|
Laugardagur
22. janúar 2005
Skíðasvæðið í Skarðsdal. Þar var gott skíðaveður og færi í
dag er ég skrapp þangað upp um klukkan 14 í dag |
Laugardagur
22. janúar 2005
Veðrið í hádeginu:
Hitastig 1 °C
Sunnan gola
Úrkomulaust -- Flott skíðafæri og veður Efst á síðu |
|
Laugardagur
22. janúar 2005 Síldarvinnslan. Ég skrapp og heimsóttir
fyrrverandi vinnufélaga mína hjá Síldarvinnslunni í gær, ég hitti að
vísu ekki alla (þessa fáu sem eru á vöktum í dag) - sumir virðast
hræðast myndavélin mína eða í það minnsta, ég náði þeim ekki öllum.
Smelltu á myndina til að sjá hverjir urðu "fórnarlömb" mín. |
|
Laugardagur
22. janúar 2005 Trinket, mjölflutningaskip lestaði hér í
gærkvöl loðnumjöl frá Síldarvinnslunni. Um 200 tonn. "til að blanda
saman við og bæta framleiðsluna fyrir austan" Sagði einn gamansamur
gárungi, en skipið fer austur til að taka þar til viðbótar, meira mjöl
til útflutnings. |
|
 Laugardagur
22. janúar 2005 Aðsent: Já ég
var upp í Skarði í dag í þessu frábæra veðri og blíðu þannig að ég ákvað
að taka með mér myndavél. Veðrið í dag var eins og best var á kosið og
ekki var færið mikið verra. Ég mæli bara með að allir skelli sér á
skíði/bretti á morgun (22) og njóti útiverunnar í Skíðaparadís þ.e.a.s
ef viðrar vel. Kveðja Aron Ingi
Það var greinilegur roði á himni, sem sýnir
að ekki verður langt í að sólin sjálf ná að skína yfir fjöllin á bæinn
okkar og skíðasvæðin. - SK -- Myndir: Aron Ingi |
|
Laugardagur
22. janúar 2005 Ein gömul:
Bátadokkin, og svæðið sem Síldarminjasafnið er á núna.
(ég er ekki viss um ártalið sem myndin er tekin.) |
Laugardagur
22. janúar 2005
Snævar Jón Andrjesson
er 20 ára í dag |
|
|
Föstudagur 21. janúar 2005
Aðsent:
Kæru Siglfirðingar!
Nú er kominn sá tíma að ásókn í útivist á firðinum okkar frábæra er að
aukast með hækkandi sól! Það er mjög fjölbreytt útivist stunduð á
Hólsdalnum, í Skarðinu og hér upp um öll fjöll. Þess vegna er mjög
áríðandi að við tökum tillit til þarfa hvers annars í umferðinni.
Nú þegar einungis Drottningarbrautin (Snorrabrautin) er
fær, fer um hana mikil umferð. Það er bæði gönguskíðafólk, göngufólk,
skokkarar, hundafólk, ríðandi umferð og fólk á bílum á leið úr og í
Skarðið eða bara fólk á “rúntinum”. Öll eigum við þarna jafnan rétt til
að njóta.
Mig langar að biðja vegfarendur til að taka meira
tillit til okkar ríðandi manna en stundum hefur verið. Því miður höfum
við ekki aðra leið að ríða en þessa fyrr en snjóa leysir fram á Hólsdal
og víðar.
Við reynum eftir fremsta megni að taka tillit til annarra en
hestarnir eru sumir viðkvæmir fyrir hraðri umferð og hávaða og gætu því
átt til að hlaupa út undan sér og það valdið slysi ef ógætilega er
farið.
