Lífið í apríl 01-08 2006 | Lífið í apríl 09-15 2006 | Lífið í apríl 16-30 2006

>>>>>>>>>>> Lífið í apríl 16-30 2006

 

Til forsíðu
Til baka
Coce & Pepsi




Ljósmyndasafn Steingríms
á netinu.

Steingrímur Kristinsson Siglufirði
G-892-1569
S-467-1569

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Siglfirski fréttavefurinn  Lífið á Sigló- s. 892-1569 - h.s: 467-1569
GagnagrunnurHvar eru þeir ?Mynda-albúmMyndamöppurTenglasíða- 1
Tenglasíða-2123.is/sksiglo
Myndavél-sagaMakka-notendurSAMKOMURUmræðanAð gefnu...Færð á vesturlandiFærð á norðurlandi
HádegisveðriðVeðrið NÚNAVefmyndavél Framboðslistar =
Sunnudagur 30. apríl 2006  Hádegisveðurmynd og hús dagsins eru  HÉRNA

Sunnudagur 30. apríl 2006  Kóramót Eldri borgara á Sauðárkróki í gær
Kórarnir sem tóku þátt komu frá : Húsavík, Akureyri, Hrísey og Dalvík, Siglufirði Blönduósi auk kórs eldri borgara í Skagafirði. Sungið var í Frímúrarasalnum að Borgarmýri 1.   Á þessari mynd er Vorboðkórinn frá Siglufirði -- 
Fleiri mynfir hér á síðu Sveins Þorsteins >>> Myndasyrpa SÞ

Sunnudagur 30. apríl 2006 Verkalýðsfélagið Vaka hélt upp á 40 ára afmæli sitt í gær, meðal annars í Bátahúsinu.

Myndir frá þeirri athöfn eru >>> Vaka 2006

Sunnudagur 30. apríl 2006 Gugga í Bakka 70 ára. Guðbjörg Friðriksdóttir hélt upp á 70 ára afmælisdag sinn í gærkveldi (átti raunar afmæli 10. apríl) - Þessi mynd var tekin í gærkveldi af hópnum hennar og Ása heitins eiginmanns hennar.
Fleiri myndir >>> Gugga í Bakka

Sunnudagur 30. apríl 2006  Ein gömul:  Til hvers er þessi takki ? - Gæti Ásgeir Björnsson verið að spyrja Harald Árnason að, en Ásgeir var í einhverjum vandræðum með myndavél sína 17 júní 1965 (?) en Halli leysti málið greinilega, hver sá stutti er, veit ég ekki.

Laugardagur 29. apríl 2006 Kaupannafélag Siglufjarðar og maður apríl mánaðar.
Fyrir valinu varð Ólafur Baldursson, fyrir hin ýmsu störf sem morgun er ekki kunnugt um, en hann hefur verið ötull við það að aðstoða Siglfirðinga sem á náðir hans hafa leitað til ólíklegustu verka, auk þess að vera formaður Siglfirðingafélagsins og haldi hátt á lofti upphrópuninni "Siglfirðingur, ávalt Siglfirðingur" --Sitt hvoru megin við Óla eru Freyr Sigurðsson formaður Kaupmannafélagsins og Leonardo Claudio Passaro stjórnarmaður

Laugardagur 29. apríl 2006   Hádegisveðurmynd og hús dagsins eru  HÉRNA

Laugardagur 29. apríl 2006  SR-Vélaverkstæði hf. vinnur nú að smíði á jarðgerðarvél, sem er smíðuð á grunni Siglfirsks hugvits

Nánar um búnaðinn HÉR

Laugardagur 29. apríl 2006   Sveinn Þorsteins og fleiri góðir félagar í Félagagi eldriborgara á Siglufirði og í Fljótum, dvöldu á Hótel Örk nú í vikunni Sveinn tók slatta af myndum í ferðinni, sem eru HÉR

Laugardagur 29. apríl 2006  Nýr Siglfirðingur. Þann 21 apríl fæddist á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri lítil prinsessa og mældist hún 12 merkur og 49 cm. Foreldrar hennar eru Sigurbergur Sveinsson og Sigurbjörg Björgvinsdóttir (dóttir Begga Árna og Jónu Jóns ) Með henni á myndinni er stoltur faðir.

Laugardagur 29. apríl 2006 Ein gömul:  Þorsteinn Einarsson og Jóhann Guðmundsson
Laugardagur 29. apríl 2006
Systir mín Ninna
á afmæli í dag
Ég hefi því miður ekki tiltæka mynd af henni
en þessa mynd fann ég á síðu þinni,
sem líklega er tekin árið 1957 í afmæli hennar
Bestu afmæliskveðjur Tómas Óli Jónsson
Föstudagur 28. apríl 2006 Framtíðarsýn fyrir Siglfirðinga

Kynningarbæklingur HÉR

Föstudagur 28. apríl 2006 Á morgun laugardag  29. apríl verður í reiðhöllinni á Sauðárkróki mikil sýning sem nefnd hefur verið “Æskan og hesturinn norðanlands” Þar getur að líta sýningu hestamannafélaga af norðurlandi á ýmsu því sem þau hafa verið að gera í barna og unglingastarfi í vetur. Frá Glæsi á Siglufirði verður 12 barna hópur sem hefur æft stíft undanfarið í kjölfar námskeiðs í vetur. Það verða tvær sýningar, sú fyrri hefst kl 13.00 og sú seinni kl. 18.00. Ókeypis verður inn. Það er alveg tilvalið að fá sér bíltúr í góða veðrinu sem verður ábyggilega á morgun um allt norðurland og líta á hvað krakkarnir eru orðin dugleg.  --
Svo má geta þess að kl 17.30 í dag verður þessi hópur barna sem um ræðir við æfingar á bílastæðinu við flugstöðina, þar sem búið er að moka blett sem er jafnstór reiðhöllinni á Króknum

Föstudagur 28. apríl 2006 Illviðrishnjúkur: Ég fékk slatta af myndum teknum af hnjúknum í gær en þær eru hérna á tenglinum.

