|
Lífið
um páskana:>>>

 |
|
Laugardagur 15. apríl 2006 --
Vegna veikinda, helv........
flensa sem leggst þungt á mig, má ekki búast við mikilli hreyfingu á vef
mínum, í dag og ????? |
|
Laugardagur 15. apríl 2006
Hádegisveðurmynd og
hús dagsins eru HÉRNA |
|
Laugardagur
15. apríl 2006 Ein gömul: Ég ætla ekki að segja hvar
eða hverjir fórur "eftir þessum" 9 boðorðum frá 7. áratug fyrri aldar
(1971) sem hér birtast. Þó skal það upplýst að herbergið, stór veggur
sem sem þessar upphrópanir blöstu við á, þeim sem inn litu var
æfingaraðstaða "bítla hljómsveitar" hér í bæ.
Þetta á og átti ekkert skylt við páska né trúboð, aðeins eitt af mörgum
uppátækjum yngri kynslóðar þess tíma, í orði en ekki á borði. |
Laugardagur 15. apríl 2006
Halldór Gestsson
er 89 ára í dag |
|
Laugardagur 15. apríl 2006
Frændi minn Sölvi Guðnason (sonur Guðna
Sölva og Júllu Birgis) er 25 ára í dag -
Hann er til hægri á myndinni, með honum á myndinni er Sigurjón
frændi hans. Sölvi fær afmælis kveðju frá Hönnu Siggu frænku á
Ítalíu bestu kveðjur heim í snjóinn |
Laugardagur 15. apríl 2006
Marsibil Anna Ólafsdóttir
er 63 ára í dag.
Kveðja frá Sigló |
Laugardagur 15. apríl 2006
Konráð Baldvinsson
er 60 ára í dag
Vinir og vandamenn senda
honum bestu kveðjur |
Laugardagur 15. apríl 2006
Svanhildur Hanna Freysteinsdóttir
er 18 ára í dag
hún fær ástarkveðjur frá fjölskyldunni
|
|
|
Föstudagur 14. apríl 2006
Hádegisveðurmynd og
hús dagsins eru HÉRNA |
Föstudagur 14. apríl 2006
Líf og fjör í Skarðsdal í morgun -- Þessi mynd er frá í morgun frá
vefmyndavélinni þar uppi |
|
Föstudagur
14. apríl 2006 Einstaklega gott skíðafæri og veður var í
gær á Skíðasvæðinu í Skarðsdal. Þar var þar mikið fjölmenni aðkomufólks,
þó svo að NFS hafi ekki vitað af því að skíðasvæðið í Skarðsdal væri
opið, miðað við upptalningu þeirra í gær í hádeginu á opnum skíðasvæðum
landsins. Hingað koma allir aftur og aftur, sem á annað borð hafa komi á
svæðið áður, og þá gjarnan með vini og kunningja. Enda mikið fjöldi
aðkomufólks í bænum. |
|
Föstudagur
14. apríl 2006 Ein gömul: Tunnuverksmiðjan brann
(ein af mörgum) í janúar 1964. Stálgrindarhúsið "lak niður" eins og
kertavax við þann ógurlega hita sem þar inni myndaðist við brunann.
Nánar um þennan atburð er að finna
HÉR |
Föstudagur 14. apríl 2006
Ronja Rán Jóhannsdóttir
1 árs í dag
Hún er dóttir Fanneyjar Friðfinnsdóttur og Jóhanns Bjarnasonar.
Kveðja frá ömmu, afa og Árna Heiðari |
Föstudagur 14. apríl 2006 |
|
|
Fimmtudagur
13. apríl 2006 Nú er hafin undirskriftasöfnun á netinu um
mótmæli gegn bensínhækkun síðustu mánaða, og krafist aðgerða af hálfu
ríkisstjórnarinnar, en eins og kunnugt er þá fer mikill meirihluti
bensínverðsins í ríkiskassann. Látið verkin tala, EKKI nefndirnar.