Við viljum gera hvað sem er til að koma í veg fyrir það
og biðjum ykkur vegfarendur að sýna okkur meiri tillitssemi. Um leið vil
ég minna félaga mína á að sýna annarri umferð tillitssemi og muna eftir
endurskynsmerkjum á hrossin, fatnað og tilheyrandi
Fyrir hönd hestamanna --- Sævaldur Jens
Gunnarsson |
|
Föstudagur 21. janúar 2005
Skíðasvæði Siglfirðinga í "Panaroma"
Nægur snjór er nú allstaðar innan Siglufjarðar, jafnt á hinum
hefðbundnu skíðasvæðum í Skarsdal og suður af Hóli - það er allsstaðar
góður skíðasnjór. Lítil umferð var þegar þessi mynd(ir) var / voru teknar
klukkan 13:00 í dag enda vinnudegi og skóla ekki almennt lokið. Þessi
mynd er sett saman úr 10 myndum, Hún er nokkuð stór á skjánum svo tíma
gæti tekið að hlaða henni niður með hægvirkri tengingu. Smelltu á
myndina. -- og færðu síðan músabendil í neðra hornið hægra megin, haltu
bendlinum kyrrum í 2-5 sek, þá kemur væntanlega (í flestum tölvum)
möguleiki til að smella á,- og sjá myndina enn stærri. |
|
 Föstudagur
21. janúar 2005 ÞORRABLÓT - Í framhaldi af
fyrirspurn um þorrablót á döfinni, þá eru hér eftirfarandi upplýsingar:
Eina opna þorrablótið á döfinni er opið öllum, Þorrablót Allans
Sportbar, sem verður´þann 19. febrúar næstkomandi. Heilbrigðisstofnun og
starfsfólk fyrirhugar einkablót á sama stað þann 26. febrúar, möguleiki
er á að "klúbbarnir" haldi sín "lokuðu" blót í sínum félagsheimilum. Og
svo rúsínan í pylsuendanum - Kveðja frá Kidda G sem er á Kanarí, þar
mætir unglingurinn á þorrablót í kvöld á stað sem heitir Casa
Antonio og er í spænska hverfinu. Kokkurinn er auðvitað Siglfirðingur
Sveinn Friðfinnsson.
Góða skemmtun Kiddi G og skilaðu kveðju til Svenna vinar míns. |
Föstudagur
21. janúar 2005
Veðrið í hádeginu:
Hitastig -3 °C
Logn
Úrkomulaust -- Flott skíðafæri og veður Efst á síðu |
|
Föstudagur
21. janúar 2005 Fyrsta Eyrarrósin var veitt í dag
--- Þjóðlagahátíðin á Siglufirði hlaut fyrstu Eyrarrósina, sem veitt var
við hátíðlega athöfn á Bessastöðum fyrir stundu. Eyrarrósin er
viðurkenning sem veitt er fyrir framúrskarandi menningarverkefni á
landsbyggðinni. Verðlaunin eru ein og hálf miljón króna og
verðlaunagripur eftir Steinunni Þórarinsdóttur.
Myndin er frá Þjólagahátíð síðastliðið sumar. Ljósmynd
Þórleifur Haraldsson |
|
Föstudagur
21. janúar 2005 Þorrablót Ég var spurður (í tölvupósti) um
áætluð þorrablót á næstunni. Þar sem ég hefi ekki heyrt um nein ennþá,
þá er það vinsamleg beiðni til þeirra sem eitthvað vita af slíkum
uppákomum, að lofa mér að vita svo ég geti komið þeirri vitneskju
(yfirliti) á vefinn hér. Gera má ráð fyrir að einhverjir hafi áhuga á að
heimsækja heimabyggð í tengslum við þorrablót. |
|
Föstudagur
21. janúar 2005 Ein gömul: Frá verðlaunaafhendingu
eftir skíðamót á Siglufirði 20. nóvember 1965. Ekki veit ég hvaða
skíðamót þetta var, en sá sem gaf verðlaunagripina var Kristinn
Benidiktsson skíðakappi frá Ísafirði. Gaman væri að fá frekari
vísbendingu um mótið og hvert var tilefni verðlaunagjafar Kristins. Á
myndinni eru: Björn Ólsen - Sigríður Júlíusdóttir - Kristinn
Benediktsson - ???? og Sigurbjörn Jóhannsson |
Föstudagur 21. janúar 2005
Sigurður Óli Sveinsson
er 22 ára í dag
(með honum á myndinni er Guðbjörg frænka hans) |
Föstudagur 21. janúar 2005
Kristrún Jónsdóttir
er 50 ár í dag |
|
 Fimmtudagur
20. janúar 2005
Aðsent frá Skákmótinu í gærkvöld. Úrslitin.
