Lífið í Ágúst 1-7 2004 | Lífið í ágúst 8-14 2004 | Lífið í ágúst 15-21 2004 | Lífið í ágúst 22-31 2004

>>>>>>>>>>> Lífið í ágúst 8-14 2004

 

Til forsíðu
Til baka
Pæjumótið (10)
Pæjumótið (11)
Pæjumótið (12)
Pæjumótið (13)
Pæjumótið (14)
Póseidons
Við höfnina
Árgangur 1944




Ljósmyndasafn Steingríms
á netinu.

Steingrímur Kristinsson Siglufirði
G-892-1569
S-467-1569

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

   Siglfirski fréttavefurinn  Lífið á Sigló

Laugardagur 14. ágúst 2004  Ein gömul: Stefán Benediktsson og Hafþór Rósmundsson

Föstudagur 13. ágúst 2004  klukkan 17:30  Einmuna blíða hefur verið í allan dag, strax í morgun um 9 leitið fór hitinn yfir 20 °C og algjört logn. Um 3 leitið tók sunnan gola við og þá hlýnaði verulega. Um klukkan 16:00 sýndi hitamælir minn, sem er í tveggja metra hæð og í algjörum skugga frá sólinni, í 28,4 °C og hitamælirinn í bíl mínum á ferð (35 km. hraða) niður á bæ stuttu síðar sýndi 28,3 og um klukkan 17:30 tók ég meðfylgjandi mynd af mælinum við Sparisjóðinn, ég rétt missti af myndatökunni þegar sami mælir stuttu fyrr sýndi 27 °C Þetta eru góð skipti á þokunni sem hefur angrað okkur síðastliðna þrjá daga, -- við sendum þokuna suður.

Föstudagur 13. ágúst 2004 S.R.-Vélaverkstæði Ég leit inn á gamla vinnustaðinn minn í morgun og rabbaði við félaga mína, hér er mynd af tveim þeirra; Elvar Elefsen og Heimir Birgisson

Föstudagur 13. ágúst 2004 Suðurgata 30
Eins og áður hefur komið fram hér á vefnum, þá höfðu Hjónin Baldvin Einarsson og  Ingibjörg Sigurjónsdóttir keypt húseignina Suðurgötu 30 á Sigló á síðastliðnu ári. Ég heimsótti Baldvin í morgun í Suðurgötuna, þar sem hann var á fullu við að grafa fyrir stólpum norðan við hús sitt, en hann ætlar að stækka húsið aðeins til norðurs til að auka þannig pláss í forstofunni. Baldvin hefur eignast hér marga kunningja og vini, enda hefur hann einstakan persónuleika, maður er fljótur að kynnast honum vegna hins glaðlega og óþvingaða viðmóts og hjálpsemi. Ég hefi að vísu ekki þekkt hann nema í nokkrar vikur, en mér finnst ég hafa þekkt hann í mörg ár og vil gjarnan telja hann meðal vina minna. Baldvin og kona hans reka fyrirtækið Beco Ljósmyndaþjónustu í Reykjavík.  - Verið þið hjónin velkominn í hóp Siglfirðinga. S.K.

Föstudagur 13. ágúst 2004 Ein gömul:  Óskar Berg Elefsen - Hersteinn Karlsson og Ámundi Gunnarsson. (SR-ingar)

Fimmtudagur 12. ágúst 2004  Aðsent: - Árgangur 1944 hittist á Siglufirði í blíðskaparveðri helgina 25. - 27. júní s.l.  Farið var á Siglunes með Gunna Odds á Jonna S.I. og var það ógleymanleg ferð þeim sem hana fóru. Nokkrar myndir frá ferðinni; smelltu á myndina.

Fimmtudagur 12. ágúst 2004  Tveir stórir bátar voru sjósettir í dag, eftir að hafa verið á landi í 2 daga til botnþrifa og allsherjar snyrtingar. Þorleifur frá Grímsey og Björgunarbáturinn Sigurvin Siglufirði. Tvo krana þurfti til.

Fimmtudagur 12. ágúst 2004  Sveinn vinur minn var einnig á róli í morgun og sendi hann mér nokkrar myndir sem þú sérð ef þú smellir.

Fimmtudagur 12. ágúst 2004 Þessa heiðursmenn hitti ég í morgun á förnum vegi. Talið frá vinstri:
Hilmar Þór Elefsen og Stefán Þór Haraldsson og  á hinni myndinni; Ágúst Stefánsson- Hjálmar Jóhannesson og Marteinn Haraldsson

Fimmtudagur 12. ágúst 2004  Sunnan SI 67, hefur nú yfirgefið Siglufjörð. Skipið er farið áleiðis til Danmerkur þar sem það verður tekið í slipp, en skipið hefur verið leigt til Lettneskrar útgerðar. (óstaðfest heimild). Skipið fór frá Siglufirði um hádegisbilið í gær.

Miðvikudagur 11. ágúst 2004  Vaðandi síld, var  rétt framan við Síldarminjasafnið fyrir hádegið í dag, - svona til að kalla á Örlyg: "Halló Örlygur við erum komin aftur" Þarna virtist mikið magn á ferðinni er ég kom á vettvang, en síldin hafði aðeins fjarlægst fjöruna framan við Síldarminjasafnið og komið utar í innri höfninni. Þetta voru tveir flekkir, annar nokkru minni og fuglinn syndandi í kringum torfurnar. Trillukarl sagði mér að hann hefði fylgst þó nokkurn tíma með torfunum heiman úr glugga sínum.

Miðvikudagur 11. ágúst 2004   Loksins- loksins er komin hreyfing við væntanlega brúargerð yfir Hólsána. Óeðlileg bið, miðað við fyrstu fregnir um verkbyrjun hefur verið, en væntanlega eru einhverjar ástæður fyrir því. Í morgun voru komin á staðinn; vinnuskúr og fullhlaðinn vörubifreið. En ekki sá ég til neinna mannaferða er ég kom þar klukkan; 09:30 í morgun.