>> Íllviðrishnjúkur

Föstudagur 28. apríl 2006   Sendum hér myndir af gestum og keppendum á Gettu betur spurningakeppninni, en úrslitakvöldið fór fram á Bíó Café 22 Apríl. Um 3 og 4 sæti áttust við Bærinn (starfsmenn bæjarins) og Siggi og sveitapíurnar (starfsfólk sparisjóðsins) og vann Bærinn þá viðureign. Til úrslita öttu kappi Kippuvinaliðið (Sigurður,Baldur Jörgen og Magga Jóns) og JE vélaverkstæði(Ámundi,Birgir. Ingvar og Salli) sú keppni var æsispennandi allt til enda og lauk með verðskulduðum sigri strákanna á JE vélaverkstæði sem hlutu að launum vegleg verðlaun af ýmsum toga í föstu og fljótandi formi en aðal styrkveitandi þessarar keppni var Vífilfell og megi það fyrirtæki hafa þökk fyrir sem og allir þátttakendur í þessari keppni sem vonandi verður haldin aftur að ári liðnu. Þess má loks geta að Danni Pétur átti besta brandarann sem sagður var í keppni og hlaut bikar að launum.  Sibba &Finni  >> Gettu betur

Föstudagur 28. apríl 2006  Hádegisveðurmynd og hús dagsins eru  HÉRNA

Föstudagur 28. apríl 2006 Illviðrishnjúkur, sá eini sanni. Í gær fóru menn frá Björgunarsveitinni Strákar með menn á vegum Tilkynningarskyldunnar upp á hnjúkinn í þeim tilgangi að koma fyrir endurvarpa til að auka langdrægni og gæði sendinga vegna  tilkynningaskyldu skipa og báta norðan Tröllaskaga. - Þá mun einnig í athugun að koma fyrir á sama stað mastri, sem auka mun  GSM samband, á svæði Fljóta og nágrennis.

Föstudagur 28. apríl 2006 Ein gömul:  Þessi er tekin í Héðinsfirði árið 1966

Suma af drengjunum kannast ég við en man ekki nöfnin fyrir víst.
Föstudagur 28. apríl 2006
Birgir Guðlaugsson
er 65 ára í dag
Föstudagur 28. apríl 2006
Salmann Héðinn Árnason
er 19 ára í dag

Fimmtudagur 27. apríl 2006 Þessi bátur var hífaður upp á bryggju í morgun til viðgerðar hjá JE-Vélaverkstæði. En "hællinn" hafði losnað frá þar sem bolti sem átti að halda "hælnum" sem er úr ryðfríu efni hafði verið festur (fyrir sunnan) með galfenhúðuðum bolta sem ryðgað hafði í sundur, settur var ryðfrír bolti í staðinn, eins og hefði átt að vera í upphafi

Fimmtudagur 27. apríl 2006   Hádegisveðurmynd og hús dagsins eru  HÉRNA
Fimmtudagur 27. apríl 2006  Frá Herhúsfélaginu.
Alma Dís Kristinsdóttir hefur dvalið í Herhúsinu í aprílmánuði. Hún er hönnuður og hefur unnið hér að verkefnum sem tengjast m.a. safnakennslu o.fl. Hún heldur fyrirlestur í Herhúsinu í kvöld kl.18-19.
Árni Haukur Þorgeirsson
er 5 ára í dag
Hann er sonur Þorgeirs Bjarnasonar og Guðný Huld Árnadóttur Á myndinni er hann og nýfædda litla systir hans Hann fær bestu kveðjur frá mömmu, pabba og litlu systur :)

Fimmtudagur 27. apríl 2006 Tveir athygliverðir vefir, sem "tala sínu máli"   http://www.alvaran.com, og http://www.kosningaloford.com   En það er Keli í Borgarnesi sem þar er höfuðpaurinn.

Fimmtudagur 27. apríl 2006 Ein gömul:  Þennan mann þarf ekki að kynna fyrir Siglfirðingum. Hann var ötull framfara og athafnamaður á sínu sviði sem prentmeistari og eigandi Siglufjarðarprentsmiðju allt til dauðadags. Hann var að mörgu leiti frumkvöðull á landsvísu, oftast fljótari en aðrir að tileinka sér nýungar í prentiðninni með kaupum á nýjum búnaði til prentunar. Þarna á myndinni stendur hann við fyrstu tölvuvæddu prentmaskínu landsins, en Morgunblaðið keypti samskonar búnað nokkrum mánuðum síðar. Ég átti þess kost að kynnast Sigurjóni frá þeim tíma að ég var ritstjóri Siglfirðings forðum daga, og naut í mörgu leiðsagnar hans. Sigurjón var um skeið bæjarstjóri Siglufjarðar og virkur í baráttuliði Alþýðuflokksins sáluga..