Í gærkvöldi, kl. 20.00, var haldið minningarskákmót um Benedikt
Sigurjónsson, í safnaðarheimili kirkjunnar, og mættu 10 til leiks. Þeir
voru í stafrófsröð: Ástþór Árnason, Bogi Sigurbjörnsson, Jóhann Jónsson,
Jón Kort Ólafsson, Ólafur Jóhannsson, Sigurður Gunnarsson, Sigurður
Helgi Sigurðsson, Sigurður Ægisson, Þórhallur Benediktsson og Þórhallur
Dúi Ingvarsson. Tefldar voru 5 mínútna skákir, tvær umferðir.
Sigurvegari var Sigurður Gunnarsson, með 17 vinninga, annar varð Bogi
Sigurbjörnsson með 15,5 vinninga og í þriðja sæti varð Sigurður Ægisson
með 14,5 vinninga. Fjölskylda Benedikts gaf veglegan farandbikar og
verðlaunapeninga og er ráðgert að þetta mót verði árlegur viðburður á
Siglufirði í janúar héðan í frá. SÆ (einnig hér
neðar, frá mótinu) |
Fimmtudagur
20. janúar 2005
Veðrið í hádeginu:
Hitastig -3 °C
Norðan 4 - 6 m/s
Snjókoma Efst á síðu |
|
Fimmtudagur 20. janúar 2005
Minningarmót um Benedikt Sigurjónsson, haldið af Skákfélagi
Siglufjarðar, var haldið í Safnaðarheimilinu Siglufirði í gærkvöld. Alls
voru mættir 10 keppendur og tefldar voru 5 mínútna skákir, tvær
umferðir. Mótið var öllum opið og ekkert þátttökugjald. Ekki beið ég
eftir úrslitunum, en þau koma síðar, væntanlega. --
Efst á síðu |
|
_small.JPG) Fimmtudagur 20. janúar 2005
Þeir stóðu sig vel KS-drengirnir í 4. flokk karla vestur á
Blönduós nú um síðastliðna helgi í fótbolta kappleik. Þeir komust í
úrslit, sem er mjög góður árangur, miðað við stuttan þjálfunartíma.
Þetta eru; aftari röð: Karl Freysteinsson - Sigurður Ómarsson - Arnar
Ásgeirsson - Halldór Hilmarsson - Björn Arnarsson og Birgir Egilsson --
fremri röð: Radoven Medic - Eyríkur Magnússon - Fannar Hafþórsson og
Gunnar Þorleifsson. Og litla myndin er af þjálfaranum Mark Duffield, sem
bað mig að skila kæru þakklæti til foreldra drengjanna sem keyrðu þeim
til Blönduós og hvöttu drengina til dáða á mótinu. Efst á síðu |
|
Fimmtudagur
20. janúar 2005 Þessir kátu drengir, léku á alls oddi
eftir sundsprett í Sundlaug Siglufjarðar (og fótbolta í Íþróttahúsi?) í
gærkveldi, þeir vildu endilega fá af sér mynd, sem þeir fengu.
Mér láðist að spyrja um nöfn þeirra. -
Einhver laumar þeim að mér vonandi?
Efst á síðu |
|
Fimmtudagur
20. janúar 2005 Loðnuskipið Áskell kom seinnipartinn
í gær með loðnufarm og Örninn kom um miðnættið, báðir með
fullfermi til löndunar hjá Síldarvinnslunni á Siglufirði.
