Lífið í mars 1-5 2005 | Lífið í mars 6-12 2005 | Lífið í mars 13-18 2005 | Lífið í mars 20-26 2005 | Lífið í mars 27-31 2005

>>>>>>>>>>> Lífið í mars 1-5 2005

 

Til forsíðu
Til baka




Ljósmyndasafn Steingríms
á netinu.

Steingrímur Kristinsson Siglufirði
G-892-1569
S-467-1569

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Siglfirski fréttavefurinn  Lífið á Sigló- s. 892-1569 - h.s:467-1569
GagnagrunnurMynda-albúmÁ döfinniLoðnulöndunSkíðasvæðið

Laugardagur 5. mars 2005
Veðrið í hádeginu:
Hitastig 7 °C
Sunnan 6 -8 m/s
Sólskinsglæta

09:30

Laugardagur 5. mars 2005 Slökkvilið Siglufjarðar. slökkviliðsmenn voru við æfingar upp á Lindargötu í morgun, en þar stendur hús sem á rífa. Þeir voru með ýmsa tilburði, ímyndaða reykköfun og leit af fólki inni í húsinu, dæluprufun og þetta hefðbundna sem þarf að vera laust og liðugt í höndum drengjanna, sem hafa haft langt frí frá eldsvoðum á Siglufirði- sem betur fer segjum við öll.  Mynda-albúm

Laugardagur 5. mars 2005 Áskell EA 48, var búinn að landa upp úr 11:30 í dag. Hann fór á hægri ferð úr fjörðinn, og þegar komið var á móts við gangnamunna Strákaganga að austanverðu, innan við Helluna, þá fór skipið að breyta um stefnu sitt á hvað, austur, suður, og aftur til norðurs, greinilega í leit af loðnu, en fyrir utan fjörðinn og einnig austan við Siglunes voru þrjú skip, sum hlaðin, greinilega að leita.

Laugardagur 5. mars 2005 Áskell EA 48 kemur um 04:00 og Guðmundur Ólafur ÓF 91 er væntanlegur klukkan 09:00, báðir með með fullfermi af loðnu til löndunar hjá Síldarvinnslunni á Siglufirði. Skipin koma af Vestfjarðarmiðum -- EKKI af miðunum vestan Sigluness (35 mínútna sigling til Siglufjarðar) en skipin sem þar voru að veiða í gær, halda til staða þar sem fyrir hendi er hrognataka og frysting, en loðnan sem veiddist vestan Sigluness er hrognafull, og er á leið inn á Héðinsfjörð til hrygningar, ef til vill einnig inn á Eyjafjörðinn og víðar. Börkur N.K. hélt af stað í gærkvöld til Síldarvinnslunnar fyrir austan með fullfermi. -----   Og þá er það stóra spurningin; Er göngumynstur loðnunnar að breytast? Ekki virðist ástæða til að spyrja hina launuðu fiskifræðinga á vegum hins opinbera, því þeir virðast ekki vita meira um loðnuna en fyrirrennarar þeirra forðum um síldina (vegna fjárskorts að talið er(?)). En ef göngumynstrið er að breytast. Er þá ástæða til að koma upp loðnu og hrognavinnslu nær norður og vestursvæðinu en nú er, til dæmis á Siglufirði? Því geta víst engir svarað nema peningamennirnir, þeir sem eiga fyrirtækin í þessum bransa.
(myndin er tekin í janúar sl)

Laugardagur 5. mars 2005 Athugasemd: Við greinina hér fyrir neðan, ég hefi fengið ábendingu um það sem varðar "lélega mætingu" fermingabarna. Það er fermingabörnin sem nú á ferma á næstunni voru fjarverandi úr bænum. Og einnig má um kenna lélegri mætingu almennt, um að skort hafi sambandi á milli skipuleggjanda þessa fyrirlestrar og tildæmis þeirra er vissu af löngu ákveðnu ferðalagi fermingabarna á þessum degi. og að einnig muni þetta ekki hafa verið nægjanlega auglýst.
Athugasemd vegna þessara skrifa hér fyrir ofan- og neðan, er að finna á Sunnudeginum 6. mars

