|
Laugardagur 24. júlí 2004
Nýr geisladiskur, sem vert er að eignast. Vinur minn Leó R Ólason
færði mér að gjöf athygliverðan geisladisk með lögum sem allir kannast
við, bæði ungir og gamlir. Flytjendur laga og texta eru flestir af
Siglfirsku bergi brotnir. Diskurinn ber nafnið
Svona var á Sigló. Skip og bátar-bryggjur
og plön. Dreifingaraðilinn er Smekkleysa og útgefandi
Laugarásvideo, - En Leó er anar eigandi þess fyrirtækis. Það þarf vart
að kynna Leó fyrir Siglfirðingum, hann þekkja flestir, bæði hvað músík
snertir og brennandi áhugi hans á myndböndum og leigu, allt frá upphafi
þeirrar menningar. Smelltu
hér
til að lesa meira um diskinn, sem ma. fæst hjá Síldarminjasafninu. |
|
Laugardagur 24. júlí 2004
Um klukkan 17:00 fékk
Björgunarsveitin Strákar veglega gjöf frá hjónunum
Baldvin Einarssyni og Ingibjörgu
Sigurjónsdóttir. Þetta var vönduð Canon video tökuvél og ýmsir
aukahlutir. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem hjónin færa
Björgunarsveitinni gjafir, en áður hafa þau gefið ýmsan sérhæfðan búnað sem að gagni hefur
komið í björgunarbátnum Sigurvin. Það sem telja má merkilegt við
gefendur, er að þau eru ekki Siglfirðingar, en
Baldvin sagði aðspurður, að það væri svo
margt sem Siglufjörður heillaði þau með, að þau festu kaup á húsi hér í
bæ á síðastliðnu ári, Suðurgata 30, og vinna nú að endurbótum á húsinu.
Hjónin eru eigendur
Beco Ljósmyndaþjónustu. |
|
Laugardagur
24. júlí 2004 Hin hefðbundna sýning Síldarminjasafnsins, söltun,
söngur og dans með þátttöku áhorfenda fór fram upp úr kl.20:30 í
gærkveldi. Talsverður fjöldi var viðstaddur sem og notað tækifærið og
skoðaði öll safnhúsin, en aðgangur var ókeypis í tilefni afmælisins.Þá
eru hér einnig nokkrar myndi frá Torginu milli klukkan 22:00 - 22:30 en
þar var að hefjast útdansleikur með Miðaldamönnum. |
|
Laugardagur
24. júlí 2004 Sjáfarútvegsráðherra Noregs, hélt
veislu í tilefni afmælisins á Kaffi Torg í gærkveldi, ég gerðist
"boðflenna" og tók þar nokkrar myndir áður en borðhald hófst. |
Laugardagur
24. júlí 2004 Heljarmikil grillveisla og meðlæti var í
boði Sparisjóðsins og Íslandbanka. -- Nokkrar myndir frá Torginu í
gær. |
|
Laugardagur
24. júlí 2004 Sýningar. Margar sýningar eru nú í
gangi um þessa og næstu helgi. Málverkasýningar, klippimyndir,
ljósmyndir á Kaffi Torg, skipslíkön Gríms Karssonar- og svo auðvitað
sýningar Síldarminjasafnsins. Ég leit inn á nokkrar þeirra í gær og
smellti á myndum. Smelltu á myndina til að skoða |
_small.JPG) _small.JPG) Laugardagur
24. júlí 2004Gistiheimilið Hvanneyri.
Þangað leit ég inn í gær, í þeim tilgangi að skoða málverkin hennar
Höllu Haralds, sem þar voru - Það er nokkuð langt síðan ég hafði komið
inn í þessi húsakynni, og ég verð að játa að mér varð orðfall yfir þeim
glæsileik sem þarna blasir við manni hvarvetna á þessu gistiheimili, sem
mér finnst í raun eiga fullan rétt á að kallast glæsihótel -
reglugerðarpúkarnir etv. Evrópustaðlar segja að það megi ekki, af því að
ekki fylgi hverju herbergi snyrting og sturtuklefi. Þarna eru 1. flokks
gistiaðstaða boðlegum hverjum sem er og búin fallegum og vönduðum
húsgögnum. Mjög íburðarmikil setustofa og önnur aðstaða. Þá er
einnig góð aðstaða fyrir svefnpokapláss. Meðfylgjandi myndir:
HÓTELstýran Álfhildur Stefánsdóttir, og inni í einu af
herbergjunum, það er stærsta herbergið, en önnur herbergi minni en eru
með svipuð húsgögn. Í þessu herbergi munu forsetahjónin gista aðfaranótt
dagsins í dag, laugardag.
