Lífið í Júní 1-11 2005 | Lífið júní í 12-18 2005 | Lífið í júní 19-25 2005 | Lífið í júní 26-30 2005

>>>>>>>>>>> Lífið júní í 12-18 2005

 

Til forsíðu
Til baka
Fjórir fjörugir




Ljósmyndasafn Steingríms
á netinu.

Steingrímur Kristinsson Siglufirði
G-892-1569
S-467-1569

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Siglfirski fréttavefurinn  Lífið á Sigló- s. 892-1569 - h.s:467-1569
GagnagrunnurMynda-albúmMyndamöppurÁ döfinniTenglarAð gefnu...
Umræðan
Að senda myndirVefmyndavélBINGO
Laugardagur 18. júní 2005

Laugardagur 18. júní 2005  Verið var í morgun, að afferma flutningabíl með hellusteina frá BM Vallá, til að nota umhverfir Tjörnina við innkeyrsluna í bæinn. Þar voru að verki starfsmenn frá Bás ehf.

Laugardagur 18. júní 2005

Veðurstöðin í Bakka.
Veðrið í hádeginu 
11:00
Hvanneyrarbraut 25a

Hitastig í hádeginu °C

5,8

Mesti hiti síðustu 24 t °C

8,0

Minnsti hiti síðustu 24 t °C

6,0

Vindátt í hádeginu

NA

Vindstyrkur í hádeginu m/s

1,8

Meðalvindur síðustu 10 mínútur m/s

2,7

Minnsti meðalvindur síðustu 24 t. m/s

1,3

Mesti meðalvindur síðustu 24 t. m/s

11,6

Rakastig í hádeginu %

95

Úrkoma í hádeginu mm

0

Meðal úrkoma síðustu 24 tíma mm

0,2

Loftþrýstingur í hádeginu hPa

1017,5ð

Þokubakki

Vinhraðatafla og veðurtákn

Laugardagur 18. júní 2005 
 
18 júní, Þórdís 13 ára.

 

Laugardagur 18. júní 2005 Hljómsveitir  Myndamöppur Músík
eftir klukkan 21:00 þann 17. júní


 
Laugardagur 18. júní 2005   Krakkabolti 17. júní

Myndamöppur  Fótbolti  17. júní

Laugardagur 18. júní 2005  Kaffisala á vegum KS og SSS fór fram á Kaffi Torg- í gær- og mætti þar mikið fjölmenni. Miklar og girnilegar veitingar voru í boði, eins og hver gat ofan í sig látið.

Myndamöppur Kaffiveitingar

Laugardagur 18. júní 2005 Skrúðganga frá kirkjusvæðinu, hring um bæinn og á Torgið, þar sem hófs hátíðardagskrá sem hófs með lúðrablæstri úr kirkjuturni. Ávarp formanns Siglfirðingafélagsins, Ólafs Baldvinssona, fjallkonan svo og ýmis skemmtiatriði.
Myndamöppur Torgið --

Laugardagur 18. júní 2005  Frá öðru sjónarhorni  heldur en myndirnar sem ég tók af sama atburði í gær, en myndina sendi mér Sveinn Þorsteins.
Tveir nýstútentar eru að leggja blómsveig að minnismerki séra Bjarna Þorsteinssonar

Föstudagur 17. júní 2005 --- Á morgun, laugardag koma margar myndir frá deginum í dag á vefinn, skrúðgangan og það sem fram fór á Torginu, kaffiveitingar íþróttafélaganna, og fótbolti krakkanna og fleira.