Laugardagur 5.mars 2005 Aðsent: Mig langar að lýsa hneyksli minni á mætingu hjá foreldrum fermingarbarna og annarra unglinga á mjög góðan fyrirlestur hjá tollstjóra í gærkveldi sem var "Varnir gegn fíkniefnum". ---  Því ekki veitir af að fara á svona fyrirlestra þar sem slatti af fíkniefnum hér í bæ og foreldrum unglinga veitir ekki af að kinna sér þessi mál svo ekki sé minnst á kennarana sem létu ekki sjá sig þarna því ég hélt að skólastjórnendur væru að reyna að berjast gegn fíkniefnum og einelti. það eru milli 1000 og 1500 mans hér í bæ og það mættu ekki nema 11 mans, og tveir af þessum 11 voru tvö fermingarbörn þvílík hneyksli. Þó foreldra hafi farið áður á fyrirlestur hjá Þorsteini og hundinum bassa þá er hann ekki með sama fyrirlesturinn aftur heldur er hann með nýtt efni í hvert sinn. Ég vona bara að foreldrar líti sér nær og mæti á alla þessa fyrirlestra sem tengjast fíkniefnum og einelti því þetta kemur okkur öllum við og okkur ber skilda að fræðast um svona mál og önnur til að verja börnin okkar frá öllu svona sem tengjast hættum.  XX
 Ég var beðinn um að birta ekki nafn viðkomandi greinarhöfundar, og verð við því af gildum ástæðum, og ég sjálfur ber örlítinn kinnroða yfir að hafa gleymt þessum fundi / erindi, en ég hafði ákveðið að mæta þarna en það datt úr kolli mínum. SK

Laugardagur 5. mars 2005 Loðnuskipin héldu áfram að kasta á loðnuna í gær. Þessar myndir voru teknar rétt fyrir klukkan 16:00 á gær og sýnir fjögur loðnuskip að veiðum á þröngu svæði rétt austur af Siglunesi. Um klukkustundu síðar voru loðnuskipin orðin fimm, en komin súld og ekki myndatökuhæft úr viðkomandi fjarlægð, það er frá munna Strákagangna að vestanverðu, eins og þessar myndir..

Laugardagur 5. mars 2005 STÚLLI og Kaupmannafélagið buðu upp a lifandi tónlist á Torginu seinnipartinn í gær. Þarna er Sturlaugur Kristjánsson á fullu við flutninginn.

Laugardagur 5. mars 2005 Ein gömul: Um þetta svæði far Siglfirðingar, meðal annarra oft á ári, sumir á hverjum degi, en hvar er "þetta" svæði?
Þú færð svarið með því að vara með músabendilinn hér

Laugardagur 5. mars 2005
Grétar Örn Sveinsson
er 25 ára í dag
 
Laugardagur 5. mars 2005
Haukur Jónsson  skipstjóri
er 60 ára í dag

Laugardagur 5. mars 2005
Jón Hrólfur Baldursson
er 28 ára í dag. Sá til vinstri, hinn; Hjalti, átti afmæli 12.febrúar

Föstudagur 4. mars 2005  Árgangur 1965 - 40 ára -- Við ætlum að hittast á Sigló 8. - 10 júlí (sama helgi og Þjóðlagahátíðin). Bréf hafa verið send út til allra. Endilega hafið samband við Rikku, rikka65@msn.com , 467-2207 eða Helgu, helgas@kbbanki.is ,467-1343/460-1900 ef bréfið hefur ekki borist ykkur. Hlökkum til að heyra frá ykkur.  Undirbúningsnefnd Heimavarnarliðsins.

Föstudagur 4. mars 2005 Viðbót við loðnuna, austur af Siglunesi, sagt frá hér fyrir neðan. Börkur fékk þarna strax í fyrsta kasti 400 tonn og í öðru 200 tonn, og búinn að kasta aftur klukka 12:30.

Föstudagur 4. mars 2005
Veðrið í hádeginu:
Hitastig 3 °C
Sunnan Gola
Sólskinsglæta

10:00

Föstudagur 4. mars 2005 Loðna austur af Siglunesi, Þrjú skip eru nú, þegar þessi mynd er teikn klukkan 11:25 í dag að huga að loðnu sem þarna sást til í morgun, eitt af þessum þrem skipum (amk) eru búnið að kasta og er með nótina á síðunni, skipið í miðju. Fjórða skipið er skammt undan vestur af á leið á staðinn. Ekki hefi ég frekari upplýsingar um magn eða afla, en það sem ég sá frá sjónarhorni vestan við Strákagöng.

