Fimmtudagur 31. mars 2005
Vel miðar við endurgerð grjónvarnargarðsins austantil í
Hvanneyrarkrók. Myndin er tekin í morgun |
_small.JPG) |
Fimmtudagur 31. mars 2005
Veðrið í hádeginu
Hiti 6 °C
Logn
Úrkomulaust |
10:15 |
|
|
Fimmtudagur 31. mars 2005
Aðsent:
Sendi þér hér nokkrar myndir sem við
tókum, bæði upp í Skarði svo og þegar við gengum á Illvirðishnjúk (890 m
h.y.s. ) á föstudaginn langa.-- Veðrið var alveg stórkostlegt og útsýni
mikið og gott. Ég vil svo að lokum senda starfsmönnum skíðasvæðis mínar
bestu kveðjur fyrirfrábært starf þeirra við að halda svæðinu opnu, bæði
með mikill opnun, mokstri í lyfturásir og vel troðið svæði á hverjum
morgni þó svo að færi hafi spillst þegar leið á daginn vegna sólbráðar.
Ég veit ég mæli þetta fyrir munn margra, og hef fengið ánægjuleg samtöl
frá skíðagestum sem komu í bæinn, ég er viss um að bæjarbúar sem
notfærðu sér þessa paradís eru sama sinnis. Takk kærlega fyrir, við
eigum besta skíðasvæði landsins að mati fjölmargra gesta sem víða hafa
skíðað. Við heimamenn vissum þetta auðvitað alltaf. -- Kær kveðja
Kristján L. Möller --- Skoðið
 |
|
Fimmtudagur
31. mars 2005 Ein gömul:
Fermingabörn 1967, um borð í Hring SI 34 að leggja af stað til
Ólafsfjarðar. |
|
Miðvikudagur 30. mars 2005
Loksins, loksins. Nú er Valur búinn að fá hjólið sitt. Það kom í
morgun og hraðar hendur gengu frá tollgögnum og fleira stússi því
meðfylgjandi. Skoðaðu
 |
_small.JPG) |
Miðvikudagur 30. mars 2005
Veðrið í hádeginu
Hiti 8 °C
Sunnan gola
Sólarglæta |
09:30 |
|
|
Miðvikudagur
30. mars 2005 Hérna eru nokkrar myndir frá
heimasíðu www.siv.is Sivjar
Friðleifsdóttur sem hún hefur tekið á Siglufirði nú í marsmánuði, en hún
á það til að skreppa "heim" annað slagið til að slappa af,
skíða og fleira. Þar er líka dagbókartexti um það sem á dagana dreif á
Sigló.
http://www.siv.is/dagbokin/index.lasso
Myndirnar hér í
eru birtar með hennar leyfi. Þar eru raunar mikið safn mynda úr hennar
daglega lífi. |
|
Miðvikudagur
30. mars 2005 Fyrsta "stóra" flugvélin sem lenti á
Siglufjarðarflugvelli, DC 3 vél frá Flugfélaginu Flugsýn 2. júní 1967 |
Miðvikudagur
30. mars 2005
Þorgeir Bjarnason
er 34 ára í dag |
Miðvikudagur 30. mars 2005
Bjarni Patrekur Adolfsson
er 7 ára í dag
Hann er sonur Adolfs Árnasonar og Elínar Birnu Bjarnadóttur. |
|
Þriðjudagur
29. mars 2005 Kaffihlé. Rafvirkjarnir hjá Rafbæ, mæta
reglulega í kaffi á Kaffiteríu Aðalbakara, oftast eru við borð
hjá þeim félagar þeirra úr öðrum stéttum. Þessi voru í kaffi er ég mætti
þar í morgun; telið frá vinstri:
Ólafur Kárason byggingameistari, Helgi Magnússon pípulagnameistari,
Birgir Ingimarsson smiður, Guðmundur Lárusson rafvélvirkjameistari,
Sverrir Sveinsson fv rafveitustjóri, Jóhannes Friðriksson,
rafvélavirkjameistari og Ingi Hauksson rafmagnsiðnfræðingur. |
_small.JPG) |
Þriðjudagur 29. mars 2005
Veðrið í hádeginu
Hiti 12 °C
Logn
Sólskin |
10:45 |
|
|
Þriðjudagur
29. mars 2005 Ein gömul:
Gamla Sjúkrahúsið rifið, brotið niður í maímánuði árið 1967
Í kaffihléi notuðu strákar og stelpur tækifærið til að klifra og leika
sér í rústunum.