Föstudagur 17. júní 2005  Víðavangshlaup barna fór fram fyrir hádegið á Gránugötunni

Myndamöppur  Hlaup

Föstudagur 17. júní 2005
Blómsveigur lagður að minnismerki Séra Bjarna Þorsteinssonar klukkan 11:00 í morgun -- Hálf napurt var, aðeins um 6 °C hiti og norðan átt með sudda rigningu annað slagið

Myndamöppur  Hvanneyri

Föstudagur 17. júní 2005
Veðurstöðin í Bakka.
Veðrið í hádeginu 
10:45
Hvanneyri

Hitastig í hádeginu °C

6,2

Mesti hiti síðustu 24 t °C

7,0

Minnsti hiti síðustu 24 t °C

5,0

Vindátt í hádeginu

V

Vindstyrkur í hádeginu m/s

4,9

Meðalvindur síðustu 10 mínútur m/s

4,0

Minnsti meðalvindur síðustu 24 t. m/s

1,3

Mesti meðalvindur síðustu 24 t. m/s

14,8

Rakastig í hádeginu %

84

Úrkoma í hádeginu mm

2,2

Meðal úrkoma síðustu 24 tíma mm

2,3

Loftþrýstingur í hádeginu hPa

1013,4ö

Rigningar suddi annað slagið

Vinhraðatafla og veðurtákn

Föstudagur 17. júní 2005  K.S. - Breiðablik.  kepptu á Siglufjarðarvelli í gærkveldi. Ég lét mig hafa það og mætti á völlinn, - ekka af áhuga heldur vegna fjölda þeirra sem báðu mig með tölvupósti að mæta til að taka nokkrar myndir. --- Í fyrri hluta leiksins skoruðu Blikarnir tvö mörk, og til að vera viss um að mér yrði ekki kennt um hvernig fór, sem óheilakráku , þá forðaði ég mér af vettvangi áður en seinni hlutinn byrjaði. -- En svo við sleppum öllu gríni, þá var ástæðan sú að farið var að bregða birtu, sem ekki hentar vel til að taka myndir af fótboltaköppum á mikilli hreyfingu. En það var hringt í mig eftir leikin og úrslitin úr munni KS-aðdáanda voru: Tvö hræðileg slysamörk og eitt víti. 3:0 fyrir Breiðablik.   Myndamöppur  Bolti

Föstudagur 17. júní 2005 Ein gömul:  Þetta er Gunnlaugur Júlíusson

Tekið á veginum neðan við Steinaflati 1974

Föstudagur 17. júní 2005 
Björn S Ólafsson
er 53ja ára í dag.

Hér er hann með betri helming sínum, konu sinni Maríu Jóhannsdóttir
Föstudagur 17. júní 2005
Miguel Guðni Medina
er 10 ára í dag (sonur Laufey Önnu)
Bestu kveðjur frá New York.
Laufey Anna, dóttir Birnu Baldurs og Guðna Egils

Föstudagur 17. júní 2005  ----
Brynhildur Þöll Kristjánsdóttir
er 30. ára í dag (hún er hægra megin) ----
Með henni á myndinni er Þórhalla Sigurðardóttir (Dalabæ) en hún fagnar í dag útskrift sinni sem Hjúkrunarfræðingur Frá Háskólanum á Akureyri.
En Útskriftin fór fram þann 11. júní síðastliðin.

Fimmtudagur 16. júní 2005  Málverk -- Er einhver sem þekkir til málarans sem þetta málaði, sennilega fyrir meir en 50 árum síðan ?
  (Jóhannes Frímannsson, frístundamálari ? Hver er maðurinn?)
Mjög líklegt er að málarinn hafi átt heima á suðurlandinu, en málverkið er þaðan komið hingað norður.  Undirskrift málarans er á minni myndinni.

Fimmtudagur 16. júní 2005 Verkalýðsfélafið Vaka á Siglufirði, ákvað á fundi sínum þann 15. júní síðastliðinn að veita eftirfarandi styrk til æskulýðs og menningarmála:
Steingrímur Kristinsson vegna Lífið á Sigló annarsvegar og Grunnskóla Siglufjarðar, til að efla félags og tómstundastarf við skólann.