Smellið
HÉR |
|
Fimmtudagur
13. apríl 2006
Hádegisveðurmynd og
hús dagsins eru HÉRNA |
|
Fimmtudagur
13. apríl 2006 Ég og kona mín urðum þeirrar
ánægju
njótandi í boði Fílapenslanna í gærkveldi og hlusta og horfa á þá
spretta úr spori ásamt góðum aðstoðarmönnum sínum.
Þetta var frábær skemmtun. Kærar þakkir drengir fyrir frábæra skemmtun.
Ég tók góðan slatta af myndum, sem eru hér >>>>>

Önnur sýning verður í kvöld fimmtudag, en þá er uppselt. |
|
Fimmtudagur
13. apríl 2006
Athygli er vakin á því að ÖLL
vélsleðaumferð er bönnuð á skíða- og íþróttasvæðinu við HÓL
--- Umferð vélsleða við Hól hefur verið mjög hvimleið að
undanförnu, sérstaklega fyrir skíðagöngufólk. --- Það er alkunna að
allstaðar er umferð vélsleða bönnuð á fólkvöngum, svo sem skíða- og
íþróttasvæðum og svo er einnig við Hól.
Vélsleðamenn hafa jafnan valið sér leið fram í Hólsdalinn vestan ár eða
alveg niður við ána, en núna að undanförnu hafa þeir verið að færa sig
upp á svæðið og mikið kraðak er eftir vélsleða á íþróttavellinum og upp
í áhorfendabrekkunni. - Vélsleðamenn vinsamlega virðið það að
skíðagöngufólk vill hafa sínar brautir óskertar og annað útivistarfólk
vill hafa sitt næði í útivistinni til að njóta hennar til fullnustu,
enda ætti að vera um nóg önnur svæði að ræða fyrir ykkur.---
Til bæjaryfirvalda mætti
koma þeim skilaboðum að varla má það dragast öllu lengur
að koma upp viðeigandi merkingum við Hól til að taka af allan vafa um
það að vélsleðaumferð er bönnuð á skíða- og íþróttasvæðinu. - Með kveðju
um gleðilega páska og holla og góða útivist -- Þórhallur Ásmundsson. |
|
Fimmtudagur
13. apríl 2006 Ein gömul: Hann er ekki mjög
fallegur á að líta þessi skúr, innbyggður í löndunarkrana hjá Rauðku
forðum, en þær voru margar milljónirnar sem áttu leið um hans slóðir.
Myndin er sennilega frá 1965 ! |
Fimmtudagur
13. apríl 2006
Eyjapeyinn
Tindur Snær Sigurbjörnsson
er 9 ára í dag.
Sonur Svanfríðar Jóhannsdóttur
(Svönu og Sigurbjörns)
Til hamingju með daginn, Fjölskylda |
|
Fimmtudagur
13. apríl 2006
Álfhildur Halldórsdóttir
er 47 ára í dag
Til hamingju með daginn,
tengdaforeldrar |
Fimmtudagur
13. apríl 2006
Tinna Rut Einarsdóttir
er 16 ára í dag
(dóttir Önnu Kristínar Tryggvadóttur)
Til Hamingju með daginn,amma og afi.(Helga og Tryggvi) |
|
|
Miðvikudagur 12. apríl 2006
Hádegisveðurmynd og
hús dagsins eru HÉRNA |
|
Miðvikudagur
12. apríl 2006 Veraldarvinir hreinsa strendur landsins
--
Meðal annarra við Siglufjörð....
Samtökin Veraldarvinir eru að hefja stórátak til að hreinsa strandlengju
Íslands. Ætlunin er að hreinsa alla strandlengjuna á árunum 2006-2011,
en samtals er strandlengjan 4.950 km að lengd. ..meira |
Miðvikudagur
12. apríl 2006
Frá hagstofunni: Fjöldi nýbura á Siglufirði árin 1991-2005
|
1991 |
1992 |
1993 |
1994 |
1995 |
1996 |
1997 |
1998 |
1999 |
2000 |
2001 |
2002 |
2003 |
2004 |
2005 |
|
27 |
13 |
28 |
41 |
29 |
28 |
20 |
20 |
15 |
14 |
16 |
10 |
14 |
11 |
12 |
|
Miðvikudagur 12. apríl 2006 Ein
gömul: Bingó --
Jóhann G Möller og Eggert Theódórsson |
|
Miðvikudagur 12. apríl 2006
Brynja Baldursdóttir, myndlistakona
er 41 árs í dag
Kveðja frá vinum
|
|
Miðvikudagur 12. apríl 2006
Aníta Sara
er 10 ára í dag.
