|
_small.JPG) Laugardagur
26. mars 2005 Mikil gróska er í allskonar föndri og gerð
minjagripa á Sigló. Nú síðustu ár hafa verið hér opin Gallery á þrem
stöðum; í Norðurgötu þar sem Þórunn Kristinsdóttir og Fríða
Gylfadóttir ráða ríkjum Myndin til vinstri.
Í Suðurgötu "Galleí Sigló" þar sem Sigríður Björnsdóttir, Ásdís
Gunnlaugsdóttir, Kristín Baldvinsdóttir og Salome Sigfúsína
Gestsdóttir vinna saman að fjölbreyttri minjagripagerð. Myndin til hægri
er af Salome, en hún var ein við, er ég heimsótti bækistöðvarnar í
dag um klukkan 14:30. Þriðja vinnustofan er í Aðalgötunni og þar ræður
ríkjum Arnfinna Björnsdóttir, en þar var lokað er ég kom þar í dag. Þar
fyrir utan eru tvær verslanir sem selja ýmsar tegundir minjagripa ásamt
fleiru; Aðalbúðin og Gjafakot. |
|
Laugardagur
26. mars 2005 Nýr diskur frá Tóta -- Á dögunum kom út
annar geisladiskurinn frá Þórarni Hannessyni, eða Tóta eins og
við köllum hann. Diskurinn heitir Stolnar stundir og á honum eru
12 lög og textar eftir Tóta. Töluvert meira var lagt í þennan disk en
þann fyrri, sem heitir Má ég kitla þig? og kom út árið 2001.
Lögin eru meira útsett, fleiri hljóðfæri koma við sögu og tónlistin er
fjölbreyttari en fyrr. ---- Diskurinn Stolnar stundir var tekinn
upp í Ólafsfirði og hljóðblandaður á Akureyri og óskaði höfundur sér oft
að Héðinsfjarðargöngin væru nú komin þegar hann var að renna yfir
heiðina í hljóðverið. --- Diskurinn er kominn í sölu hér á
Siglufirði og er hann seldur í Videoval og Siglósport, auk þess sem hægt
er að banka uppá hjá Tóta eða hringja til að nálgast eintak. Diskurinn
kostar 2.000 krónur Tóti verður með ýmsar kynningar á diskinum á
næstunni og í dag ætlar hann m.a. að vera í Videovali kl. 16.00
og Siglósport kl 17.00 og flytja lög af diskinum. Einnig mun hann koma
fram á stórskemmtuninni Allt frá Óperu til Idols sem verður á
Allanum í kvöld. -- Þeir sem áhuga hafa á að heyra sýnishorn af
diskinum geta einnig farið inn á heimasíðuna
www.mogo.is
en þar er hægt að heyra brot af öllum lögunum.-- Burt fluttir
Siglfirðingar og aðrir sem þetta lesa geta sent tölvupóst á
hafnargata22@simnet.is ef
þeir hafa áhuga á að eignast gripinn. |
|
Laugardagur 26. mars 2005 Ásdís Sigurðardóttur var með kennslu í
stafgöngu í morgun. Nokkur áhugi er á að læra þessa
skemmtilegu íþrótt. -- Þeir sem hafa áhuga á að kynna sér íþróttina
frekar, geta
skoðað heimasíðu Íþrótta- og ólympíusambands Íslands
www.isisport.is
og smella þar á linkinn Ísland á iði. -- Einnig gefur Dísa
upplýsingar í síma; 898-3310 og
disasiggy@simnet.is
Á myndinni eru; talið frá vinstri Guðný Helgadóttir, Fríða
Gylfadóttir, Ásta Oddsdóttir, Svanfríður Pétursdóttir, Margrét og Pálína
Kristinsdætur, Ásdís Magnúsdóttir, Jósefína Bandiktdóttir, Halla
Kjartansdóttir, Gíslína Anna Salmannsdóttir, Elín Björnsdóttir og Ásdís
Sigurðardóttir. |
_small.JPG) |
Laugardagur 26. mars 2005
Veðrið í hádeginu
Hitastig 10 °C
Logn
Sólskinsglæta |
11:45 |
|
|
Laugardagur 26. mars 2005
Aðsent: Ég sendi þér hér nokkrar myndir sem ég tók í gær. Við
fórum tveir héðan frá Siglufiðrði upp á Lágheiði í vélsleðaferð (Raggi H
og Sigrjón Páls) útsýnið og veðrir var frábært eins og myndirnar bera
með sér. Kveðja, Raggi Hauks
 |
|
Laugardagur
26. mars 2005 Aðsent: Fyrsta AA-deildin á Íslandi
varð til fyrir réttum 51 árum. Hún byrjaði eins og flestar aðrar deildir
: Með því að þrír félagar vildu hætta að drekka og ákváðu að hittast.