Fimmtudagur 16. júní 2005  JE-Vélaverkstæði Þarna eru tveir af starfsmönnum verkstæðisins að vinna að viðgerð á skrúfbúnaði eins af línubátunum sem héðan róa.

Fimmtudagur 16. júní 2005

Veðurstöðin í Bakka.
Veðrið í hádeginu 
09:50
Hvanneyrarbraut 5b

Hitastig í hádeginu °C

4,9

Mesti hiti síðustu 24 t °C

7,0

Minnsti hiti síðustu 24 t °C

4,0

Vindátt í hádeginu

NNA

Vindstyrkur í hádeginu m/s

0,4

Meðalvindur síðustu 10 mínútur m/s

1,3

Minnsti meðalvindur síðustu 24 t. m/s

1,8

Mesti meðalvindur síðustu 24 t. m/s

7,6

Rakastig í hádeginu %

97

Úrkoma í hádeginu mm

0,0

Meðal úrkoma síðustu 24 tíma mm

0,0

Loftþrýstingur í hádeginu hPa

1008,7ð

Þoka, mjög rakt loft

Vinhraðatafla og veðurtákn

Fimmtudagur 16. júní 2005  Í kvöld spilar K.S. við Breiðablik.
En Blikar eru í efsta sæti 1. deildar.
Nú reynir á stuðning heimamanna,að koma og hvetja sína menn. -- Ekki bara horfa, heldur hvetja strákanna okkar. Því að allt er mögulegt á heimavelli. 
Áfram K.S. --  Leikurinn hefst klukkan 20:00. Góðar stundir.

Fimmtudagur 16. júní 2005 Ein gömul:  Siglufirði 1968 (?)
Fimmtudagur 16. júní 2005
Sigfúsína Stefánsdóttir
er 84 ára í dag
Fimmtudagur 16. júní 2005

Miðvikudagur 15. júní 2005  Nú eru hafnar framkvæmdir við byggingu KSÍ sparkvallar á skólabalanum við neðri skólann.
Völlurinn er sömu gerða og verið er að byggja víða um land að frumkvæði Knattspyrnusambands Íslands. Hér er um að ræða samvinnuverkefni KSÍ og Siglufjarðarkaupstaðar.
KSÍ leggur til gervigrasið og niðurlagningu þess en Siglufjarðarkaupstaður sér um annað svo sem jarðvinnu, snjóbræðslulögn, girðingu og lýsingu. --
Árið 2004 var sparkvallaátaki KSÍ ýtt úr vör.
Um er að ræða eitthvert umfangsmesta útbreiðsluverkefni sem KSÍ hefur ráðist í frá upphafi. Kveikjan að því var ákvörðun UEFA um að veita aðildarsamböndum sínum styrk til að byggja sparkvelli. KSÍ sótti um styrk til fjárlaganefndar Alþingis og leitaði eftir stuðningi Eimskipa, Olís, VÍS og KB-banka.
KSÍ setti strax stefnuna á að nýta þetta fjármagn til að byggja sem flesta sparkvelli.
Hugmynd KSÍ var frá upphafi sú að fá til liðs við sig sveitarfélög í landinu, þannig að KSÍ legði til fyrsta flokks gervigras á velli sem byggðir væri eftir leiðbeiningum frá KSÍ víðs vegar um landið, a.m.k. 40 vellir, helst við grunnskóla.

Miðvikudagur 15. júní 2005  Tveir heiðursmenn á förnum vegi:
Ragnar Helgason og Sveinn Sveinsson
Miðvikudagur 15. júní 2005
Veðurstöðin í Bakka.
Veðrið í hádeginu 
10:40
Hvanneyrarbraut 20

Hitastig í hádeginu °C

5,4

Mesti hiti síðustu 24 t °C

7,0

Minnsti hiti síðustu 24 t °C

4,0

Vindátt í hádeginu

NNA

Vindstyrkur í hádeginu m/s

5,8

Meðalvindur síðustu 10 mínútur m/s

2,7

Minnsti meðalvindur síðustu 24 t. m/s

6,7

Mesti meðalvindur síðustu 24 t. m/s

12,5

Rakastig í hádeginu %

92

Úrkoma í hádeginu mm

0,1

Meðal úrkoma síðustu 24 tíma mm

0,1

Loftþrýstingur í hádeginu hPa

1011,5ø
   

Vinhraðatafla

 
Miðvikudagur 15. júní 2005 Ein gömul:
Henriksen plan og Sigfúsar Baldvinssonar - Tunnu yfirbreiðslur.

