small.JPG) Miðvikudagur 14. júlí 2004
Alls eru nú komin á land hér á Siglufirði tæp 13 þúsund tonn af
loðnu/kolmunna til bræðslu. Í morgun landaði hér Súlan EA 300 rúmum 700
tonnum og Siku kom þar á eftir með 11-1200 tonn sem verið er að landa nú
klukkan 10:45. Myndin sýnir Siku leggjast að bryggju rúmlega 8 í morgun,
-hin sýnir aflatölur (- Siku í morgun) |
|
Miðvikudagur 14. júlí 2004
Bíllinn sem fannst á hvolfi í gærmorgun fyrir neðan veginn upp í
Hvanneyrarskál hefur nú verið fjarlægður, en að sögn sýslumanns Guðgeirs
Eyjólfssonar er málið enn óupplýst. En að sögn eigandans var bifreiðin
skilin eftir fyrir utan bifreiðaverkstæði með lyklum í, sem ekki er
óalgengt á Siglufirði, þó ekki næturlangt eins og sagt er í þessu
tilfelli. Og "götubylgjan" segir að skipverji(ar?) á Grænlenska
togaranum sem var hérna í gær, séu viðriðnir málið, sem mér þykir þó
ólíklegt miðað við það að togarinn er farinn úr höfn- og málið, að sögn
sýslumanns óupplýst. |
|
Miðvikudagur
14. júlí 2004 Ein gömul: Hvað skal gera, var
kóngurinn farinn? Þetta eru þeir Eggert Theódórsson og Halldór
Guðmundsson í Frón, á "spilakvöldi" |
Afmæli
í dag: Miðvikudagur 14. júlí 2004 |
|
Miðvikudagur 14. júlí 2004 Nú er mér
ljóst betur en nokkru sinni áður, að færni í ræðumennsku og skinsemi
þingmanna okkar í nútíð og fortíð fer ekki saman. Þeir eru og hafa ekki
verið færir um að setja saman lagafrumvörp og samþykkja lög án þess að
misjafnlega skinsömum lögfræðingum takist að túlka þau á annan hátt en
þeir hugsuðu, en komu ekki fyrir í lögunum sjálfum- þó svo að þeir hafi
notið aðstoðar "skinsamra" lögfræðinga. -- Eftirá reyna
lögfræðingarnir ávalt að túlka lögin í takt við óskir
skjólstæðinga sinna- og svo virðist sem þeirra eigin skoðanir
og túlkanir áður og annarsstaðar, bæði í ræðu og riti komi
viðkomandi máli ekkert við. Þeirra hlutverk er að verja skoðanir og
málstað skjólstæðings síns og ekkert annað má skyggja á það. Þetta
þykist ég geta lesið úr viðtölum við þingmenn, ráðherra og lögfræðinga í
fjölmiðlum, sem og í mörgum tilfellum tala ekki og framkvæma samkvæmt
sinni eigin sannfæringu, þó svo í tilfelli þingmanna, þeir eigi að gera
það samkvæmt stjórnarskránni, stjórnarskrána sem virðist vera hægt að
túlka á ótal vegu, allt eftir málstað viðkomandi. Fari þetta
fjölmiðlaskrípi að lokum fyrir þjóðina, eins og forsetinn ætlaðist til.-
Hvern andskotann á maður svo að gera? Sitja heima, eða kjósa það sem
annarhvor armurinn vill ! (?) S.K. |
|
Þriðjudagur 13. júlí 2004
Aðsent:
Húsið Lindargata 6b
verðu auglýst til endurnýjunar eða flutnings,
(gefins),
í Tunnunni á morgun. Ef enginn vill eiga húsið verður það rifið. Þar sem
allir gamlir Siglfirðingar og vinir okkar lesa Lífið á Sigló værum við
þakklátir ef þú birtir mynd og smá texta með á síðunni þinni.
Kv. Óli B (bæjarstjóri) --- Á dögunum var svipað
hús (10. júlí)
flutt á Ásinn, það
ætti að takast að koma þessu húsi fyrir á svipuðum slóðum, ef vilji væri
til. Upplagður sumardvalarstaður fyrir brottflutta og vandamenn. SK |
|
Þriðjudagur 13. júlí 2004
Bílvelta.
Í nótt eða í morgun snemma mun þessi bifreið hafa ekið útaf nýja veginum
á leið upp í Hvanneyrarskál, og hafnað niðri á gamla hluta vegarins.
Nokkur ferð virðist hafa verið á bílnum, þar sem hann endastakast og
lenti á hvolfi. Fallið sjálft er ekki nema 3-4 metrar. Vegurinn sjálfur
er nokkuð góður af malarvegi að vera, breiður en nokkur lausamöl á
honum..Lögreglan kom á staðinn um klukkan 8 í morgun, en bíllinn blasir
við vegfarendum neðar í byggðinni, sem létu lögreglu vita. Samkvæmt
upplýsingum frá Sýslumanni kl. 10:30, er ekki enn vitað um aðdraganda
slyssins, né frétt af viðkomandi,- en verið er að kanna tengils skráðs
eiganda við atburðinn, en ekki hefur náðist samband við hann sjálfan.
Málið er því í enn rannsókn. |
|
Þriðjudagur 13. júlí 2004
Aðsent: En málið er að þegar Grikkir unnu Frakka á EM þá
skoraði Toni á Jóhannes bróður sinn að ef Grikkir yrðu Evrópumeistarar,
þá þyrfti Jóhannes að klæðast laki eins og Grikkir gerðu forðum daga.