Þetta voru þeir Guðmundur J., Jónas G. og Guðni Þ.H.--- Guðni hafði
verið búsettur í Vesturheimi og þekkti til AA-samtakanna. Ákváðu
þremenningarnir að stofna AA-félag á Íslandi og var formlegur
stofnfundur haldinn að kvöldi föstudagsins langa, 16. apríl 1954, í
samkomusal vélsmiðjunnar Héðins í Reykjavík. -- Guðmundur J. sagði
eitt sinn :"Oft á stór sál sér samastað í litlum kroppi, segir máltækið,
og sannarlega hefur spíran, sem gróðursett var á Íslandi á föstudaginn
langa 1954 verið eins og blaktandi strá í upphafi. En fyrr en varði fór
það að vaxa og dafna og er í dag orðið að stóru tré, sem teygir greinar
sínar og laufskrúð um allt Ísland." --- Í dag eru um það bil 26 ár
síðan fyrsta AA-deildin var stofnuð í Siglufirði, margur maðurinn og
konan eiga líf sitt og gæfu að þakka tilveru AA-samtakanna. -- Í
dag var haldinn afmælisfundur í safnaðarheimili Siglufjarðarkirkju og
var vel mætt.
Vegna nafnleyndar er ekki hægt að birta myndir frá fundinum, en
meðfylgjandi er mynd af " Pontunni " okkar. S.Þ. |
Laugardagur
26. mars 2005 Ein gömul: Togarinn Elliði SI 1
Ljósmynd: Hinrik Andrésson |
Laugardagur
26. mars 2005
Hallfríður Pétursdóttir
er 76 ára í dag |
Laugardagur
26. mars 2005
Hólmfríður Ólafsdóttir
er 37 ára í dag
Til hamingju með daginn, Fjölskylda. |
_small.JPG) |
Föstudagur 25. mars 2005
Veðrið í hádeginu
Hitastig 8 °C
Logn
Sólskin |
11:00 |
|
|
Föstudagur 25. mars 2005 Fílapenslarnir,
þessir sem ekki þarf að kreista, fóru á kostum í gærkveldi á
skemmtun sinni að Kaffi Torg sem lauk ekki fyrr en um miðnætti. Húsfylli
var (uppselt) og skemmtu allir sér konunglega. Þeir vori í lokin
margsinnis kallaðir upp og sungu nokkur aukalög. Ekki ætla ég að tíunda
það frekar, en eins og venjulega þá lét ég skotin duna og árangurinn
kemur í ljós þegar þú smellir á
 |
|
Föstudagur
25. mars 2005 Karlakór Siglufjarðar var að æfingu í
Bátahúsinu seinnipartinn í gær. Ég heimsótti þá og tók nokkrar myndir
við það tækifæri, svona til að æfa mig fyrir næstkomandi laugardag, en
þá halda þeir stórtónleika með einsöngvurum og uppákomum.
 |
|
Föstudagur
25. mars 2005 Aðsend páskakveðja: Ég er stödd í
Californíu og vildi bara kasta smá páska kveðju til fjölskyldu og vina.
Og svo auðvita líka til Siglfirðinga.Ef þú mátt vera af því þá væri það
mikils metið. Bið síðan að heilsa til Siglufjarðar. kveðja,
Maríanna Leósdóttir Cowell |
|
Föstudagur
25. mars 2005 Aðsent:
Sæll Steingrímur. Ég mátti til með að senda þessa mynd sem ég tók
þegar ég kom í páskafríið og er af tómat sem ákvað að halda áfram að
lifa og spíraði í eldhúsglugganum hjá henni mömmu á Laugarveginum. Ég
verð líka að nota tækifærið og þakka fyrir skemmtilegar fréttir frá
Siglufirði, sem ég veit að eru mikið lesnar og ekki síst af okkur brott
fluttu Siglfirðingunum. Kveðja, Herdís Sigurjónsdóttir (Ásdísar og
Budda) |
|
Föstudagur
25. mars 2005 Hópur vinnufélaga, í heimsókn hjá Friðrik
Stefánssyni í tilefni af 70 ára afmæli hans árið 1967 -
Myndin er tekin við tröppur heimilis hans að Hvanneyrarbraut 65
Siglufirði. |
Föstudagur
25. mars 2005
Óli Andrés Agnarsson
er 44 ára í dag |
Föstudagur 25. mars 2005 |
|
Fimmtudagur
24. mars 2005 Bergþór Morthens opnaði sýna
fyrstu einkasýningu í Ráðhúsinu í dag klukkan 14:00 og verður sýningin
opin yfir páskana, og til 3. apríl, opið alla dagana frá klukkan 14-18.