Ljósmynd: Guðlaugur Henriksen
Miðvikudagur 15. júní 2005
Ragnar Haukur Sverrisson
er 13 ára í dag
Miðvikudagur 15. júní 2005

Þriðjudagur 14. júní 2005 Síldarævintýrið 2005 - Nú er vinna hafin vegna Síldarævintýris 2005 og auglýsum við hér með eftir þátttöku, hugmyndum og ábendingum íbúa / fyrirtækja Siglufjarðar sem og annarra sem hafa eitthvað til málsins að leggja.--  Senda má tölvupóst á netfangið: elli@siglo.is  eða hafa samband í síma 846-2949 -- Siglfirðingar, hjálpumst að við að gera hátíðina í ár ógleymanlega fyrir gesti okkar!  -- ...virkir bæjarbúar – öflugri hátíð! -- Undirbúningsnefnd

Þriðjudagur 14. júní 2005

Veðurstöðin í Bakka.
Veðrið í hádeginu 
10:10
Þormóðsgata 34

Hitastig í hádeginu °C

6,6

Mesti hiti síðustu 24 t °C

10,0

Minnsti hiti síðustu 24 t °C

4,0

Vindátt í hádeginu

NA

Vindstyrkur í hádeginu m/s

5,8

Meðalvindur síðustu 10 mínútur m/s

5,4

Minnsti meðalvindur síðustu 24 t. m/s

6,7

Mesti meðalvindur síðustu 24 t. m/s

12,5

Rakastig í hádeginu %

74

Úrkoma í hádeginu mm

0.0

Meðal úrkoma síðustu 24 tíma mm

0.0

Loftþrýstingur í hádeginu hPa

1019,6ø
   

Vinhraðatafla

 

Þriðjudagur 14. júní 2005 PÆJUMÓTIÐ 2005.-- Pæjumótið 2005 verður haldið dagana 5-7. ágúst n.k. (Helgina eftir verslunarmannahelgi) Mótsstjórn óskar eftir húsnæði á leigu/láns yfir mótshelgina, bæði fyrir keppendur og aðra þátttakendur í mótinu.-- Þeir sem hafa mögulega eitthvað húsnæði laust yfir þessa helgi eru beðnir um að hafa samband við Þóri í síma 860-2069 eða senda tölvupóst á póstfangið ks@simnet.is . -- Framkvæmdastjórn Pæjumótsins 2005.

Þriðjudagur 14. júní 2005 Fyrirtæki mánaðarins og maður mánaðarins voru kjörin í gær af Kaupmannfélagi Siglufjarðar. Kjör hlutu........... farðu á
Myndamöppur Kjör júnímánaðar

Þriðjudagur 14. júní 2005  Stöðugt og gott fiskirí hefur verið síðustu vikur og ekki ólagengt  að bátarnir komi með fullfermi eftir daginn. Gárungarnir segja að sumir séu búnir að útbúa fuglahræðu framan á bata sína, til að forðast að máfarnir setjist á stefnið, því það gæti verið hættuleg viðbót við "aflann"
Þessi bátur heitir Gísli KÓ 10 1909 en hann kom inn fjörðinn klukkan 18:00 í gær á  hægri ferð, vel hlaðinn eins og greinilega sést á myndinni.