|
 >>> Afmæli
í dag: Laugardagur 24. júlí
2004 |
|
Föstudagur 23. júlí 2004
Talsverður fjöldi var kominn saman á Torginu í dag klukkan 16:00
þegar þessi mynd var tekin, en Sparisjóðurinn og Íslandsbanki buðu upp á
grillaðar pylsur og drykki. Margir tignir gestir voru mættir auk annarra
gesta. Deginum verður gerð frekari skil með myndum á morgun, en mikið er
framundan í kvöld, svo efni dagsins verður að bíða. |
|
_small.JPG) Föstudagur 23. júlí 2004
Það má segja, að hótíðarhöldin þessa helgi í tilefni af 100 ára
afmæli Síldarævintýrsins hafi hafist með því að Norski þjóðfáninn var
dregin að hún á á stalli rústa Evangers verksmiðjunnar handan
fjarðarins- þó svo að ekki hafi komið þar nærri opinberir aðilar. Það
var í upphafi vegna komu Norska prinsins fyrr í sumar sem fánanum var
fyrst flaggað á þessum stað, en Valgeir Sigurðsson hafði verið staddur í
Svíþjóð er hann las um væntanlega ferð prinsins til Siglufjarðar. Hann
keypti sér Norskan fána (3ja metra) fór heim á Sigló, bjó til flotta
fánastöng úr gömlum ljósastaur reisti hana á einum stallinum sem eftir
er af gömlu verksmiðjunni og flaggaði. Hann ætlaði að gera meira, hann
ætlaði einnig að hleypa af 21 fallbyssuskoti til heiðurs
þjóðhöfðingjanum, eins og venja er erlendis, hann bar þetta undir
sýslumanninn sem hafnaði því algjörlega, svo fáninn var látinn nægja. Og
nú aftur í tilefni heimsóknar Norðmanna og 100 ára afmælishátíðar, fór
hann ásamt bróður símum Hafsteini og dró Norska fánann áð hún kl. 11:45
í dag. |
|
Föstudagur
23. júlí 2004 Flugferð. Ég var svo heppinn í gær um
kaffileitið að fá tækifæri til að fljúga yfir bæinn og nágrenni
fjarðarins. Flugmaðurinn var Hafsteinn Linnet og flugvélinni hans. Var
flogið út fjörðinn, yfir Siglunes og yfir í Héðinsfjörð og aftur til
baka. Flugferðin tók um hálftíma og skilaði rúmlega 100 ljósmyndum. Það
eina sem skyggði á flugið var að nokkuð mistur var yfir sjálfum bænum
(hitamistur?) En árangurinn má teljast góður þrátt fyrir það. Það var
Hjalti Einarsson sem bauð mér í þessa flugferð nú í sumar, fyrir tæpu
ári síðan og staðfesti hann það í gær, - kærar þakkir. |
|
Föstudagur
23. júlí 2004 Siglunes, hefur verulega rýrnað um
mittið mætti segja. Það væri slæmt ef brimið héldi áfram óáreitt að saxa
í það- þar til brimið fengi greiðari leið inn á fjörðinn og þar af
leiðandi valda óróa innar í firðinum, meiri en nú er þegar Kári og Ægir
eru í sínum versta ham. |
|
Föstudagur
23. júlí 2004 Héðinsfjörður. Það var talsverð umferð
um og í Héðinsfirði í gær. Hópar fólks í göngutúrum, slappað af í
sólinni og logninu- svo og voru veiðimenn að vitja um silunganetin sín-
en á myndinni má sjá þrjú net í vatninu. (hægra megin við
+) |
|
Föstudagur
23. júlí 2004 Aðsendar myndir: Síðasta loðnan
að landi? - Síðasta löndunin? Síðasti mjölpokinn á leiðinni? - En ef til
vill eiga einhverjir Norskir báta eftir að koma með slatta, en flest ef
ekki öll loðnuskipin eru að huga að því að hætta vegna tregs afla.? |
|
Föstudagur
23. júlí 2004 Ein gömul: Ég veit,... að það
var skíðamót- og að það var vonskuveður. En hver þekkir þessa
kappbúnu? (líklega 1964-1965) |
>>> Afmæli
í dag: Föstudagur 23. júlí
2004 |
>>> Afmæli
í dag:
Fimmtudagur 22. júlí 2004 |
|
Fimmtudagur 22. júlí 2004
Reiðskóli GLÆSIS er nú þessa dagana með námskeið í hestamennsku,
fyrir byrjendur og lengra komna. Leiðbeinandi er Jón Garðarsson eins og
undanfarin ár. Ég skrapp á vettvang frammi í firði við hesthúsin og tók
nokkrar myndir sem þú sérð með því að smella á myndina. En þessir hestar
slöppuðu af í sólinni í morgun, fyrir neðan hesthúsabyggðina.