Góð mæting var strax við opnunina.
Ég tók við það tækifæri nokkrar myndir, myndir sem sýna grunntóninn í
verkum hans. Sennilega eru litirnir hjá mér við myndatökuna ekki
nákvæmir, þar sem birta frá flúrperum í salnum ná til að trufla
dagsbirtuna sem þar var inni, en skoðið
 |
|
_small.JPG) Fimmtudagur
24. mars 2005 Skíðasvæðið í Skarðsdal.
Nægur snjór og talsverður fólksfjöldi var á skíðasvæðinu í dag,
enda glaðasólskyn og 8-10 °C hiti.
Meðal gesta er Jóhann Vilbergsson margfaldur íslandsmeistari í
alpagreinum hér áður fyrr. Fjölskylda hans er með honum nú á
heimaslóðum. Jóhann varð 70 ára síðastliðinn sunnudag. |
_small.JPG) |
Fimmtudagur
24. mars 2005
Veðrið í hádeginu
Hitastig 6 °C
Sunnan gola
Sólskin |
10:00 |
|
Fimmtudagur
24. mars 2005 Páskadagskráin á
Siglufirði.
<<<<<
Smelltu á myndina til vinstri. |
|
_small.JPG) Fimmtudagur
24. mars 2005
Hann er ekki af baki dottinn hann Valgeir Sigurðsson.
Á síðastliðnu ári, þegar norski krónprinsinn kom hingað í heimsókn í
tilefni af 100 ára afmæli Síldarævintýrsins, þá flaggaði Valgeir
hlemmistórum Norskum fána á rústum Evangersverksmiðjunnar, "Siglufjörds
Sildolie og Guanofabrik" eins og verksmiðjan hét réttu nafni. En nú er
Valgeir nýkominn heim eftir smá frí, hann reisti í gær enn stærri
flaggstöng handan við fjörðinn, á móts við Bensínstöðina og dró þar að
húni 30 fermetra Íslenskan fána. Tilefnið? Ég er að flagga fyrir
nýjum Íslendingi, Bobby Fischer. Nú vantar bara að bæjarstjórnin geri
karlinn að heiðursborgara, þá kæmist Siglufjörður örugglega í
heimspressuna svo um muni, - þó svo að hann mundi örugglega ekki koma
hingað hvað þá búa hér, frekar en Íslandi yfirleitt, sagði Valgeir. |
|
Fimmtudagur
24. mars 2005 Oddur Guðmundur Jóhannsson fyrrverandi
kranamaður og Íris Eva Gunnarsdóttir. Ég mætti þeim á Túngötunni
seinnipartinn í gær, þar sem þau voru á hinni hefðbundnu gönguferð um
bæinn. Oddur sem varð fyrir alvarlegum heilaskaða, vegna eitrunar sem
hann varð fyrir í vinnu sinni fyrir nokkrum árum, sem orsakaði alvarlega
skertra hreyfigetu hjá honum, hann hefur síðustu árin notið umönnunar
Írisar sem farið hefur með honum í reglulega göngutúra og þjálfað Odd
upp. Hún hefur frá upphafi mælt vegalengdirnar sem þau fara daglega og
hún sagði mér að þau væru komin að 1100 kílómetra markinu, og mundu
ljúka við vegalengd "Hringvegarins´" á komandi sumri. |
|
Fimmtudagur
24. mars 2005 BOCCIA Nokkrir eldriborgarar og félagar úr
Snerpu fóru til að keppa í Páskamóti Boccia, suður í Reykjavíkur 22.
mars síðastliðinn. Þar voru mörg 16 lið sem spreyttu sig í íþróttinni.