Miðvikudagur 26. maí 2006  H-listi félagshyggjufólks og óháðra, í sameiginlegu sveitarfélagi, Ólafsfjarðar og Siglufjarðar er kominn í dagsljósið.-  Eftirfarandi aðilar skipa listann:  --  Smellið á tengilinn "Framboðslistar" á tenglasvæðinu efst á síðunni.  Og hér >>  Framboðslistar
Miðvikudagur 26. maí 2006  Í morgun eftir að nýi vefurinn fór í loftið, yfirhlóðst kerfið vegna of margra sem reyndu að komast inn á sama tíma, nokkur hundruð væntanlega ! Einhverjar  hugbúnaðarbreytingar þurfti að lagfæra á servernum til að koma í veg fyrir þetta í framtíðinni og er sú vinnsla í gangi, á meðan tek ég gamla andlitið í gagnið aftur, væntanlega í skamma stund.
Miðvikudagur 26. apríl 2006  Vefurinn Lífið á Sigló - fór í loftið í morgun með nýtt andlit - sem kom vel út að mínum dómi og virkaða eins og ætlast var til í byrjun - En af einhverjum orsökum, þegar fjöldi heimsókna jókst er líða tók á morguninn, fraus kerfið, verið er að vinna í málinu og líkur vonandi i fljótlega. 
Beðist er velvirðingar á þessum óþægindum   --  "Fall er fararheill"
segir máltækið !

Miðvikudagur 26. apríl 2006  Skálað var í tilefni nýrrar uppfærslu á vefnum Lífinu á Sigló í morgun En SR-Vélaverkstæði er með kerfisfræðing á sínum snærum, og hefur hann séð um að koma upp nýju kerfi í tengslum við vefinn.

Einnig naut ég dyggrar aðstoðar Kela í Borgarnessi við verkefnið.

Miðvikudagur 26. apríl 2006  Í morgun var verið að setja upp nýjar svalir á húsið Lindargata 18 – En þessar svalir eru eitt af mörgum álíka verkum sem SR-Vélaverkstæði hefur sérhæft sig í að smíða

Miðvikudagur 26. apríl 2006   Hádegisveðurmynd og hús dagsins eru  HÉRNA

Miðvikudagur 26. apríl 2006 Kaupmannafélag Siglufjarðar og Snorri Pálsson framfarafélag stóðu fyrir hádegisverðarfundi á  Bíó Café, í gær-- Fundarefnið var: Hvernig leggst sameiningin í Runólf bæjarstjóra. Meiningin er að standa fyrir hádegisverðarfundum með völdu fundarefni einu sinni í mánuði. -- Margir áhugasamir mættu og hlustuðu á hvað Runólfur hafði að segja og spurðu hann spurninga. --- >>>> Hádegisfundur

Miðvikudagur 26. apríl 2006 Ein gömul: 

Einco brennur í æfingu "Bruna"liðs Siglufjarðar
Miðvikudagur 26. apríl 2006 
Vala Árnadóttir
er 40 ára í dag
Með henni á myndinni eru Unnar Friðrik (sonur),
Steinar (eiginmaður) og Steinunn Vala (dótturdóttir).
kveðjur, Máney.
Miðvikudagur 26. apríl 2006
Björn Guðnason
er 11 ára í dag
hann er sonur Guðna Sölva og Júllu Birgis.
Björn fær bestu afmæliskveðjur frá systkinum sínum.
Miðvikudagur 26. apríl 2006
Arnar Eyjólfur Ólafsson
er 50 ára í dag
Til hamingju með daginn, SK  
Miðvikudagur 26. apríl 2006
Sigurjón Erlendsson
er 59 ára í dag
Til hamingju með daginn, SK
Þriðjudagur 25. apríl 2006  Hádegisveðurmynd og hús dagsins eru  HÉRNA