Nýjustu löndunartölur:
Efst á síðu |
|
 Fimmtudagur
20. janúar 2005 Fréttatilkynning:
Síðastliðinn þriðjudag undirritaðu Hermann Einarsson fyrir hönd
SR-Vélaverkstæðis og Sigurður Bjarnason fyrir hönd ESSO, þjónustu og
umboðs samningur milli Olíufélagsins ESSO og SR-Vélaverkstæði, þess
efnis að SR-Vélaverkstæði sér um sölu og dreifingu á öllum vörum frá
ESSO á Siglufirði. - SR-vélaverkstæði er með lager af
smurolíum,smurfeiti ofl sambærilegum vörum.
Einnig verður til sölu í SR-Byggingavörum; vörur í
neytendapakkningum fyrir bílinn og heimilið.
Á næstu dögum munu viðskiptavinir verslunar okkar sjá þess merki að ESSO
vörur verða sýnilegar og á mjög góðum verðum.
Nánari auglýsing verður birt í næstu "Tunnu" með opnunar tilboðum á
ýmsum vörum. Efst á síðu |
|
Fimmtudagur
20. janúar 2005 Ein gömul: Frumlegur stýrisbúnaður.
Þessi krani, sem var í eigu Síldarverksmiðja Ríkisins, var til margra
ára, eini færanlegi kraninn á Siglufirði. Þetta var breskur krani
framleiddur á stríðsárunum og erfitt að nálgast varahluti, sem oftar en
ekki voru smíðað þess vegna, hjá SR-Vélaverkstæði, en stundum varð að
hafa öll ráð til að hafa hann í notkun, á meðan varahlutir voru
smíðaðir. Í einu tilfellanna bilaði stýrisbúnaðurinn, en til bráðabyrgða
var þessi "mannlegi" búnaður gerður til að bjarga málinu. Maður, í þessu
tilfelli Kristinn Jóakimsson, gekk á undan og vísaði krananum veginn með
vogarstöng, en ekki sá sem beitti bensíngjöfinni. Þarna var kraninn að
ljúka vinnu við togarann Hafliða árið 1965 - tilbúinn til annarra verka. Efst á síðu |
Fimmtudagur
20. janúar 2005
Elías Bjarni Ísfjörð
er 24 ára í dag |
|
|
Miðvikudagur 19. janúar 2005
Frétt af síðu
Síldarvinnslunnar
Mikið um að vera í loðnunni
Það er mjög góð veiði á loðnumiðunum og stanslaus straumur skipa með
afla í land. Veiðisvæðið hefur verið að færast suður með Austfjörðum og
er veiðin nú meðal annars í Seyðisfjarðardýpi.
Síldarvinnslan hefur tekið á móti um 33.000 tonnum af loðnu frá áramótum
á Siglufirði, Seyðisfirði og í Neskaupstað.
Börkur NK fyllti sig á miðunum síðastliðna nótt og dældi loðnu um borð í
Örn KE sem flytur hráefni af miðunum í land fyrir Síldarvinnuna. Örn
er á leið með farminn til Siglufjarðar og er þetta önnur ferð skipsins
þangað í vikunni. Áskell EA er einnig á leiðinni til Siglufjarðar með
loðnu.
Börkur er að landa á Seyðisfirði og Súlan EA landaði þar í gær. Tvö
norsk skip lönduðu afla á Seyðisfirði í gær og eitt er þar til löndunar
í dag. Guðmundur Ólafur ÓF er á leið til Seyðisfjarðar með fullfermi.
Beitir NK landaði loðnu til vinnslu í Neskaupstað í nótt og er á leið á
miðin og Bjarni Ólafsson AK er væntanlegur þangað í kvöld með loðnu
fyrir vinnsluna og landar auk þess frosnum afurðum. Eitt norskt skip
landaði loðnu í Neskaupstað í gær. Efst á síðu |
|
Miðvikudagur 19. janúar 2005
Samkvæmt fréttabréfi Skólaskrifstofu, er
meðal annars á það minnst að Foreldraráð hefur verið endurskipað, í
ráðinu eiga nú sæti Katrín Sif Andersen formaður (myndin) - Hulda Ósk
Ómarsdóttir og Sævaldur Jens Gunnarsson.