Föstudagur 4. mars 2005 Umsvif  Eimskipafélagsins virðast ekki hafa minkað, hvað varðar gámaflutninga til og frá Siglufirði, ef marka má það magna gáma. 15-20 sem daglega fara, koma og eru á Hafnarbryggjusvæðinu. Við skulum vona að Hafnarsjóður fái meira nú að meðaltali fyrir aðstöðuna á Hafnarbryggjunni, en síðustu áratugi frá Eimskip á meðan Eimskip flutti vörur til Siglufjarðar með skipum. Þessi mynd var tekin í morgun er krani var að losa og lesta gámabíla.

Föstudagur 4. mars 2005   3ja stúlkan okkar er kominn, hún var tekinn með keisara á mánudaginn inn á Akureyri, mæðgur eru nú komnar heim og eru í góðu yfirlæti upp á sjúkrahúsi að jafna sig. kv Heimir og Kata.

Föstudagur 4. mars 2005 Roðinn í austri, þessa mynd fékk ég í morgun frá vinkonu minni Hrönn Einars, en hún tók myndina þegar hún var á leið til vinnu sinnar klukkan 07:45 í morgun.

Föstudagur 4. mars 2005  Spurningarkeppnin Gettu betur heldur áfram á Kaffi Torgi í kvöld klukkan 22:00  -  Það hefur færst aukin spenna í leikinn og vænta má fjörugrar uppákomu eins og venjulega.
Myndin sýnir sigurvegarana í fyrstu lotu frá föstudeginum 18. febrúar síðastliðnum; Demantana.

Föstudagur 4. mars 2005 Ein gömul:
Það hefur breyst mikið útlitið á smábátunum sem þarna liggja við í Smábátahöfninni á Siglufirði árið 1966, -miðað við útlit þeirra í ár. Þeir fara einnig talsvert hraðar á og frá fiskislóðum nú, en áður fyrr.

Föstudagur 4. mars 2005
Runólfur Birgisson bæjarstjóri
er 57 ára í dag
 

Fimmtudagur 3. mars 2005
Veðrið í hádeginu:
Hitastig 5 °C
Sunnan 10 - 12 m/s
Sólskin

10:00

Fimmtudagur 3. mars 2005  Ég hafði spurnir af því að Eva Karlotta, hefði lent í lukkupottinum hjá TV2 í Danmörku. Ég náði sambandi við hana til að fá frekari fréttir: Hún sagði mér að það væri búið að ganga ótrúlega vel. Það er þáttur á Danska sjónvarpinu TV2 (einskonar afbrygði af Idol) - Þátturinn heitir "Scenen er din" (Sviðið er þitt) Hún sendi inn vídeó upptöku þar sem hún syngur, hún var síðan valin í 1500 manna úrtak, síðan var hópurinn þrengdur niður í 200 manna hóp sem hún var í, sem síðan var sendur til Kaupmannahafnar og söng þar í stúdíói, þar af komust áfram 12 manns... Og  var Karlotta ein af þeim. Verið er að vinna að undirbúningi útsendingar.
Myndin sem hér er, er af forsíðu á 6 laga CD diski sem hún hefur látið gera, og eru öll lögin á diskinum samin og sungin af henni. Áhugsamir geta haft samband á evakarlotta@hotmail.com  en diskurinn kostar 1000 kr  með sendingu til Íslands  (Takmarkað upplag :)

Fimmtudagur 3. mars 2005  Æðarkóngur. Þessi glæsilegi æðarkóngur hélt sig skammt undan bensínstöðinni í gær í hópi hundruða æðarfugla og hávellna. Æðarkóngur er hánorrænn fugl, náfrændi æðarfuglsins og verpir ma. á Grænlandi. Hann sést alltaf af og til hérlendis og “verpir” einstaka sinnum með nokkuð sérkennilegum hætti. Oftast er það þannig að hann parast frænku sinni æðarkollunni og blika hennar og á kollan þá tvo maka en af sitthvorri tegundinni. Afkvæmi, sem eru þá kynblendingar, eru þekkt en ófrjó og tímgast ekki.  -- Fyrir einum tólf árum gerðist þetta hér í firðinum. Í þéttu varpi á Granda gat að líta eina alsæla kollu á fjórum eggjum með tvo maka sér við hlið, æðarblika og æðarkóng – í hálfan mánuð viku þeir ekki frá henni og virtist koma vel saman. - Texti ÖK -  mynd SK                                 Efst á síðu