Þriðjudagur 14. júní 2005 -- Pæjumót - Óska eftir íbúð til leigu. Eins og nokkur undanfarin pæjumót þá ætlar fjölskyldan að fylgja dótturinni á Pæjumótið á Sigló en hún spilar með Fylki.---- Erum því að leita okkur að íbúð til leigu á þeim tíma þ.e. frá fimmtudeginum 4 ágúst fram á sunnudag 7 ágúst. --- Þeir sem hafa íbúð til leigu á þessum tíma og eru tilbúin að leigja mér eru vinsamlegast beðin um að hafa samband við : Rúnar Marinó Ragnarsson símar : 567-7004 og 663-0544

Þriðjudagur 14. júní 2005 Lof mér, lof mér, gætu þessir andarsteggir verið að meina með háværu kvaki sínu í gær, þar sem þeir syntu rösklega á eftir öndinni sem sennilega þótti nóg um "greddu" skeggjanna, og reyndi að forða undan áreitninni.

Þriðjudagur 14. júní 2005
Hornsílaveiðar við Síldarminjasafnið í gær, en þar sögðust krakkarnir einnig hafa séð silung.

Þriðjudagur 14. júní 2005  Smá sýnishorn af þeim möguleikum sem væntanleg vefmyndavél mun bjóða upp á, miðað við það að verða staðsett á mastur "ofan á" hitaveitutönkum Rarik, sunnan til fyrir ofan Siglufjörð.  
Myndamöppur   Óskavélin   -- vefmyndavél.

Þriðjudagur 14. júní 2005 Ein gömul  
Ókunnir menn frá síldarárunum, einn þeirra situr á síldartunnu með svigagjörðum.

Ókunnur ljósmyndari
Þriðjudagur 14. júní 2005 Þriðjudagur 14. júní 2005

Mánudagur 13. júní 2005 Eitt dæmi um hvað sækja mætti með vefmyndavél staðsettri á hitaveitutank, kroppað er út úr mynd X 1. hér fyrir neðan. Dýrari vél kæmist enn "nær"  Til dæmis mætti sjá greinilega hvað fram færi á sviðinu við Torgið ef eitthvað væri  að ske þar.

Mánudagur 13. júní 2005
Veðurstöðin í Bakka.
Veðrið í hádeginu 
10:00
Hlíðarvegur 34

Hitastig í hádeginu °C

10,4

Mesti hiti síðustu 24 t °C

12,0

Minnsti hiti síðustu 24 t °C

8,0

Vindátt í hádeginu

N

Vindstyrkur í hádeginu m/s

7,2

Meðalvindur síðustu 10 mínútur m/s

6,3

Minnsti meðalvindur síðustu 24 t. m/s

0,0

Mesti meðalvindur síðustu 24 t. m/s

7,6

Rakastig í hádeginu %

74

Úrkoma í hádeginu mm

0.0

Meðal úrkoma síðustu 24 tíma mm

0.0

Loftþrýstingur í hádeginu hPa

1023,9ø
   

Vinhraðatafla

 

Mánudagur 13. júní 2005 Útsýni frá þremur sjónarhornum. --- 
Þetta útsýni:
     
X 1.                                    1.                        2.             2.
1.
Frá Hitaveitutönkum, 2. Frá kirkjuturni eða 3. Frá Hvanneyrarbraut 80, með aðdráttar möguleikum gæti orðið af veruleika á Lífið á Sigló.  - Spurningin er: Hvaða útsýni er áhugaverðast?
Ég hefi nú þegar verið ákveðið að kaupa vefmyndavélina,
en staðsetning og gæði hennar ekki enn ákveðin (þar ræður verðið). Kostur 3. er einfaldastur, Kostur 2. er árennilegur en kostar ADSL línu. Kostur 1. þarfnast dýrari búnaðar með miklum aðdrætti + ADSL línu. Aðvörun varðandi ð X 1 - sú mynd er mjög stór og tekur tíma að hlaða henni niður, en hún sýnir vel það sjónarhorn sem góð myndavél gæti dregið að sér í smáatriðum, eins og lífið á Torginu, höfnina, einstaka báta, osfv.
Mynd 2 tók Ólafur Kárason 14. júní 2004.   Sendið inn athugasemdir á Umræðan 