Þriðjudagur 25. apríl 2006  Bæjarstjórar á faralds fæti Myndir frá Austurlandi frá fundi bæjarstjóra landsins sem haldinn var í Fjarðarbyggð og á Fljótdalshreppi. Auk fundarhalda bæjarstjóranna var farið í skoðunar- og kynnisferðir til byggðakjarnana í Fjarðarbyggð, Reyðarfjarðar, Fáskrúðsfjarðar, Eskifjarðar og Neskaupstaðar. ( nokkrar myndirnar eru teknar í gegnum rúðu rútunnar svo gæðin eru eftir því) Fengum leiðsögn í öllum sveitarfélögunum og sáum þá gífurlega uppbyggingu sem á sér stað, einnig fórum við Fáskrúðsfjarðargöngin, sem eru glæsilegt mannvirki í sama anda og okkar Héðinsfjarðargöng verða , tvíbreið og björt. Var okkur boðið í hádegisverð hjá Alcoa á Reyðarfirði og kynnisferð um svæðið. Ekki er mögulegt að lýsa með orðum umfangi bygginganna þar. Eftir þessa miklu kynningu á vexti Fjarðarbyggðar var farin sjóferð í Mjóafjörð og litið á starfsemi við fiskeldi þar á bæ og fegurð fjarðarins. Á laugardeginum var haldið á Kárahnjúka í boði Landsvirkjunar og Imprelligo og þvílíkum framkvæmdum segir maður ekki frá í orðum því lýsingum verða að fylgja handapat og gífuryrði. Stíflan við Kárahnjúk er langt komin aðeins er eftir að byggja um 35 metra ofan á í viðbót, þar til vegagerð á stíflunni verður hafin. Á leið til baka var komið við í stöðvarhúsinu í Fljótsdal og farin könnunarferð inni fjallinu. Á leið okkar urðu nokkur hreindýr. Grafin hafa verið í fjallið ótal göng og skálar sem munu nýtast fyrir allan vélabúnaðinn og umferð. Hluti af göngum þessum munu fara undir vatn en önnur notuð sem aðkomuleiðir. Héðinsfjarðargöng eru agnar smátt verkefni miðað við þessi ósköp. Það er gífurleg lífsreynsla að sjá uppganginn á Austurlandi og hvet ég alla sem tök hafa á að sjá ósköpin. Mjög góður vegur er á virkjunarsvæðið en eitthvað er aðgangur takmarkaður. Framkvæmdirnar fyrir austan hleypa miklu lífi í byggð á Austurlandi, sem munu smitast um land allt ef rétt er á hlutunum haldið .
Með kveðjum Runólfur    >> Bæjarstjórar

Þriðjudagur 25. apríl 2006 Boccia mót Helstu skörungar í eldri flokk Snerpu sótti boccía mót í Reykjavík nú um síðustu helgi. Ekki hefi ég haft fregnir af árangrinum, enda ætti það ekki að vera aðalmálið, heldur að vera með. Sveinn Þorsteins sendi mér nokkrar myndir frá mótinu, en mætti þar sem áhorfandi. >>  Boccia 23.4.2006

Þriðjudagur 25. apríl 2006 Ein gömul:   Um borð í Elliða ?

Svanur Pálsson og Lýður Ægisson
Þriðjudagur 25. apríl 2006
Elsa Guðmunds og Guðmundur Gauti
eiga afmæli í dag
Elsa er 55 ára en Guðmundur Gauti er 31 árs.
Fjölskyldan frá Sigló sendir þeim bestu kveðjur.

Mánudagur 24. apríl 2006  Er vertíðinni lokið ?  Það var almennt tregt í netum grásleppukarlanna í morgun miðað við undanfarið og eru menn farnir að hugleiða um hvort þessu sé lokið í bili.
Myndin er af Hrönn SI 144 að losa slatta í morgun

Mánudagur 24. apríl 2006   Hádegisveðurmynd og hús dagsins eru  HÉRNA

Mánudagur 24. apríl 2006  Kaupmannafélag Siglufjarðar og Snorri Pálsson framfarafélag standa fyrir hádegisverðarfundi á  Bíó Café, þriðjudaginn 25. apríl kl.12:00
Fundarefni: Hvernig leggst sameiningin í Runólf bæjarstjóra.
Meiningin er að standa fyrir hádegisverðarfundum með fundarefni einu sinni í mánuði ef vel tekst til. -- Áhugasamir eru að sjálfsögðu hvattir til að mæta og heyra hvað Runólfur hefur að segja.

Mánudagur 24. apríl 2006 Tekið af síðu www.smabatar.is   (21. apríl 2006)
Siglfirðingar þeir einu sem ekki "gefa" grásleppuhrogn ---   "Hér á Siglufirði hefur grásleppuvertíðin gengið vel þegar hægt er að komast í netin. Þrálát norðanátt hefur þó komið í veg fyrir að við værum búnir að skila ásættanlegu magni á land. ----  Búið er að salta í á fimmtahundrað tunna og hefur megnið að því verið sent til Svíþjóðar. Svíarnir taka þetta hjá okkur á bryggjunni og greiða 5 evrur á hvert kg fyrir innihaldið sem leggur sig á 525 evrur á tunnuna. Tryggð er sala á öllu því sem veiðist hér á Siglufirði, Fljótunum og hjá einum bát á Sauðárkróki. Miðað við 95 krónur gengið, erum við að fá um 50 þúsund fyrir tunnuna.
Því er ekki að leyna að 10. mars þegar vertíðin hófst leist okkur ekkert á verðið, en þá var evran í 84 krónum, en þetta hefur lagast nú síðustu daga", sagði Hilmar Zóphaníasson grásleppukarl á Siglufirði.
Hilmar gagnrýnir væl forsvarsmanna íslensku verksmiðjanna Vignir Jónsson á Akranesi, ORA og Fram Foods að ekki sé hægt að greiða hærra verð en 31 til 33 þúsund. Þessir aðilar hafi haft stór orð um að greiða hæsta verð, að verð taki mið af heimsmarkaðsverði, en nú er jagast í grásleppukörlum og þeir beðnir um að gefa verksmiðjunum hrognin. Hann kallar það svo þegar verð sem í boði er skilar ekki hagnaði. ---  Hilmar skorar á grásleppukarla að láta ekki tunnu frá sér á lægra verði en Siglfirðingar hafa gert samninga um. Hann bendir á að lágmarksverð í Noregi sé 4000 norskar krónur sem jafngildir 511 evrum, heimsmarksverðið sé því ekki milli 300 og 400 evrur eins og íslensku verksmiðjurnar 3 bjóða, heldur á bilinu 511 til 525 evrur. ---- (eldri frétt HÉR neðar)