Svo átti hann að hlaupa hring á torginu. Þetta gerði hann svo á
laugardagskvöldið síðasta. Ég tók nokkrar myndir af þessu. Þarna voru
nokkrir komnir til að sjá þetta hjá honum. En hann klæddist laki, með
illgresi í hárinu og í inniskóm og sveiflaði Gríska fánanum.
Kveðja Eygló E.S. Faðir bræðranna er Grikkinn
Jóhannes Arelakis, eða Jannis (fb.Janus) eins allir kalla hann
hér, en hann hefur búið á Sigló í um 24 ár. |
|
 Þriðjudagur 13. júlí 2004
Höfnin annarsvegar og krían hinsvegar, hjá Þormóði Ramma.
Sveinn Þorsteins sendi mér þessar myndir. Önnur sýnir olíuskip þröngva
sér á milli loðnuskipsins Bjargar Jónsdóttur ÞH og Grænlenska
rækjutogarans Steffens C, til að geta dælt olíu á land. Það gekk allt af
óskum. Hin myndin sýnir kríuna krækja sér í fæðu handa ungum sínum, frá
brettum með frosinni rækju er verið var að taka úr frystigeymslu Þ.R.S.
og setja á vörubíl til flutnings og vinnslu í rækjuverksmiðjunni. |
|
Þriðjudagur
13. júlí 2004 Þjóðlagahátíð. Nokkrar myndir frá
Sigló-Myndir (Þórleifur Haraldsson 467-1114) Smelltu á myndina.
Dagskráin:
http://siglo.is/festival/2004/
Er á Sigli.is - vonandi geyma þeir þessar upplýsingar á vefnum, upp
á seinni tíma. - Svona eins og allar mínar verða varðveittar, sem hingað
til. |
|
Þriðjudagur
13. júlí 2004 Ein gömul:
Sigríður Jóhanna Konráðsdóttir (Sigga Konn) og Guðrún Anna
Ólafsdóttir frá Gautastöðum í Fljótum, kona Jóhannesar Bogasonar.
|
|
Mánudagur 12. júlí 2004 Hólsbrúin.
Eins og Siglfirðingar vafalaust vita, þó voru tilboð í smíði nýju
brúarinnar opnuð 15.06.2004. - Samkvæmt upplýsingur frá
vegagerðinni hafa orðið tafir á að framkvæmdir hæfust, - en ekki er búið
að ganga frá samningum við lægstbjóðenda, Mikael ehf, en það verður
líklega gert á næstu dögum. |
|
Mánudagur 12. júlí 2004
Loðna. Súlan losaði í morgun
loðnufarm, Björg Jónsdóttir var enn að landa í hádeginu- og Siku beið
með fullfermi eftir löndun. Þá var Steffen C hér ennþá og að auki var
olíuskip að losa olíu til SteffenC og til lands, hjá Olís. |
|
Mánudagur 12. júlí 2004
Skemmtiferðaskip sigldi fyrir fjörðinn í vesturátt klukkan
16:20 í gær. Það var þoku eða rigningarsuddi á þessum slóðum, svo myndin
er ekki eins góð og hefði verið sólskin. En hvað því líður: Hvað ætli
þurfi til, til að svona skip komi inn á fjörðinn okkar? - Ég tala nú
ekki um ef maður hefði efni á því að taka far með slíku skipi.
Myndin er tekin frá gangnamunna að austan.
Aðsend viðbót: Skipið heitir AIDA BLU og er 245 metra langt og
32ja metra breitt 14 dekk (hæðir) rúmar 1596 farþega í herbergjum og
svítum og er skipið er mælt 70.285 brúttó tonn. Svo varla má búast við
að svona stórt skip hætti sér inn á Siglufjörð. |
|
Mánudagur 12. júlí 2004
Ein gömul:
Ottó Jóakimsson og Ægir Jóakimsson |
Afmæli
í dag: Mánudagur 12. júlí 2004 |
|
Sunnudagur 11. júlí 2004
Gestir þeir sem hér hafa verið síðustu daga, bæði í tengslum við
Þjóðlagahátíð- og annað, eru nú óðum að taka saman föggur sínar og
undirbúa brottför til síns heima. |
|
Sunnudagur 11. júlí 2004
Grænlenska rækjuveiðiskipið Steffen C, kom hingað með stóran
rækjufarm til Þormóð Ramma Sæberg. Þetta er systur skip Regina C sem var
hér í síðustu viku með samskonar farm. |
|
Sunnudagur
11. júlí 2004 Þjóðlagahátíð. Henni líkur í dag,
eftir mjög vel heppnaða dagskrá og einstaka veðurblíðu 18-20 °C hiti
alla dagana.
Það er ekki að efa að margir hafa tekið margar ljósmyndir þessa daga. -
Og ef þú sem þetta lest næstu 2-3 dagana ert einn af þeim- og þú átt í
fórum þínum skemmtilegar myndir af einhverju augnabliki sem þú hefur
fest í tölvutækt form og sendir mér, þá mun ég safna þeim í myndaseríu
og birta á vefnum mínum. Þetta þurfa að vera myndir af börnum eða
fullorðnum, stöddum einhversstaðar á Þjóðlagahátíð. |
Sunnudagur
11. júlí 2004 Ein gömul:
Frímann ? og Þorkell Jónsson-1964(+/-) |