Áður hafa Margrét Ósk Harðardóttir, Elín Þór Björnsdóttir og Ásta
Kristjánsdóttir setið í Foreldraráði síðan 1996 og þakkar Grunnskólinn
þeim fyrir óeigingjarnt starf í þágu menntunar barna á Siglufirði. Efst á síðu |
Miðvikudagur 19. janúar 2005
Veðrið í hádeginu:
Hitastig -1 °C
Norðan 4 - 6 m/s
Úrkomulaust - él til fjalla Efst á síðu |
|
Miðvikudagur
19. janúar 2005 Ein gömul: Síldarverksmiðjan RAUÐKA árið
1965. Fremst; skrifstofa, efnarannsókn og fleira -- Ketilhús og
vélasalur -- Soðkjarnastöð - þar á bak við verksmiðjan og þrær -
mjölhúsið lengst til vinstri. Í dag er þarna autt svæði, ef undan er
skilið minnismerkið á miðju svæðinu. Það er Tjarnargata og Gránugata sem
þarna skerast. Efst á síðu |
Þriðjudagur
18. janúar 2005
Veðrið í hádeginu:
Hitastig 0 °C
Norðan 4 - 6 m/s
Úrkomulaust Efst á síðu |
|
Þriðjudagur
18. janúar 2005 Aðsent:
Haustið 2004 er að vísu löngu komið og farið, en svona til að minna
á litadýrðina í fjöllunum okkar á haustin, þá birti ég myndina.
Ljósmynd: Hrönn Einarsdóttir, nýbyrjuð á stöngum skólabekk í
áhugaljósmyndun, á nýju stafrænu myndavélina sína Efst á síðu |
|
Þriðjudagur
18. janúar 2005 Ein gömul: Fiskidælur
(síld) á tilraunastigi sumarið 1965 - Þarna eru tvö
síldarflutningaskip við löndunarbryggju SR á Siglufirði. Annað var
leiguskip síldarverksmiðjunnar Rauðku; Gulla og hitt leiguskip
Síldarverksmiðja Ríkisins; Basto. - En þarna er verið gera tilraun með
fiskidælur, dælt er í hring til og frá Gullu, það er frá Basto til Gullu
og aftur látið renna til Basto. Síldin var misjafnlega vatnsblönduð til
að finna getu dælunnar. Á sama tíma er önnur tegund löndunardælu á
bryggjunni í notkun vegna löndunar frá Basto til verksmiðjunnar.
Hvorug þessara tegunda var notuð á næstu árum, 1966 og síðar.
Efst á síðu |
Þriðjudagur
18. janúar 2005
Theodór Sævar Eggertsson
er 65 ára í dag. |
Þriðjudagur 18. janúar 2005
Sigríður Sóley Hafliðadóttir
er 26 ára í dag
Efst á síðu |
|
Mánudagur 17. janúar 2005
Eftirfarandi styrkveitingar voru samþykktar af bæjarráði
Siglufjarðar, þann 9. desember síðast liðinn fyrir árið 2005:
Efst á síðu
Sönghópurinn Dyfra kr 30.000,-
Glæsir kr 80.000,-
Karlakórinn kr 80.000,-
Lífið á Sigló kr 100.000,-
Norræna félagið kr 50.000,-
Skákfélagið kr 25.000,-
Tónlistarfélag Siglufjarðar kr 25.000,- |
Fermingarbörn kr 30.000,-
Íris Gunnarsdóttir kr 25.000,-
Leikfélag Siglufjarðar kr 200.000,-
Ljósmyndasafn Steingríms kr 100.000,-
ÓB kvartett kr 40.000,-
Sögufélag Siglufjarðar kr 25.000,-
Vorboðar kr 80.000,-. |
|
Mánudagur 17. janúar 2005
Veðrið í hádeginu:
Hitastig -2 °C
Sunnan 8 -10 m/s
Úrkomulaust
Efst á síðu |
|
Mánudagur 17. janúar 2005 Aðsent: "Ábending til
foreldra og forráðamanna barna sem renna sér niður úr Siglufjarðarskarði
". Við viljum benda fólki á; að upplýsa börnin sín vel um þær
hættur sem fylgja því að renna sér niður úr Siglufjarðarskarði.(meðfram
akveginum) Þetta er ótrúleg slysagildra ef ekki er vel að sér gáð.