Mánudagur 24. apríl 2006 Pizzaveisla í boði Sparisjóðsins var í gær á veitingastaðnum Pizza 67. Krakkar og fararstjórar vegna Andrésar andar leikanna, sem sagt er frá hér neðar, komu saman  og hökkuðu í sig úrvali af gómsætum pizzum og meðlæti.
Ég mætti á staðinn, tók nokkrar myndir og fékk mér pizzu.
>>> Pizzuveisla Í hópnum voru 21 keppendur, 18 fararstjórar og 3 þjálfarar

Mánudagur 24. apríl 2006  Ein gömul:  Bæjarstjórn Siglufjarðar 1986-1990
Brynja Svavarsdóttir - Ingibjörg Halldórsdóttir - Ólöf Kristjánsdóttir - Regína Guðlaugsdóttir - Björn Jónasson forseti bæjarstjórnar - Kristján L Möller - Ísak J Ólafsson bæjarstjóri - Axel Axelsson - Sigurður Hlöðversson - Skarphéðinn Guðmundsson

Mánudagur 24. apríl 2006
Gunnar Tómasson
á afmæli í dag, við sendum honum kveðju í tilefni dagsins.
Guðmundur (Bósi), Tryggvi og Steingrímur

Mánudagur 24. apríl 2006
Haukur Jónasson
er 70 ára í dag
Hann fær bestu hamingjuóskir frá Fanney, Kela og Arnór. - Og elsku afi, ég lakka til að sjá ykkur ömmu í summar, þín Dóra Deigo í Chicago. ---  Einnig bestu kveðjur frá Guðný og Baddý á Sigló

Sunnudagur 23. apríl 2006 Mér voru að berast myndir frá Andrésar andar leikunum sem voru á Akureyri í síðastliðinni viku. Þar tóku þátt í margir Siglfirskir krakkar að vanda.

Hérna eru myndirnar >>> Andrés önd
Sunnudagur 23. apríl 2006  Hádegisveðurmynd og hús dagsins eru  HÉRNA

Sunnudagur 23. apríl 2006  Þegar ég fór út í morgun upp úr klukkan 09:00, þá  bar fyrir vit mér megn rotnunarlykt, sem ég taldi vera af þara sem ekki er óalgengt af þara sem brim vetrarins hafa borið á fjörur og rotna í hitum. Mér fannst þetta nokkuð undarlegt, því hitastig undanfarið átti ekki að nægja til slíkrar gerjunar. Ég gleymdi þessu þó strax eftir að ég hafði sest upp í bifreið mína, en stuttu síðar þá staddur fram á firði, varð ég enn var við þessa sterku lykt og fannst þetta furðulegt í sunnanátt.  Það var svo ekki fyrr en um 15 mínútum síðar er ég hitti nokkra félaga mína á Bensínstöðinni, sem skýringin kom. Þetta var jöklafýla sem borist hafði frá jökulhlaupinu í Skaftá og hafði fundist víðar á Norðurlandi, en ég hafði ekki opnað útvarpið í morgun, og viss þetta því ekki.

Sunnudagur 23. apríl 2006  Gott að muna:  Vantar þig far suður eða norður, austur eða vestur, eða vantar þig samferðamann, þá skaltu líta hérna inn og setja tengilinn á minnið: 
Samferða - vefsíða fyrir fólk sem vill vera samferða =   http://www.samferda.net/

Sunnudagur 23. apríl 2006 Ein gömul:  Þeir Siglfirðingar sem komnir eru um og yfir fertugt ættu að muna vel eftir þessu húsasundi, en yngri kynslóðin varla nema ef væri af öðrum myndum.
Þetta er á lóð Rauðku á 6. áratug fyrri aldar, en bygging hússins fyrir miðju, soðstöð Rauðku hófst árið 1963

 

Sunnudagur 23. apríl 2006
Birgitta Ósk Örvarsdóttir
er 8 ára í dag
Til hamingju með daginn,
amma og afi á Sigló
Sunnudagur 23. apríl 2006
Reynir Karlsson
er 46 ára í dag
við óskum við honum innilega til hamingju.
Með honum á myndinni er sonur hans, Gabríel
Júlía, Ásta Rós og Gabríel

Laugardagur 22. apríl 2006 Ég fékk þessa fallegu mynd senda í dag eftir hádegið, svolítið "óvenjulegt" sjónarhorn

Myndin er tekin um páskahelgina síðastliðna

Laugardagur 22. apríl 2006  Hádegisveðurmynd og hús dagsins eru  HÉRNA

Laugardagur 22. apríl 2006  Á Söltunarstöð Þráins Sigurðssonar, Þráinn er þarna til vinstri

Myndin er sennilega frá 1965
 

Laugardagur 22. apríl 2006 Laugardagur 22. apríl 2006

Föstudagur 21. apríl 2006  Aðsent: Ég sendi þér hérna nokkra myndir sem eru teknar á Skíðasvæðinu í Skarðsdal í gær, sumardaginn fyrsta. H.J. ------

Smelltu til að skoða  >>>  Á skíðum

Föstudagur 21. apríl 2006 Bæjarstarfsmenn voru í morgun að holufylla göturnar í bænum, en ég held ég geti fullyrt að síðan götur voru malbikaðar á Sigló, hafi þær aldrei verið eins ills farnar eftir veturinn og nú

Föstudagur 21. apríl 2006 Snjómokstur. Sigurður Benediktsson og Sveinn Þorsteinsson starfsmenn Síldarminjasafns Íslands að hreinsa snjó í morgun af einum sýningargripnum utandyra.