Hún er dóttir Sigga Sverris og Berglindar.
Bestu kveðjur frá fjölskyldunni
|
Miðvikudagur 12. apríl 2006
Svava Friðrika Guðmundsdóttir
er 57 ára í dag
Kveðja frá vinum&fjölskyldu |
|
Þriðjudagur 11. apríl 2006 Frá Foreldraráði Grunnskóla
Siglufjarðar:
FORELDRAVERÐLAUN 2006
Síðasta skiladegi tilnefninga frestað til 21. apríl TILGANGUR
FORELDRAVERÐLAUNANNA
Með þessari verðlaunaafhendingu vill Heimili og skóli vekja jákvæða
eftirtekt á grunnskólanum og því gróskumikla starfi sem þar fer fram og
stuðlar að öflugra samstarfi heimila og skóla. -- Meira um
foreldraverlaunin er að finna á
heimasíðu
heimili og skóla --- Ef foreldrar vilja koma ábendingum eða
athugasemdum til foreldraráðs er hægt að senda póst á netfangið
foreldrarad@sigloskoli.is |
|
Þriðjudagur 11. apríl 2006
Ferðaáætlun Ferðafélags Siglufjarðar 2006
Föstudagurinn langi 14. apríl. Gönguskíðaferð út á Súlur.
Leiðsögumaður verður Magnús Eiríksson. Mæting upp í Skarði upp við
lyftuhús kl. 12.00
Þjóðlagahátíð 5.- 9. júlí. -- Farin verður Skarðsganga í
samstarfi við Þjóðlagahátíð.
Helgina 28. - 30. júlí verður fjölskylduganga og gengið út að
rústum gömlu Evangersverksmiðjunnar.
Pæjumótshelgina 11. - 13 ágúst
13. ágúst verður gengið í Héðinsfjörð.
Nánari upplýsingar um ferðir félagsins má fá í síma 844-3855
og með því að senda póst á
arnar@siglo.is --- Athugið að
ferðir geta breyst án fyrirvara meðal annars vegna veðurs. -- Fylgist
því með á vefnum "Lífinu á Sigló". |
|
Þriðjudagur 11. apríl 2006
Hádegisveðurmynd og
hús dagsins eru HÉRNA |
|
Þriðjudagur
11. apríl 2006 Í gærdag kom
spegilfagur og skjannahvítur, nýjasta bátasmíði þeirra hjá
Siglufjarðarseig úr móti sínu. Mótið var skrúfað laust og
skrokkurinn hífaður upp.
Þarna er búið að fjarlægja bakborðshluta mótsins og þarna standa þeir
Sverrir Júlíusson, Guðni Sigtryggsson verkstæðisformaður og Stefán
Jóhannsson, ánægðir með verk sitt og þennan áfanga. |
|
Þriðjudagur
11. apríl 2006 Ég var í Vancouver um helgina og
rakst á einn ,,gamlan" Siglfirðing, Chris Bogan sem vann á
Síldarminjasafninu heima á Sigló en hann býr núna fyrir ofan vinafólk
mitt í Vancouver. Hann vildi endilega að ég sendi þér mynd af okkur til
að sýna hvað heimurinn er í raun lítill. -- Annars er hann góður
talsmaður Siglufjarðar, segir öllum sem á hann vilja hlusta hvað bærinn
sé frábær og fólkið þar líka.