Það má ekki mikið út af bera þegar börnin eru að renna sér niður eins og
í ljós kom í gær þegar við lentum í þeirri skelfilegu lífsreynslu að
keyra næstum því yfir dreng sem var að renna sér niður úr skarðinu í
gær, hann var á bretti og renndi sér niður meðfram veginum og allt í
einu skipti engum togum að hann missir vald á brettinu þannig að hann
stefndi beint út á veginn og fyrir bílinn, mikil hálka var á veginum en
fyrir snarræði ökumanns og ABS bremsukerfi bifreiðarinnar gat hann
afstýrt stórslysi, og betur fór en á horfðist, drengurinn lá eftir á
miðjum veginum skelfingu lostinn en bifreiðin lenti út í móum og þar
sátum við pikkföst og í algjöru sjokki.
Eftir þessa lífsreynslu í gær þá þykir mér full ástæða til að vara bæði
ökumenn sem keyra upp og niður skarðsveginn og foreldra barna við því að
leyfa þeim að renna sér meðfram veginum.
Með vinsemd og þökk -- Helga Kristín Einarsdóttir og Úlfur
Guðmundsson Efst á síðu |
|
Mánudagur
17. janúar 2005 Enn meiri loðna. Þessi mynd sýnir Bjarna
Sveinsson, bíða eftir löndun með um 900 tonn og Gullberg VE að landa um
1.100 tonnum. Svo er von á Erninum með loðnu til löndunar, en Örninn er
eitt af "flutningaskipunum" sem veiða ekki loðnuna, heldur dæla upp úr
nót veiðiskipanna og sigla með farminn til lands.
Efst á síðu |
|
Mánudagur
17. janúar 2005 Meiri loðna. Guðmundur Ólafur ÓF 91
2329 kom með um 1.200 tonn af loðnu í gærkveldi til löndunar hjá
Síldarvinnslunni. Og væntanlegur er loðnubáturinn Bjarni Sveinsson
(gamla Björgin) með um 900 tonn. -- Alls eru þá komin hér á
land, þegar þeirri löndun er lokið; um 5.500 tonn.
Myndin er tekin kl 20:00 í gærkveldi.
Efst á síðu |
Mánudagur
17. janúar 2005 Aðsend mynd:
Rjúpur;
Svona sé ég á lóðinni hjá mér daglega, mest hef séð 16 stk í
einu. kv ÓBE
Efst á síðu |
Mánudagur
17. janúar 2005 Ein gömul: Tunnuverksmiðjan 1965.
Á myndinni sjást; Guðjón Eggertsson, Guðmundur Bjarnason og
Halldór Þorleifsson, lengst til hægri.
Efst á síðu |
Mánudagur
17. janúar 2005
Þau eiga afmæli í dag Örn Arnarson 39 ára
og leikkonan Ólöf Kristín Daníelsdóttir 26 ára
|
Mánudagur
17. janúar 2005
|
|
Sunnudagur 16. janúar 2005
Kennsla í skíðagöngu og æfingar í alpagreinum fyrir börn
og fullorðna hafa staðið yfir að undanförnu. Misjafnlega hefur viðrað
þessa daga til skíðaiðkunar, en þeir sem þessar íþróttir stunda eru
harðir af sér og láta það ekki aftra sér, sérstaklega yngri kynslóðin.