(Hreinn Júlíusson gefur allar upplýsingar varðandi námskeiðið) |
|
Fimmtudagur
22. júlí 2004 Súlan og Siku komu seini partinn í gær
með um 500 tonn hvort, af loðnu til löndunar hjá Síldarvinnslunni.
Frekar treg veið hefur verið að undanförnu- og búist er við að skipin
fari að hætta á þessum veiðum. Alls eru komin á land hjá
Síldarvinnslunni á Siglufirði um 22 þúsund tonn af loðnu- og hefur
Síldarvinnslan á Siglufirði tekið á móti mestum loðnuafla á þessari
vertíð, það er um 22.500 tonn (kolmunni þar meðtalinn, rúmlega 2.300
tonn). |
|
Fimmtudagur
22. júlí 2004 Einn gömul: Áhættunnar
virði ? Þeim fannst það vissulega áhættunnar virði að fara
eftir völtum og titrandi 2-6" planka á milli landfastra og fljótandi
ísjaka, þó ekki væri nema spennunnar vegna. Þetta léku þeir sér af
drengirnir í "villimannhverfinu" og í Bakka, í byrjun marsmánaðar 1965.
Þeir frökkustu drógu plankann á eftir sér til að fara yfir á þann næsta-
og svo koll af kolli. Það kom fyrir að plankinn sporðreistist og einhver
færi í sjóinn. En þeir létu ekki deigan síga og héldu ótrauðir áfram og
luku því sem þeir stofnuðu til, - oft til að ögra hvor öðrum. Engum varð
meint af, nema lögreglunni sem ekki hafði frið fyrir "kerlingunum" í
landi, sem þótti þetta ekki spennandi uppátæki, sem var síendurtekið,
eftir að lögreglan fór af vettvangi. |
|
Miðvikudagur
21. júlí 2004 Aðsent:
- Spor ehf., sem flytur inn
Ecco skó, hefur af rausnarskap fært keppnisliði ungling hjá Golfklúbbi
Siglufjarðar að gjöf vandaða og fallega golfskó. Þeir sem skipa
unglingaliðið eru þeir Grétar B. Hallgrímsson, Sævar Örn Kárason og
Þórhallur Dúi Ingvarsson. (á meðfylgjandi mynd vantar Grétar) Með
kveðju, G.K.S./Kjartan |
|
Miðvikudagur
21. júlí 2004 BOMB, jörðin nötraði um 19:30 í gærkveldi-
það hefur að vísu verið reglubundið undanfarin kvöld, þar sem
Suðurverksmenn hafa þurft að sprengja klappir vegna
Snjóflóðavarnargarðanna sem þeir vinna við fyrir ofan bæinn. En í þessu
tilfelli í gærkveldi, var óvenjumikill titringur, sími minn sem hangir á
krók við tölvu mína fór á hreyfingu og drunurnar voru meiri en
venjulega. Ég stóð auðvitað upp til að huga að sprengjusvæðinu, sem er
beint fyrir ofan hús mitt - Fossvegur og Hólavegur eru þó þar á milli.