Siglufjarðardeildin lenti í fjórða sæti. Guðný Friðriks var í
Siglufjarðarliðinu og tók nokkrar myndir.
 |
|
Fimmtudagur
24. mars 2005
Magnús Gauti Magnússon
er eins ár í dag. Hann er sonur Guðnýjar Erlu Fanndal og Magnúsar
Þórðarssonar. Magnús Gauti er um þessar mundir búsettur í Bronx, New
York, USA, og er því fjarri heimahögunum á afmælisdaginn. Hann biður um
kveðjur til ættingja og vina heima á Íslandi. |
Fimmtudagur
24. mars 2005 |
|
Fimmtudagur
24. mars 2005 Ein gömul:
Tunnuskip losað við Hafnarbryggjuna einhvern tíma fyrir 1950
Ljósmynd; Kristfinnur Guðjónsson. |
|
Miðvikudagur 23. mars 2005
PÁSKAGLEÐI Söngskemmtun Karlakórs Siglufjarðar
verður í bátahúsinu laugardaginn 26. mars 2005 KL 20,30
Nánar um skemmtunina
HÉR |
|
Miðvikudagur 23. mars 2005
Páskablað Hellunnar er komið út. Meðal efnis er opnuviðtal við
Önnu Láru Hertervig, umfjöllun og viðtöl við Siglfirðinga mánaðarins
DB-fisk og Þórarinn Vilbergsson. Frásögn af þátttöku Magnúsar
Eiríkssonar í Vasagöngunni, Opna frá Grunnskólanum, Tóti sendir frá sér
nýja disk „Stolnar stundir“, Fjarðarkjafturinn og fleira.
Bestu kveðjur og gleðilega páska - Nú stefna sjálfsagt margir á Sigló,
enda einn af örfáum stöðum sem hafa snjó og svo er vegleg dagskrá hér um
páskana. |
_small.JPG) |
Miðvikudagur 23. mars 2005
Veðrið í hádeginu
Hitastig 1 °C
Norðan gola
Úrkomulaust |
09:30 |
|
|
Miðvikudagur
23. mars 2005 Vinna er hafin við innréttingar vegna
viðbyggingar Íþróttahússins, aðstöðu til líkamsræktar ofl.
Ég leit þar inn í morgun og hitti þar broshýra drengi, greinilega komnir
í páskaskap. Þeir gáfu sér tíma til að setjast niður á meðan ég tók af
þeim mynd. Þetta eru Marteinn Haraldsson og Björn Ingimarsson. Það er
verktakinn Ó.H.K. sem vinnur verkið, aðrir starfsmenn voru að sinna
verkum annarsstaðar, á þeim tíma sem ég mætti. |
|
Miðvikudagur
23. mars 2005 Ásdísi Sigurðardóttur verður með kennslu í
stafgöngu á laugardaginn 26 mars. Þeir sem hafa áhuga á að læra þessa
skemmtilegu íþrótt. -- Þeir sem hafa áhuga á að kynna sér íþróttina geta
einnig skoðað heimasíðu Íþrótta- og ólympíusambands Íslands
www.isisport.is
og smella þar á linkinn Ísland á iði. Ásdís verðu með námskeiðið
á Siglufirði og útvega stafi fyrir þá sem koma á námskeiðið. Hún ætlar
að bjóða upp á tvær tímasetningar annarsvegar kl. 11:00 og svo hinsvegar
kl.16:30. Kennslutími er ca 1 - 1,5 klukkustund. Ásdís mun hefja
námskiðið á planinu sunnan við Torgið.
skráning er í síma 898-3310
disasiggy@simnet.is |
|
Miðvikudagur
23. mars 2005 Ein gömul: © Frummyndin, filman
að þessari mynd, er í safni mínu. Það sjá allir sem til þekkja, að
myndin sýnir Söltunarstöð Ólafs Henriksen. En það sem ég er ekki viss
um; er árið sem myndin er tekin, - sem staðfestir jafnhliða hver
ljósmyndarinn er, en um tvo er að ræða. Efasemdir hafa komið upp um að
annar þeirra, hafi ekki verið nógu gamall til að taka myndina á þessum
tíma (?). Þess vegna þarf ég að fá ágiskað ártal, +/- 2 ár.