Bestu kveðjur heim, Ásdís Jóna Sigurjónsdóttir |
Þriðjudagur
11. apríl 2006 Ein gömul: |
Þriðjudagur
11. apríl 2006
Ingvar Erlingsson
er 28. ára í dag |
Þriðjudagur
11. apríl 2006
Hilmar Erlingsson
er 28. ára í dag
Hann fær afmæliskveðjur frá litla bróður. |
Þriðjudagur
11. apríl 2006
Hermann Valdi Valbjörnsson
er 18 ára í dag |
Þriðjudagur
11. apríl 2006
Helgi Magnússon
er 65 ára í dag |
|
Þriðjudagur
11. apríl 2006
Oddný Þóra Kristjánsdóttir
er 22ja ára í dag
Afmæliskveðja frá fjölskyldunni |
Þriðjudagur 11. apríl 2006
María Lillý Ragnarsdóttir
er 8 ára í dag (foreldrar Raggi Hauks
og Ólöf Ásta) |
|
|
Mánudagur
10. apríl 2006
Hádegisveðurmynd og
hús dagsins eru HÉRNA |
|
Mánudagur
10. apríl 2006 Til skoðunar fyrir þá flokka eða hópa
sem áhuga hafa á að kynna sína frambjóðendur vegna næstu
sveitarstjórnakosninga á vefnum Lífið á Sigló, til dæmis fimm
efstu menn af hvorum lista. Æskilegt er að myndir fylgi ásamt einfaldri
kynningu á viðkomandi og áhugasviði á framgangi bæjarmála osfv.
Vinsamlega hafið samband í tölvupósti, og eða síma 892-1569.
Fyrirkomulag þessarar kynningar hefur ekki verið ákveðin, hver hópur /
flokkur gæti tildæmis fengið hver sína síðu með áberandi tengli,
en fyrirkomulag mun væntanlega taka mið af vilja frambjóðenda sjálfra
sem þátt vilja að taka í þessari hugmynd. Viðkomandi efni yrði ekki birt
fyrr en um viku fyrir kosningar. Frambjóðendur; komið með hugmynd.
Þetta gæti verið góð kynning fyrir viðkomandi, og ef til vill komið
einhverjum að gagni, af þeim 2000-3000 sem heimsækja daglega
vefinn Lífið á Sigló. Steingrímur. |
|
Mánudagur
10. apríl 2006
Sveinn Þorsteins var á aðalfundi Verkalýðsfélagsins Vöku í
gær og sendi mér þessar myndir.
|
Mánudagur
10. apríl 2006 Karlakór Siglufjarðar
æfir nú stíft fyrir tónleika sem haldnir verða laugardaginn fyrir Páska,
þessar myndir eru frá æfingu í dag. Dagskráin verður að vanda
fjölbreitt og skemmtileg.
Fleiri myndir >>>
 |
|
Mánudagur
10. apríl 2006 Hið besta skíðaveður
var um helgina á Skíðasvæðinu í Skarðsdal. Ég skrapp upp á svæðið smá
stund á gær til að skoða mannlífið, þó ekki á skíði þar sem þau eru ekki
mitt áhugamál. Það sást að vísu ekki til sólar þann stutta tíma
sem ég stoppaði, það vantaði þó ekki sólargeislana, en þeir sáust skína
úr hverju andliti sem fyrir augun bar og greinilegt að viðkomandi nutu
útverunnar. >>
Ég vil í leiðinni minna á vefmyndavél þeirra í fjallinu (tengill hér
efst: Skíða-myndavél)
Þó svo að myndavélin sé ekki af fullkomnustu gerð, má þó greinilega sjá
með henni þegar líf er á svæðinu, og fylgjast með brekkunum, og
andlitunum sem koma inn á svæðið. |
|
_small.jpg) Mánudagur
10. apríl 2006 Þó margir hafi farið á
Skíðasvæðið í Skarðsdal í gær, voru þó þrír drengir sem létu sér nægja
brekku niður frá Hafnargötunni, bjuggu þar til "loftköst" og renndu sér á
sleðum og tóku flugstökk. --- Nokkrar myndir frá athæfi þeirra er hérna
á tenglinum >>>
 |
|
Mánudagur