Mánudagur 13. júní 2005 Ein gömul   Á stéttinni framan við skrifstofu Síldareinkasölu ríkisins á Siglufirði, einhvern tíma fyrir 1940
Engan þekki ég þarna, en ef einhver þekkir þá eru þær upplýsingar vel þegnar.
Ljósmynd: Kristfinnur Guðjónsson
 

Mánudagur 13. júní 2005
Sigmar Magnússon
er 85 ára í dag
Mánudagur 13. júní 2005
Konný Agnarsdóttir
er 40 ára i dag. --- Bestu kveðjur frá börnum hennar: Anna Guðlaug, Agnes Heiður og Hlynur Þór
Sunnudagur 12. júní 2005

Veðurstöðin í Bakka
.
Veðrið í hádeginu 

12:00
Eini kindakofinn á Siglufirði, Hafsteins Hólm

 

Hitastig í hádeginu °C

9,7

Mesti hiti síðustu 24 t °C

14,0

Minnsti hiti síðustu 24 t °C

6,0

Vindátt í hádeginu

NNA

Vindstyrkur í hádeginu m/s

2,2

Meðalvindur síðustu 10 mínútur m/s

3,6

Minnsti meðalvindur síðustu 24 t. m/s

0,0

Mesti meðalvindur síðustu 24 t. m/s

10,3

Rakastig í hádeginu %

85

Úrkoma í hádeginu mm

0.0

Meðal úrkoma síðustu 24 tíma mm

0.0

Loftþrýstingur í hádeginu hPa

1024,3ð
   

Vinhraðatafla

 

Sunnudagur 12. júní 2005 Aðsent    Þakkir til Steingríms.  Með bréfi þessu vil ég senda Steingrími mínar bestu þakkir fyrir bæði Lífið á Sigló svo og þetta nýjasta framtak hans þ.e. veðurstöðin í Bakka. Lífið á Sigló er frábært framtak og skemmtilegasta heimasíða sem ég heimsæki. Síðuna heimsæki ég á hverjum degi og oft á dag, hvar sem ég er á landinu. Alltaf jafn skemmtilegt og spennandi. Nú er komin upp ný þjónusta þ.e. sjálfvirk veðurstöð eins og sjá má. Skemmtileg nýjung þó svo að veðurfréttirnar undanfarið með myndum og lýsingu Steingríms hafi verið mjög góðar.
Ég sá það á síðunni um daginn að Steingrímur er að safna fé til að fjármagna þessi kaup, því allt er þetta jú unnið í sjálfboðavinnu hans. - Með þessu litla bréfkorni mínu til lesenda síðunnar vil ég hvetja fólk til að leggja í púkkið hjá Steingrími við rekstur síðunnar og alveg sérstaklega til að fjármagna veðurstöðina. - Allar upphæðir gera gagn, jafn stórar sem smáar.
Ég ætla því að leggja mitt af mörkum í veðurstöðina, og legg því inn 10 þúsund krónur í veðurstöðvasjóðinn.  Áfram Steingrímur, Áfram Sigló, já og áfram KS.  - Kristján L Möller

Sunnudagur 12. júní 2005 Jaðraki á veiðum Þessi mynd er tekin frammi á firði í gær og sýnir jaðraki á veiðum í bókstaflegri merkingu, (það veiða fleiri fuglar en ránfuglar) en hann var að eltast við pöddur eða bjöllur. Ef vel er gáð þá er ein paddan rétt við nef fuglsins, sekúndubroti áður en fuglinn hremmdi hana.
Stækkun er greypt hæra megin inn í myndina.

Sunnudagur 12. júní 2005 Ein gömul: 

Hljómsveitin Fjórir fjörugir 1961