Vinsamlega látið mig vita, sem telja sig vita það. |
Miðvikudagur
23. mars 2005
Ragnheiður Rögnvaldsdóttir
er 62ja ára í dag |
Miðvikudagur
23. mars 2005
Ragnar Haukur Hauksson
er 29 ára í dag |
|
_small.JPG) Þriðjudagur 22. mars 2005
Nýr bátur á sjó.
Í morgun var sjósettur nýr plastbátur frá Siglufjarðarseig
ehf - Báturinn sem heitir Petra SK 18 2668 - frá Haganesvík, er af
gerðinni Seigur 1000 og er í eigu Hermanns Björns Haraldssonar.
Petra var rétt komin á flot þegar hafist var handa við að hífa annan bát
á land, en það var Júlía SI 62 2319 - Það á að stækka Júlíu þannig
að skutur hennar nýtist betur. |
_small.JPG) |
Þriðjudagur 22. mars 2005
Veðrið í hádeginu
Hitastig 5 °C
Logn
Sólarglæta |
09:30 |
|
| Þriðjudagur 22. mars 2005
"Fá verkið aldrei á sínum forsendum" og "Skrípaleikur á
Siglufirði" Forvitnilegt lesmál á tveim stöðum á
forsíðu http://www.visir.is/
í dag |
|
Þriðjudagur
22. mars 2005 Þetta eru Hörður Harðarson og Sævar
Guðjónsson, en þeir voru í gær að hagræða og gera við rækjutroll frá
togurum Þormóðs Ramma Sæbergs hf,, sem verið hafa á karfaveiðum síðustu
mánuði, en þeir eru fara á næstunni til rækjuveiða, þar sem verð á
karfamarkaði er ekki hagstætt sem stendur þrátt fyrir góða veiði, en
rækjuverð sem komið var niður fyrir þau mörk að það boragaði sig að gera
út á hana, til viðbótar því að veiði hafði verið treg, er nú að verða
hagstætt á ný. |
|
Þriðjudagur 22. mars 2005
Bergþór Morthens
- Opnar myndlistasýningu í Ráðhúsinu á Siglufirði 24 mars til 3
apríl- og verður opnuð á skírdag kl. 14 og opið verður til 18.
Þetta er fyrsta einkasýning Borgþórs, en hann útskrifaðist úr
myndlistaskólanum á Akureyri síðastliðið vor. Hann hefur verið búsettur
hér á Siglufirði síðan í sumar, ásamt unnustu sinni Elínu
Aðalsteinsdóttur, sem er hjúkrunarfræðingur hjá Heilbrigðisstofnun
Siglufjarðar. |
|
Þriðjudagur
22. mars 2005 Aðsent: Nokkrar myndir úr
Kirkjuskólanum. Sumar þeirra eru teknar á aðventunni, eins og sést er
jólasveinn í heimsókn. Kirkjuskólanum er lokið að sinni, en hefst aftur
í haust.
Kveðjur Þórunn Alda, Elísa, Siggi Prestur og Steini Sveins.
 |
|
Þriðjudagur
22. mars 2005 Ef þér leiðist, eða ef þú er eitthvað
pirraður / pirruð, þá ráðlegg ég þér að fara
HINGAÐ
- Það geri ég á hverjum degi, ekki vegna þess að ég sé leiður eða
pirraður, heldur mér til ánægjuauka, því gaurinn sá arna kann að segja
sögur sem kitla hláturtaugarnar, og vekja upp minningar. |
|
Þriðjudagur
22. mars 2005
Lárey Valbjörnsdóttir
er 28 ára í dag
Þarna er hún með syni sínum Viktor Mána Baldurssyni |
Þriðjudagur
22. mars 2005
Sigurbjörn Jóhannsson
er 57 ára í dag |
_small.JPG) |
Mánudagur 21. mars 2005
Veðrið klukkan 15:00
Hitastig °C 7
Logn
Úrkomulaust |
_small.JPG) |
|
Mánudagur
21. mars 2005
Tristan Sigtryggsson
er 8 ára í dag |
|
Mánudagur
21. mars 2005
Svanfríður Stefánsdóttir
er 79 ára í dag |
Mánudagur
21. mars 2005
Örlygur Kristfinnsson
er 56 ára í gag
|
| Sunnudagur 20. mars 2005 |
_small.JPG) |
Sunnudagur 20. mars 2005
Veðrið í hádeginu
Hitastig °C 3
Logn
Sólarglæta
Ljósmyndir H.E. |
 |
|