Þriðjudagur
10. ágúst 2004
 

 


Nýtt skip til Siglufjarðar, hann er að vísu ekki nýr báturinn, en hefur verið skráður á Siglufjörð, undir nafninu Kristinn Friðrik SI 5. Útgerðamaðurinn Sæmundur Árelíusson og Skipstjórinn Ólafur Gunnarsson er Siglfirðingum báðir kunnir, enda hafa þeir búið hér áður áralangt.

Þriðjudagur 10. ágúst 2004
Sigurvin var hífaður á land í gær og unnið er við að "zinka" bátinn og verður hann síðan málaður. Þarna er Ómar Geirsson að vinna við að taka gömlu zinkstykkin af.

Þriðjudagur 10. ágúst 2004  Ein gömul: Ágúst Vilhelmsson og ?
>>> Afmæli í dag  Þriðjudagur 10. ágúst 2004

Mánudagur 9. ágúst 2004  Aðsent: Eins og lesendur fréttasíðunnar muna gekk forstjóri Síldarminjasafnsins í hof sjávarguðsins Póseidons í Grikklandi í byrjun maí og hét á hann að senda okkur aftur Norðurlandssíldina gömlu og góðu. Nú hefur það sýnt sig að Póseidon hefur svarað kallinu – síldin er komin inn á víkur og voga og fyrsta Norðurlandssíldin hefur verið söltuð á Róaldaplaninu nýja. Það gerðist á laugardaginn við harmóníkuleik og dans þar sem fjöldi gesta á Pæjumótinu fylgdist glaður með. Það var aflaskipið Viggó SI sem lagði upp. Þann dag var lagt síldarnet á vegum Síldarminjasafnsins úti á miðjum firði og sýna meðfylgjandi myndir þegar siglt var að landi og aflanum landað – alls 6 síldum og 9 ufsum. Með Örlygi í för var Jón Sigurpálsson, forstöðumaður Sjóminjasafns Vestfjarða á Ísafirði, en báðir eru þeir kunnir sem áhugamenn um veiðar og siglingar þótt landkrabbar séu. Á síðustu myndinni er Halldór Halldórsson bæjarstjóri á Ísafirði ásamt aflaklónum í táknrænni athöfn þar sem þeir mynda bæjarmerki Siglufjarðar til að minna á gömul vinabæjatengsl staðanna. (Takið eftir síldarbolnum sem Halldór er í, en þessir glæsilegu bolir eru enn til sölu í Bátahúsinu).
Að lokum skal þess getið að Örlygur segist binda vonir við að Síldarminjasafnið fái 5-10 tonna veiðiheimild hjá Sjávarútvegsráðuneytinu svo safnið verði sjálfbært með söltun og vinnslu á silfri hafsins. GR

Mánudagur 9. ágúst 2004  Nú í síðustu viku var sett girðing fyrir aðgengi að gömlu löndunarbryggju SR. Þar hafði áður verið síðustu árin, stór og mikill I-biti, til að hindra bílaumferð fram á bryggjuna, en bryggjan er ekki eins traust og áður, en hefur ávalt verið vinsæll staður fyrir dorgara, börn sem fullorðna. Einhver hafði dregið bitann frá til að fara á bíl fram á bryggjuna einhverra erinda, en ekki hirt um að setja á sama stað aftur.
Og til viðbótar hafði eitthvert foreldri (?) kvartað yfir því að barn hefði farið með fót niður um einhverja holu sem þarna hefur verið í áratugi (af nauðsyn) og klagað. Aldrei hefði neinu foreldri dottið í hug að kenna þriðja aðila um hrakfarir barna sinna hér áður fyrr. En það vill víst brenna við að sumir foreldrar þakka sér það sem gott er í fari barna sinna, en öðrum þegar illa fer..  En Það var brugðið á það ráð af þessu tilefni að girða alveg fyrir bryggjuna,- þó svo að slík hindrun hefði ekki dugað fyrir mig og mína vini á unga aldri.

Mánudagur 9. ágúst 2004  Ein gömul: Háseti á vakt í brú, um borð í Haferninum; Gunnar Tómasson.

Sunnudagur 8. ágúst 2004  Pæjumótið. Síðustu myndirnar;  - á vettvangi verðlaunaafhendingar.

Sunnudagur 8. ágúst 2004  Pæjumótið eftir hádegið, nokkrar myndir teknar eftir hádegið. Þokan farin og sól og blíða.

Sunnudagur 8. ágúst 2004 Pæjumótið hélt áfram í morgun, ég tók nokkrar myndir fyrir hádegið og koma þær í ljós ef smellt er á myndina.
Eftir Hádegið klukkan 13:00 verður slegið upp grillveislu og síðan nokkrir úrslitaleikir og mótslok með verðlaunaafhendingu.

Sunnudagur 8. ágúst 2004  Pæjumótið að kvöldi laugardags. Mikið fjör og mikil kæti var hjá pæjunum og þeirra fólki í gærkveldi, sem lauk með brennu í fjallinu og flugeldaskotum. Logn var og blíða.
 Smelltu á myndina.

Sunnudagur 8 ágúst 2004  Pæjumótið. Hélt áfram í gær- og hér eru nokkrar myndir frá seinnipartinum af gærdeginum frammi á hóli. - Smelltu á myndina eða á tengil til vinstri (Pæjumótið (10)  Fleiri tenglar eldri, eru hérna (til vinstri á þeirri síðu, 1-7. ágúst)

>>> Afmæli í dag 
            
Sunnudagur 8. ágúst 2004