Talsverður rykmökkur sást þar sem sprengingin hafði orðið,- en það sem
vakti athygli mína var nágranni minn Steingrímur Garðarsson, staðsettur
fyrir neðan hús sitt á Fossvegi, en Steingrímur var á leið til vinnu
(S.V.N). Hann bar hönd fyrir höfuð sér - og snéri við. Ástæðan var
einföld, grjóthríðin dundi á húsunum fyrir ofan hann, meðal annars á
hans hús, á götuna Fossveginn þar sem hann var, og alla leið niður fyrir
götuna. Þetta voru að vísu ekki stórir steinar, minni en hnefi, - en það
hefði örugglega skaðað hann hefði hann orðið fyrir einhverjum þeirra,
sem má teljast tilviljun að sleppa við. Litlar skemmdir munu þó hafa
orðið af þessari grjóthríð, utan smá lakkskemmdir á þökum. |
Miðvikudagur
21. júlí 2004 Ein gömul:
Magnús Þorláksson og Jón Frímannsson |
|
Þriðjudagur
20. júlí 2004 Norsku loðnubátarnir, raunar er
vart hægt að kall loðnuskipin báta nú til dags vegna stærðar þeirra
flestra. En þeir hafa verið nokkur drjúgir að landa hér slöttum allt að
600 tonnum í senn. En í gærkveldi rúmlega 19:00 sigldi þetta glæsifley
inn á fjörðinn með "slatta"- það er ef miðað er við stærð þess þá er það
slatti, með um 1000 þúsund tonn af loðnu. Skipið er Norskt og heitir
Kvannøy N-400-B Hér eru frekari upplýsingar af netinu um skipið:
MS "Kvannøy" is a combined purse seiner and trawler with full processing
facilitites, registered in Norway and catching on Norwegian quotas. She
was built in 2002 and is a modern factory vessel indeed with all the
latest equipment both for catching and processing of pelagic fish.
Freezingsystems are based on CO2, which gives shorter freezing time and
accordingly better quality products. Temperature can be pushed down to
-50¤ C. --- Length of the vessel is 75,40 meters, coldstorage
capasity is 900 m3 and RSW (refridgerated sea water) tanks hold maximum
2.000 m3. Freezing capasity is up to 200 mt per 24 hours. the factory
produce whole round fish and various types of filets. Freezing method is
vertical plate freezers and cartons are 20 kos. |
|
Þriðjudagur
20. júlí 2004 Ein gömul: Guðjón Jónsson verkstjóri og Jón
Kristjánsson vaktformaður S.R.P. 1963 (+/-) |
|
Mánudagur 19. júlí 2004
Síldarvinnslan. Ég heimsóttir stjórnstöð bræðslunnar í morgun og
heilsaði upp á gamla vinnufélaga. Þar voru þeir Georg Ragnarsson og
Sævar Björnsson límdir við stjórnskjáina, en þróarkarlinn Sigurjón
Pálsson var þarna einnig að fylgjast með. |
|
Mánudagur 19. júlí 2004
Aðsent: Meistaramót Golfklúbbs Siglufjarðar var haldið um
helgina 17.-18. júlí, en leiknar voru 18 holur hvorn dag. Í
kvennaflokki vann Ingibjörg J. Benediktsdóttir, í unglingaflokki
Þórhallur Dúi Ingvarsson, í 2. flokki karla Hreinn Júlíus Ingvarsson og
í 1. flokki karla Þorsteinn Jóhannsson. Benóný Sigurður Þorkelsson vann
það afrek að fara holu í höggi á síðustu holunni á laugardaginn.
Meðfylgjandi eru nokkrar myndir frá mótinu. Kveðja, G.E. |
|
Mánudagur
19. júlí 2004 Ein Gömul:
Stefán Aðalsteinsson og Símon Márusson 1962 (+/-) |
Mánudagur 19. júlí 2004
>>> Nýfæddur
Siglfirðingur |
|
  
>>> Afmæli
í dag:
Mánudagur 19. júlí 2004 |
|
Sunnudagur 18. júlí 2004
Loðna/kolmunni, komið á land á Siglufirði yfir 20 þúsund tonnin á
sumarvertíð Þar af hafa Björg Jónsdóttir og Siku komið með hvort um sig
yfir 5000 tonn
Löndunarskýrsla hér
|
|
Sunnudagur
18. júlí 2004 Ein gömul: Friðjón Vigfússon og Anton
Jóhannsson 1964 (-/+) |
Sunnudagur 18. júlí 2004
Nýfæddur Siglfirðingur |