Föstudagur 21. apríl 2006  Hádegisveðurmynd og hús dagsins eru  HÉRNA

Föstudagur 21. apríl 2006 Tekið af netinu: - Coca Cola er sennilega vinsælasti drykkur í hinum vestræna heimi. En það eru ekki allir sem gera sér grein fyrir að nota má Coce og sennilega einnig Pepsi Cola, til annars en að svala nautn eða þorsta. ---- Smelltu HÉR til að kynnast því.

Föstudagur 21. apríl 2006 Ein gömul:   Siglufjörður 1945-1946
Föstudagur 21. apríl 2006
Tómas Orri,
er 5ja ára í dag
Kveðja frá Mömmu, Pabba og Rebekku Rut.

Föstudagur 21. apríl 2006

Sveinn Heiðar Zophaniasson
er 43 ára í dag

Kveðja frá fjölskyldunni

Föstudagur 21. apríl 2006
Jón Tryggvi Jökulsson
er 42ja ára í dag og
Daníel Pétur Daníelsson

er 28 ára í dag
Feðgarnir Jón Tryggvi og Daníel Pétur,
Þeir verða með sitt daglega uppistand í tilefni dagsins á kaffistofu S.P.S.
Afmæliskveðja frá fjölskyldunni Aðalgötu 10.

Fimmtudagur 20. apríl 2006 Nýr Siglfirðingur: Í morgun (05:20 nákvæmlega) kom í heiminn lítill sólargeisli, foreldrar hennar eru Þorgeir Bjarnason og Guðný Huld Árnadóttir. Hún var 13 merkur og 49 cm :)
Með fylgir mynd af henni og stolta stóra bróður hennar, Árni Haukur.

Fimmtudagur 20. apríl 2006 Er ríkisstjórnin búin að afnema eldsneytisskattinn ? -- Nei því er nú er, eldsneyti á bílana okkar er í sögulegu hámarki, eins og allir vita. Þó svo að mikið hafi verið gert í vegamálum undanfarna áratugi, væri þó sennilega allt það sem nú er á áætlun löngu lokið ef ríkisstjórnir undanfarna áratuga (bæði blár, grænar og rauðar) hefðu látið allt skattfé af eldsneyti fara til vegamála.
Falsaða myndin hér við hliðina sýnir óskastöðuna á eldsneytisverðinu.

Fimmtudagur 20. apríl 2006   Hádegisveðurmynd og hús dagsins eru  HÉRNA

Fimmtudagur 20. apríl 2006 Landgræðsluskógræktarsamningur.
19.apríl síðastliðinn var skrifað undir Landgræðsluskógræktarsamnings milli Skógræktarfélags Íslands, Skógræktarfélags Siglufjarðar og Siglufjarðarkaupstaðar. Landið sem um ræðir er sunnan við núverandi skógrækt í Skarðsdal í landi Leynings og er alls 34,2. hektarar. Skógræktarfélagið mun á næstu árum planta þar tug þúsundum trjáplanta á svæðið í samvinnu við Siglufjarðarkaupstað og Skógræktarfélag Íslands, sem mun leggja til plönturnar.
Skógræktin í Skarðsdal er nyrsta skógrækt á Íslandi og er þar vaxinn upp myndarlegur útisvistarskógur og má gera ráð fyrir að skógræktin muni stækka töluvert á næstu árum með tilkomu landgræðslusamningsins.
Á meðfylgjandi mynd eru Kristrún Halldórsdóttir formaður Skógræktarfélags Siglufjarðar ásamt Runólfi Birgissyni bæjarstjóra eftir undirritun samningsins í dag. - AJ

Fimmtudagur 20. apríl 2006 Þær virtust vera lausar við fuglaflensuna og bráðhressar álftirnar sem eru komnar eru aftur  eftir veturdvöl einhvers staðar. Fyrri myndin er tekin af Sveini um klukkan 16:40 í gær, en hin nokkru seinna af SK, eða klukkan 18:30  En þarna eru álftirnar á Langeyrartjörn og hólma sem ekki eru komin úr "vetrarklæðunum" enn þá.

Fimmtudagur 20. apríl 2006 Ein gömul:  Þeir fylgjast vel  með guttarnir, en þarna er verið að undirbúa Aage Johansen til köfunar við Rauðku bryggju. Sennilega um1965

Fimmtudagur 20. apríl 2006
Kristján Elís Bjarnason, skipstjóri
er 54 ára í dag
Á myndinni eru: Skipstjórinn á Sæbjörgu
Hilmar Snorrason, Kristján og
Jónas Sumarliðason
Fimmtudagur 20. apríl 2006
Karen Ásta varð 8 ára þann 20. apríl
Hún er dóttir Rakelar Runólfsdóttur (Birgissonar)