Fimmtudagur 3. mars 2005  Ein gömul:
Úr Frystihúsi Síldarverksmiðja Ríkisins árið 1966
Fimmtudagur 3. mars 2005
Bjarni Árnason
er 56 ára í dag
Fimmtudagur 3. mars 2005
Linda Hrönn Ingadóttir
er 20 í dag
Fimmtudagur 3. mars 2005
Guðjón Marinó Ólafsson
er 24 ára í dag
Fimmtudagur 3. mars 2005
Jón Salmannsson
er 33ja ára í dag

Miðvikudagur 2. mars 2005  Loðna. Bjarni Ólafsson AK kom klukkan 14:15 í dag með um 1300 tonn af loðnu til löndunar hjá Síldarvinnslunni.  
 Loðnulöndun

Efst á síðu

Miðvikudagur 2. mars 2005
Veðrið í hádeginu:
Hitastig 2 °C
Sunnan andvari
Sólskin

11:50
Miðvikudagur 2. mars 2005  Þjóðviljinn í sjoppunni hjá Matta.

Það var þegar flugfélagið Vængir hélt uppi flugsamgöngum við Siglufjörð að Mogginn kom gjarnan með síðdegisfluginu og var til afgreiðslu um kvöldmatar leytið í sjoppunni hjá Matta. Sjoppan hjá Matta var þannig til komin að Aðalbúðin sem var eins og L í laginu var minnkuð og léttur veggur settur upp þannig að L-ið varð að I-i. Nýjar útidyr voru settar á austurhliðina gegnt pósthúsinu, klósett var......................Þetta er á Bloggsíðu Leós í dag ásamt mörgu forvitnilegu. Smellið hér og heimsækið hann.  --- Hann Leó er enn samur við sig.                Efst á síðu

Miðvikudagur 2. mars 2005 Ein gömul: 1962 (ca)

Dagmar Jensdóttir og Gísli Elíasson fyrrverandi verksmiðjustjóri SR

Efst á síðu
Miðvikudagur 2. mars 2005
Linda Hrönn Þórarinsdóttir
er 19 ára í dag.
Efst á síðu

Miðvikudagur 2. mars 2005                               Efst á síðu
Valtýr Sigurðsson
er 60 ára í dag. 
Sendandi, vildi láta þess getið að staða Valtýs í dag, sem bjó sem unglingur í "Villimannahverfinu", sem getið var um hér á vefnum, þann 28. febrúar síðastliðin væri greinilegt merki um það, að einhverjir hefðu ekki verið eins slæmir sem látið var í veðri vaka, þar sem hann er nú Fangelsisstjóri Ríkisins. Raunar fullyrði ég að allir "pörupiltarnir" í "villimannahverfinu" hafi aldrei komist í kast við lögin og séu vel virtir borgarar í dag.

Þriðjudagur 1. mars 2005
Veðrið í hádeginu:
Hitastig 0 °C
Norðan andvari
Sólskinsglæta

10:15

Þriðjudagur 1. mars 2005  Loðnan er komin aftur. Í morgun var Áskell að landa og Súlan EA beið eftir löndun. Tvö loðnuskip eru á leiðinni til Síldarvinnslunnar Siglufjarðar, öll eru skipin með fullfermi, og má búast við að aflinn alls kominn á land á Siglufirði á þessari vertíð að lokinni þeirri löndun; nemi um 22 þúsund tonnum.  Efst á síðu

Þriðjudagur 1. mars 2005 Ein gömul: 
Netamenn að störfum á netabryggju SR árið 1966

Þriðjudagur 1. mars 2005
Guðmundur Lárusson
er 64 ára í dag
Þriðjudagur 1. mars 2005

Efst á síðu