|
Þriðjudagur
29. mars 2005
Jóhanna Vernharðsdóttir
er 71 árs í dag |
Þriðjudagur 29. mars 2005 |
_small.JPG) |
Mánudagur 28. mars 2005
Veðrið í hádeginu
Hiti 11 °C
Logn
Sólskin |
10:12 |
|
|
_small.JPG) _small.JPG) Mánudagur
28. mars 2005
Veðurblíðan á Siglufirði nú
um páskana var notuð til hins ýtrasta. Ýmsar aðferðir voru notaðar til þess,
allt frá því að liggja í sólbaði og slappa af, farið á skíði uppi í
Skarðsdal þar sem var nægur snjór, farið í göngutúra, rúntinn á
mótorhjólinu sínu, farið á hestbak inni í Hólsdal, leikið golf, svo
eitthvað sé nefnt.
Þessar myndir voru teknar seinnipartinn í gær. |
|
 Mánudagur
28. mars 2005 Aðsent:
Síðustu daga þá hef ég tekið nokkrar myndir hér í Siglufirði og þær sem
vakið hafa meiri eftirtekt en aðrar, eru þessar sem ég sendi þér nú. --
Annars vegar er mynd, sem ég tók, á leið út í göng þann 25.3. kl: 20:30.
Myndin er af bíl sem brenndur hefur verið og skilinn síðan eftir, á
veginum sem liggur niður að fyrrum brennslustað Siglfirðinga á rusli.
--- Mér dettur í hug að þetta sé frá því að Baltasar var hér að
taka upp atriði fyrir mynd sína, á síðasta ári. Mynd sem sögð var heita
"Little trip to heaven" Seinni myndin er frá því að ég gekk upp í
Hvanneyrarskál í gær, og sýnir greinilega asbest-rör, (gömul
hitaveiturör) liggja á víð og dreif, rétt fyrir neðan veginn. Ótrúlegur
sóðaskapur, og síðast þegar ég vissi, þá ber að umgangast asbest af
mikill varúð. Kveðja J.Ó.R. |
Mánudagur
28. mars 2005 Ein gömul: Landlega hjá SR, sumarið 1961 |
|
  Mánudagur
28. mars 2005
Kristrún Gunnlaugdóttir
er 60 ára í dag - Hæ, hæ og gleðilega páska. Ég sendi þér mynd af Kittý
í tilefni af 60 ára afmælinu. Hinar 2 eru teknar í veislunni sem var 26
mars. Þú kannast líklega við allar "stelpurnar" og líka strákana nema
kannski Magnús sem er giftur Gittu og Einar sem er giftur Sólveigu.
kveðja Hulda. --- Einar, Jónmundur, Magnús, Hallvarður, Ásgrímur, Gísli
og Jens.....Og "stelpurnar:" Sólveig, Unnur, Kittý, Stína,,Gústa,
Bylgja, Hulda, Gitta og Guðný. |
|
Sunnudagur 27. mars 2005
Allinn Sportbar: Frá Óperu til Idol. Sveinn mætti þar í gærkvöld
með myndavél sína og sendi mér þaðan nokkrar myndir í hádeginu frá því
er virðist af myndunum, hafa verið mjög fjörug skemmtun. En margir komu
þar fram og skemmtu. Leitt að hafa ekki komist þangað.
 |
_small.JPG) |
Sunnudagur 27. mars 2005
Veðrið í hádeginu
Hiti 9 °C
Sunnan gola
Sólskin |
10:30 |
|
|
Sunnudagur 27. mars 2005 Karlakór
Siglufjarðar hélt tónleika í Bátahúsinu í gærkveldi fyrir fullu húsi
Dagskráin HÉR.
--- Ég mætti og tók slatta af myndum eins og venjulega -
En mér og konu minni var formlega boðið á þessa tónleika -Þökk fyrir.

|
|
Sunnudagur 27. mars 2005
Tóti fór á milli Videoval og Sigló Sport til að kynna Nýja
diskinn sinn, eins og sagt er frá hér fyrir neðan.
Sveinn Þorsteinsson sendi mér þessa mynd sem hann tók af Tóta í Vídeóval |
Sunnudagur 27. mars 2005
Guðjón Sævar Jónsson
er 64 ára í dag ---
Til hamingju með daginn, kveðja frá vinum.
|
|
Sunnudagur 27. mars 2005 Ein gömul:
Gæti verið tekin um 1940, ókunnur ljósmyndari. Grótta SI næst
bryggjunni. |