Miðvikudagur 19. apríl 2006  Síldarminjasafn Íslands ses.
Á páskadag var stofnuð sjálfseignarstofnunin Síldarminjasafn Íslands. Stofnendur eru Félag áhugamanna um minjasafn og Siglufjarðarkaupstaður. Stofnframlög hvors aðila fyrir sig eru húseignir, lóðir og allir munir þeir sem fram að þessu hafa myndað Síldarminjasafnið. Tilgangurinn með með þessari breytingu er að einfalda eignarhald og rekstur, enn fremur að skerpa og styrkja stöðu safnsins á landsvísu.
Í samræmi við það var nafninu breytt úr Síldarminjasafnið á Siglufirði í Síldarminjasafn Íslands ses. Þjóðminjasafnið skipar nú fulltrúa í stjórn safnsins og er það Margrét Hallgrímsdóttir, þjóðminjavörður. Auk hennar voru kjörnir í þriggja manna stjórn, Runólfur Birgisson, bæjarstjóri og Hafþór Rósmundsson formaður Fáum. Varamenn eru Ólafur Kárason, formaður bæjarráðs, Hinrik Aðalsteinsson, ritari Fáum og Ágúst Georgsson frá Þjóðminjasafninu. Þá var Örlygur Kristfinnsson ráðinn forstöðumaður Síldarminjasafnsins. -- 
Fréttatilkynning frá Síldarminjasafninu.

Miðvikudagur 19. apríl 2006 Það fer vart á milli mála eftir hverju þau eru að huga og hlaupa, það er auðvitað fótbolti sem þau og hópur annarra voru í leik með á sparkvellinum við Barnaskólann í morgun í frímínútunum.

Miðvikudagur 19. apríl 2006   Hádegisveðurmynd og hús dagsins eru  HÉRNA
Miðvikudagur 19. apríl 2006 Ein gömul: 

Sigurður Árnason og Óli Blöndal (1965 ?)
Miðvikudagur 19. apríl 2006
Elsku Brói minn og besti frændi í heimi...
Til Hamingju með daginn
Ástar og saknaðar kveðja, Laufey systir og fjölskylda
Á myndinni eru þau frændsystkinin Birna Guðný og Baldur Guðna...
Miðvikudagur 19. apríl 2006

Þriðjudagur 18. apríl 2006 Grásleppukarlarnir hafa verið að gera það gott að undanförnu, þegar gefið hefur a sjó. Í dag hafa þeir margir staðið í ströngu  við að koma afurðum sínum í gáma til útflutnings. En allir grásleppukarlar á Siglufirði og í Haganesvík, auk einn frá Sauðárkrók, selja til sama aðili í Svíþjóð (Siglfirðings sem þar er búsettur) á föstu verði sem um er samið fyrir vertíð hverju sinni og eru menn almennt mjög ánægðir með verðið. Grásleppuvertíðinni er ekki lokið enn.

Þriðjudagur 18. apríl 2006 Sólin hefur skinið glatt í dag eftir hádegið - og ekki skaðar lognið sem  "alltaf" er á Sigló

Þriðjudagur 18. apríl 2006   Hádegisveðurmynd og hús dagsins eru  HÉRNA

Þriðjudagur 18. apríl 2006 Fengið af www.siglo.is
Styrkveiting úr Leonardo da Vinci sjóð Evrópusambandsins.
Nýverið hlaut Siglufjarðarkaupstaður styrk úr Leonardo da Vinci sjóð Evrópusambandsins. Styrkurinn er ætlaður til mannaskipta/starfsmannaskipta fyrir leiðbeinendur og stjórnendur fyrirtækja og stofnana. Styrk upphæðinn verður notuð fyrir nokkra stjórnendur bæjarins til að kynna sér sveitarfélag eða sveitarfélög innan Evrópusambandsins. Nánar má sjá lista yfir þá sem fengu úthlutað á slóðinni http://www.leonardo.is 
Siglufjarðarkaupstaður er fyrsta sveitarfélagið hér á landi sem fær úthlutað úr sjóðnum. Gert er ráð fyrir að verkefnið fari að stað seinni partinn á þessu ári.

Þriðjudagur 18. apríl 2006 Ein gömul:  
Benedikt Sigurðsson - Pétur Gautur Kristjánsson og Hlöðver Sigurðsson
Þriðjudagur 18. apríl 2006
Rakel Ósk Dýrfjörð Björnsdóttir
er 17 ára í dag
kveðja Snævar Már
 
Þriðjudagur 18. apríl 2006
Aðalheiður Rögnvaldsdóttir
er 80 ára í dag
Þriðjudagur 18. apríl 2006
Björn Ingimarsson
er 45 ára í dag
með kveðju frá foreldrum og systkinum.