Ég leit við á svæðunum að Hóli og uppi í Skarðsdal og tók örfár myndir,
en veður var ekki ákjósanlegt til myndatöku, hann gekk á með éljum og
vindstrekkingi. Það var fínt veður fyrir hádegið sagði Hákon. En
takið viljann fyrir verkið og smellið á myndina. |
Sunnudagur 16. janúar 2005
Veðrið í hádeginu:
Hitastig 4 °C
Austan 2 - 4 m/s
Úrkomulaust
Efst á síðu |
|
Sunnudagur 16. janúar 2005
Í gærdag var Björgunarsveitin Strákar send af stað til að leita 5 manna
sem sagt var að hefðu farið á vélsleðum frá Siglufirði áleiðis til
Héðinsfjarðar en höfðu ekki látið í sér heyra. Sagt var að þeir hefðu
farið til þess að smala saman rollum sem sést hefði til og koma þeim
niður að Vatni í Héðinsfirði, þar sem bátur kæmi á móti og tæki við
rollunum.
Sleðamenn Björgunarsveitarinnar kunnir staðháttum lögðu af stað til
leitar með tilheyrandi búnað. Fljótlega munu þeir hafa fundið einn af
félögunum. Sá sem fannst, varð viðskila við hópinn, festi sleðann sem
hann var á og týndi síðan sleðanum. Þ.e. skyggni var mjög lítið, sem
ekkert. Og alls ekkert sleðafæri. Snjótroðari sem var með í för
leitarmanna kom með manninn til byggða. Síðar náði hópurinn sem saknað
var, sambandi úr Björgunarskýli Slysavarnarfélagsins í Héðinsfirði og
lét vita af sér, en einn þeirra félaga mun hafa farið fram af hengju og
meiðst á fæti Að öðru leiti var allt í lagi með þá. - Þegar þetta er
skrifað, seint í gærkveldi, var Sigurvin, björgunarsveitarbáturinn
lagður af stað til að sækja mennina.
Það skal tekið fram að þessi frétt hefur ekki fengist staðfest í
aðalatriðum, þrátt fyrir að þess hafi sérstakleg verið óskað og raunar
fengið loforð um frekari fréttir hjá stjórnstöð Björgunarsveitarinnar
þegar mennirnir væru fundnir. En fréttin er soðin saman úr 11
tölvupóstum og símtölum til mín frá ýmsum kóðkunningjum, nöfn þeirra
týndu voru þar einnig, en ég sleppi þeim hér. Það hefði þó verið betra
að fá þessar upplýsingar frá Björgunarsveitinni sjálfri. Hér er
VIÐBÓT við
þessa frétt |
|
Sunnudagur
16. janúar 2005 Ein gömul:
Horft á tuðruspark, kappleikur KS og ? árið 1965.
Á myndinni eru:
Jón Kr Jónsson bifreiðastjóri - sonur Jóns - Geir Guðbrandsson smiður -
Jónas Guðmundsson málari og Jón Pálsson smiður.
Efst á síðu |
|
Sunnudagur
16. janúar 2005 Þessi einstaka mynd er erlend, en ég gat
ekki stillt mig um að lofa fleirum að njóta - og stelst því til að birta
hana hér.
Þetta er verðlaunamynd mánaðarins af síðu
ADCSee: "Winds of Change" by
Louise DaFies of Wilmington, IL, USA. Það getur varla hafa verið
mjög hvöss norðanátt sem þarna hefur geisað, en stöðug hefur hún verið.
Efst á síðu |
Sunnudagur
16. janúar 2005
Snævar Már Gestsson
er 16 ára í dag |
Efst á síðu |
Sunnudagur
16. janúar 2005
Kristinn Konráðsson
er 65 ára í dag |
Sunnudagur
16. janúar 2005
Ari Már Þorkelsson
er 57 ár í dag
Efst á síðu |
|
Sunnudagur
16. janúar 2005
Linda Björk Brynjarsdóttir
er 3 ára í dag, hún dóttir Brynjars Guðmundssonar (Mumma Lár og
Gódý) og Matthildar Halldórsdóttur
Fjölskyldan býr í Vestmannaeyjum. |
Sunnudagur
16. janúar 2005
Freyja Jóhannsdóttir
er 3ja ára í dag.
Freyja er þarna með móður sinni, Perlu Fanndal,
- á Óskarsbryggju. |