10. apríl 2006 "Lifandi " myndasyrpa frá afhendingum
Menningarsjóðs Sparisjóðs Siglufjarðar árin 2005 og 2006 er að finna
HÉR -- En þessar myndir eru á
"myndbandasvæði"
www.123.is/sksiglo
-Hægt er að hala syrpunni niður til persónulegrar nota, einnig
til einfaldrar skoðunar. En athugið; þetta eru tæp 40 MB svo það tekur
dálítinn tíma að sækja skrána sem best er að skoða með Windows Media
Player. |
|
Mánudagur 10. apríl 2006 Frá brunaæfingu 1984 --
Vídeóklippa send frá Kristni R Gunnarssyni
HÉR -- |
|
Mánudagur
10. apríl 2006 Ein gömul: Þessi mynd er frá
þeim gömlu góðu tímum þegar Siglfirðingar fylgdust vel með síldveiðunum,
raunar fjölmiðlarnir einnig. Annað en nú til dags þar sem mest spennandi
viðfangsefni margra þeirra eru hrakfarir annarra og peningastreymi
bankastofnanna, þaðan sem margir krakkar halda í dag að peningarnir
komi. Þessi mynd er af Siglfirðing SI 150, fyrsta Íslenska
skuttogaranum, sem stundaði togveiðar á vetrum en síldveiðar á sumrin. |
Mánudagur
10. apríl 2006
Jóhann Örn Guðbrandsson
er 22ja ára í dag |
|
Mánudagur
10. apríl 2006
Skarphéðinn Guðmundsson
er 60 ára í dag, hann verður heiman,
bestu kveðjur frá allri fjölskyldunni. |
Mánudagur 10. apríl 2006
Við á Suðurgötunni viljum senda Rúnari Marteinssyni
hjartanlegar afmæliskveðjur. -- Kv. Sigga, Vigfús Fannar og
Elísabet Alla |
|
Mánudagur
10. apríl 2006
Kristín Baldvinsdóttir
er 75 ára í dag |
Mánudagur
10. apríl 2006
Hannes Pétur Baldvinsson
er 75 ára í dag |
|
Mánudagur
10. apríl 2006
Jóhanna Kristinsdóttir
er 69 ára í dag
Til hamingju, stóri bróðir og Guðný |
Mánudagur
10. apríl 2006
Guðbjörg Friðriksdóttir
er 70 ára í dag
Til hamingju, Baddý og Guðný |
|
| Sunnudagur 9. apríl 2006
Hádegisveðurmynd og
hús dagsins eru HÉRNA |
|
Sunnudagur
9. apríl 2006 Sjálfstæðisflokkurinn:
Fyrsti framboðslistinn í hinu sameiginlega sveitarfélagi
Siglufjarðar og Ólafsfjarðar hefur verið ákveðinn
Listinn er HÉR |
|
Sunnudagur
9. apríl 2006 Sömu bjánalegu rökin og sömu hugsjónir
virðast enn ríða fjöllum hjá ákveðnum þingmönnum sjálfstæðisflokksins og
voru fyrir nokkrum áratugum, þegar á tímabili mátti halda að Vilhjálmur
Egilsson og vinur minn Kristján Möller væru samflokka. Því nú virðast
hinir yngri þingmenn Sjálfstæðisflokksins vera búnir að fá sömu
skinvilluna og fyrri flokksbræður, það er að breyta þurfi klukkunni til
að geta verið í návist fjölskyldunnar............... << Smelltu á
myndina til að lesa meira |
|
Sunnudagur
9. apríl 2006 Ein gömul: Hvaða unglingur og raunar
margir fullorðnir ætli að hafi ekki spreytt sig á köðlunum í
Rauðku krana eins og þarna og hjá SR krönunum á 5. og 6. áratugnum ? |
Sunnudagur
9. apríl 2006
Fanney Margrétardóttir
er 36 ára í dag.
Ástar kveðjur frá Steina, Birkir og Birgittu. |
|
|
Sunnudagur
9. apríl 2006
Gunnar Örn Óskarsson
er 10.ára í dag
Kær kveðja frá mömmu,
Óla , Elvu og Jóni Einari |
Sunnudagur
9. apríl 2006
Sverrir Júlíusson
er 41 árs í dag
Til hamingju gamli, SK |
|