Mánudagur 17. apríl 2006 Það er ekki langt á Ketilásinn, þangað sem Siglfirðingar hafa löngum sótt dansleiki og fleiri uppákomur, enda mörg blóðbönd Siglfirðinga komin úr Fljótum. Þeir sem unna leiklistinni ættu að lesa eftirfarandi:  Leikfélag Hólmavíkur sýnir Fiskar á þurru landi eftir Árna Ibsen í félagsheimilinu Ketilási í Fljótum. Sýningin verður á laugardaginn kemur og hefst klukkan 21:00. Leikstjóri er Kolbrún Erna Pétursdóttur. Er þetta þriðja verkið í röð sem þetta víðförulla leikfélag sýnir á Ketilási. Ferðalagið í Fljótin er með þeim lengstu sem lagt er í þetta árið en viðtökur Fljótamanna og nærsveitunga hafa verið með miklum ágætum fyrri ár því fullt hús hefur verið á báðum sýningum. Bindur leikfélagið góðar vonir um að engin undantekning verði gerð þar á þetta árið. Fjórir leikarar fara með hlutverk í sýningunni, þau Jóhanna Ása Einarsdóttir, Úlfar Örn Hjartarson, Rúna Stína Ásgrímsdóttir og Gunnar Melsted. Auk leikaranna fylgir svona sýningarferð mikill fjöldi aðstoðarfólks. Áformaðar eru tíu sýningar á Fiskar á þurru landi en þegar hafa verið tvær á Hólmavík og með vorinu mun félagið heimsækja Bolungarvík, Mosfellsbæ, Drangsnes, Árneshrepp og fleiri staði.

Mánudagur 17. apríl 2006  Hádegisveðurmynd og hús dagsins eru  HÉRNA

Mánudagur 17. apríl 2006 Karlakór Siglufjarðar hélt tónleika í Bátahúsinu sl. laugardag, en þessa mynd og fleiri sendi Sveinn Þorsteinsson mér, en sonur hans Þorsteinn mundaði myndavél hans þar sem Sveinn er í kórnum. 
Ég var aftur á móti var fjarri góðu gamni, þar sem ég var heima og kenndi í brjóst um sjálfan mig vegna helv.... flensu sem var að ergja mig.    >>> Karlakórinn + HÉR

Mánudagur 17. apríl 2006  Ein gömul:   Þeir eru ekki margir sem eftir eru af þessum görpum sem þarna eru á "skólaspjaldi" frá því að Ljósmyndastofa Kristfinns Guðjónssonar var upp á sitt besta, en myndin er úr safni hans.

Mánudagur 17. apríl 2006 Mánudagur 17. apríl 2006
Sunnudagur 16. apríl 2006  Hádegisveðurmynd og hús dagsins eru  HÉRNA

Sunnudagur 16. apríl 2006  Ný Siglfirsk heimasíða. "Hljómsveitin Frum" >  Guðmundur Ingólfs, þar eru meðal annars efnis; gamlar hljómsveitarmyndir og frásagnir

Sunnudagur 16. apríl 2006  Aðsent: Hér eru nokkrar myndir úr Skarðinu frá því á föstudaginn langa en þá var örugglega metdagur á skíðasvæðinu. Talið er að vel á annað þúsund manns hafi þá verið á skíðum í þessari líka Siglfirsku blíðu - sól og stafa logni.
Margir sólbrunnu, og allir voru í sjöunda himni yfir hinni frábæru aðstöðu sem hér er.
" Þetta er tvímælalaust besta skíðasvæði landsins " sagði einn Reykvíkingur sem var að koma í fyrsta skiptið á svæðið. " Þetta skíðasvæði er best varðveittasta leyndarmál landsins " sagði annar og átti ekki orð til að lýsa hrifningu sinni. " Hingað á ég eftir að koma oft " sagði hann um leið og hann fékk sér vænan sópa af sjóðheitu súkkulaði með rjóma sem hann fékk sér í skíðaskálanum.
Margir þreyttir og stirðir skíðamenn lögðu svo leið sína í heita pottinn í Sundhöllinni, og létu þreytuna líða úr sér.
þetta var frábær dagur. Á laugardag var einnig mikill fjöldi á skíðum þrátt fyrir hríðarmuggu, m.a. var páskaeggja mót fyrir 12 ára og yngri, trúður kom í heimsókn o.m.fl.  K.L.M.   Föstudagurinn

Sunnudagur 16. apríl 2006  Myndir frá Hrönn Einars frá Laugardeginum.
Þá var ekki sólskin eins og á fimmtudag og föstudag, heldur smá hríðarmugga í hæglætisveðri og hita um frostmark. Þrátt fyrir það var fjölmennt á svæðið. Greinilegt var að aðkomufólk var í miklum meirihluta, bæði uppi á skíðasvæðinu og niðri í bænum, til dæmis er ég var á ferðinni skömmu fyrir hádegið má segja að í 4 af hverjum fimm bílum sem ég mætti hafi fólk setið undir stýri sem ég kannaðist ekki við, en hér í litlu byggðarlagi sem Siglufjörður er þá "þekkja allir alla" sem hér búa.   Laugardagurinn

Sunnudagur 16. apríl 2006  Aðsent:  Fyrsta ferð Ferðafélags Siglufjarðar var farinn á þann 14.april.
Lagt var stað í gönguskíðaferð í blíðskaparveðri frá Skíðasvæðinu í Skarðsdal og gengið inn á Súlur, leiðsögumaður var Magnús Eiríksson göngugarpi .
Myndin er af hluta hópsins með Siglufjörð í baksýn.

Sunnudagur 16. apríl 2006 Ein gömul:  Strompleikur 1972 -- nánar HÉR
Sunnudagur 16. apríl 2006
Una og Ólöf Sighvatsdætur
eru 17 ára í dag
 
Sunnudagur 16. apríl 2006
Margrét E Björnsdóttir
er 73ja ára í dag
Sunnudagur 16. apríl 2006
María Jóhannsdóttir
er 62ja ára í dag
afmæliskveðja frá fjölskyldunni